Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.12.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.12.2019, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 2019 TRATTO model 2811 L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla DUCA model 2959 L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,- L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,- ESTRO model 3042 L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,- STAN model 3035 L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 359.000,- L 206cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- JEREMY model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,- Yfirskrift tónleika Ragnheiðar Gröndal, Kristjönu Stefáns og Svavars Knúts er Eitthvað fallegt eftir samnefndri hljómplötu þeirra sem kom út hjá Dimmu útgáfu árið 2014. Á tónleikunum kennir margra grasa úr jólagarðinum, bæði verða flutt sígild ís- lensk jólalög og frumsamin eftir listafólkið og er áherslan lögð á látleysi, einfaldleika og einlægni í flutningi, að því er fram kem- ur í kynningu. Allur hljóðfæraleikur er í höndum tríósins og er hljóðheiminum þannig haldið eins lágstemmdum og mögulegt er. „Ragnheiður, Kristjana og Svavar leggja upp úr því að stemningin á tónleikunum verði líkust kvöldvöku eða góðri sam- verustund. Þetta á því að vera hin fínasta stund fyrir alla fjöl- skylduna,“ segir ennfremur. Svavar Knútur og Krist- jana Stefáns verða á Sauðárkróki í vikunni. Syngja um eitthvað fallegt Ragnheiður Gröndal lætur sig heldur ekki vanta. Morgunblaðið/Hari Söngvaskáldin Ragnheiður Gröndal, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur halda sína árlegu jólatónleika á Gránu á Sauð- árkróki á kl. 21 á miðvikudaginn kemur. „Kona“ ritaði Velvakanda bréf í desemberbyrjun 1969 og þótti læknar greinilega ekki njóta sannmælis í samfélaginu. „Fólk á það til að berja upp kl. 11 á kvöldin til að biðja um plástur, „af því að það átti leið fram hjá“, eða það sá ljós í glugganum og vissi að læknirinn var heima, þá var sjálfsagt að berja upp þótt klukkan væri að nálgast háttatíma,“ sagði hún og hélt áfram: „Nei, hættum að ríf- ast út af launum lækna, lítum heldur upp til þeirra, reynum að gera þeim léttara fyrir og ónáð- um þá ekki utan viðtalstíma nema nauðsyn sé. Þeir eiga fylli- lega skilið þau laun, sem þeir fá fyrir allt, sem þeir leggja á sig, erfið ferðalög, næturvökur og sí- felldar vaktir. Látum ekki spyrj- ast um okkur Íslendinga að við séum að hnýta í læknana okkar fyrir þær tekjur, sem þeir hafa. Að lokum, munum að læknar eru fyrst og fremst með góð laun vegna gífurlegrar vinnu. Þeir eru ófáir, sem eiga lækni sínum líf að launa. Tökum hönd- um saman um að vinna að bættri starfsaðstöðu lækna, stöndum einhuga á bak við þá. Látum þá finna að íslenzka þjóð in metur þá og virðir fyrir störf þeirra.“ GAMLA FRÉTTIN Báðu um plástur klukkan 11 „Konu“ þótti ekki ástæða til að amast við launakjörum lækna árið 1969. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞRÍFARAR VIKUNNAR Jón Sveinsson þjálfari knattspyrnuliðs Fram Clint Eastwood leikari og leikstjóri Jón Kalman Stefánsson rithöfundur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.