Morgunblaðið - 29.11.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
SVARTUR
FÖSTUDAGUR
30%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
VÖRUM ALLA HELGINA
KÓÐI Í VEFVERSLUN:
SVARTUR
SMÁRATORGI KRINGLAN GLERÁRTORGI LINDESIGN.IS
Mikil óánægja ríkir meðal borgarfull-
trúa sjálfstæðismanna í umhverfis-
og heilbrigðisráði eftir fund ráðsins
um loftgæði sem haldin var sl. mið-
vikudag en flokkurinn sakar meiri-
hluta borgarstjórnar um að hunsa til-
lögu flokksins um aðgerðaráætlun í
loftgæðamálum. Gerðu fulltrúar
Sjálfstæðisflokks ásamt fulltrúum
Miðflokksins athugasemd undir
fundarsköpum þess efnis og sökuðu
Líf Magneudóttir, formann ráðsins
um fundarofbeldi. Er hún þar jafn-
framt gagnrýnd fyrir að hafa farið til
fjölmiðla með tillögu um að takmarka
umferð ökutækja. Er þar vísað í frétt
Ríkisútvarpsins sem greindi frá því á
mánudag að borgaryfirvöld í Reykja-
vík hygðust nota
heimild til að tak-
marka eða banna
umferð tímabund-
ið til að draga úr
svifryksmengun.
Egill Þór Jóns-
son, borgar-
fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins,
staðfestir afstöðu
flokksins í samtali
við Morgunblaðið. Segir hann tillögu
Sjálfstæðisflokksins vera skynsam-
legan kost en hún snýr m.a. að ryk-
bindingu, að frítt verði í strætó og
takmörkun á þungaflutningum á
„gráum dögum“, nýtingu affallsvatns
og að unnið sé gegn dreifingu byggð-
ar.
Banna, takmarka og þvinga
„Það er alltaf stokkið á það strax
að ætla að banna, takmarka og
þvinga. Það fer ekki vel í okkur. Við
sjálfstæðismenn munum aldrei sam-
þykkja þessar þvingunaraðgerðir
sem meirihlutinn virðist vera spennt-
ur fyrir, nema upp væri komið neyð-
arástand,“ segir hann.
„Við getum ekki tekið undir þetta
og þess vegna lögðum við fram okkar
tillögu sem er mjög raunhæf og heil-
brigð. En hún hefur aldrei fengið efn-
islega meðferð í þessu ráði,“ segir
Egill. rosa@mbl.is
Samþykkja ekki þvingunar-
aðgerðir vegna mengunar
Sjálfstæðismenn ósáttir eftir fund borgarinnar um loftgæði
Egill Þór
Jónsson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ætla má að fólk frá um 1.000 heim-
ilum leiti aðstoðar Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur á aðventunni.
Það er meira en verið hefur und-
anfarin ár, enda hefur þeim sem
hafa þurft hjálp hjá nefndinni fjölg-
að allt þetta ár. „Þegar harðnar á
dalnum og fyrirtækin fara að segja
upp fólki fjölgar þeim sem þurfa
hjálp,“ segir Anna H. Pétursdóttir,
formaður nefndarinnar, í samtali við
Morgunblaðið.
„Við erum með vikulegar matar-
úthlutanir og núna eru að koma um
350-400 heimili á viku. Í fyrra var
þetta um hundraðinu færra. Við
finnum mjög fyrir því að staða fólks
að minnsta kosti í ákveðnum hópum
er að þrengjast. Íslendingar eru í
meirihluta þeirra sem til okkar
koma, en fólki sem á rætur sínar í
öðrum löndumer þó nokkuð stór
hópur skjólstæðinga hér, enda hefur
það margt hvert fyrir löngu fest
rætur hér á landi,“ segir Anna. Og
til að geta veitt öðrum bjargir leita
konurnar í Mæðrastyrksnefnd hóf-
anna um atfylgi til starfs síns bæði
hjá almenningi og fyrirtækjum –
sem eru flest hver fús að leggja lið.
Það þarf líka talsvert til, því jólaað-
stoðin er verkefni sem kostar nefnd-
ina minnst 30 milljónir króna.
Höfðu samband í október
Til þess að njóta aðstoðar Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur þurfa
umsækjendur að skila inn upplýs-
ingum um fjárhagslega stöðu sína,
það er skattframtali og launaseðlum.
Sýni þau gögn að tekjur fólks séu
undir ákveðnum mörkum fær fólk
aðstoðina og sækir til afgreiðslu
nefndarinnar sem er í Hátúni 12a í
Reykjavík.
Hjá Fjölskylduhjálp Íslands verð-
ur auglýstur umsóknardagur um að-
stoð fyrir jólin í kringum 10. desem-
ber. „Við finnum að neyðin er víða
mikil, strax í október byrjaði fólk að
hafa samband við okkur og leita
upplýsinga um hvernig aðstoð yrði
háttað,“ segir Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir formaður. Hún reiknar með
að ríflega 2.000 heimilum verði veitt
aðstoð fyrir jólin og skiptingin hefur
gjarnan verið sú að 2/3 skjólstæð-
inga eru í höfuðborgarsvæðinu og
koma þá í afgreiðslu Fjölskyldu-
hjálparinnar við Iðufell í Reykjavík.
Hinn hópurinn er í Reykjanesbæ.
Sú verkaskipting gildir að Hjálp-
ræðisherinn í Reykjavík veitir að-
stoð til fólks sem er eitt á báti og svo
barnlauss sambýlisfólks. „Þetta er
hópur sem stendur oft mjög illa.
Fólk sem er með lágmarkslaun eða
-bætur og hefur kannski ekki nema
50 þúsund krónur á mánuði til að lifa
af,“ segir Hjördís Kristinsdóttir
flokksforingi. Fyrir jólin í fyrra að-
stoðaði herinn um 200 manns og
reiknað með að fjöldinn í ár verði
svipaður.
Fjölskyldur fá inneign
Hjá Hjálparstarfi kirkjunnar eru
efnalitlar fjölskyldur í forgangi
þeirra sem njóta aðstoðar, sem felst
í inneignarkortunum í verslunum.
Alls nutu 1.274 fjölskyldur eða um
3.400 manns um land allt aðstoðar
kirkjunnar fyrir síðustu jól. „Miðað
við viðtöl og umsóknir höfum við þá
tilfinningu að fjöldinn fyrir þessi jól
verði svipaður í ár og í fyrra,“ segir
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri
Þúsundir heimila leita aðstoðar
Skjólstæðingum hjálparsamtaka fjölgar Harðnar á dalnum í efnahagslífinu Mikilvægar
matargjafir Jólaúthlutun kostar Mæðrastyrksnefnd 30 milljónir króna Neyðin er víða mikil
Morgunblaðið/RAX
Mæðrastyrksnefnd Staðan þreng-
ist, segir Anna G. Pétursdóttir.
Fimm bæjarfulltrúar af sjö í Grinda-
víkur ákváðu í gær að draga til baka
launahækkanir sér til handa sem
samþykktar voru í bæjarstjórn sl.
þriðjudag. Þær gerðu ráð fyrir að
jafnaði 20-24% hækkun grunnlauna
bæjarfulltrúa, sem hefðu farið úr um
180 þús. kr. í 220 þús. kr. á mánuði.
Það voru bæjarfulltrúar Framsókn-
arflokks og Sjálfstæðisflokksins sem
mynda meirihluta í bæjarstjórn – svo
og fulltrúi Samfylkingar – sem þetta
ákváðu. Áður hafði bæjarfulltrúi Mið-
flokksins gagnrýnt hækkanirnar.
Árið 2010 voru laun bæjarfulltrúa í
Grindavík lækkuð til að bregðast við
stöðu bæjarsjóðs sem þá var þröng,
segir Sigurður Óli Þórleifsson, bæj-
arfulltrúi Framsóknarflokksins og
forseti bæjarstjórnar. Síðan þá hafa
launin aðeins hækkað skv. vísitölu og
segir Sigurður að fólk hafi litið svo á
að nú skyldi bætt úr svo Grindavík-
urbær yrði á svipuðu róli og sveit-
arfélög af svipaðri stærð. „Við feng-
um ýmsar athugasemdir. Samtal við
fulltrúa Samtaka atvinnulífsins sann-
færði okkur um að rétt væri að snúa
ákvörðuninni frá því á þriðjudaginn
við eins og gert verður á næsta fundi
bæjarstjórnar. Að hækka ekki teljum
við styðja við markmið lífskjarasamn-
ingsins,“ segir Sigurður Óli.
sbs@mbl.is
Hætta við
hækkun
launanna
Bæjarfulltrúar í
Grindavík bökkuðu
Tveir ernir hafa síðustu daga kannað aðstæður
við Mývatn og halda sig gjarnan við svonefndan
Garðsvog og sitja þar á klettum. Ernir eru sjald-
séðir við Mývatn, en bregður stundum fyrir á
haustin. Nokkrar húsendur syntu á vatninu
skammt frá örnunum í gær en stungu sér á kaf
snarlega þegar konungur fuglanna tók lágflug.
Brunagaddur hefur verið nyrðra að undanförnu.
Ferðamenn eru flestir farnir en verið er að búa í
haginn með gerð göngustígs frá Reykjahlíð að
Dimmuborgum sem er fjölsóttur ferðamanna-
staður.
Konungur fuglanna kannar aðstæður í brunagaddi
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Haförninn heldur sig á klettum við Mývatn