Morgunblaðið - 29.11.2019, Side 96

Morgunblaðið - 29.11.2019, Side 96
Skriðugil, Akureyri Eik Óladóttir fæddist 6. febrúar 2019 kl. 15.26. Hún vó 3.588 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Sigþrúður Elínardótt- ir og Friðrik Óli Atlason. Nýr borgari 96 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019 60 ára Kata er fædd og uppalin í Reykjavík en býr í Kópavogi. Hún er bókari og rekur bók- haldsþjónustuna Profito. Maki: Sigtryggur Harðarson, f. 1966, bif- reiðasmiður hjá Réttingaþjónustunni. Börn: Kristján Páll Rafnsson, f. 1978, Kristín Þórdís Sigtryggsdóttir, f. 1999, lést sama ár, Kristinn Þór Sigtryggsson, f. 2002, og Hlynur Þór Sigtryggsson, f. 2007. Barnabörnin eru Sumarrós Lilja, f. 2006, og Hólmfríður Katla, f. 2008. Foreldrar: Kristinn Jón Reynir Kristins- son, f. 1937, verkamaður, bús. á Hvols- velli, og Pálína Ágústa Jónsdóttir, f. 1937, d. 2016, húsmóðir. Katrín Helga Reynisdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þig langar til þess að ræða málin við samstarfsmenn þína en finnur hvorki stað né stund til þess. Augnablik án asa er dýrlegur munaður í þínum augum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að gera einhverjar ráðstaf- anir varðandi heilsu þína. Skipuleggðu þig því vel og leggðu hart að þér. 21. maí - 20. júní  TvíburarMundu það sem þér var alltaf sagt, ef eitthvað er þess virði að fram- kvæma það á maður að vanda sig. Hættu að bíða og gakktu eftir því að réttur þinn sé virtur til fulls. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Alveg sama hvernig þér finnst að hlutirnir eigi að vera er einhver náinn þér al- gerlega ósammála. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Velgengni þín stendur og fellur með því hvernig þér tekst að nýta drauma þína til að leysa vandamál. Best er að þú sjáir hvar siðagildi þín stangast á við annarra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Óþekktur aðdáandi gæti sent þér blóm, kort eða gjafir. Haltu ótrauður áfram, þú finnur lykilinn að hamingjunni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það eru oft einföldustu hlutirnir sem veita manni mesta gleði. Varastu að láta aðra teyma þig of langt því það verður þér bara til tjóns. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ef eitthvað er ekki að ganga að óskum hefur þú allt sem þarf til þess að finna út úr því hvert vandamálið er og laga það. Haltu öllum boltum á lofti. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhver í fjölskyldunni lætur orð falla sem gætu eyðilagt eða bjargað deg- inum. Fólk er misjafnlega tilbúið til að hlusta. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú heyrir út undan þér það sem fólk er að segja um síðustu afdrif þín. Undirbúðu þig því vandlega áður en þú seg- ir hug þinn til málefnisins. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fortíðin lætur á sér kræla með leyndarmál í farteskinu, vísbendingar leyn- ast í draumum og deja vu upplifunum. Vertu viss um að þú skiljir hvers er vænst af þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft að gæta þess að draga þig ekki um of inn í skel þína heldur umgangast annað fólk þér til skemmtunar og lærdóms. dofna og heyrnin orðin léleg. Hún segir að það sé gott að búa á Sæborg og þar hafi sér liðið vel og allir verið sér góðir. illmælgi og leggur öllum eitthvað gott til. Hún var einnig dugleg að hafa samband við ættingja og vini meðan heilsan leyfði. Nú er sjónin farin að J ónína Guðrún Valdimars- dóttir fæddist 29. nóvem- ber árið 1916 á Eyjólfs- stöðum í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu. Húsakynnin þar voru torfbær eins og algengt var í sveitum landsins á fyrri hluta tuttugustu aldar. Jónína fædd- ist fyrir tímann og var aðeins níu merkur að þyngd. Þá kom ullin af ís- lensku sauðkindinni að góðum notum til að halda hita á hvítvoðungnum við þessar aðstæður, um hávetur í ís- lenskum torfbæ. Síðar flutti hún til Blönduóss með foreldrum sínum og ólst þar upp, þar til hún fór að heiman til Reykjavíkur og vann þar sem vinnukona í nokkur ár. Þar kynnist hún barnsföður sínum og eignaðist með honum son. Upp úr sambandi þeirra slitnaði og fór þá sonur þeirra í fóstur til móður- foreldra sinna, sem önnuðust uppeldi hans eftir það. Síðar kynnist hún eiginmanni sín- um Sigurði og eignaðist með honum dóttur. Þau bjuggu saman í Reykja- vík í sjö ár en slitu þá samvistum. Jónína flutti eftir það til Blönduóss og var búsett þar í nokkur ár. Það var svo árið 1959 sem Jónína flutti til Skagastrandar og gerðist ráðskona hjá Sigurbirni og Kára Kristjánssonum sem bjuggu þá á Kárastöðum þar í kauptúninu, með aldraðri móður sinni. Þar bjó hún síð- an til ársins 1988, en þá fluttu hún og bræðurnir á dvalarheimilið Sæborg. Það var þá nýbyggt og voru þau með fyrstu íbúunum sem þangað fluttu inn. Jónína átti þess ekki kost framan af ævi að ferðast um landið eins og hugur hennar stóð til, enda eignaðist hún aldrei bifreið. Eftir að hún flutti á Sæborg fór hún í nokkur ferðalög sem kvenfélagið á Skagaströnd stóð fyrir og skipulagði. Þessar ferðir veittu henni mikla ánægju. Jónína hefur aldrei farið til útlanda. Helstu áhugamál hennar á efri ár- um hafa verið handavinna ýmiss kon- ar og spilamennska með eldri borg- urum. Hún er mjög gestrisin og naut þess að taka á móti gestum og lét það aldrei henda sig að eiga ekki eitthvað til með kaffinu. Jónína er mjög trygglynd, forðast Fjölskylda Eiginmaður Jónínu var Sigurður Jónasson vörubílstjóri, f. 21.8. 1909, d. 26.7. 1982. Þau skildu. Foreldrar hans voru hjónin Jónas Jónsson vöru- bílstjóri, f. 2.6. 1881, d. 16.8. 1961, og Kristín Sigurðardóttir, f. 26.11. 1874, d. 24.4. 1942. Þau bjuggu í Reykjavík. Jónína eignaðist tvö börn. 1) Svav- ar Bergmann Indriðason, f. 2.1. 1939, d. 1.11. 2010, vann í bakaríi á Blöndu- ósi og Selfossi. Eiginkona hans var Ingibjörg Eðvarðsdóttir, f. 27.9. 1940, d. 24.9. 2018. Þau skildu. Sambýlis- Jónína Guðrún Valdimarsdóttir, fyrrverandi ráðskona á Skagaströnd – 103 ára Með börnunum Svavar, Jónína og Kristín stödd heima hjá Jónínu á dvalarheimilinu Sæborg árið 2010. Naut þess að taka á móti gestum Fjölskyldan Frá vinstri: Sigurlaug, Sigríður, Sigfús, Jónína, Valdimar og Helga fyrir utan heimili þeirra á Blönduósi. Afmælisbarnið Jónína árið 2018. 40 ára Eiður er Skag- strendingur, fæddur í Reykjavík en ólst upp á Skagaströnd. Hann býr í Garðabæ. Eiður er véla- og orkutækni- verkfræðingur frá HR með meistarabréf í skrúðgarðyrkju. Hann er vélaverkfræð- ingur hjá Marel. Maki: Hugrún Ósk Sævarsdóttir, f. 1978, viðurkenndur bókari og vinnur hjá Bók- haldi og uppgjöri. Börn: Sævar Þór, f. 2006, og Elvar Örn, f. 2010. Foreldrar: Þór Gunnlaugsson, f. 1946, fv. lögreglumaður, og Steinunn Grímsdóttir, f. 1949, viðurkenndur bókari. Þau eru bú- sett í Reykjavík. Eiður Örn Þórsson Til hamingju með daginn ÖRYGGI ÖLLUM STUNDUM ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is SAMSTARFSAÐILI ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS 09:41 100%
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.