Morgunblaðið - 29.11.2019, Qupperneq 80
80
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
www.danco.is
Heildsöludreifing
Pappírvborðarvpokar
böndvpakkaskraut
kortv skreytingarefni
teyjurv sellófan
Ný vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Fyrirtæki og verslanir
Heildarlausnir
í umbúðum
Hvar á að gista?
Af mörgum ágætum kostum er
rétt að vekja sérstaka athygli á
Sofitel-hótelinu, sem er í fallegri
byggingu við hlið aðallest-
arstöðvar borgarinnar. Hót-
elbyggingin er 120 ára gömul og
hýsti áður starfsemi konunglegu
bæversku póstþjónustunnar.
Húsið var síðan tekið algjörlega í
gegn á árunum 2002 til 2004 og
breytt í lúxushótel.
Staðsetningin gæti varla verið
betri, enda auðvelt að komast til
og frá flugvellinum frá aðallest-
arstöðinni og miðbærinn í
göngufæri. Gestir ættu m.a. að
kíkja á sundlaugina í kjallara
hótelsins, en hún er ólík öllum
öðrum hótelsundlaugum og
minnir helst á helli. Þá ættu þeir
sem vilja vera í toppformi að at-
huga hvort ekki má bóka her-
bergi með hlaupabretti eða æf-
ingahjóli, en finna má nokkrar
slíkar svítur á hótelinu, með risa-
stórum gluggum sem veita gott
útsýni yfir þök og turna borgar-
innar.
Blaðamaður fékk að gista á
Sofitel Hotel Münich Bayerpost í
boði Accor.
Stælt Sumar svíturnar eru búnar
líkamsræktartækjum.
Reisn Sofitel er í byggingu sem áður var aðalpósthús Bæjaralands.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það er ekki erfitt að heillast af töfr-
um Bæjaralands, í Suðaustur-
Þýskalandi. Samt virðist oft eins og
þessi hluti Evrópu falli í skuggann af
nágrönnunum, og þótt straumur
ferðamanna liggi t.d. til Prag eða
Vínarborgar í austri, ellegar til Fen-
eyja í suðri, eiga margir eftir að upp-
götva alla þá kosti sem München býr
yfir.
Það er gaman að heimsækja Bæj-
araland á öllum árstímum en hægt
er að mæla sérstaklega með ferð til
München að vetri til, til þess ýmist
að upplifa Októberfest eða njóta
jólamarkaðanna og vetrarrómantík-
urinnar í nóvember og desember.
Fljúga má beint með Icelandair og
tekur ekki nema þrjá tíma og þrjú
korter að ferðast til þessarar borg-
ar, þar sem allir geta fundið eitthvað
við sitt hæfi:
Farðu á jólamarkað
í miðbænum
Í desember ætti vitaskuld að setja
stefnuna á Marienplatz, en þar rís
risastór ekta þýskur jólamarkaður
sem iðar af lífi. Jólaglögg og alls
kyns jólagóðgæti rennur ljúflega
niður, og hægt að kaupa sígilt þýskt
jólaskraut fyrir heimilið. Ráðhúsið
stendur við Marienplatz; mikil-
fengleg bygging í ný-gotneskum stíl,
með einstaklega fallegri „Glocken-
spiel“-klukku sem vaknar til lífs
nokkrum sinnum á dag.
Kíktu á BMW-safnið
München er heimaborg bílafram-
leiðandans BMW og eins og vera ber
hefur fyrirtækið innréttað bæði
stórt og mikið safn, sem og risastór-
an sýningarsal fyrir nýju bílana. Í
BMW Museum er saga fyrirtækisins
rakin í merkilegum bifreiðum, og í
BMW Welt er hægt að skoða bíla-
framboð allrar BMW-fjölskyld-
unnar, þar með talið Rolls-Royce og
Mini.
Horfðu á Hnotubrjótinn
Óperuhúsið í München, Bayer-
ische Staatsoper, þykir vera með
þeim betri í heiminum. Mikill metn-
aður er lagður í dagskrána og helstu
perlum óperu- og ballettbókmennt-
anna blandað saman við ný og
spennandi verk. Eins og við er að
búast er Hnotubrjóturinn áberandi í
dagskrá desembermánaðar og þegar
þetta er skrifað eru enn lausir miðar
á nokkrar sýningar. Til að komast í
bestu sætin þarf þó að kaupa miða
með lengri fyrirvara, ellegar bíða við
innganginn rétt fyrir sýningu og
vona að pláss losni.
Upplifðu list Bláu riddaranna
München var þungamiðja annarra
af tveimur meginfylkingum express-
jónisma í þýskri málaralist. Bláu
riddararnir, Der Blaue Reiter,
mörkuðu djúp spor í listasöguna
með fólki eins og Wassily Kandinsky
og Gabriele Münther í broddi fylk-
ingar, og upplagt að renna við í Len-
bachhaus þar sem þessari merkilegu
listrænu hreyfingu eru gerð góð skil.
Haltu út fyrir bæinn
Allt í kringum München má finna
áhugaverða áfangastaði. Ber sér-
staklega að nefna Neuschwanstein-
kastala, sem er í um 1.40 klst. akst-
ursfjarlægð, rétt við austurrísku
landamærin, og sömuleiðis smáhöll-
ina Linderhof sem er lítil perla á
svipuðum slóðum. Þá er enginn
hörgull af góðum skíðasvæðum
syðst í Þýskalandi, og ef skíðin eða
snjóbrettið eru með í för ætti að
setja stefnuna á t.d. Alpsee-
Grünten, Oberjoch og Karwendel
þar sem finna má Dammkar-
skíðabrekkuna sem ku vera sú
lengsta í Þýskalandi; 7 km frá upp-
hafi til enda.
Ævintýralegur vetur í München
Hvort sem fólk er með
bíladellu, brennandi
áhuga á ballett, eða á kafi
í þýskum expressjónisma
veldur höfuðborg Bæjara-
lands ekki vonbrigðum.
Ljósmynd/Wikipedia – Pe-Sa (PD)
Óskaheimili Linderhof er lítill draumakastali sem upplagt er að heimsækja
í sömu ferð og Neuschwanstein. Að innan er þessi smáhöll engu lík.
Ljósmynd/BMW Group
Drossíur Hjá BMW Welt má finna öll merki BMW-fjölskyldunnar undir einu þaki, þar með talið Rolls-Royce.
Byggingin er stórglæsileg og bílaáhugafólk hefur gaman af að skoða úrvalið, og BMW-safnið í næsta húsi.
Ljósmynd/Flickr – Mark Pegrum (CC)
Glögg Ekta bæversk jólastemning
ríkir á ráðhústorgi München.
Ljósmynd/Bayerische Staatsoper – Wilfred Hösl
Sígilt Fátt kemur fólki betur í jólaskapið en að horfa á Hnotubrjótinn. Til að
fá miða í góð sæti þarf samt helst að panta með löngum fyrirvara.
Málverk/Wassily Kandinsky
Djásn Lenbachhaus-safnið er eitt
helsta heimili Bláu riddaranna.