Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2019, Blaðsíða 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.11. 2019
Leiftrandi skemmtilegir frumkvöðlar
Myndin Vasulka áhrifin varfrumsýnd í Bíó Paradís ívikunni og geta nú Íslend-
ingar fengið að kynnast þessum
merku vídeólistamönnum, Íslend-
ingnum Steinu og manni hennar,
hinum tékkneska
Woody Vasulka.
Myndin hefur ver-
ið fimm ár í
vinnslu en hug-
myndin kviknaði
löngu fyrr.
„Hrafnhildur
Gunnarsdóttir,
Hrabba, var búin
að þekkja Steinu Vasulka frá því hún
nam kvikmyndagerð í San Francisco
snemma á tíunda áratugnum. Það
þekktu allir þarna Steinu og ákvað
Hrabba þá einn góðan veðurdag að
banka upp á hjá þeim hjónum. Upp
frá því fylgdist hún með því sem þau
voru að gera. Þau eru frumkvöðlar í
vídeólist og voru með þeim fyrstu
sem fóru að fikra sig áfram með
þann miðil. Fljótlega kviknaði sú
hugmynd hjá Hröbbu að gera um
þau heimildarmynd,“ segir Margrét
Jónasdóttir, framleiðandi myndar-
innar. Hrafnhildur leikstýrir en
myndin er framleidd af Sagafilm og
Krumma Films.
Í grasrótinni í New York
Árið 2013, löngu eftir fyrstu heim-
sóknina til Vasulka-hjónanna, var
Hrafnhildur á ferð um Santa Fe og
hitti þau þá aftur en á þeim tíma
voru hjónin nánast gleymd og grafin
listaheiminum.
„Síminn var hættur að hringja og
enginn vildi sýna verk þeirra lengur.
Ég tók upp vélina og byrjaði að
mynda,“ segir Hrafnhildur og þar
með var boltinn farinn að rúlla.
Árið 2015 fór hún til Margrétar
hjá Sagafilm og kynnti fyrir henni
hugmyndina að gera um þau heim-
ildarmynd.
„Ég þekkti þau ekkert, né list
þeirra, en sá fljótt hversu merkileg
þau voru. Þau höfðu unnið með gras-
rótinni í New York snemma á átt-
unda áratugnum. Þau stofnuðu lista-
gallerí sem heitir The Kitchen árið
1971 í gömlu yfirgefnu hóteli á Mer-
cer Street í New York þar sem þau
sýndu verk sín. The Kitchen er enn
starfrækt og þar hafa margir þekkt-
ustu listamenn heims stigið fyrstu
skref sín með verk sín, eins og Philip
Glass, Brian Eno, meðlimir Talking
Heads, Robert Mapplethorpe, Lau-
rie Anderson og Cindy Sherman,“
segir Margrét.
„Þau þekktu Andy Warhol og
mynduðu hann. Í upphafi var Steina
fiðluleikari og Woody kvikmynda-
gerðarmaður en Steina var að æfa
sig á kameruna og æfði sig mest í
mjög óvenjulegu leikhúsi sem hét La
Mama, the Theatre of the Ridicul-
ous. Þar voru helstu klæðskiptingar
New York-borgar að æfa sig og þar
myndaði hún heilmikið. Svo gerðu
þau heilmiklar tilraunir í vídeólist-
inni á þessum tíma,“ segir hún.
„Þau eru ekki bara frumkvöðlar í
list heldur alveg leiftrandi skemmti-
leg og miklir húmoristar. Og svaka-
lega skapandi og hugmyndarík.“
Ásókn helstu listasafna
Þegar Hrafnhildur byrjar á mynd-
inni eru hjónin að skoða lífsverk sitt
og velta fyrir sér hvað þau ættu að
gera við það. Mikið efni var til en þau
hjón höfðu geymt allt sem þau höfðu
gert á yfir hálfri öld.
„En á meðan við erum að mynda,
á þessum fimm árum, eru þau endur-
uppgötvuð af listaheiminum,“ segir
Margrét og segir þau loks, á gamals
aldri, hafa fengið sér umboðsmann
en Kristín Scheving, Listasafn Ís-
lands og Berg Contemporary tóku
þau upp á sína arma. „Nöfn þeirra
fóru að birtast í listatímaritum og á
sölusýningum víða um heim og áhugi
vaknaði á þeim á ný. Nú bítast öll
stærstu söfn heimsins um að eiga
verk eftir þau og fjárhagsáhyggjum
þeirra hefur eitthvað létt. MoMA og
Tate hafa meðal annars hug á því að
eignast verk eftir þau,“ segir hún.
„Þau eru svo langt á undan samtíð
sinni að listasöfnin eru fyrst núna að
skilja hvað þau voru að gera. Það er
allt í einu núna mikil ásókn í verkin
þeirra.“
Bónorð við fyrstu kynni
Myndin er unnin upp úr um þúsund
klukkustundum af myndefni sem
komu úr einkasafni Vasulka-
hjónanna, þar sem meðal annars
mátti finna áður óséð myndefni af
Andy Warhol, Jimi Hendrix, Miles
Davis, Jethro Tull, Jackie Curtis,
Candy Darling, Patti Smith og fleir-
um.
„Nú hafa öll verk þeirra verið flutt
yfir á stafrænt form en þau áttu líka
svo mikið myndefni úr partíum og
frá daglega lífinu, auk vídeólista-
verkanna. Hrafnhildur kom heim
með um þúsund klukkustundir af
myndefni sem við réttum Jakobi
Halldórssyni klippara. Hann var um
ellefu mánuði að vinna úr þessu og er
afraksturinn 85 mínútna kvikmynd.
Myndin er fyrst og fremst saga
Steinu og Woody en í myndinni er
farið yfir þeirra feril allt frá því þau
hittast árið 1959 í Prag í Tékkó-
slóvakíu sem þá hét, og til dagsins í
dag. Tékkóslóvakía var þá undir
kommúnistastjórn,“ segir Margrét.
„Í listaskóla í Prag voru þau kynnt
fyrir hvort öðru á göngum skólans.
Það fyrsta sem Woody segir við
hana er: „Viltu giftast mér og koma
mér út úr þessu landi?“ Hún svarar
strax: „Já, ef þú gerir við vespuna
mína.“ Og þau bara giftust og þar
með var örlagaþráðurinn spunninn.“
Steina og Woody Vasulka
hafa verið uppgötvuð á ný
og bítast listasöfn heims um
að eignast verk eftir þau.
Ljósmynd/Úr einkasafni
Vasulka áhrifin, eða
The Vasulka Effect, er
ný íslensk heimilda-
mynd um vídeólista-
mennina og hjónin
Steinu og Woody Va-
sulka. Myndin tvinnar
saman líf og list þessara
heimsfrægu og óvenju-
legu listamanna.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Steina og Woody Vasulka eru
brautryðjendur í vídeólist á
heimsvísu. Þau eru bæði ís-
lenskir ríkisborgarar en hafa
verið búsett um árabil í Banda-
ríkjunum. Snemma á áttunda
áratugnum bjuggu þau í New
York og tóku virkan þátt í þró-
un hinnar alþjóðlegu vídeóbylt-
ingar. Árið 1971 stofnuðu þau
The Kitchen í Greenwich Vil-
lage, á Manhattan, þekktustu
og virtustu margmiðlunar-
miðstöð veraldar. Þau bjuggu
um skeið í Buffalo, þar sem þau
gegndu prófessorsstöðu í prakt-
ískum margmiðlunarfræðum.
Árið 1980 fluttu þau suður til
Santa Fe í Nýju-Mexíkó, þar
sem þau búa enn og starfa.
Þann 16. október 2014 var Va-
sulka stofa opnuð í Listasafni Ís-
lands.
List þeirra hefur nýlega verið
enduruppgötvuð og hafa stór
listasöfn sýnt þeim áhuga.
Steina og Woody
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
Margrét Jónasdóttir