Morgunblaðið - 29.11.2019, Side 12

Morgunblaðið - 29.11.2019, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019 Gerðu þína eiginþakkargjörð Afgreiðslutímar á www.kronan.is Sjá allt fyrir þakkargjörðar veisluna á kronan.is/ takk Nú er sá árstími þegarmargir finna fyrir auk-inni streitu. Í dag vitumvið að það er fyrst og fremst magn og tíðni streitu sem hefur áhrif á heilsu okkar. Við finn- um oft fyrir vægri streitu þegar við stöndum frammi fyrir verkefnum daglegs lífs, án þess að það geri okk- ur illt. Streitan má hins vegar ekki verða svo mikil að hún trufli lífsgæði okkar, hafi áhrif á svefn, ýti undir kvíða og vöðvabólgu. Það er því mikilvægt öllum að kunna leiðir til að halda streitu innan viðráðanlegra marka. Hér eru nokk- ur ráð sem geta gagnast vel í því sambandi: Slökun: Lærðu árangursríkar að- ferðir til að slaka á og notaðu þær reglulega. Hægt er að hlusta á slök- unaræfingar á netinu auk þess sem ýmis smáforrit eru til með aðferðum til að koma ró á huga og líkama. Hreyfing, líka á aðventunni: Fáðu þér göngutúr í hádeginu, skrepptu í sund eftir vinnu eða taktu á því í ræktinni. Skráðu þig á dans- námskeið. Hreyfing er frábær leið til að fá útrás, losa um spennu og auka vellíðan. Samvera í aðventunni: Hittu vin yf- ir kaffibolla, leiktu við barnið þitt eða horfðu á mynd með fjölskyld- unni. Góðar samverustundir með þeim sem þér líður vel með eru af- slappandi og auka vellíðan. Daglegar ánægjustundir: Passaðu að dagleg rútína innihaldi ekki að- eins skyldur og kröfur heldur einn- ig ánægjustundir. Það þarf ekki að vera tímafrekt, dýrt eða flókið að finna stundir til að njóta lífsins, t.d. að fara aðeins út og anda að sér fersku lofti, setjast á bekk og virða fyrir sér mannlífið, eiga náðuga stund með góðri bók eða sjón- varpsþætti eða njóta þess að borða góðan mat í hádeginu. Endurmat á viðhorfum: Stundum höfum við tamið okkur viðhorf, venjur og viðbrögð sem gera ekk- ert annað en að auka á streitu okkar. Óþolinmæði í umferðinni er gott dæmi. Gott er að gera greinarmun á því sem við stjórn- um og því sem við höfum ekki stjórn á. Hóflegt magn af æðru- leysi er nauðsynlegt í lífinu. Ef samskipti við einhvern valda okk- ur streitu er sömuleiðis gott að mun að við höfum aðeins stjórn á helmingi þeirrar jöfnu, þ.e. fram- komu okkar. Við höfum ekki stjórn á því hvað aðrir segja eða gera. Það er mikilvægt að geta sleppt taki á því sem er ekki í okkar höndum. Draga úr áreiti: Íhugaðu hvaða að- stæður eða áreiti valda þér streitu og veltu fyrir þér hvort ekki megi fækka þeim. Hefurðu tök á að fara heim úr vinnu á öðrum tíma en há- annatíma í umferðinni? Geturðu keypt í matinn í hádeginu þegar færri eru í búðinni? Ertu í miklum samskiptum við fólk sem tekur frá þér orku en gefur lítið í staðinn? Snjalltæki eru einnig lúmskir streituvaldar. Núvitund: Lærðu að lifa meira í núinu og vertu með hugann við það sem þú ert að gera hverju sinni. Þú getur ekki breytt því sem liðið er og framtíðin er ekki komin. Það eina sem við höfum til að vinna með er nú- tíðin, sem er yfirleitt mun viðráðan- legri ef ekki bætast við vangaveltur um það sem er búið eða ókomið. Leita eftir faglegri aðstoð: Ef streita er mikil eða langvarandi, ef þú býrð við aðstæður sem þér finnst erfitt að ráða við eða finnur fyrir kvíða, dep- urð eða vonleysi er mikilvægt að leita sér aðstoðar. Pantaðu tíma á heilsugæslustöðinni þinni og ræddu þessi mál við fagaðila. Einnig er að finna fróðleik um streitu og heilsu á www.heilsuvera.is. Morgunblaðið/Golli Austurvöllur Margir fara í miðbæinn þegar ljós Óslóartrésins eru tendruð. Úr því verður skemmtileg samvera. Þegar jólastressið gerir vart við sig Heilsuráð Margrét Héðinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og vefstjóri Heilsuveru á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins „Ljóðahefðin á Austurlandi er sterk, hvað sem ræður. Úr þessum landsfjórðungi hafa komið nokkur þekkt skáld og á líðandi stundu búa hér og starfa margir sem svo sannarlega má telja til skálda,“ segir Magnús Stefánsson, formaður Félags ljóðaunnenda á Austurlandi. Á bókamessu í Hörpunni um sl. helgi kynnti Magnús bækurnar þrjár sem félagið gefur út á þessu ári. Sú fyrsta kom út í júní, Minning þess gleymda eftir Svein Snorra Sveinsson á Egilsstöðum. Bókin, sem er 120 blaðsíður, er í flokknum Austfirsk ljóðskáld en árlega hefur ein bók komið út í flokknum frá 2001. Þá er nýlega komin út fyrsta þýdda ljóðabókin sem félagið gefur út. Nefnist hún Þegar fólkið er far- ið heim. Frumhöfundur hennar er norska skáldið Hans Börli, skóg- arhöggmaður í Heiðmörk. og þýð- andi er sr. Vigfús Ingvar Ingvars- son, fyrrverandi sóknarprestur á Egilsstöðum. Ljóð Heiðmerkur- skáldsins heilluðu Vigfús og freist- uðu til glímu við þýðingar þeirra á íslensku. Þriðja ljóðabók félagsins á þessu ári nefnist Eins og tíminn líð- ur. Höfundur hennar er Guðný Mar- inósdóttir frá Seyðisfirði, nú búsett á Akureyri. „Ljóðastarfið hefur verið skemmtilegt ævintýri Allt byrjaði þetta árið 1996 sem skemmtilegt félagsstarf. Svo fór boltinn að rúlla með útgáfustarfi og nú eru bæk- urnar okkar á tuttugu árum orðnar alls 36,“ segir Magnús Stefánsson. Útgáfan byrjaði með bókinni Raddir að austan með ljóðum eftir 122 austfirsk skáld sem út kom 1999. „Litlu félagi eins og okkur er mikilvægt að taka þátt í menning- arviðburði eins og bókamessu. Sýna okkur og sjá aðra og vekja at- hygli á menningarstarfi,“ segir Magnús Stefánsson sem lengi var kennari og aðstoðarskólastjóri á Fá- skrúðsfirði. Lífleg útgáfa ljóðabóka eftir lítt þekkt skáld Mikið er ort á Austurlandi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skáldskapur Magnús Stefánsson með nýjar útgáfubækur ársins. Opið verður í Króki í Garðahverfi við Garðaholt í Garðabæ sunnudaginn 1. desember, kl. 13-17. Gamla jólatréð í Króki verður til sýnis og boðið er upp á rjúkandi kaffi og nýbakaða klatta. Rúna K. Tetzschner safnvörð- ur verður á staðnum og verður með leiðsögn fyrir alla og ratleiki fyrir börn. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varð- veitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmund- ar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók ásamt fjölskyldu sinni vorið 1934 og bjó þar þangað til hún lést árið 1985. Afkomendur Þorbjargar og Vilmundar gáfu Garðabæ bæjar- húsin í Króki ásamt útihúsum og innbúi árið 1998. Bærinn er nú varð- veittur sem safn og þykir vera ágætt dæmi um húsakost og lifn- aðarhætti alþýðufólks í þessum landshluta á fyrri hluta 20. aldar. Gamaldags jól í bárujárnsklæddum burstabæ Opið á fyrsta sunnudegi í aðventu í Króki á Garðaholti Krókur Eftirtektarverður staður og gott dæmi um húsakost fyrri tíðar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.