Morgunblaðið - 29.11.2019, Page 78

Morgunblaðið - 29.11.2019, Page 78
78 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Því er ekki hægt að neita að sumir áfangastaðir standa ekki undir væntingum þegar þangað er komið. Fallegar myndir í bæklingum, heimsfræg kennileiti og jafnvel æsi- spennandi atriði úr kvikmyndum hafa skapað tilhlökkun og drauma sem stangast síðan harkalega á við veruleikann. Það sem meira er: oft er hægt að finna miklu skemmti- legri staði til að heimsækja aðeins steinsnar frá. Hér að neðan má finna nokkur góð dæmi: Vonbrigði: Kuala Lumpur Maður skyldi halda að höfuðborg Malasíu væri spennandi staður. Hvert mannsbarn þekkir helsta kennileiti borgarinnar – Petronas- turnana – sem gnæfa yfir landslagið og voru um langt skeið hæstu turn- ar í heimi. Er heldur ekki eins og skorti fólk í borginni, en á stór- Kuala Lumpur svæðinu búa hvorki meira né minna en 7,2 milljónir manna, svo það ætti að vera nóg um að vera. En þegar að er gáð er ofboðslega fátt að sjá og gera í borginni. Must- erin og söfnin eru óspennandi, verslanir og markaðir ekki ferð- arinnar virði, og lítið í gangi. Þá er borgin mishæðótt svo það er ekki einu sinni hægt að njóta þess að rölta þar um og villast. Til að gera illt verra er óþarflega flókið að heimsækja Petronas-turnana, og þarf helst að panta miða með fyr- irvara. Betri kostur: Bangkok Bangkok er alls ekki fyrir alla, en þar er þó hægt að lenda í ein- hverjum ævintýrum. Musteri borg- arinnar eru forn og merkileg og mikill metnaður lagður í verslunar- miðstöðvarnar. Næturlífið er jafn kryddað og ómótstæðilegt og taí- lenski maturinn. Ólíkt Kuala Lump- ur eru líka nuddstofur á hverju strái og hægt að leyfa sæluhormónunum að flæða um líkamann í notalegu fóta- eða herðanuddi sem kostar sáralítinn pening. Ekki gleyma að renna við hjá klæðskera og fá nokkrar spariskyrtur saumaðar eftir máli. Vonbrigði: Beirút París Mið-Austurlanda er hún kölluð, og enn þann dag í dag fer það orðspor af höfuðborg Líbanons að vera heillandi staður þar sem býr siðfágað fólk sem er töluvert nú- tímalegra í fasi en nágrannar þeirra í þessum heimshluta. En í reynd er Beirút afskaplega lítið spennandi borg, og lýsandi að í niðurstöðum Google yfir áhugaverð- ustu staðina þar til að skoða megi finna drepleiðinlegt steinasafn í 9. sæti. Fornminjasafnið er furðu dauflegt, miðað við alla þá merki- legu sögu sem Líbanon státar af, og vistlegasti staðurinn í bænum er í kringum Nijmeh-torgið, sem virkar gervilegt og tómlegt eftir að hafa farið í gegnum umfangsmiklar end- urbætur. Þá eru leigubílstjórarnir með endemum erfiðir við að etja, og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hafa fé af ferðamönnum. Betri kostur: Istanbúl Ekki svo langt til norðurs er sjálf höfuðborg Austurrómverska keis- aradæmisins. Að bera Beirút saman við Istanbúl er eins og að bera Grindavík saman við Reykjavík. Ægisif ein og sér réttlætir ferð til þessarar fjölmennu og fallegu borg- ar, en þar er líka að finna blómlegt mannlíf og framúrskarandi veit- ingastaði. Íbúar Istanbúl eru upp til hópa yndislegt og gestrisið fólk, og menningarlíf borgarinnar blómstrar árið um kring. Vonbrigði: Kaupmannahöfn Hvað er það sem veldur að Ís- lendingar halda svona upp á Kaup- mannahöfn? Kannski er það bara af gömlum vana, eða af því að við höf- um verið alin upp við að þykja danska höfuðborgin merkileg – og svo eigum við flest að kunna að panta bjórglas og smurbrauð á máli heimamanna. Kaupmannahöfn er alls ekki hræðileg, en hún er heldur engin perla sem ber höfuð og herðar yfir aðrar borgir á þessum slóðum: Strikið er orðið afskaplega sjúskað, Kristjanía orðin hroðalegt bæli, og Tívólí er meira fyrir augað en adrenalínið. Betri kostur: Stokkhólmur Af hverju ekki að fara frekar til Stokkhólms. Samanburðurinn er sláandi, og ætti ekki að dyljast nein- um að sænska höfuðborgin er fal- legri og snyrtilegri en sú danska. Gamla Stan hefur yfir sér miklu meiri sjarma en Nyhavn, og Gröna Lund er langtum betri skemmti- garður en Tívolí. Svo er hreinlega eins og einhver allt annar blær sé yfir mannlífinu – einhvers konar sænsk siðfágun sem erfitt er að lýsa með orðum. Borgir sem valda vonbrigðum Margar heimsfrægar borgir eru ekkert sérstaklega skemmtilegar heim að sækja. Sem betur fer er hægt að finna betri valkosti í sama heimshluta. Morgunblaðið/Ómar Lúin Kaupmannahöfn er allt í lagi, en það er merkilegt hve margir Íslend- ingar hafa margoft heimsótt þessa borg á meðan þeir eiga Stokkhólm eftir. Ljósmynd/Wikipedia – Wusel007 (CC) Tómleg Í Beirút er afskaplega lítið um að vera og fátt að sjá. París Mið-Austurlanda stendur ekki undir nafni. Ljósmynd/Pexels – Zukiman Mohamad (CC) Spæling Petronas-turnarnir eru merkilegt mannvirki, en fátt annað er að sjá í Kuala Lumpur. Deyfð er yfir borginni. Ljósmynd/Flickr – Chas B (CC) Sjarmi Skemmtigarðurinn Gröna Lund í Stokkhólmi býður upp á mun skemmtilegri tæki en Tívolí í Kaupmannahöfn. Morgunblaðið/Sverrir Gimsteinn Istanbúl býr að mergjaðri sögu, stórkostlegum byggingum og heillandi mannlífi. Matarmenningin er hreinlega framúrskarandi. Reuters Gusa Taílendingar kunna að njóta lífsins og í Bangkok má finna urmul af musterum, verslunarmiðstöðvum og nuddstofum. Vatnshátíðin Songkran.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.