Morgunblaðið - 29.11.2019, Page 82

Morgunblaðið - 29.11.2019, Page 82
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019 Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Þá er þetta eitthvað fyrir þig því matar- vefur mbl.is í samstarfi við Hagkaup og Til hamingju ætlar að efna til skemmti- legrar baksturskeppni í næstu viku þar sem vinningarnir eru ekki af verri end- anum. Það eina sem þú þarft að gera er að skila inn heimabakaðri köku ásamt uppskrift og þú gætir unnið glæsilega vinninga á borð við gjafabréf frá Heims- ferðum eða KitchenAid-hrærivél. „Verið er að leita að alls konar kökum og það er einmitt það sem gerir keppn- ina svo skemmtilega. Við gætum fengið inn hnallþórur, súkkulaðikökur, krydd- kökur, marmarakökur eða möndlukök- ur. Það er það frábæra við þessa keppni og vonandi taka sem flestir þátt í henni. Við munum síðan birta uppskriftirnar að bestu kökunum inni á matarvefnum,“ segir Þóra Kolbrá Sigurðardóttir, sem sér um keppnina. Kökum skal skilað inn milli klukkan 13:00 og 14:00 fimmtudaginn 5. desem- ber í höfuðstöðvum Árvakurs, Hádegis- móum 2-4. Keppnistilhögun: Allar kökurnar verða að innihalda Pillsbury-hveiti, Dansukker-sykur og vörur frá Til hamingju nema uppskriftin innihaldi ekki þau hráefni. Dæmt verður eftir útliti, bragði, frumleika og fegurð. Skila skal inn einni köku sem ekki er minni en 15 cm í þvermál. Kakan þarf að koma á einnota pappadiski sem er ekki miklu stærri en hún sjálf. Með kökunni skal fylgja umslag með nafni þess sem bakar, uppskrift, lýsingu á kökunni og hugmyndinni eða sögunni á bak við hana. Í móttöku Árvakurs verður tekið við kökunni og hún skráð í keppnina og númeruð til að fyllsta hlutleysis sé gætt. Með kökunni þarf að fylgja blað með út- listun á henni fyrir dómnefndina. Kakan verður síðan mynduð af ljósmyndurum Morgunblaðsins áður en dómarar bragða á henni. Ekki er boðið upp á sér- stakan kæli fyrir kökur nema í undan- tekningartilfellum en reynt verður að gæta þess að ferlið gangi hratt fyrir sig þannig að kaka sé mynduð og smökkuð fljótlega eftir komuna. Verið er að leita að því sem almennt er kallað kaka á íslensku. Má kakan vera jólakaka, formkaka, terta, hnall- þóra eða hvaðeina það sem ykkur langar að baka. Ekki má senda inn smákökur. Bestu kökurnar verða birtar inni á Matarvef mbl.is. 1. verðlaun 150.000 króna gjafabréf frá Heimsferðum KitchenAid-hrærivél frá Raflandi Gjafabréf frá Hagkaup Gjafabréf frá veitingastað Glæsileg gjafakarfa frá Til hamingju Pillsbury-hveiti í baksturinn Veislubókin eftir Berglindi Hreiðarsdóttur 2.-6. sæti Gjafabréf frá Hagkaup 10 þúsund króna gjafabréf frá veitingastað Glæsileg gjafakarfa frá Til hamingju Pillsbury-hveiti í baksturinn Veislubókin eftir Berglindi Hreiðarsdóttur Dómarar: Hafliði Ragnarsson súkkulaðimeistari, formaður dómnefndar Völundur Snær Völundarson mat- reiðslumaður Ásdís Ásgeirsdóttir, blaðamaður á Sunnu- dagsmogganum Ágúst Fannar Einþórsson, bakari og stofnandi Brauð & co. Hefur þú gaman af því að baka? Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir Alls konar kökur Það verður spennandi að sjá hvaða kaka ber sigur úr býtum í keppninni. Sigurganga Norður Salts á erlendri grundu heldur áfram. Á dögunum var undirritaður samningur við stærstu matvöruverslanakeðju Finnlands en auk þess verður saltið til sölu í minni sælkeraverslunum þar í landi. Að sögn Sören Roskilde hjá Norður Salti eru þetta frábær tíðindi fyrir fyrirtækið, en vel hefur gengið að koma saltinu á markað erlendis og það verður sífellt vin- sælla. „Við erum búin að leggja mikla vinnu í það undanfarin ár að koma saltinu sem víðast og markaðs- setja það sem svokall- aða hversdagsmun- aðarvöru sem ætti að vera til á hverju heimili. Að vera kom- in með saltið inn hjá S-group, sem er stærsta mat- vælakeðja í Finn- landi, er stórt skref fyrir okkur,“ segir Sören í samtali við Morgunblaðið. Norður Salt til Finnlands Fastus ehf | Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is EINNOTA HANSKAR Í ÖLLUM REGNBOGANS LITUM • Fjórir litir í einu boxi • Púðurslausir • Ofnæmisprófaðir • Gott grip og passa vel á hendi BLEIKIR | GULIR | GRÆNIR | APPELSÍNUGULIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.