Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2019, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2019
„Þrjár Ingibjargir renna saman í eina konu, einn hugarheim, einn
hljóm,“ segir í kynningu vegna tónleika sem fram fara í Kaldalóni,
Hörpu, á fimmtudaginn kl. 20. „Tónleikaupplifun þar sem ljóð Ingi-
bjargar Haraldsdóttur fléttast inn í töfrandi hljóðheim Ingibjarga.
Þar hljóma langspil, klarínett, kalimbur, spiladósir, píanó, rafhljóð,
harmoníum og raddir,“ segir ennfremur er flytjendur eru Ingi-
björg Fríða Helgadóttir, söngur og önnur hljóðfæri, og Ingibjörg
Ýr Skarphéðinsdóttir, tónskáld, píanó, söngur og önnur hljóðfæri.
Konan í speglinum er sönglagabálkur með nýjum lögum við ljóð
Ingibjargar Haraldsdóttur. Ingibjörg Fríða og Ingibjörg Ýr hafa
unnið að tónlistinni síðustu ár, og hlutu í ár listamannalaun til að
fullvinna tónlistina og gera klára til flutnings og upptöku á plötu.
Ingibjörg Ýr semur tónlistina sem þær þróa svo báðar áfram í
flutningi og spuna.
Morgunblaðið/Golli
Bera sig eftir Ingibjörginni
Ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur hafa orðið nöfn-
um hennar tveimur innblástur við tónsköpun.
Morgunblaðið/Golli
Konan í speglinum nefnist tónlistar-
dagskrá í Kaldalóni á fimmtudag þar sem
þrjár Ingibjargir renna saman í eina konu.
Ingibjörg Fríða
Helgadóttir söng-
kona í góðum fíling.
„Ég er satt að segja enginn trú-
maður. Ég er nútímamaður og
efnishyggjumaður og ég veit að
það gagnar ekkert að biðja guð
um peninga eða bætt lífskjör.“
Þetta sagði júgóslavneski flótta-
maðurinn Dzonic Osman í sam-
tali við Morgunblaðið á þessum
degi árið 1959. Upp úr dúrnum
kom að hann var múslimi og lík-
lega sá eini á landinu um þær
mundir, að því er hann taldi sjálf-
ur, og spurði blaðamaður þá
hvernig hann bæðist fyrir á Ís-
landi.
Í spjallinu kom einnig fram að
foreldrar Osmans hefðu viljað
að hann yrði prestur og settu
hann á prestaskóla, „en ég var
ekki spámannlega vaxinn – frek-
ar en Stalín sem líka var settur í
prestnám – og strauk úr skóla,
þegar ég fór að hafa vit fyrir mér
sjálfur. Ég kunni miklu betur við
hermennskuna í þá daga.“
Dzonic Osman og eiginkona
hans, Slavica, létu vel af dvölinni
á Íslandi. „Maður þarf ekki að
óttast, að það sé lögreglan, sem
bankar á dyrnar hjá manni á
morgnana.“ Bæði unnu þau á
Álafossi og líkaði vel. „Þið vitið
bara ekki hvað þið eruð heppnir
Íslendingar,“ sögðu hjónin.
GAMLA FRÉTTIN
Bað ekki
guð um
peninga
Hjónin Dzonic og Slavica Osman létu vel af dvölinni á Íslandi árið 1959.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Björg Björnsdóttir
mannauðsstjóri Skógræktarinnar
Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra
Jess Phillips
þingkona breska Verkamannafl.
Sími: 558 1100
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður Skeiði 1
Allir sófar á taxfree tilboði*
SÓFA
TAXFREE
* Taxfree tilboðið gildir á sófum, sófaborðum og púðum
og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði.
Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
FRIDAY
Þéttur, þægilegur og rúmgóður sófi með háu baki og
góðum bakstuðningi. Tungan er færanleg frá vinstri til
hægri. Grátt Danny áklæði. Stærð: 252 x 175 x 91 cm
145.153 kr. 179.990 kr.
LÝKUR
UM
HELG
A
www.husgagnahollin.is
V E
F V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
KIRUNA
Horntungusófi. Hægri tunga.
Dökkgrátt slitsterkt áklæði.
Stærð: 236 x 200 x 78 cm
145.153 kr.
179.990 kr.
BOYD
Glæsilegur 3ja sæta sófi í dökkbláu sléttfaueli. Bólstraðir
hnappar í baki og innan á hliðum/örmum. Sethæð um 43
cm. Bakhæð um 42 cm. Stærð: 215 × 87 × 78 cm
96.766 kr. 119.990 kr.