Morgunblaðið - 16.11.2019, Síða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Sími 4 80 80 80
HANN ER KOMINN! 2020 GMC DENALI
Fyrsta sending í Evrópu af 2020 GMC var að lenda hjá okkur. Magnaðar breytingar, t.d.
10 gíra skipting og auto track millikassi. Hægt er að skoða og prufukeyra nú þegar.
Formleg frumsýning verður auglýst innan skamms.
2020 GMC DENALI
Camerarctica leikur á þriðju tón-
leikum Kammermúsíkklúbbsins á
þessu starfsári sem fram fara í
Norðurljósum Hörpu á morgun,
sunnudag, kl. 16. Camerarctica
skipa Hrafnhildur Árnadóttir Haf-
stað sópran, Ármann Helgason
klarínetta, Sigurður Halldórsson
selló og Aladár Rácz píanó. Á efnis-
skránni eru klarínettutríó í Es-dúr
op. 44 (1856) eftir Louise Farrenc,
Der Hirt auf dem Felsen eða Hjarð-
sveinninn á klettinum (1828) eftir
Franz Schubert og klarínettutríó í
a-moll op. 114 (1891) eftir Johannes
Brahms (1833-1897).
Í kynningarefni frá Camerarct-
ica kemur fram að Farrenc hafi á
sínum tíma notið mikils álits og
hylli í Frakklandi og víðar sem tón-
skáld, píanóleikari, tónlistarkenn-
ari og fræðikona, en hún var pró-
fessor í píanóleik við tónlistar-
háskóla Parísar í 30 ár. Verkið sem
flutt er eftir Schubert samdi hann
aðeins mánuði áður en hann lést.
Klarínettutríó Brahms tileinkaði
hann klarínettuleikaranum Rich-
ard Mühlfeld og samdi undir lok
ferils síns. Verkið var frumflutt
1891 með tónskáldið við píanóið.
Farrenc, Schubert og Brahms óma
Hæfileikafólk Aladár, Hrafnhildur,
Sigurður og Ármann skipa Camerarctica.
Blúsrokkdúettinn GG blús heldur tónleika
á veitingastaðnum Hard Rock Café við
Lækjargötu í dag kl. 22.
„Þeir Guðmundur Jónsson (gítar og
söngur) og Guðmundur Gunnlaugsson
(trommur og söngur) hafa getið sér gott
orð fyrir tónleika sína að undanförnu, þar
sem frumleg nálgun þeirra á margnotuðum
blúsrokk-minnum fær að njóta sín. Áttu
þeir t.d. afbragðs innkomu á Blúshátíð
Reykjavíkur fyrr á árinu og núna um dag-
inn á Airwaves. Þeir félagar munu leika
jöfnum höndum eigin ópusa af nýju plötunni sinni Punch, sem hefur hlotið
glimrandi dóma víðast hvar, og velvaldar blúsrokkábreiður genginna kyn-
slóða,“ segir í tilkynningu. Miðar eru seldir á tix.is og við innganginn.
GG blús með tónleika í kvöld
GG blús Guðmundur Jónsson og
Guðmundur Gunnlaugsson.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Verkið kallast LUCID (í hástöfum)
og er komið út á streymis- og vínyl-
formi. Smekkleysa gefur út. Um er
að ræða sveimbundið verk í fjórum
köflum og er það sprottið af list-
rænu samstarfi Þórönnu og Feder-
ico Placidi en vin-
átta og samstarf
þeirra hófst þegar
þau dvöldu í
vinnustofunni
CCMIX (Centre de
creation musicale
Iannis Xenakis) í
París árið 2007. Undirbúningur
verksins hófst á Íslandi þegar Þór-
anna og Federico ferðuðust um
landið og tóku upp hljóð ýmiss kon-
ar náttúrufyrirbæra. Síðan notuðu
þau stafræna og hliðræna hljóð-
tækni til að móta hljóðsafnið en
vinna einnig með mannsröddina,
undirbúið píanó, kontrabassa og
selló. Áhrif verksins eru tilfinn-
anleg; á stundum gárar það nánast
undir vitundinni, streymir fram
nánast án þess að maður taki eftir
því en smýgur svo af meiri krafti
inn í mann á völdum köflum. Stund-
um áleitið og hvasst, stundum eins
og tónarnir séu að strjúka þér.
Þóranna stundaði nám við
Konunglega listaháskólann í Haag í
Hollandi þar sem hún tengdi saman
hljóð- og myndlist en verk hennar
Hægt og hljótt …
Ljósmynd/Dagur Gunnarsson
taka á sig mynd í formi hljóðskúlp-
túra, gjörninga og hljóðverka. Hún
er hljóð-, tón- og myndlistarkona
og bindur trúss sitt ekki við eitt-
hvað eitt. Pistilritara gafst færi á
að setjast aðeins niður með lista-
konunni og byrjaði á að forvitnast
um starfshagi hennar. Hvort það
væri kostur að gera út frá Íslandi í
eins mikilli alþjóðavinnu og hún
ástundar?
„Ég tel mig lánsama að starfa
sem listamaður á Íslandi,“ svarar
hún. „Ég er vinna með listamönn-
um sem koma úr ólíkum áttum bæði
hér heima og erlendis en í náminu í
Hollandi var lögð áhersla á þver-
faglega nálgun í listsköpun, ég hef
haldið mig við það síðan. Mér finnst
listalífið á Íslandi vera í miklum
blóma. Listamenn hafa ákveðna
sérstöðu hér á landi og í raun ríkir
mikil friðsæld til listsköpunar þrátt
fyrir augljósa fjárþurrð á ýmsum
sviðum. Frelsið er mikið og mér
finnst þeir listamenn sem á Íslandi
hafa starfað, lifandi og látnir, statt
og stöðugt hafa sýnt fram á nauð-
syn þess að hér á landi sé listin lif-
andi afl, okkar allra vegna.“
Ljóst er að á undanförnum ár-
um hafa hérlendar konur verið í
forvígi í sköpun framsækinnar, á
köflum tormeltrar tónlistar, og til
grundvallar liggja t.a.m. verk eftir
Báru Gísla, Þórunni Lárusdóttur,
Kristínu Þóru Haraldsdóttur
o.s.frv. Þetta vekur óneitanlega
spurningar. Er tilraunageirinn
kvenvænni en aðrir geirar t.d.? Eru
aðstæður til sköpunar á þeim vett-
vangi betri en í rappi eða rokki?
„Konur hafa þurft að berjast
fyrir því í gegnum tíðina að vera
uppi á palli með karlkyns kollegum
sínum eða við skulum segja fá þá
niður á gólf,“ svarar Þóranna glett-
in. „Umfjöllun um listsköpun
kvenna hefur ekkert að gera með
hvort verkin hafi verið jafngóð eða
betri. Í dag deila konur og karlar
gólfinu og á þessu gólfi eru flestir
að dansa. Enn þá vilja einhverjir
setjast á pallinn en hver vill tróna
einmana yfir með úreltar skoðanir?
Ég er kona sem tjáir hugmyndir
sínar á ýmsan máta; leyfi hug-
myndum að móta efnistökin eftir
því sem mér finnst viðeigandi
hverju sinni. Mér finnst mjög mik-
ilvægt að vinna með öðrum, konum
og körlum, og er samhljómur í sam-
starfi dýrmætt afl, umbreytandi
samtal.“
» Áhrif verksinseru tilfinnanleg …
Stundum áleitið og
hvasst, stundum eins
og tónarnir séu að
strjúka þér.
Fyrir stuttu kom út
klukkustundar langt
hljóð- og tónverk eftir
þau Þórönnu Dögg
Björnsdóttur og Fede-
rico Placidi. Þóranna á
giska langan listaferil
að baki og hefur sterka
sýn á eðli sinnar vinnu
eins og pistilhöfundur
komst að.
Listakona Þóranna
Dögg Björnsdóttir
starfar á mörkum tón-,
hljóð- og myndlistar.
Nýr strengja-
kvartett Önnu
Þorvaldsdóttur
tónskálds, sem
nefnist
„Enigma“, var á
dögunum frum-
fluttur af Spek-
tral-kvart-
ettinum í
Washington-
borg. Hefur
verkið hlotið mikið lof, meðal ann-
ars í gagnrýni í Washington Post
þar sem rýnirinn Anne Midgette
segir verkið „dásamlegt“ og „ólíkt
öllum öðrum strengjakvartettum“.
Verkið er auk flutnings hljóðfæra-
leikaranna samið fyrir vídeólista-
manninn Sigurð Guðjónsson, sem
vinnur reglulega með Önnu. Er
kvartettinn fyrir vikið sagður sitja
á mörkum tónlistar til sviðsflutn-
ings og innsetningarlistar.
Midgette segir „Enigma“ vera
tónlist fyrir hugleiðslu, síður knúna
af línum en einstökum hljóðrænum
uppákomum, og vinni með og safni
saman hljóðum sem hafi lítið að
gera með hefðbundnar aðferðir í
vestrænni klassískri tónlist. Og tón-
skáldið „ skapar litla heima fyrir
eyrað að tylla sér í, síður en
tónlistarlegar frásagnir“.
Spektral-kvartettinn mun á næst-
unni flytja verk Önnu, með mynd-
bandsverki Sigurðar, víða í Banda-
ríkjunum,
Lofar kvartett
Önnu Þorvalds
Anna
Þorvaldsdóttir
Á nýrri sýningu sem opnuð verður í
Listasafni Árnesinga í dag, laugar-
dag, klukkan 15 má sjá hvernig
myndlistarmennirnir Hildur Há-
konardóttir og Eva Bjarnadóttir og
tónskáldið Elín Gunnlaugsdóttir
vinna með hugmyndafræði banda-
ríska rithöfundarins og hugsuðar-
ins H.D. Thoreau sem kynnt er í
hinni víðfrægu bók hans Walden:
Lífið í skóginum. Bókin byggist á
hans eigin reynslu þegar hann yfir-
gaf siðmenningu borgarsamfélags-
ins og flutti einn inn í skóg við
bakka Walden-tjarnarinnar í
Massachusetts-ríki Bandaríkjanna.
Hildur, Elín og Eva hafa hver fyrir
sig unnið verk sem eiga uppsprettu
sína í bókinni og í sýningarstjórn
Ingu Jónsdóttur mynda verkin inn-
setningu sem vekur hugrenningar
og tengsl við viðfangsefni sem er-
indi eiga við samtímann.
Tilvist og Thoreau á sýningu í L.Á.
Listakonurnar Hildur Hákonar-
dóttir, Elín Gunnlaugsdóttir og Eva
Bjarnadóttir, höfundar verkanna.
Wave eftir Genki Instruments
hreppti Hönnunarverðlaun Íslands
2019 en þau voru afhent við hátíð-
lega athöfn í Iðnó á fimmtudags-
kvöldið. Við það tilefni hlaut Om-
nom jafnframt viðurkenningu
fyrir bestu fjárfestingu í hönnun
og Manfreð Vilhjálmsson arkitekt
hlaut heiðursverðlaun.
Wave-hringurinn er hannaður
til að auka upplifun og túlkun í
tónlist. Hann er framsækin tækni-
lausn sem eykur möguleika tón-
listarmanna til sköpunar á þægi-
legan og notendavænan hátt.
Teymið á bak við Genki er skipað
þeim Ólafi Bogasyni, Haraldi Þóri
Hugossyni, Jóni Helga Hólmgeirs-
syni, Þorleifi Gunnari Gíslasyni og
Daníel Grétarssyni.
Genki Instruments hreppti verðlaunin
Verðlaunahafar Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir ráðherra og aðstand-
endur Genki Instruments á sviðinu.