Morgunblaðið - 02.12.2019, Page 15

Morgunblaðið - 02.12.2019, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2019 Þjóðlegt Fullveldisdeginum var fagnað í gær. Þótt margir einbeittu sér frekar að upphafi aðventunnar og undirbúningi jólanna var Harpa lýst upp í fánalitunum af þessu tilefni. Kristinn Magnússon Þeir sem hafa lesið bækur Guðrúnar frá Lundi kannast við lýs- ingarnar á því þegar gamalt fólk, sem þrot- ið var að kröftum til vinnu, fór í hornið hjá börnunum. Þau horn voru æði margvísleg og þar bjó fólk við misjafnan kost síðustu æviárin. Sumir höfðu ekkert horn að leita í, það fólk átti gjarnan dapurt sólarlag. Einn hóp- ur skar sig úr á of- anverðri 19. öldinni. Það voru ekkjur presta, sem höfðu líf- eyri úr prestsekkna- sjóði og höfðu því eilít- ið á milli handanna í ellinni. Prestsekknasjóður var vísir að fyrsta líf- eyrissjóði sem stofn- aður var á Íslandi, Líf- eyrissjóði starfsmanna ríkisins. LSR er í dag stærsti lífeyrissjóður landsins og fagnar hundrað ára af- mæli um þessar mundir. Stofnun lífeyrissjóðanna á Íslandi er eitt mesta gæfuspor íslensks al- mennings. Með þeim hafa ekki að- eins aldraðir öðlast sjálfstæði. Börnin hafa líka öðlast meira sjálf- stæði og frjálsræði með því að þurfa ekki að taka fullorðna for- eldra og ættingja inn á heimilin. Á 100 ára vegferð LSR hefur margt breyst. Lífeyrissjóðurinn fer nú með ævisparnað tugþúsunda landsmanna. Sjóðurinn var upp- haflega sjóður karlkyns embættis- manna en nú er meirihluti sjóðs- félaga konur. Sjóðurinn leggur ríka áherslu á góða stjórnarhætti, ábyrgar fjárfestingar og er sér vel meðvitaður um áhrif hans á fjár- málamarkaði landsins. Lífeyris- sjóðakerfi landsmanna er ekki enn orðið fullþroska. Engum, sem er meðvitaður um kjör aldraðra á ár- um áður, dylst þó hversu mikil verðmæti eru fólgin í því. Fullorðið fólk á í dag skilið að njóta lífsins og sinna hugðarefnum sínum. Við viljum ekki lengur þurfa að dúsa í horninu hjá börnunum eins og Guðrún frá Lundi lýsti. Fólk á að hafa frelsi til að gera það sem það vill í stað þess að þurfa að reiða sig á aðra. Lífeyrissjóðakerfið hefur veitt fólki þetta frelsi og sjálf- stæði á efri árum og það mun bara styrkjast í því hlutverki til fram- tíðar. Eftir Unni Pétursdóttur » Fullorðið fólk á skiliðað njóta lífsins og sinna hugðarefnum sín- um. Við viljum ekki lengur dúsa í horninu hjá börnunum eins og Guðrún frá Lundi lýsti. Unnur Pétursdóttir Höfundur er formaður stjórnar LSR. Að fara í hornið hjá börnunum Langtímasjónarmið eru í auknum mæli höfð til hliðsjónar við mat á fjárfestingarkostum líf- eyrissjóða og við stýr- ingu eignasafna þeirra. Markmiðið er að bæta áhættustýringu, styðja við trausta langtíma- ávöxtun og að endur- spegla gildi lífeyris- sjóða sem fjárfesta. Þetta er vegferð sem tekur tíma þar sem byggja þarf upp reynslu og við- bótarþekkingu. Árið 2017 tóku gildi breytingar á lögum um fjárfestingarstarfsemi líf- eyrissjóða. Nú er meiri áhersla á áhættumat, samsetningu eignasafna og krafa er gerð um að lífeyrissjóðir setji sér siðferðileg viðmið í fjárfest- ingarstarfseminni. Góð rök eru fyrir því að kröfum um siðferðileg viðmið sé vel mætt með því að meta fjárfestingakosti og eignasöfn með hliðsjón af umhverf- ismálum, hagsmunum samfélagsins og stjórnarháttum. Á ensku er í þessu sambandi stundum vísað til: „triple bottom line; people – planet – profit“. Nú horfa stofnanafjárfestar eins og lífeyrissjóðir í vax- andi mæli til sjálf- bærrar þróunar og hagsmuna ýmissa hag- hafa svo sem starfs- fólks, birgja og neyt- enda. Áherslan í starfsumhverfi fjár- festa er sífellt meiri á langtímasýn og mat á svonefndum ófjárhags- legum upplýsingum. Þó er ekki vikið frá kjarna umboðs lífeyrissjóða sem er að ávaxta eignir sjóðfélaga. Ítrekaðar rannsóknir sýna að þar sem siðferðilegum við- miðum er sinnt er langtímaávöxtun fjárfestingar að jafnaði síst lakari og gjarnan traustari en ella. Viðbót, ekki bylting Aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga kemur ekki í stað hefðbundinna fjár- festingaraðferða, hún er viðbót ætluð til að víkka sjóndeildarhringinn við eignastýringu. Lífeyrissjóðirnir eru í raun að verða virkari eigendur sem fjárfestar með því að kalla eftir upp- lýsingum og skýringum sem lúta að stjórnarháttum, umhverfisþáttum og samspili við samfélagið sem fyrir- tækin starfa í. Þannig geta sjóðirnir betur greint langtímahagsmuni sína, virðiskeðjur þeirra fyrirtækja sem fjárfest er í og vægi lykilhaghafa fyr- irtækjanna. Þar fara saman hags- munir sjóðfélaga sem hinna endan- legu eigenda og hagsmunir vel rekinna fyrirtækja. Áhrif EES Talsverðar breytingar hafa orðið á löggjöf ESB um fjárfestingaum- hverfi stofnanafjárfesta eins og líf- eyrissjóða, fjárfestingasjóða og líf- tryggingafélaga. Þar gætir m.a. sjónarmiða og áhrifa sem tengjast fjármálakreppunni 2008, sjálf- bærnimarkmiðum Sameinuðu þjóð- anna frá 2016, sem og aðgerðum vegna loftslagsbreytinga og til stuðn- ings sjálfbærum fjárfestingum. Þessi þróun hefur áhrif hér á landi vegna EES-samningsins. Hér er af nógu að taka fyrir íslenska fjárfesta. Sem dæmi um þetta má nefna end- urskoðun á tilskipun ESB um starfs- tengda lífeyrissjóði og breytingar á félagaréttartilskipun ESB þar sem auknar kröfur eru gerðar til stofn- anafjárfesta sem eigenda á sama tíma og þeim eru tryggð aukin rétt- indi. Þá eru t.d. í farvatninu tvær reglu- gerðir. Önnur lýtur m.a. að kröfum til stofnanafjárfesta um að þeir geri eig- endum (endafjárfestum) grein fyrir þeirri áhættu sem tengist umhverf- isþáttum, samfélagslegum þáttum og stjórnarháttum. Hin er svokölluð „EU Taxonomy for sustainable ac- tivities“-reglugerð sem ætlað er að skilgreina það hvað telst til sjálfbærs reksturs í starfsemi fyrirtækja. Reglugerðinni er m.a. ætlað að auð- velda markaðssetningu svokallaðra sjálfbærra/grænna verðbréfa, auka skilvirkni og draga úr hættu á græn- þvotti þar sem aðilar skreyta sig með stolnum fjöðrum. Samfélagsleg ábyrgð og styrkir Þegar fjallað er um ábyrgar fjár- festingar og ábyrgan rekstur fyrir- tækja skiptir fyrst og fremst máli hvernig hagnaðurinn verður til en ekki hvernig honum er ráðstafað. Þá ber einkum að líta til þess „hvernig fyrirtækin búa til hagnað“, hvaða fót- spor starfsemin skilur eftir sig, hvernig fyrirtæki nýta auðlindir jarð- ar og svo framvegis. Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja kemur ekki fram í ráðstöfun hagnaðar. Í því samhengi skiptir því almennt ekki máli hvernig fyrirtæki kýs að ráðstafa hagnaði sín- um, til að mynda með styrkjum til íþróttafélaga, góðgerðafélaga eða stjórnmálaflokka. Opin tækifæri Í þessu öllu felast ekki síður mikil tækifæri en ógnir. Svo dæmi sé tekið áætlar ESB að það þurfi um 180 milljarða evra, um 25 þúsund millj- arða íslenskra króna, á ári til 2030 í loftslags- og orkutengd verkefni. Verulegur hluti þess fjár þarf að koma frá einkageiranum. Góð fjár- festingartækifæri geta falist í verk- efnum sem tengjast umbótum í fram- leiðsluferli og virðiskeðju fyrirtækja. Þar geta farið saman sjálfbærni, ný- sköpun og góð fjárfestingartækifæri. Íslenskir lífeyrissjóðir hafa undan- farin misseri unnið að því að innleiða framangreind sjónarmið og reglur í starfsemi sína og má segja að á heild- ina litið hafi vel miðað og fjárfest- ingar sjóðanna séu traustari en áður. Hér liggja þó klárlega enn ónýtt tækifæri til að gera betur og ná meiri árangri. Eftir Tómas N. Möller »Markmiðið er að bæta áhættustýr- ingu, styðja við trausta langtímaávöxtun og að endurspegla gildi lífeyr- issjóða sem fjárfesta. Tómas N. Möller Höfundur er yfirlögfræðingur Lífeyr- issjóðs verzlunarmanna og nefndar- maður í nefnd Landssamtaka lífeyr- issjóða um fjárfestingarumhverfi lífeyrissjóða. Ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.