Morgunblaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019 ✝ Gréta Sævars-dóttir fæddist í Reykjavík 2. maí 1959. Hún lést á heimili sínu að Klettaborg 32 á Ak- ureyri 20. nóvem- ber 2019. Foreldrar Grétu eru Sævar Sigurðs- son, fyrrum útgerð- armaður og skip- stjóri, f. 28. apríl 1938, frá Svínanesi, Grenivík og Svava Jónsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1932, d. 9. apríl 2017 frá Litla-Hálsi í Grafningi, síðar að Nesjavöllum. Auk Grétu áttu þau Sævar þrjú börn. 1) Guð- björg, f. 1960. Maki hennar er Ægir Sigfússon. Börn Guðbjarg- ar eru Kolbrún Lind Sævars- dóttir og Gunnar Pétursson. 2) Sigurður, f. 1964. Hann er kvæntur Sigríði Jónasdóttur. Synir Sigurðar af fyrra hjóna- bandi eru Sævar, d. 2006, og Andri Páll. Börn Sigurðar og Sigríðar eru Ólöf og Óliver Berg. 3) Sævar, f. 1968. Eigin- kona hans er Agnes Lilja Agn- arsdóttir. Börn Sævars eru Grétar Freyr, Bjarki Sólon og þá fluttist fjölskyldan til Akur- eyrar. Hún stundaði nám við grunnskólann á Grenivík og Stórutjarnaskóla. Gréta var mjög dugleg til vinnu á sínum yngri árum, þar sem hún vann meðal annars hjá Útgerðafélagi Akureyrar og á Verksmiðjunum á Akureyri. Eftir að Gréta og Leifur slit- um samvistum festi hún fljótlega rætur í Garðinum og var þar í sambúð með Þorsteini Þórðar- syni, f. 1959, d. 27. mars 2005, frá Gauksstöðum í Garði. Í Garð- inum vann Gréta störf er tengd- ust fiski ásamt að sinna uppeldi og reka fallegt heimili. Leiðir Grétu og Þorsteins skildu. 19. júlí 2003 giftist Gréta Árna B. Sveinssyni, f. 1. júní 1939. Sonur Árna af fyrra hjóna- bandi er Sigurjón Þorvaldur, f. 1966. Þau bjuggu saman fyrstu árin í Bláskógum í Breiðholti en þaðan fluttust þau í Hjallasel. Árni lést 30. desember 2014. Fljótlega eftir andlát Árna flutti Gréta aftur á æskuslóðir sínar til Akureyrar þar sem hún bjó að Klettaborg 32. Þar bjó hún sér afskaplega fallegt heim- ili sem hún var stolt af og undi hag sínum vel. Útför Grétu fer fram frá Gler- árkirkju í dag, 29. nóvember 2019, klukkan 13.30. Svava Sif. Hálf- systkini Grétu eru: 1) Elísabet Ragn- arsdóttir, f. 1951. Eiginmaður henn- ar er Guðjón Jó- hannsson. Börn þeirra eru Stein- unn, Ragnar og Svava. 2) Guð- mundur Ragnar Ragnarsson f. 1952. Eiginkona hans er Hildur Gunnarsdóttir. Börn þeirra eru Sigurrós og Gunnar Óli. Dóttir Ragnars af fyrra sambandi er Ragna Kol- brún. Gréta eignaðist tvær dætur með Leifi Ólafssyni, f. 1959. 1) Hildur Bára, f. 14. nóvember 1979. Maki hennar er Magnús Geir Eyjólfsson, f. 1980. Börn þeirra eru Hákon Marteinn, f. 2003, Friðrika Ragna, f. 2009, og Hrafnhildur Freyja, f. 2016. 2) Ólöf Sandra, f. 3. febrúar 1981. Maki hennar er Konráð Logi Fossdal, f. 1979. Börn þeirra eru Inga Dóra, f. 2016, og Júlíus Grétar, f. 2018. Gréta ólst upp á Akurhóli 2 á Grenivík til unglingsaldurs en Elsku mamma. Hjörtu okkar eru full af til- finningum sem við ráðum ekkert við. Sorgin er óbærileg og það er ofboðslega sárt að sætta sig við að líf þitt hafi endað svona skyndilega. Ekkert tækifæri til að kveðja og svo margt eftir ósagt. Allt í einu er síminn hætt- ur að hringja. Lífshlaup þitt var um margt einstakt, en því miður ekki á þann hátt sem þú eða þeir sem voru í kringum þig höfðu kosið. Áföllin sem dundu yfir þig á lífs- leiðinni, sem beint eða óbeint komu til vegna veikinda þinna, voru slík að ekki nokkur mann- eskja hefði komist ósködduð frá þeim. Þú hrasaðir oft en alltaf spyrntir þú við fótum og stóðst upp. Og í síðasta skipti sem þú stóðst upp gerðir þú það með glæsibrag. Síðustu ár voru okkar bestu og það var dásamlegt að sjá þig blómstra eftir að þú flutt- ist til Akureyrar. Og þrátt fyrir örin á sálinni varstu alltaf lífs- glöð, brosmild og þakklát. Þú varst ákaflega hjartahlý, um- hyggjusöm og mjög dugleg að hrósa okkur og hvetja okkur áfram. Á Akureyri bjóstu þér fallegt heimili og varðst mjög heima- kær, vildir hvorki fara of langt að heiman né vera of lengi að heiman. Þú varst fastur punktur í lífi fjölskyldunnar í Skarðshlíð, tókst virkan þátt í uppeldi barnanna og veittir þeim ómet- anlega hjálp. Þetta reyndist þér líka ómetanleg hjálp því í ömmu- hlutverkinu fannstu þinn tilgang sem veitti þér enn frekari styrk til að takast á við daglegt líf. Þess vegna er það svo ótrúlega ósanngjarnt að þú hafir verið tekin frá okkur á þeim tíma- punkti sem lífið var farið að leika við þig. Þú varst engan veginn tilbúin að kveðja. Við mæðgur vorum að skipuleggja ferð til Noregs og við áttum eftir að eiga svo margar stundir saman. Lífshlaup þitt hafði áhrif á samband okkar mæðgna. Vegna veikinda þinna fengum við ekki að upplifa hefðbundið mæðgna- samband sem flestar mæður og dætur eru svo heppnar að upp- lifa – samband þar sem mamma kann og veit allt og styður við dætur sínar þegar áföll bjáta á. Í staðinn fengum við það hlutverk að bera ábyrgð á þér og þinni líð- an. Fyrir okkur sem börn var erfitt að skilja þetta hlutverk. Á þeim tíma mátti helst ekki ræða andleg veikindi. Þú fórst á spít- alann og komst dofin og flöt til baka. Svona gekk þetta, aftur og aftur, ár eftir ár. Við vöndumst þessu, lærðum bæði inn á sjúk- dóminn og lærðum að lifa með þessu. En þú varst, eftir sem áð- ur og þrátt fyrir allt, mamma okkar. Það var aldrei af þér tekið og ást okkar til þín var og verður alltaf skilyrðislaus. Elsku mamma, við kveðjum þig nú en minningin um yndis- lega mömmu og ömmu lifir. Sú minning er falleg og við sjáum til þess að barnabörnin þín muni aldrei gleyma Grétu ömmu sinni. Við treystum því að hópur af yndislegu fólki, eins og mamma þín, ömmur og afar og Árni hafi tekið á móti þér opnum örmum. Í því felst mikil huggun. Takk fyrir samfylgdina, elsku mamma, og alla þína ást og um- hyggju. Þínar dætur, Hildur Bára og Ólöf Sandra. Hvað segir maður við börnin sín, þriggja og hálfs og næstum tveggja ára, þegar þau spyrja næstum látlaust um þig? Börn sem skilja ekki dauðann en vilja bara fá ömmu sína. Börn sem skæla í bílnum þegar við keyrum framhjá húsinu þínu og við lítum ekki við. Börn sem átta sig eng- an veginn hvað sé í gangi. Allt í einu er amma hætt að koma og leika, og þau að fara í heimsókn til þín. Þar sem þau léku sér í feluleik við þig, spiluðu við þig og fengu ís og gotterí. Þú sem varst hjá okkur oft í viku og lifðir fyrir barnabörnin. Núna kveikjum við á kerti fyrir Grétu ömmu. Elsku Gréta. Það var yndis- legt að fá að kynnast þér og þú varst frábær amma. Þrátt fyrir áföll og erfiðleika í þínu lífi hélst þú ótrauð áfram. Við Ólöf og börnin söknum þín gríðarlega mikið. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið. (Ásmundur Eiríksson) Konráð Logi Fossdal, Inga Dóra Fossdal, Júlíus Grétar Fossdal. Elsku Gréta amma Takk fyrir að vera góð amma. Þú varst mjög dugleg að hringja í okkur og hrósa okkur. Þú hafð- ir mjög mikinn áhuga á því sem við vorum að gera og varst dug- leg að spyrja hvernig dagurinn okkar var búinn að vera. Okkur fannst þú líka svo falleg. Þú varst alltaf svo glöð og kát og þú heilsaðir og kvaddir okkur alltaf svo fallega. Við eigum eftir að sakna þín og við elskum þig. Sofðu rótt í alla nótt, elsku Gréta amma. Megi allir englar heimsins vaka yfir þér. Hákon Marteinn, Friðrika Ragna og Hrafnhildur Freyja. Ég trúi ekki að ég sé að fara að skrifa minningargrein um þig, elsku systir, nýorðin 60 ára; það er svo sárt að hugsa til þess að geta ekki lengur hringt og heyrt í þér þú varst svo dugleg að hringja í mig, það var svo gaman þegar þú sagðir alltaf: nei, komdu sæl og blessuð, elsku systir góð, lagðir svo mikla áherslu á þessi orð. Jesús, hvað ég á eftir að sakna þess að heyra röddina þína segja þessi orð. Mér verður hugsað til þess þeg- ar við vorum litlar stelpur á Grenivík, í þá daga var maður úti frá morgni til kvölds, við vorum að drullumalla, gera bú, vorum mikið í fjörunni að tína rusl til að nota í búið, fórum í yfir og alla þessa gömlu góðu leiki sem tíðk- uðust þá. Pabbi var með útgerð þarna á Grenivík með bróður sínum og við vorum ekki háar í loftinu þegar við fórum að stokka og beita í skúrnum með mömmu, náðum ekki ofan í bal- ann nema standa uppi á ein- hverju. Það var gaman að vera krakki þarna á Grenivík, við systur unnum í frystihúsinu á Grenivík, fórum á Stórutjarna- skóla, vorum þar á heimavist, vorum báðar fermdar á Grenivík, þú varst fermd árinu á undan mér. Eftir að ég fermdist flutt- um við til Akureyrar, fórum að vinna. Gréta á tvær yndislegar stelpur, Hildi og Ólöfu, sem hafa hjálpað mömmu sinni mikið eftir að hún veiktist andlega um þrí- tugt. Gréta talaði mikið um dæt- ur sínar við mig, hvað hún var stolt af þeim og hvað þær hafa gert fyrir hana og hvað þær voru góðar við hana. Gréta var svo stolt af barnabörnunum sínum. Hún var rík, átti 5 barnabörn. Alltaf þegar við töluðum saman voru barnabörnin efst á lista hjá henni. Hún var dugleg að leika við þau og hjálpa til, nú skilja þau ekkert í því hvar amma er og spyrja: hvar er amma? Af hverju kemur amma ekki? Það er erfitt að þurfa að útskýra að amma kemur ekki aftur, hvernig eiga börnin að skilja það þegar ég skil það ekki heldur að systir mín sé ekki lengur hérna hjá okkur? Þetta hafa verið erfiðir dagar síðan ég fékk hringingu um að systir mín væri látin, hún Gréta. Það gat ekki verið, ég tal- aði við hana fyrir nokkrum dög- um, þá var hún hress og kát, það var 14. þessa mánaðar. Ég hringdi til að óska henni til ham- ingju með dóttur sína, hún var svo hress og ánægð, bara eins og alltaf þegar við töluðum saman. Hún hlakkaði svo til að koma í heimsókn með dætrum sínum næsta sumar til Noregs. Ég flutti þangað í lok maí. Elsku systir, þú verður alltaf hjá mér í hjartanu, ég á góðar minningar sem ég get huggað mig við. Ég veit að það hefur verið tekið vel á móti þér hinumegin, ekki nema 2 ár síðan við misstum mömmu okkar. Ég hugga mig við það að þú sért komin aftur í mömmu faðm. Elsku systir, ég sé ekkert hvað ég er að skrifa fyrir tárum, ég má ekki sjá mynd af þér, þá fer ég að skæla, og ef ég tala um þig þá fer ég að skæla, söknuður- inn er svo mikill, elsku systir, ég veit ekki hvar ég á að hætta að skrifa, ég get ekki komið öllu frá mér sem ég vildi segja við þig, ég geymi það bara í hjartanu mínu og minningum um þig og okkur. Þú verður alltaf stóra systir mín, takk fyrir að vera systir mín. Elsku Gréta mín, sofðu rótt eng- illinn minn. Þín systir, Guðbjörg Jóna Sævarsdóttir. Látin er fyrir aldur fram eftir skammvinn veikindi kær frænka, Gréta Sævarsdóttir. Minningar um tápmikla telpu í sveitinni eystra rifjast upp, en þar dvaldi Gréta oft á sumrin ásamt systkinum sínum hjá Guð- björgu ömmu og Jóni afa á Nesjavöllum og undi hún hag sínum þar afar vel sem og dætur hennar síðar. Blessuð sé minning ömmu hennar og afa. Æskuheimili Grétu var á Grenivík við Eyjafjörð þar sem rómað útsýni er til margra átta frá sjávarkambi og bryggju. Þar hefur sjávarfang verið lagt upp og í bú landsmanna um aldir með veiðum og gæðaverk- un og var faðir hennar einnig þátttakandi í því ásamt fjölskyld- unni. Árin liðu í leik og við nám á Grenivík og síðan með stofnun á fjölskyldu með Leifi Ólafssyni á Akureyri og eignuðust þau tvær mannvænlegar dætur, Hildi flugfreyju og Ólöfu sjúkraliða, og eru barnabörnin fimm. Leiðir þeirra hjóna skildi. Gréta var myndarleg húsmóð- ir og vann auk þess við hin ýmsu störf. Var kraftmikil til vinnu meðan heilsa leyfði sem og til hinna ýmsu verka sem hún tók sér fyr- ir hendur. Það var líf og yndi Grétu að vera með dætrum sínum og fjöl- skyldum þeirra. Einnig var Gréta náin móður sinni Svövu sem lést 2017. Blessuð sé minning hennar. Gréta varð fyrir veikindaáfalli fyrir mörgum árum og beið þess ekki bætur nema að hluta. Dætur Grétu og fjölskyldur þeirra önnuðust afar vel um Grétu í veikindum hennar svo sómi var að og eftir var tekið. Eftir að Gréta hafði búið á Suðunesjum og síðan hér í borg- inni í nokkur ár með Árna Sveinssyni sem lést 2014, flutti hún aftur til Akureyrar ásamt Ólöfu. Einnig dvaldi Hildur á Akur- eyri í um ár með milliferðum til Reykjavíkur vegna vinnu sinnar meðan Gréta var að aðlagast nýja staðnum. Á Akureyri keypti Gréta sér afar fallega íbúð í námunda við heimili Ólafar og eiginmanns hennar Konráðs Loga og naut hún þess að vera þar oft í heim- sókn í leik við börnin og í sam- skiptum við fjölskylduna og vini. Síðast þegar ég átti spjall við Grétu lýsti hún því hversu vel henni liði á Akureyri, stutt í alla þjónustu og gat farið rétt yfir götuna í heimsókn til dóttur sinnar og fjölskyldu. Að sama skapi voru Hildur, Magnús Geir og börnin dugleg að heimsækja Grétu norður þótt í önnum væru, aldrei talið neitt mál að renna norður í heimsókn. Það sama var með Elísabetu hálfsystur Grétu og fjölskyldu á Grenivík og fleiri, en þar sem faðir Grétu dvelur stóran hluta ársins erlendis, þá átti hann ekki eins heimangengt. Þessar samverustundir með fjölskyldunni voru Grétu mikils virði, þ.e. nálægð við dætur sínar og fjölskyldur þeirra sem og við aðra ættingja og vini. Þessar fátæklegu línur segja lítið um lífshlaup Grétu, en margs er að minnast um liðna tíma með Grétu og fjölskyldunni allri. Megi Guð vernda Grétu og minningu hennar. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Innilegar samúðarkveðjur til dætra Grétu og fjölskyldna, föð- ur, systkina, ættingja og vina. Megi Guð gefa þeim ljós og styrk til framtíðar. Ómar, Ágústa og fjölskylda. Gréta Sævarsdóttir HINSTA KVEÐJA Fegraðu umhverfi þitt með gjöfum. Stráðu fræjum kærleika og umhyggju. Og þín verður minnst sem þess sem elskaði, þess sem bar raunverulega um- hyggju fyrir fólki. (Sigurbjörn Þorkelsson) Kæra Gréta. Ég þakka þér samfylgdina undanfar- in 18 ár. Umhyggjan og væntumþykjan sem streymdi frá þér var engu lík. Þín verður sárt saknað. Magnús Geir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og einlægur vinur, ÁRNI Þ. ÞORGRÍMSSON, fv. flugumferðarstjóri, sem lést mánudaginn 18. nóvember, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 2. desember klukkan 13. Helga Árnadóttir Árni Árnason Þorgrímur St. Árnason Ásdís María Óskarsdóttir Eiríka G. Árnadóttir Þórður M. Kjartansson Ragnheiður Elín Árnadóttir Guðjón Ingi Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Emilía Ósk Guðjónsdóttir Okkar ástkæri, GUÐMUNDUR STEINN MAGNÚSSON, lést fimmtudaginn 14. nóvember á gjörgæsludeild LSH, hjartans þakkir fyrir umönnunina á deildinni. Hjartans þakkir fyrir allar kveðjurnar og stuðninginn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Magnús G. Gunnarsson Steinunn G. Ástráðsdóttir Jóhann Þór, Þórdís Grímheiður makar og börn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA JÓNA GUÐJÓNSDÓTTIR frá Hesti í Önundafirði, Þúfubarði 10, Hafnarfirði, lést á heimili sínu sunnudaginn 17. nóvember. Útför Helgu fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 3. desember klukkan 13. Guðjón Pálmarsson Guðrún Svava Pálmarsdóttir Guðbjörg S. Pálmarsdóttir Frímann Þór Þórhallsson Þorsteinn Pálmarsson Guðrún Steinþórsdóttir Margrét Pálmarsdóttir Birgir Árnason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN KATRÍN BRANDSDÓTTIR, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi mánudaginn 25. nóvember. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 11. desember klukkan 13. Hörður Þór Hafsteinsson Hafsteinn Þór Harðarson Kristín Hallgrímsdóttir Hinrik Þór Harðarson Björg Inga Erlendsdóttir Anna Rósa Harðardóttir Hörður Óli Níelsson og barnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.