Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2019, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.11. 2019
LÍFSSTÍLL
Ég hef gert mikið af þessugegnum tíðina; að ferðast ogtaka ljósmyndir,“ segir Þor-
kell Þorkelsson ljósmyndari, eða
Keli eins og hann er jafnan kallaður.
„Stundum fer ég einn og stundum
með öðrum, eins og í ferðum fé-
lagsskapar sem við köllum því
óformlega nafni Ferðaklúbbinn
heimsmyndir. Þetta er dálítið eins
og vinnuferðir sem hafa í senn verið
skemmtilegar og krefjandi en menn
nota þær til að afla efnis í mismun-
andi tilgangi. Við höfum fyrst og
fremst verið á framandi slóðum sem
eiga það sameiginlegt að vera
myndrænar og skemmtilegar.
Þarna hafa menn fengið útrás sem
þeir fá ekki í þessum venjulegu ut-
anlandsferðum og traust vinátta
gjarnan myndast enda liggur áhugi
allra á sama sviðinu.“
Í hópnum eru bæði atvinnu- og
áhugaljósmyndarar og kvikmynda-
tökumenn. Þessar ferðir hafa verið
farnar árlega undanfarin sex ár og
tilgangurinn er að taka myndir og
kynnast annarri hlið á veröldinni í
leiðinni. Leiðangursmenn eru að
jafnaði fjórir til tíu, karlar og konur,
og eru í samstarfi við Viktor Sveins-
son hjá ferðaskrifstofunni Farvel
sem skipuleggur ferðirnar.
Vakna um miðjar nætur
Og enginn setur tærnar upp í loft í
þessum ferðum. „Ég er mikill harð-
stjóri og rek menn eldsnemma á
fætur og jafnvel um miðjar nætur ef
á þarf að halda,“ segir Keli sposkur.
Bæði getur það tengst ljósmynda-
legum þáttum eins og birtuskil-
yrðum og eins einstaka athöfnum
eða viðburðum sem menn vilja ekki
fyrir nokkurn mun missa af á hverj-
um stað fyrir sig.
Enda þótt klúbburinn leggi
áherslu á að mynda á framandi slóð-
um segir Keli aldrei vaðið út í neina
óvissu. Öryggið sé alltaf sett á odd-
inn.
Um síðustu páska lagði klúbbur-
inn leið sína til eyríkisins Mada-
gaskar í Indlandshafi undan aust-
Ljósmyndir/Þorkell Þorkelsson
Lífið er fiskur hjá Vezo-
ættbálkinum á Madagask-
ar, frá blautu barnsbeini.
Vezo-menn eru glaðlyndir og kætast yfir litlu. Þessi ungi maður horfir björtum augum til framtíðar.
Lifa fyrir daginn í dag
Þorkell Þorkelsson ljósmyndari fór fyrr á þessu
ári til Madagaskar ásamt félögum sínum og heill-
aðist af heimamönnum á þessari merkilegu eyju,
sem hann segir afslappaða og vinalega.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Bátur kemur að landi árla morguns. Fiskimennirnir taka daginn snemma á Madagaskar.
Þorkell Þorkelsson ljósmyndari hefur
ferðast vítt og breitt um heiminn.
Morgunblaðið/Hari