Morgunblaðið - 29.11.2019, Síða 100
100 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
enda á EM innanhúss í San Sebast-
ian árið 1977 þegar Hreinn Hall-
dórsson varð Evrópumeistari í
kúluvarpi. Kratochvílová hljóp þá á
53,95 sekúndum. Hún var 29 ára þeg-
ar Ólympíuleikarnir fóru fram í
Moskvu og þar fékk hún silfur-
verðlaun í 400 metra hlaupi. Eru það
einu ólympíuverðlaun hennar en
væntanlega hefði hún verið í barátt-
unni á leikunum árið 1984 í Los Ang-
eles. Tékkar sniðgengu hins vegar
leikana af pólitískum ástæðum eins
og fleiri kommúnistaríki.
Vangaveltur um lyfjanotkun
Eins og ljósmyndir sýna glögglega
var Kratochvílová líkamlega sterk og
vöðvamassinn meiri en yfirleitt geng-
ur og gerist hjá 800 metra hlaup-
urum. Í gegnum tíðina hefur verið
rætt og ritað um mögulegt lyfjamis-
ferli í hennar tilfelli, meðal annars
vegna líkamlega styrksins en einnig
vegna þess hversu seint hún sprakk
út sem hlaupari. Kratochvílová féll
aldrei á lyfjaprófi en lyfjaprófin voru
fátíðari og frumstæðari á þeim tíma.
Þar sem skipulagt lyfjamisferli í
Sovétríkjunum og Austur-Þýska-
landi hefur verið til umfjöllunar í
gegnum tíðina þurfa aðrar Austur-
Evrópuþjóðir að búa við það að fólk
dragi þær ályktanir að þar hafi
vinnubrögðin verið svipuð.
Sjálf hefur Kratochvílová ávallt
neitað því að hafa notað lyf sem eru á
bannlista til að bæta árangur sinn.
Reis hún upp á afturlappirnar og
mótmælti harðlega þegar umræða
um að strika öll heimsmet út sem sett
voru fyrir 2005 fór á flug. Málflutn-
ingur hennar hefur gengið út á að hún
hafi lagt afar hart að sér og tekið inn
mikið magn af B12-vítamíni. Þjálfari
hennar til tveggja áratuga, Miroslav
Kvac, tók iðulega í sama streng.
Fór út í þjálfun
Þegar ferlinum sleppti fór sú tékk-
neska sjálf út í þjálfun. Hefur hún
þjálfað í frjálsum íþróttum og verið
hluti af þjálfarateymi tékkneska
landsliðsins. Hversu lengi glæsilegt
met hennar mun standa er erfitt að
segja til um en það virðist ekki bein-
línis vera í hættu.
Ummæli hinnar rússnesku Svet-
lönu Masterkovu, ólympíumeistara í
800 metra hlaupi árið 1996, um metið
eru athyglisverð. „Það á ekki að vera
hægt fyrir konu að hlaupa svo hratt.
Metið mun standa í 100 ár.“
AP
Yfirburðir Jarmila Kratochvílóvá, heimsmethafi í 800 m hlaupi kvenna, kemur langfyrst í mark, einu sinni sem oftar.
Mun heimsmetið hjá
Jarmilu standa í 100 ár?
Spádómurinn frá 1996 gæti ræst en enginn hefur ógnað alvarlega metinu hjá
Jarmilu Kratochvílóvu í 800 metra hlaupi í 36 ár Setti tvö heimsmet 32 ára
Sögustund
» Í þessum dagskrárlið hefur
áður verið fjallað um John Daly,
Wayne Gretzky, Mike Powell,
Mark Spitz, Nadiu Comaneci,
Hermann Maier, Önu Fideliu
Quirot, Ben Johnson, Charles
Austin, Alberto Juantorena,
Helmuth Duckadam, Matti Nyk-
änen, Jack Nicklaus, Heysel-
harmleikinn, Ben Crenshaw,
David Beckham, Milfred „Babe“
Didrikson, knattspyrnulandslið
N-Kóreu 1966 og Alsírs 1982,
Eddie Eagan, Roberto Cle-
mente, Larisu Latininu og
Tórínó-flugslysið.
Ljósmynd/Jan Bartos
Þjálfari Jarmila Kratochvílóvá hefur starfað sem frjálsíþróttaþjálfari á
heimaslóðum síðan hún hætti keppni. Hún er 68 ára gömul í dag.
SÖGUSTUND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Líftími meta í íþróttunum er mjög
mismunandi. Vilhjálmur Einarsson
átti til að mynda ólympíumet í aðeins
tvær klukkustundir árið 1956. Á hinn
bóginn geta met staðið í áratugi.
Elsta núgildandi heimsmet í frjálsum
íþróttum hefur nú staðið síðan 1983,
eða í þrjátíu og sex ár. Metið stendur
í grein Anítu Hinriksdóttur, 800
metra hlaupi.
Methafinn er Tékki, Jarmila Krat-
ochvílóvá, og keppti fyrir Tékkóslóv-
akíu sálugu. Kratochvílóvá er magn-
aður afreksmaður því hún skaraði
fram úr bæði í 400 metra hlaupi og
800 metra. Ekki er hlaupið að því
þótt hlauparar kunni að vera fram-
úrskarandi í annarri hvorri vega-
lengdinni. Munurinn á þessum grein-
um er meiri en hinn almenni
áhugamaður getur gert sér fyllilega
grein fyrir.
Gull í tveimur greinum
Árið 1983 var ár Kratochvílóvu, en
það sumarið setti hún heimsmet í
báðum greinum. Hinn 26. júlí 1983
setti hún heimsmetið í 800 metra
hlaupi á móti í München. Tíminn var
undraverður: 1:53,28 mínútur. Fyrri
hringinn hljóp hún á 56,1 sekúndu, en
hraðanum í fyrri hluta hlaupsins var
haldið uppi af hinni þýsku Petru
Kleinbrahm. Á síðari hringnum áttu
keppinautarnir ekki nokkra mögu-
leika og Jolanta Januchta frá Pól-
landi, sem hafnaði í 2. sæti, var heil-
um sjö sekúndum á eftir.
Kratochvílóva lét ekki þar við sitja
sumarið 1983 og nældi í gullverðlaun
í 800 og 400 metrunum á HM í Hels-
inki síðar um sumarið. Slíkt hafði
aldrei gerst áður á HM. Er ekki öll
sagan sögð því á HM setti sú tékk-
neska heimsmet í 400 metra hlaupinu
á tímanum 47,99 sekúndum. Stóð það
met í tvö ár. Kratochvílóva stal sen-
unni á HM 1983, en á þeim tíma voru
miklar kempur að hefja sína vegferð:
Sergey Bubka og Carl Lewis. Þegar
hún sigraði í 800 metrunum hafði hún
lokið við undanúrslitin í 400 metr-
unum aðeins hálftíma fyrr. Þrátt fyr-
ir það var tíminn frábær í 800 metr-
unum og síðustu 200 metrana hljóp
hún á 27,3 sekúndum. Var það betri
endasprettur en hjá þremur hlaup-
urum í úrslitum 800 metra hlaups
karla.
Ef við skoðum tímann í 800 metr-
unum í München, sem enn stendur
óhaggaður sem heimsmet, hefur eng-
in farið undir 1:54 mínútur síðan
Kratochvílová gerði það. Metið á
undan henni átti Nadezhda Oliz-
arenko frá Sovétríkjunum, en hún
hljóp á 1:53,43 mínútum árið 1980.
Pamela Jelimo frá Kenía hljóp á
1:54,01 árið 2008 og hin umtalaða
Caster Semenya frá Suður-Afríku á
best 1:54,25. Íslandsmet Anítu Hin-
riksdóttur frá Ólympíuleikunum í
Ríó er 2:00,14 mínútur.
Blómstraði seint á brautinni
Jarmila Kratochvílová fæddist
hinn 26. janúar árið 1951 í litlum bæ,
Golèùv Jeníkov, en íbúafjöldi þar er
svipaður og á Egilsstöðum. Krat-
ochvílová fékk vafalítið ágætt
íþróttauppeldi en hún er þó þekkt
fyrir að hafa blómstrað seint á
hlaupabrautinni, í það minnsta þegar
horft er til þess hvenær henni tókst
að slá þeim bestu við.
Hún varð orðin 32 ára þegar hún
setti heimsmetin sem um ræðir og
hafði ekki farið sekúndur í 400 metr-
unum fyrr en hún varð orðin 27 ára.
Hún var sem dæmi á meðal kepp-
Valdís Þóra Jónsdóttir er í erfiðri
stöðu eftir fyrsta hringinn á
Andalúsíumótinu í golfi á Costa del
Sol á Spáni en mótið er það næstsíð-
asta á Evrópumótaröðinni í ár. Valdís
lék hringinn á 78 höggum, sex yfir
pari, og er í 86. sæti af 96 kepp-
endum. Hún þarf á góðum árangri að
halda til að vinna sér fast sæti á móta-
röðinni fyrir næsta tímabil en fyrir
þetta mót er hún í 82. sæti á stigalista
mótaraðarinnar. Sjötíu bestu fá örugg-
an keppnisrétt.
Framarar fengu
í gær góðan liðs-
auka fyrir keppn-
ina í 1. deild karla í
fótbolta á næsta
tímabili þegar
sóknarmaðurinn
Þórir Guðjónsson
kom til þeirra frá
Breiðabliki og
miðjumaðurinn Albert Hafsteinsson
frá ÍA. Þórir er 28 ára gamall, uppalinn
hjá Fram en hefur leikið með Val og
Fjölni í meistaraflokki og er marka-
hæstur í sögu Fjölnis í efstu deild með
31 mark. Hann gerði eitt mark í sex
leikjum fyrir Breiðablik í deildinni í ár.
Albert er 23 ára og hefur leikið allan
sinn feril með ÍA, alls 74 leiki í efstu
deild og 15 þeirra á síðasta tímabili.
Rhein-Neckar Löwen, lið Alexand-
ers Peterssonar og Kristjáns Andr-
éssonar þjálfara, verður í riðli með Cu-
enca frá Spáni, Nimes frá Frakklandi
og Holstebro frá Danmörku í sextán
liða úrslitum EHF-bikars karla í hand-
knattleik en dregið var í riðlana í gær.
Þráinn Orri Jónsson og samherjar í
danska liðinu Bjerringbro/Silkeborg
verða í riðli með Melsungen frá Þýska-
landi, Gwardia Opole frá Póllandi og
Benfica frá Portúgal.
LeBron James varð í fyrrinótt fjórði
leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar í
körfuknattleik til að skora 33 þúsund
stig í deildinni. Hann skoraði 29 stig
og gaf 11 stoðsendingar þegar Lakers
vann New Orleans Pelicans, 114:110. Á
undan honum á
stigalistanum eru
Kareem Abdul-
Jabbar
(38.387),
Karl Mal-
one
(36.928) og Kobe
Bryant (33.643).
Annars var Ant-
hony Davis í mikl-
um ham með Lak-
ers og skoraði 41
stig í leiknum.
Eitt
ogannað
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
TM-höllin: Stjarnan – ÍBV .................. 18.15
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
TM-höllin: Stjarnan – ÍBV .................. 20.15
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Ásvellir: Haukar U – Víkingur............ 19.15
Höllin Ak.: Þór Ak. – Þróttur .............. 19.30
Origo-höllin: Valur U – KA U.............. 19.30
Hertz-höllin: Grótta – FH U .................... 20
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höllin: Grótta – FH ........................ 18
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Blue-höllin: Keflavík – Fjölnir ............ 18.30
MG-höllin: Stjarnan – KR ................... 20.15
1. deild karla:
Hveragerði: Hamar – Sindri ............... 19.15
Vallaskóli: Selfoss – Breiðablik........... 19.15
Ísafjörður: Vestri – Snæfell................. 19.15
Í KVÖLD!