Morgunblaðið - 02.12.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.12.2019, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Því er iðulegahaldið fram íopinberri um- ræðu að ójöfnuður fari vaxandi í þjóð- félaginu. Þetta ein- skorðast ekki við Ís- land heldur er þessu einnig haldið fram erlendis. Í þessu sambandi er gjarnan bent á ofurríka menn á borð við stofnanda Facebook, en slíkir eru vitaskuld algerar und- antekningar þó að þeir segi út af fyrir sig áhugaverða sögu um netið og hluta af áhrifum þess. Netið er þess eðlis að hitti at- hafnasamir einstaklingar á réttu þjónustuna og geti fénýtt hana, þá er allur heimurinn undir sem markaður, aðgengið auðvelt og möguleikarnir til að afla tekna nánast óþrjótandi. En þessir möguleikar eru auðvitað ekki fyrir hendi nema fjöldinn vilji nýta þjónustuna eða kaupa hana. Þó að þessi hlið netsins sé út af fyrir sig áhugaverð er hæpið að fullyrða að hún hafi breytt jöfn- uði í þjóðfélaginu almennt og ný úttekt The Economist, sem mbl.is sagði frá fyrir helgi, bend- ir til þess að fullyrðingar um aukinn ójöfnuð eigi ekki við rök að styðjast. Í úttektinni er vísað í nýjar rannsóknir þar sem fyrri rannsóknir um notkun gagna eru gagnrýndar og dregnir fram gallar í þeim sem skekki niður- stöður. Nýjar rannsóknir fræðimanna benda til dæmis til þess, ólíkt því sem oft er haldið fram, að „hlut- fallslegur skerfur ríkasta 1% íbúa Bandaríkjanna hafi sama sem staðið í stað frá 1960. Segja fræðimennirnir að fyrri rann- sóknir, sem notuðu skattskýrslur til að reikna út ójöfnuð, hafi ekki notað gögnin með réttum hætti. Þá sé auðsöfnun milli- stéttarinnar van- metin s.s. vegna þess að hlutabréfa- eign þeirra er að stórum hluta bundin í milliliðum eins og lífeyrissjóðum“, eins og kom fram í frásögn mbl.is af úttekt The Economist. Annað sem skekkt hefur eldri rannsóknir er að rannsakendum hefur láðst að gera ráð fyrir breyttu fjölskyldumynstri. Hjú- skapartíðni hafi farið lækkandi meðal tekjulægri hópa, sem þýði að meðaltekjur heimila í neðri tekjuþrepum virðist lægri en þær annars væru. Þetta snýr meðal annars á haus niður- stöðum hagfræðinga á borð við Thomas Piketty, sem náð hefur töluverðum vinsældum eftir að hafa fullyrt að misskipting auðs hafi aukist mikið á undanförnum áratugum. Fleiri röksemdir eru ræddar í úttekt The Economist sem ekki verða raktar hér, en skipta miklu, og allt ætti þetta að verða til þess að farið verði gætilegar framvegis í umfjöllun um ójöfnuð en gert hefur verið hingað til. Raunar ættu þeir sem barist hafa gegn meintum auknum ójöfnuði, og meðal annars viljað ganga langt í að umbylta þjóð- félaginu og auka ríkisafskipti og skattheimtu til að ná fram mark- miðum sínum, að fagna því að slíkra aðgerða er ekki þörf. Lík- legra er þó að margir þeirra haldi sig við sama heygarðs- hornið, enda er tal um meintan vaxandi ójöfnuð oft aðeins átylla til að ná pólitískum markmiðum og völdum. Nýjar rannsóknir fræðimanna varpa ljósi á ranga útreikninga í fyrri rannsóknum} Ójöfnuður fer ekki vaxandi Hryðjuverka-árásin í Lund- únum á föstudag, þar sem tveir létu lífið, auk hryðju- verkamannsins sjálfs, hefur vakið mikinn óhug. Hún rifjar ekki aðeins upp sams- konar árás, enn mannskæðari, á sama stað fyrir fáum árum, held- ur hefur hún einnig orðið til þess að vekja umræður um fangelsun hryðjuverkamanna og einkum þó lausn þeirra úr fangelsi. Sá sem framdi árásina á föstu- dag var látinn laus úr fangelsi fyr- ir tæpu ári, eftir að hafa setið inni um helming af sextán ára dómi sem hann fékk fyrir að skipu- leggja hryðjuverkaárás. Viðbrögð sumra stjórnmálamanna hafa ver- ið hörð, eins og við er að búast, og dómsmálaráðuneytið breska hef- ur hafið rannsókn í skyndi á um 70 dæmdum hryðjuverkamönnum sem talið er að hafi verið látnir lausir án þess að hafa afplánað fullan dóm. Þetta er ískyggilegur fjöldi og óhugnanlegt að slík- ir menn skuli látnir ganga lausir. En við- fangsefnið er hvorki einfalt né auðvelt. Hvað á að gera við þá sem hafa undirbúið eða jafnvel framið hryðjuverk? Eru lýðræðis- og réttarríki tilbúin til að hafa þá alla á bak við lás og slá ævilangt? Og hvar á að draga mörkin í þessu efni? Hvað með til dæmis þá sem átt hafa samskipti við hryðju- verkamenn og hvers eðlis mega þau samskipti hafa verið? Lýðræðis- og réttarríki eru í miklum vanda þegar kemur að því að finna leiðir til að takast á við hryðjuverkamenn og þá öfgafullu einstaklinga sem hætta er á að fylli þann hóp. Lausnin má ekki vera að breyta þjóðfélaginu í alls- herjar eftirlits- og lögregluríki, en hún getur ekki heldur falist í því að láta eins og ekkert sé og meðhöndla hryðjuverk eins og hvern annan glæp og hryðju- verkamenn eins og hverja aðra glæpamenn. Hryðjuverkamenn eru ekki eins og aðrir glæpamenn} Hryðjuverkavandinn G reint var frá því í fréttum um sl. helgi að annan hvern dag komi kona með áverka eftir heimilis- ofbeldi á Landspítalann. Þessar upplýsingar koma fram í nýrri skýrslu sem nær yfir 10 ára tímabil. Beinn kostnaður spítalans er sagður um 100 milljónir króna. Raunverulegur kostnaður er mun meiri. Fyrir þolendur er um óbætanlegt tjón að ræða. Heimilið á að vera friðar- og griðastaður en ekki vettvangur ofbeldis og annarra óhæfu- verka, hvorki gegn konum, stúlkum né öðrum heimilismönnum. Kynbundið ofbeldi er mesta ógn gegn frelsi og sjálfsákvörðunarrétti kvenna sem fyrirfinnst í íslensku samfélagi. Jafnrétti kynjanna verður aldrei að veruleika á meðan það fær þrifist. Árlega leita hundruð kvenna til Kvenna- athvarfsins og Stígamóta í leit að skjóli undan líkamlegu og andlegu ofbeldi á heimilum sínum. Ofbeldi á heimilum er skeinuhættast kvenfrelsinu. Þögn og af- skiptaleysi er í bandalagi með ofbeldismanninum. Gerendurnir eru í flestum tilvikum eiginmenn, fyrrver- andi eiginmenn, sambýlismenn, kærastar, feður, bræður, frændur eða vinir. Innan við 20% ofbeldismanna eru ókunnugir þeim konum sem þeir beita ofbeldi skv. upplýs- ingum frá Stígamótum. Nú stendur yfir árlegt 16 daga alþjóðlegt átak gegn kynbundnu ofbeldi. Það hófst 25. nóvember sl. á alþjóð- legum degi gegn ofbeldi sem beinist að konum og því lýk- ur 10. desember nk. sem er hinn alþjóðlegi mannréttinda- dagur. Átakinu er ætlað að opna augu sem flestra fyrir þessu vandamáli. Árangur næst ekki nema með almennri vitundarvakningu meðal þjóð- arinnar og þá ekki síst meðal karlmanna. Við verðum öll að stíga fram og hafna hvers kyns áreitni og ofbeldi. Margt hefur áunnist í þessari baráttu. Sem dæmi má nefna þá mikilvægu breytingu sem gerð var á almennum hegningarlögum árið 2016 að setja sérstakt ákvæði um ofbeldi í nánum samböndum. Fyrst og fremst var það sett í þeim tilgangi að draga athyglina að al- vöru heimilisofbeldis. Ákvæðið er rökrétt framhald af viðhorfsbreytingu sem hefur átt sér stað í samfélaginu og lýsir sér m.a. í því breytta verklagi sem lögreglan hefur tekið upp þegar hún er kölluð út vegna brota af þessu tagi. Ísland fullgilti einnig svonefndan Istanbúl- samning fyrr á þessu ári en samningurinn lýt- ur að forvörnum og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Fullgildingin felur í sér að Ísland hefur skuldbundið sig til að fara að ákvæðum samningsins og tryggja vernd kvenna gegn ofbeldi og heimilisofbeldi í samræmi við ákvæði hans. Skilaboðin eru skýr. Á Íslandi líðum við ekki heimilis- ofbeldi og áfram verður unnið að auknum úrbótum. Hafi einhvern tímann verið talið að ofbeldi fengi að þrífast inni á heimilum og að yfirvöld létu það óátalið er ljóst núna að svo er ekki. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Við líðum ekki ofbeldi Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Þrír vinsælustu spennusagna-höfundar landsins hafakomið sér makindalega fyr-ir á metsölulistum þessa jólavertíðina rétt eins og undanfarinn áratug. Arnaldur Indriðason á mest seldu glæpasöguna, Yrsa Sigurðar- dóttir þá næstmest seldu og Ragnar Jónasson þá þriðju. Vinsældir þeirra þriggja eru raunar með nokkrum ólíkindum – ekki síst ef horft er út fyrir landstein- ana. Þegar rýnt er í sölutölur kemur í ljós að samanlagt hafa þau selt yfir 20 milljón bækur á heimsvísu. Yrsa komin í fimm milljónir Þau Arnaldur, Yrsa og Ragnar þurfa sannarlega ekki að skammast sín fyrir sölu á bókum hér á landi. Á löngum ferli hefur Arnaldur mokað út hálfri milljón eintaka, Yrsa er komin yfir 200 þúsund eintök og Ragnar hef- ur selt 65 þúsund bækur. Þetta er þó bara brot af sölunni um heim allan. Arnaldur hefur alls selt um 14,4 milljónir eintaka af bókum sínum. Þær hafa verið þýddar á 41 tungumál. Yrsa hefur selt um fimm milljónir ein- taka síðan fyrsta bók hennar kom út ytra árið 2006. Bækurnar hafa verið þýddar á ríflega þrjátíu tungumál. Ragnar rauf nýlega milljón eintaka múrinn á heimsvísu eins og greint var frá í Morgunblaðinu. Bækur hans hafa verið gefnar út í yfir tuttugu löndum. Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir að það sé óneitanlega mjög merkilegt að íslenskir höfundar hafi náð slíkum árangri í sölu á heimsvísu. „Ég tel að skýringin á þessari velgengni sé sam- bland af nokkrum þáttum. Í fyrsta lagi eru þetta færir höfundar sem hafa náð mjög góðum tökum á þessu skáld- sagnaformi. Í öðru lagi eru þau hluti af bylgju norrænna spennusagnahöf- unda, nordic noir, sem hefur fengið mikla athygli og notið velgengni á heimsvísu síðustu ár. Að síðustu held ég að áhugi á Íslandi spili inn í,“ segir Heiðar. Hann bendir jafnframt á að mikil vinna liggi að baki þessum vinsældum. „Þau hafa sjálf lagt töluvert upp úr því að rækta góð samskipti við útgef- endur og lesendur í þessum löndum með því að kynna bækur sínar og taka þátt í alls konar viðburðum.“ Engir glæpir í landi álfa Höfundarnir og samstarfsmenn þeirra hafa einmitt greint frá því að talsvert hafi þurft að hafa fyrir því að koma sér á kortið erlendis. „Það tók drjúgan tíma að finna fyrsta erlenda útgefandann. Nokkur ár. Þetta var mikil barátta. Við fengum alls kyns at- hugasemdir frá erlendum útgef- endum, meðal annars þær að það væri morgunljóst að engir glæpir væru framdir í landi álfa og eldfjalla. Það tæki því ekki að líta á glæpasagna- handrit frá þessu landi. Aðrir sögðu að nafn höfundar væri svo erfitt í fram- burði að ætti hann að tryggja sér út- gáfu á erlendri grund þyrfti hann að skipta um nafn sem skjótast,“ sagði Valgerður Benediktsdóttir hjá rétt- indastofu Forlagsins í viðtali við Morgunblaðið um upphaf ferils Arn- aldar. Ragnar kominn á fleygiferð Pétur Már Ólafsson, bókaútgef- andi í Veröld, segir að mörg ár hafi tekið að koma Ragnari Jónassyni á þann stað sem hann er í dag. Hjólin hafi ekki byrjað að snúast af alvöru fyrr en árið 2016. Síðasta árið lætur nærri að á tveggja mínútna fresti hafi verið seld bók eftir Ragnar einhvers staðar í heiminum. Yrsa vakti aftur á móti strax áhuga erlendra útgefenda. „Vorið 2005 var hún komin af stað með Þriðja táknið – óþekktur barnabókahöf- undur. Við sendum enska þýðingu á þremur köflum til nokkurra þýskra bókaútgáfa og áður en sá dagur var úti voru fimm af stærstu forlögum Þýskalands farin að bjóða hvert í kapp við annað. Tíðindin um þennan nýja íslenska glæpasagnahöfund bárust út og þegar bókin kom svo út á íslensku í byrjun nóvember sama ár höfðum við samið um útgáfu á Þriðja tákninu á 15 tungumálum,“ segir Pétur. Krimmahöfundarnir moka út bókum ytra Arnaldur Indriðason 23 bækur á 23 árum. 14,4 milljón eintök seld á heimsvísu. 500 þúsund eintök seld á Íslandi. Yrsa Sigurðardóttir 20 bækur á 22 árum. Þar af eru 5 barnabækur og 15 glæpasögur. 5 milljón eintök seld á heimsvísu. 200 þúsund eintök seld á Íslandi. Ragnar Jónasson 11 bækur á 11 árum. 1 milljón eintök seld á heimsvísu. 65 þúsund eintök seld á Íslandi. Halldór Laxness 10 milljón eintök seld á heimsvísu. (til samanburðar) Ótrúleg velgengni íslenskra krimmahöfunda Heimild: Forlagið, Bjartur/Veröld Þegar öllu er á botninn hvolf þá er lífi ð þó umfram alt salt- fi skur en ekki draumaríngl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.