Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.12.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.12.2019, Blaðsíða 4
Bæjarar hanga á besta orlofstímanum Það orð fer af Þjóðverjum aðþeir séu nákvæmari og skipu-lagðari en annað fólk. Í því ljósi þarf ekki að koma á óvart að þar um slóðir hafi fyrir margt löngu verið sett á laggirnar kerfi til að tryggja að allir landsmenn færu ekki í sumarfrí á sama tíma. Tilgangurinn var öðru fremur að hlífa innviðum í landinu enda ófært að allir landsmenn þystu út á þjóðbrautina á sama tíma, nú eða hoppuðu um borð í lestirnar eða flug- vélarnar. Kerfið var einnig hugsað til að dreifa gistinóttum á hótelum yfir sumarmánuðina og álaginu á ferða- þjónustuna almennt og freista þess þannig að hámarka tekjumöguleik- ana í greininni. Þetta kom fram í breska blaðinu The Guardian sem fjallaði um málið í vikunni. Sögðu þvert „nein“ Allt hljómar þetta skynsamlega en eigi að síður er nú risin hörð deila milli ríkjanna sextán um tilslökun og möguleg skipti innan kerfisins. Þannig er nefnilega mál með vexti að þegar kerfinu var komið á tryggðu ríkin Bæjaraland og Baden- Württemberg sér það sem flestum þykir hentugasti og besti tíminn til að fara í sumarfrí, það er frá júlí- lokum og fram í byrjun september. Mun þetta hafa verið gert til að tryggja að börn í þessum tveimur ríkjum gætu hlaupið undir bagga með bændum og búaliði á háanna- tímanum í sveitinni. Þess má geta að velmegun er al- mennari í þessum tveimur ríkjum en flestum hinna. Á fundi menntamálaráðherra ríkjanna sextán fyrir skemmstu voru Bæjarar og Baden Württem- berg-búar spurðir hvort tilslökun kæmi til álita en munu hafa sagt þvert „nein“, sérstaklega stóðu Bæj- arnir harðir á sínu en sem kunnugt er hafa þeir gjarnan litið á sig sem þjóð innan þjóðarinnar. Skilaboðin frá þeim eru skýr: Ekki verður verslað með besta frítímann í dagatalinu! Þetta segja yfirvöld í Bæjaralandi þrátt fyrir að fram hafi komið að ein- hver stuðningur sé við breiðari or- lofsglugga í ríkinu. Þannig hafa sumir Bæjarar vaxandi áhuga á að heimsækja nágrannaríki, eins og Frakkland og Bretland, utan há- annatíma, að ekki sé talað um Ísland og önnur Norðurlandaríki í júní – til að upplifa lengstu daga ársins. Sökuð um sjálfselsku Hleypti þetta að vonum illu blóði í hin ríkin fjórtán sem hafa hótað að sniðganga gamla samkomulagið og fara bara í frí þegar þeim hentar og sýnist enda þykir þeim ósanngjarnt að þau þurfi að búa við skiptikerfið meðan Bæjaraland og Baden Württ- emberg standi broshýr og keik fyrir utan. Hefur Hamborg meðal annars borið tvíríkinu sjálfselsku á brýn. Hamborgarar hafa raunar tekið af skarið og sagst ætla að ákveða fram- vegis einir og óstuddir hvenær þeir fara í frí – sem er mjög djarft teflt. Þið munið að við erum að tala um Þýskaland hérna. Hafa Hamborg- arar skorað á fleiri ríki að gera slíkt hið sama og munu Neðra-Saxland, Nordhrein-Westfalen og Berlín vera að velta fyrir sér að fylgja fordæm- inu. Fyrir liggur að það hefur lengi farið í fínustu taugarnar á fólki í hin- um ríkjunum fjórtán að Bæjarar og Baden Württemberg-búar skelli sér í frí þegar allir aðrir Þjóðverjar eru búnir með sitt orlof og mættir aftur í vinnuna. Skiptikerfið hleypur á fimm árum, þannig að við erum að tala um árin 2024 til 2028+ í þessu sambandi. Sem þýðir að stæði þessi slagur milli sveitarfélaga hér á landi þá myndu viðræður væntanlega hefjast haustið 2023, jafnvel ekki fyrr en undir jól það ár. En aftur, hér erum við að tala um Þýskaland. Sjálf sambandsstjórnar- stefnan í uppnámi Stór orð hafa fallið að undanförnu vegna þessa umdeilda máls. Þannig hefur borgarstjórinn í Berlín, Mich- ael Müller, látið hafa eftir sér að sjálf sambandsstjórnarstefnan sé í uppnámi af þessum sökum en sem kunnugt er þá er gjarnan litið á hana sem erkilíkan fyrir samhljóm og samvinnu á þessum slóðum og bygg- ir Evrópusambandið í grunninn gróflega á henni. Í samtali við sjónvarpsstöðina Deutschlandfunk gagnrýndi Müller eigingjarna nálgun ríkjanna tveggja og harmaði „ítrekaðar árásir“ þeirra á sambandsstjórnarstefnuna og sagði þau ekki hafa neinn skilning á því að innan kerfis, eins og sumar- leyfiskerfisins, þyrftu menn bæði að kunna að „halda og sleppa“. Hann leggur til að rammi ríkjanna tveggja verði þrengdur milli loka júlí og upp- hafs september. Ekki er líklegt að það verði niður- staðan enda hafa útreikningar hag- fróðra manna leitt í ljós að mikið fjárhagslegt tjón geti hlotist af því fyrir ferðaþjónustuna í landinu. Tal- að hefur verið um allt að 120 millj- ónir evra á dag í því sambandi. Berlínarbúar baða sig sumarið 2018 á Wannsee-svæðinu. AFP Þjóðverjar eru komnir í hár saman vegna sumarleyfa en gamalt kerfi gerir Bæjurum og Baden Württemberg- búum kleift að fara allt- af í frí á „besta“ tím- anum meðan hin ríkin fjórtán þurfa að skipta sumrinu á milli sín. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Ung stúlka leikur sér í ánni Isar í München síðasta sumar. AFP HEIMURINN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.12. 2019 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.