Morgunblaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 110
110 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
Böðvar Páll Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
Málleysingjarnir er fyrsta skáldsaga
Pedro Gunnlaugs Garcia. Bókin er
viðamikil og óvenjuleg en í henni
fléttast saman ólíkar sögur fólks og
greinilegt að mikil vinna hefur verið
lögð í bókina. Sagan gerist að hluta til
í Rúmeníu undir lok síðustu aldar en
einnig hér á landi á fyrstu tveimur
áratugum þessarar aldar.
„Það sem fyrir mér er stórt þema í
bókinni er að leiða í ljós erfiðleika
fólks við að tengjast öðrum og tjá sig.
Þetta er að miklu leyti fólk sem ber
mikla hlýju til annarra en hún er læst
inni og þau finna enga leið til þess að
tjá hana,“ segir Pedro.
Pedro segir titil bókarinnar vera
nokkuð lýsandi fyrir söguna. „Þetta
er orð sem haft um dýrin oft og í bók-
inni eru málleysingjar af ýmsum
toga. Það eru börn með málþroska-
röskun og fólk sem getur illa tjáð sig.
Undirliggjandi meiningin er líka sú
að fólk getur tjáð sig og talað en ef
það sem mestu máli skiptir fær aldrei
að koma fram er það oft ekki til mik-
ils. Það má sín lítils að geta tjáð sig ef
þú getur ekki tjáð það sem í hjarta
býr, ef þú getur ekki sagt einhverjum
hvað þér þyki vænt um hann.“
Skrifaði hvorki né las í áratug
Eins og áður sagði hefur mikil
vinna verið lögð í bókina. „Ég hafði
áður fyrr alltaf verið að skrifa og átti
ótal stílabækur sem voru fullar af
ljóðum, smásögum og tvö drög af
skáldsögum. En svo þegar ég var 19
ára ákvað ég að brenna þetta allt og
snúa baki við allri svona vinnu. Ég
skrifaði ekki neitt og las varla milli
tvítugs og þrítugs.
Þá greip mig sterk tilfinning um að
ég væri að sóa lífi mínu ef ég fengist
ekki við þetta. Ég fann að þetta var
eitthvað sem mig vantaði og ég fengi
enga fullnægju í öðru, sama hvað það
var. Ég fór þá að velta fyrir mér hvað
ég myndi gera ef ég fengi tækifæri til
að gera eina bók. Ég lagðist í undir-
búningsvinnu í svona ár áður en ég
setti staf á blað.
Ég ferðaðist til Rúmeníu og reyndi
að læra tungumálið og safnaði mér
alls kyns hugmyndum af fólki, per-
sónum og atvikum; dramatískum og
fyndnum. Ég ákvað að taka svolítinn
séns með formið; að hafa hana þrí-
skipta þar sem fyrsti hluti fjallaði um
eitt sett af karakterum og annar hluti
annað sett af karakterum og í þriðja
hluta myndu örlög þeirra fléttast
saman. Mig langaði að taka einhverja
áhættu með stílinn; bregða út af van-
anum og tefla fram einhverju óvenju-
legu.“
Pedro bjó fyrstu ár ævi sinnar í
Portúgal. „Mig langaði að hluti sög-
unnar myndi ekki gerast á Íslandi.
Ég er sjálfur bæði Íslendingur og
svolítið annað og kaus að notast við
annað land líka,“ segir Pedro og
kveðst ekki viljað hafa haft sögusviðið
í Portúgal, það hefði honum fundist of
sjálfhverft. „Ég notaði því annað land
sem staðgengil þessa annarsleika.“
Árið 2017 fékk Pedro nýræktar-
styrk Miðstöðvar íslenskra bók-
mennta. „Það var mikil blessun og
bölvun á sama tíma. Blessun að því
leyti að það rættist ekki það sem ég
hafði búist við, að ég þyrfti að senda
handritið út um allt og fá neitanir og
engin svör, heldur höfðu forlög sam-
band að fyrra bragði sem var nátt-
úrulega draumur. Þetta var bölvun
að því leyti að ég hélt að ég hefði hitt
beint í mark við fyrstu tilraun og
þetta væri tilbúið til útgáfu. Maður
fær lofsamlega umsögn og heldur að
þetta sé eintóm snilld.
Svo eignast ég barn og næ ekki að
sinna handritinu í kannski hálft ár.
Þegar ég kem aftur að því sé ég að
það er alveg stórkostlega gallað og þá
tekur við vinna í eitt og hálft ár í við-
bót við að styrkja það og koma það í
þetta horf sem það er í núna. Ég er
mjög þakklátur fyrir að verkið hafi
ekki komið út fyrr en núna því það er
eins gott og það getur orðið.“
Morgunblaðið/Hari
Skáldskapur „Það má sín lítils að geta tjáð sig ef þú getur ekki tjáð það sem
í hjarta býr,“ segir Pedro Gunnlaugur Garcia um bók sína Málleysingja.
Flétta af ólíkum sögum
Skáldsaga um erfiðleika fólks við að tjá sig
Höfundur dvaldist í Rúmeníu í undirbúningi fyrir bókina
Landsliðsfyrirliðinn SaraBjörk Gunnarsdóttirverður þrítug í lokseptember á næsta ári.
Þrátt fyrir ekki hærri aldur hefur
Hafnfirðingurinn leikið 129 A-
landsleiki fyrir Ísland í knattspyrnu
og verður á næsta
ári að öllum lík-
indum leikja-
hæsta landsliðs-
konan frá
upphafi. Þar fyrir
situr nú Katrín
Jónsdóttir, sem
lék 133 landsleiki
á glæstum ferli.
Sara fer yfir fót-
boltaferilinn í
bókinni Óstöðvandi, allt frá ákveðnu
og tapsáru Haukastelpunni á Pæju-
mótinu til þeirrar sem er lykilmaður
í einu af bestu liðum Evrópu og virð-
ist nánast óstöðvandi.
Það er á engan hallað þegar sagt
er að ferill Söru er með þeim glæsi-
legri. Hefur einhver íslenskur bolta-
sparkari náð meiri frama en hún á
21. öldinni? Spurningin fer ekki
lengra aftur til að stugga ekki við
gömlum skörfum. Sara er að hefja
fjórða tímabil sitt með Wolfsburg í
gríðarsterkri þýsku knattspyrnunni,
en liðið hefur unnið deild og bikar öll
tímabil Söru. Einungis vantar að
vinna Meistaradeild Evrópu til að
fullkomna verkið. Það munaði líka
svo litlu í úrslitaleiknum á síðasta
ári, eins og Sara fjallar sjálf um í
bókinni, þegar Wolfsburg tapaði fyr-
ir Lyon eftir framlengdan úrslita-
leik.
Sara lýsir því hvernig hún hafi frá
því hún byrjaði að æfa fótbolta alltaf
viljað vinna. „Ég hef alla tíð verið
ótrúlega tapsár og þegar ég var
yngri átti ég stundum erfitt með að
hemja keppnisskapið,“ skrifar Sara í
upphafi bókarinnar.
Tæpu einu og hálfu ári eftir að
Sara fór í aðgerð vegna kross-
bandaslita var hún í fyrsta skipti val-
in í A-landsliðshópinn. Hún kom inn
á í nokkrar mínútur 26. ágúst 2007,
rúmum mánuði fyrir 17 ára afmælið,
í 2:1-tapi gegn Slóvenum. Tapið var
óvænt og sagðist Sara aldrei áður
hafa upplifað jafn miklar tilfinningar
í búningsklefanum eftir tapleik.
Hlutum var fleygt um klefann og
leikmenn öskruðu að svona lélegan
leik myndu þær aldrei spila aftur.
Unglingnum úr Hafnarfirði fannst
hún eiga heima þarna, í liði þar sem
viljinn til að vinna var takmarkalaus.
Óþarfi er að fara nánar yfir sög-
una ár frá ári, til þess er jú bókin.
Ferill Söru hefur bara legið upp á
við, frá því að spila með Haukum í
næstefstu deild hér á landi, í Breiða-
blik í efstu deildinni, til Malmö/
Rosengard þar sem hún varð loksins
landsmeistari til eins af bestu liðum í
Evrópu þar sem lið hennar, Wolfs-
burg, hefur verið óstöðvandi.
Bókin fjallar ekki eingöngu um
boltasparkið heldur líka lífið utan
vallarins, þar sem ljóst er að Sara á
góða fjölskyldu sem hefur stutt vel
við bakið á henni.
Tvennt annað vakti athygli mína
við lesturinn. Annars vegar var það
þegar Sara viðurkenndi að hafa tek-
ið þátt í að leggja skólasystur sína í
grunnskóla í einelti. Einhverjum
hluta af mér þykir merkilegt að stór-
stjarna eins og Sara er fegri ekki
sannleikann og er það vel gert af
henni að viðurkenna þetta, sem og
ræða við viðkomandi stelpu eins og
hún gerði.
Hins vegar vakti athygli mína
þegar Sara ræddi eigin andlegu van-
líðan og það þegar hún leitaði að-
stoðar sálfræðings. Vanlíðanin virð-
ist hafa leitað upp á yfirborðið í
kjölfar sambandsslita en Sara skrif-
ar í bókinni að hún hafi þurft að
halda áfram að vera sami karakter-
inn og alltaf; óstöðvandi. „Ég setti
kvíðann bara ofan í skúffu og beindi
allri minni orku í fótboltann. Vildi
láta hlutina líta vel út og svaraði
bara með útúrsnúningum ef einhver
spurði hvernig mér liði.“ Þetta skrif-
ar Sara, sem hóf að vinna úr eigin
hugsunum og kvíða eftir Evrópu-
mótið 2017, þar sem sálfræðingur
bað hana meðal annars að hugsa sér
hvernig 16 ára Söru liði að spila með
stórliði Wolfsburg. Þetta var hluti af
hugarleikfimi sem virðist hafa geng-
ið vel.
Bókin er skemmtilega uppsett og
skreytt góðum myndum af núver-
andi landsliðsfyrirliða og liðs-
félögum hennar, í nútíð og þátíð.
Þrátt fyrir að um sé að ræða nokk-
urs konar „fótboltaævisögu“ á Sara
nóg eftir. Hún á eftir að vinna Meist-
aradeild Evrópu og koma kvenna-
landsliðinu á heimsmeistaramót.
Miðað við metnaðinn, viljann og
ákefðina er ég mest undrandi á því
að það hafi ekki tekist nú þegar en
hún stjórnar þessu ekki öllu sjálf, þó
að hún sé nánast óstöðvandi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Metnaður Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir fjallar ekki bara
um boltasparkið heldur líka um lífið utan vallarins í bókinni Óstöðvandi.
Takmarkalaus
sigurvilji
Fótboltaævisaga
Óstöðvandi bbbbn
Eftir Söru Björk Gunnarsdóttur.
Magnús Örn Helgason skrásetur.
Benedikt, 2019. Innbundin, 224 bls.
JÓHANN
ÓLAFSSON
BÆKUR
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Húðslípun
HollywoodGlow
Dermapen
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Gerðu vel við einhvern
sérstakan þessi jólin
15%
afsláttur
NÚNA
af gjafabréfum
hjá okkur