Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2019, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2019, Síða 12
vökunætur og erfiðleikar settu mark sitt á fjöl- skylduna sem og hjónabandið. „Að ganga í gegnum svona erfiða lífsreynslu breytir manni. Ég tek það ekki lengur sem sjálfsagðan hlut að sofa. Svefnleysi gerir það að verkum að maður er eins og vofa. Á þessum tíma var ég fjörutíu kíló en er 56 í dag. Ég var ekki neitt neitt,“ segir Margrét og segir að fjölskyldulífið á þessum tíma hafi að vonum ekki verið eins og hjá venjulegum fjölskyldum. Þegar Keli var enn ungbarn ákváðu þau að fara í Grímsnes í sumarbústað og reyna að eiga eina eðlilega fjölskylduhelgi. Margrét hafði verið mjög treg að fara en lét tilleiðast, en á þessum tíma var Keli gjarn á að fá hita og jafnvel krampa. Þessa helgi í sumarbústaðnum gerðist það að Keli missti meðvitund og blán- aði upp í fanginu á pabba sínum. Þorsteinn kallar til Margrétar: „Keli er dáinn! Hringdu á sjúkrabíl núna!“ Keli var þá lífvana, augun starandi og útlim- ir héngu máttlausir. Við tók skelfingartími þar sem keyrt var í ofboði til móts við sjúkrabílinn. Keli lifnaði við í sjúkrabílnum en svipað atvik átti eftir að gerast einu sinni enn. „Hann deyr aftur stuttu seinna, en þá hafði mig dreymt fyrir því. Ég ætlaði ekki að sofna þessa nótt. Keli var veikur á milli okkar í rúm- inu og ég sat upp við rúmgafl til að halda mér vakandi en hef greinilega dottað. Mér fannst ég finna svo rosalega nálykt en ég var milli draums og vöku. Ég hrökk upp og vissi að eitt- hvað væri að gerast og sá þá að Keli var orðinn blár,“ segir Margrét og segir læknana ekki hafa getað gefið skýringu á þessu. Margrét telur jafnvel að öndunarfærissýk- ingar vegna bakflæðis hafi verið rótin að krömpunum sem alltaf komu fram við hita samfara sýkingum. „Eitt sem við vitum fyrir víst er að þetta hætti eftir að hann fór á bakflæðislyf.“ Fyrir þessi tvö skelfilegu atvik hafði Keli verið byrjaður að segja örfá orð. Orðin hurfu eftir þau. „Það kom alltaf bakslag við hverja krampa en þetta var langverst.“ Byrjuðum myndina upp á nýtt Keli var greindur 22 mánaða með þroska- röskun og þriggja og hálfs var hann greindur einhverfur. „Það var mjög gott að fá grein- ingu; þá var þetta ekki lengur einhver óvissa. Ég vissi ekkert hvað einhverfa var og ekki maðurinn minn heldur en þá gátum við farið að kynna okkur það, þótt það væri lítið efni til á þessum tíma og ekkert hægt að gúggla. Það er ein ástæða fyrir því að ég gerði heimildamynd- ina. Vanþekking á einhverfu var svo mikil, og ekki síður hjá okkur. Þegar ég ætlaði að gera myndina hafði enginn trú á henni og fólk sagði við mig: „Hefur þú ekki nóg með þitt einhverfa barn?“ En ég ætlaði bara að gera myndina í hjáverkum með mínu starfi en svo varð þetta miklu stærra. Þetta átti bara að vera mynd fyrir Ísland en hún fór sigurför um allan heim,“ segir hún. „Þegar Keli var sjö ára vorum við búin að reyna allt sem í okkar valdi stóð fyrir dreng- inn. Það voru alls konar prógrömm í gangi og við prófuðum allt, eins og að þjálfa hann í sér- stöku meðferðarúrræði fyrir einhverfa sem heitir atferlismótun en það er vísindalega rannsakað og eru 50% líkur að viðkomandi geti lifað nokkurn veginn eðlilegu lífi, gangi það eftir. Galli á gjöf Njarðar er að það er mjög tímafrekt og tekur 40 til 60 klukkutíma á viku í að minnsta kosti tvö ár. Það skilaði ekki miklu, Keli okkar var ekki í þeim 50%,“ segir hún. „Ég gerði heimildamyndina til að hjálpa for- eldrum annarra barna, af því ég vissi að ég gæti ekkert gert neitt meira fyrir Kela minn. Það var erfitt að kyngja þeim bita. En þegar við tókum upp síðustu senur í myndinni úti í Bandaríkjunum sjáum við annan dreng sem er með svipaða einhverfu og Keli; ótalandi og með svipaða líkamsfærni. Og hann er að tjá sig með hjálp stafaborðs og tölvu, en það var hug- búnaður sem talaði fyrir drenginn. Ég man að við Friðrik Þór Friðriksson, sem leikstýrði myndinni, horfðum bara hvort á annað forviða. Við hugsuðum bæði, Keli! Og þá bara breytt- um við allri myndinni og byrjuðum nánast upp á nýtt.“ Ég er raunverulegur Hafist var handa að kenna Kela á stafaborðið. „Það fyrsta sem hann stafar er I am real; ég er raunverulegur. Þarna var hann tíu ára og þetta var í fyrsta skipti sem hann gat tjáð sig. Það voru ofsalega blendnar tilfinningar að sjá þetta og rosaleg himnasæla líka. Að fá að heyra fyrstu orð barnins. 99% af einstak- lingum eins og hann fara bara á stofnun og gleymast. En helmingur af börnum sem eru á einhverfurófinu er svipaður Kela er mér sagt,“ segir Margrét. Upphaflega ætlaði fjölskyldan einungis að dvelja níu mánuði í Texas. Þau búa þar enn, enda eru þar miklu betri úrræði fyrir Kela að dafna og blómstra. Eftir að Keli byrjaði að tjá sig þurfti móðir hans að kynnast honum svolítið upp á nýtt. „Ég er ekki hugsanalesari. Ég reyndi bara alltaf að gera mitt besta. Ég hélt ég þekkti hann en ég gerði það ekki. Ég hélt til dæmis að McDonalds væri uppáhaldsmaturinn hans en það reyndist vera sushi. Hvernig átti mér að detta það í hug? Við fjölskyldan höfðum aldrei áhuga á sushi, en hann er núna búinn að kenna okkur að kunna að meta það.“ Það tók fjögur ár að klára heimildamyndina. „Myndin umbylti lífi Kela og okkar allra. Þá fær hann tjáninguna.“ Margrét segir að áhugi sé fyrir að gera aðra heimildamynd. „Rosie O’Donnell er sú sem seldi myndina á HBO og hún vill láta þá gera aðra mynd. Ég er ekki viss um að ég myndi gera aðra mynd. Þetta var svo rosalega vinna þó það hafi verið gaman. Ég var framleiðandi mynd- arinnar ásamt Kristínu Ólafsdóttur,“ segir hún. „Það var æðislegt að fá hana í myndina því hún hafði reynsluna sem ég hafði ekki. Það voru allir svo þakklátir sem komu að gerð myndarinnar; hún gaf öllum svo mikið. Og ekki síst mér; ég sem var að gera mynd fyrir aðra foreldra einhverfra barna, uppgötvaði barnið mitt í leiðinni! Hvað er fallegra?“ Að ljá einhverfum rödd Margrét stofnaði ásamt leikkonunni Kate Winslet góðgerðarsamtökin Golden Hat Foundation. Spurð hvernig hún komst í kynni við stórstjörnuna svarar Margrét: „Dorrit Moussaieff var verndari myndar- innar og var mjög hrifin af henni. Hún stakk upp á að fá þekkta enskumælandi leikkonu til að vera röddin mín því myndin þyrfti að fara á erlendan markað. Hún stakk upp á Kate Wins- let en ég sagðist nú ekki hafa efni á því. Dorrit sagðist bara fá hana til að gera þetta frítt, sem hún gerði! Allt í einu var Kate Winslet komin í myndina, á innan við viku. Hún þakkaði fyrir að fá að vera hluti af þessu ferðalagi því henni fannst myndin æðisleg. Hún skammaðist sín að vita svona lítið um einhverfu. Kate langaði að hitta mig þannig að ég flaug til Bretlands,“ segir hún, en þar var stúdíóið þar sem Kate las inn á myndina. „Hún náði mér svo vel, var með alla kækina mína. Hún vildi alltaf gera betur og tók þetta upp örugglega tíu sinnum. Það var yndislegt að hitta hana og við náðum strax vel saman við fyrsta fund,“ segir hún og útskýrir að Kate hafi síðan fengið hugmyndina að góðgerðar- samtökunum Golden Hat. „Ég er enn að vinna fyrir þessi samtök en þau eru hugsuð til að miðla áfram sögum þess- ara barna. Til að ljá þessum krökkum rödd.“ Kate er einstök Margrét og Kate urðu meira en samstarfs- konur því mikil og góð vinátta myndaðist strax og hittast þær reglulega. Kate Winslet tók ástfóstri við Kela en hún las inn á heimildamyndina Sólskinsdrengurinn. Þau hafa verið miklir vinir síðan, en áratugur er liðinn síðan myndin kom út og fór sigurför um heiminn. Kate Winslet og Margrét voru kampakátar á góðgerðarsamkomu Golden Hat Foundation í Carnegie Hall árið 2012. Þær eru góðar vinkonur og heimsækja hvor aðra reglulega. AFP Keli er 22 ára í dag og situr löngum stundum við tölvuna sína og semur tónlist. Hann tjáir sig í gegn- um stafaborð og tölvu, en hann talar ekki. Hann var tíu ára gamall þegar hann tjáði sig í fyrsta sinn. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.11. 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.