Morgunblaðið - 02.12.2019, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.12.2019, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2. D E S E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  283. tölublað  107. árgangur  KEXIÐ SLÆR Í GEGN Í PORT- LAND Í OREGON FIMMTÁN TILNEFNINGAR ÞRÍR ÆTT- LIÐIR Á BRYGGJUNNI ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNIN 26 NÝR BÁRÐUR SH 6ÓLAFUR ÁGÚSTSSON 2 22 dagartil jóla Sendu jólakveðju á jolamjolk.is  „Við Þróttarar erum mjög ánægðir með að það sé að komast hreyfing á aðstöðumál félagsins,“ segir Kristján Kristjánsson, vara- formaður félagsins. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að skipa starfshóp sem á að fjalla um aðstöðu fyrir íþróttaæfingar, kennslu og keppni í Laugardal. Er hópnum ætlað að skila niðurstöðu fyrir lok febrúar 2020. Mikil þörf er á nýjum mann- virkjum fyrir íþróttafélög og skóla í Laugardalnum. »10 Hyggjast bæta að- stöðu í Laugardal Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Turnarnir þrír í íslenskum spennu- sagnaheimi; Arnaldur Indriðason, Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson, hafa náð frábærum árangri á heimsvísu á liðnum árum. Þau hafa samanlagt selt yfir 20 milljónir bóka og virðast vinsældir þeirra aukast ár frá ári. Arnaldur hefur selt ríflega 14 milljónir bóka, Yrsa yfir fimm millj- ónir og Ragnar rauf nýverið milljón eintaka múrinn. Til samanburðar er talið að bækur nóbelsskáldsins Halldórs Laxness hafi alls selst í um tíu milljón eintökum. Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir að það sé óneitanlega mjög merkilegt að íslenskir höfundar hafi náð slíkum árangri í sölu á heimsvísu. Hann telur að nokkrir þættir spili inn í vinsældir krimma- höfundanna en þó ekki síst mikil vinna. „Þau hafa sjálf lagt töluvert upp úr því að rækta góð samskipti við útgefendur og lesendur í þess- um löndum,“ segir hann. »14 Hafa selt 20 milljón bækur Tvöfaldur Laxness Rithöfundarnir Ragnar Jónasson, Yrsa Sigurðardóttir og Arnaldur Indriðason hafa til samans selt um 20,4 milljón eintök af bókum sínum á heimsvísu, sem er meira en tvöföld sala allra bóka nóbel- skáld sins.  Íslenskir krimmahöfundar gera það gott á heimsvísu  Áform dóms- málaráðherra um að rýmka reglur um mannanöfn ber að skoða í því ljósi að þjóðin sjálf er íhaldssöm hvað varðar nafn- giftir. Þetta segir Davíð Þór Jóns- son, sóknar- prestur í Laugarneskirkju í Reykja- vík. „Nöfn fylgja tískusveiflum,“ segir presturinn. Sú var tíðin að Sig- ríður var mjög algengt kvennafn á Íslandi. Í hópi fermingarbarna Dav- íðs fyrir tveimur árum var þó aðeins ein stúlka með því nafni en þrjár hétu Salka. »7 Sölkurnar voru þrjár Davíð Þór Jónsson Kveikt var á Óslóarjólatrénu á Austurvelli í Reykjavík í gær, en sú athöfn markar í vitund margra upphaf jólaundirbúnings. Rauðklæddir jólasveinar mættu á svæðið og skemmtu börnum jafnt sem fullorðnum með söng og sprelli og gáfu þar með tón- inn fyrir að aðventan verði skemmtilegur tími enda er margt í boði í desember, menning og litríkt mannlíf. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jólasveinar gáfu tóninn á Austurvelli Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gerð nýs flugvallar í Hvassahrauni verður aldrei arðbær nema völlurinn verði alhliða og þjóni bæði innan- lands- og millilandaflugi. Þetta segir Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands, og bendir á að mikil uppbygging á Keflavíkur- flugvelli sem Isavia hefur áform um og að útbúa nýjan innanlandsvöll í Hvassahrauni sé fjárfesting upp á 280 milljarða króna. Eðlilegt sé því að skoða hvort ekki sé skynsamlegt að einn aðalflugvöllur landsins verði í Hvassahrauni, enda felist margvís- legt hagræði í því að færa þessa starf- semi nær höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt samkomulagi sem samgönguráðherra og borgarstjóri undirrituðu fyrir helgina verður nú farið í rannsóknir á aðstæðum á hugs- anlegu flugvallarsvæði í Hvassa- hrauni, svo sem á veðurfari. Á þeirri forvinnu að ljúka eftir tvö ár, en flug- vallargerðin tekur ef af verður 15-17 ár. Með tilliti til veðráttu segist Matt- hías, sem er atvinnuflugmaður, ekki útiloka þetta flugvallarstæði. Því verði aftur á móti að halda til haga að í fyrrgreindu samkomulagi sé margt óljóst. Reykjavíkurborg ætli að skoða breytingar á aðalskipulagi þótt ljóst megi vera að flugvöllur verði áfram í Vatnsmýri næstu 15-17 árin. „Almennt get ég líka sagt að ef ekki koma skýrar skuldbindingar borgar- innar um að halda í Reykjavíkurflug- völl ríkir óvissuástandið áfram. Í því samhengi má nefna að samkvæmt gildandi skipulagi á að loka aðalbraut vallarins sem liggur frá norðri til suð- urs eftir tvö ár en slíkt gerir völlinn óstarfhæfan,“ segir Matthías Svein- björnsson. Hvassahraun ekki arðbært  Nýr alhliða flugvöllur þjóni bæði innanlands- og millilandaflugi  Veðrátta úti- lokar ekki staðinn  Samkomulag ríkis og Reykjavíkurborgar er sagt vera óljóst MTilraun til að losna »4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.