Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2019, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2019, Blaðsíða 7
3.11. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7 Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkja-forseti, kom mörgum á óvart í vikunniþegar hann gagnrýndi dómhörku ungu kynslóðarinnar. Í því sambandi nefndi hann sérstaklega það sem kallast „woke“ á ensku, sem merkir að vera „vakandi“, stöðugt á varðbergi gagnvart óréttlæti í samfélaginu, einkum því sem beinist gegn minni- hlutahópum. Fordæmingarkúltúrinn Slík árvekni hljómar auðvitað mjög vel en með í kaupunum fylgir gjarnan mikil óbilgirni og dómharka og í þokkabót krafa um að þeir sem eru gripnir fyrir ranga hegðun séu út- skúfaðir og fái hvergi frið – nokkuð sem á ensku hefur verið nefnt „cancel culture“ og mætti þýða sem fordæmingarkúltúr eða út- skúfunarárátta. Óhætt er að segja að „vakning“ af þessu tagi sé meira áberandi á vinstri væng bandarískra stjórnmála en þeim hægri og því komu orð Obama nokkuð á óvart. Að dæma aðra eins hart og mögulegt er Obama sagði við unga fólkið: „Þið ættuð sem fyrst að hrista af ykkur þessa hugmynd um tærleika, óskeikulleika, að þú sért alltaf pólitískt „woke“. Veröldin er ekki klippt og skorin. Það eru grá svæði og álita- mál. Fólk sem gerir frábæra hluti hefur sína galla og fólkið sem þið eruð að berjast gegn kann að elska börnin sín og eiga ýmislegt sam- eiginlegt með ykkur. Eitt hættumerki sem ég sé meðal ungs fólks, sérstaklega í háskólum – og samfélagsmiðlarnir magna þetta upp – er að maður fær stundum á tilfinninguna að hugsunin sé: „Leiðin til að breyta samfélaginu er að dæma aðra eins hart og mögulegt er. Og það er nóg. Ef ég birti athugasemd á Twitter um hvernig þú gerðir eitthvað vitlaust eða not- aðir rangt orð, þá get ég slakað á og klappað sjálfum mér á bakið. Sástu hvað ég var „woke“? Ég fletti ofan af þér. Best að horfa á sjónvarpið.“ – Þetta er ekki aktífismi. Þetta er ekki að stuðla að breytingum. Það er ólíklegt að það skili miklum árangri að kasta bara steinum. En það er mjög auðvelt.“ Sanngjörn gagnrýni? Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem woke-kúltúrinn fær á sig gagnrýni úr nokkuð óvæntri átt því að nýlega viðraði tónlistarmað- urinn Nick Cave mjög áþekka skoðun og Obama gerði hér. Ádrepa þeirra er umhugsunarverð en hún kallar auðvitað á ýmsar gagnrýnar spurn- ingar, svo sem:  Á fólk þá ekki að hafa neina bjargfasta sannfæringu, fyrst heimurinn er ekki svart- hvítur heldur grár?  Hefur ungt fólk ekki alltaf verið dómhart, óbilgjarnt, jafnvel allt að því hrokafullt í bar- áttu sinni fyrir betri heimi? Og er það ekki bara allt í lagi?  Voru til dæmis hinir ungu frjálshyggju- menn níunda áratugarins ekki svarthvítir í hugsun? Sáu þeir mörg grá svæði? Hafa þeir í dag efni á því að kvarta – jafnvel af þeirri „ofurviðkvæmni“ sem þeir gagnrýna unga fólkið fyrir – yfir nákvæmlega jafn djúpri og heitri sannfæringu nýrrar kynslóðar, sem vill svo til að er að þessu sinni í þágu virðingar fyr- ir minnihlutahópum?  Er sumt eldra fólk ekki alveg jafn dóm- hart og óbilgjarnt og sumt ungt fólk? Hvers vegna að einblína á unga fólkið? Sýnir það eitthvað meiri dómhörku á netinu en sumir hinna eldri sýna í innhringitímum útvarps- þátta? Auðmýktin Að mínu mati eru Obama og Cave fyrst og fremst að hvetja til ákveðinnar auðmýktar og virðingar; að við höfum ekki fyrirlitningu á öðrum sem okkar helsta leiðarljós. Hluti af því er að við séum auðmjúk gagn- vart viðhorfum fyrri tíma. Og gagnvart því hvernig framtíðin mun dæma okkur sjálf. Við getum bókað að sumt af því sem okkur þykir sjálfsagt í dag verður talið algjör fásinna í framtíðinni. Það gerir okkur ekki að vondum einstaklingum. Tímamótaþættirnir „Svona fólk“ voru þörf áminning um hversu mikið samfélagið okkar hefur breyst á skömmum tíma. Þau sem börðu þær breytingar í gegn eiga mik- inn heiður skilið. Ég er ekki sérfræðingur í réttindabaráttu þeirra en mér hefur sýnst að hún hafi að mestu leyti verið háð á já- kvæðum nótum, með sjálfstraust, gleði og ást að leiðarljósi. Ég trúi að það hafi verið farsæl nálgun og að henni mætti mögulega beita víðar. Góðar breytingar og vanmetið íhald Ég trúi að þær breytingar sem ungt fólk berst fyrir séu oftar til góðs en ills. Ég for- dæmi hins vegar ekki mótspyrnu íhaldssam- ari afla; hún er stundum réttmæt og jafnvel þegar hún er það ekki getur hún þjónað til- gangi. Sú staðreynd að samfélagið fer að mörgu leyti batnandi sannar ekki að allar byltingartil- raunir ungs fólks séu til góðs. Við sjáum bara breytingarnar sem lifðu af, ekki þær sem voru slegnar niður og hefðu orðið til ills ef enginn hefði veitt viðspyrnu. Í liðinni viku var ég gestur á þúsund manna ráðstefnu í London með ungum einstaklingum sem þykja skara fram úr á sínu sviði. Þar varð ég vör við dálitla tilhneigingu til að afskrifa það sem þau eldri hafa fram að færa. Það við- horf er skylt þeim tilhneigingum sem Obama var að spyrna við. Ég sagði á ráðstefnunni, og endurtek hér, að við eigum ekki að stilla þessu upp sem átökum kynslóða. Við verðum að hafa það samtal. Samtal sem einkennist af gagn- kvæmri auðmýkt og virðingu. Auðmýkt kynslóðanna ’Við getum bókað aðsumt af því sem okkurþykir sjálfsagt í dag verðurtalið algjör fásinna í fram- tíðinni. Það gerir okkur ekki að vondum einstaklingum. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Saman náum við árangri Samskip erumeð gáma af ýmsumgerðumog stærðum til sölu. Gámar eru ódýr lausn semmá nýta ámarga vegu, sem tækjageymslu, kaffiskúr, vörugeymslu, vinnuskúr ogmargt fleira. Fáðu tilboð hjá okkur á gamar@samskip.is eða í síma 545 8000 Við flytjum ekki bara vörur heldur seljum við líka gáma

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.