Morgunblaðið - 02.12.2019, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2019
Þjóðlegt Fullveldisdeginum var fagnað í gær. Þótt margir einbeittu sér frekar að upphafi aðventunnar og undirbúningi jólanna var Harpa lýst upp í fánalitunum af þessu tilefni.
Kristinn Magnússon
Þeir sem hafa lesið
bækur Guðrúnar frá
Lundi kannast við lýs-
ingarnar á því þegar
gamalt fólk, sem þrot-
ið var að kröftum til
vinnu, fór í hornið hjá
börnunum. Þau horn
voru æði margvísleg
og þar bjó fólk við
misjafnan kost síðustu
æviárin. Sumir höfðu
ekkert horn að leita í, það fólk átti
gjarnan dapurt sólarlag. Einn hóp-
ur skar sig úr á of-
anverðri 19. öldinni.
Það voru ekkjur
presta, sem höfðu líf-
eyri úr prestsekkna-
sjóði og höfðu því eilít-
ið á milli handanna í
ellinni.
Prestsekknasjóður
var vísir að fyrsta líf-
eyrissjóði sem stofn-
aður var á Íslandi, Líf-
eyrissjóði starfsmanna
ríkisins. LSR er í dag
stærsti lífeyrissjóður
landsins og fagnar hundrað ára af-
mæli um þessar mundir.
Stofnun lífeyrissjóðanna á Íslandi
er eitt mesta gæfuspor íslensks al-
mennings. Með þeim hafa ekki að-
eins aldraðir öðlast sjálfstæði.
Börnin hafa líka öðlast meira sjálf-
stæði og frjálsræði með því að
þurfa ekki að taka fullorðna for-
eldra og ættingja inn á heimilin.
Á 100 ára vegferð LSR hefur
margt breyst. Lífeyrissjóðurinn fer
nú með ævisparnað tugþúsunda
landsmanna. Sjóðurinn var upp-
haflega sjóður karlkyns embættis-
manna en nú er meirihluti sjóðs-
félaga konur. Sjóðurinn leggur ríka
áherslu á góða stjórnarhætti,
ábyrgar fjárfestingar og er sér vel
meðvitaður um áhrif hans á fjár-
málamarkaði landsins. Lífeyris-
sjóðakerfi landsmanna er ekki enn
orðið fullþroska. Engum, sem er
meðvitaður um kjör aldraðra á ár-
um áður, dylst þó hversu mikil
verðmæti eru fólgin í því.
Fullorðið fólk á í dag skilið að
njóta lífsins og sinna hugðarefnum
sínum. Við viljum ekki lengur þurfa
að dúsa í horninu hjá börnunum
eins og Guðrún frá Lundi lýsti.
Fólk á að hafa frelsi til að gera það
sem það vill í stað þess að þurfa að
reiða sig á aðra. Lífeyrissjóðakerfið
hefur veitt fólki þetta frelsi og sjálf-
stæði á efri árum og það mun bara
styrkjast í því hlutverki til fram-
tíðar.
Eftir Unni
Pétursdóttur » Fullorðið fólk á skiliðað njóta lífsins og
sinna hugðarefnum sín-
um. Við viljum ekki
lengur dúsa í horninu
hjá börnunum eins og
Guðrún frá Lundi lýsti.
Unnur Pétursdóttir
Höfundur er formaður stjórnar
LSR.
Að fara í hornið hjá börnunum
Langtímasjónarmið
eru í auknum mæli höfð
til hliðsjónar við mat á
fjárfestingarkostum líf-
eyrissjóða og við stýr-
ingu eignasafna þeirra.
Markmiðið er að bæta
áhættustýringu, styðja
við trausta langtíma-
ávöxtun og að endur-
spegla gildi lífeyris-
sjóða sem fjárfesta.
Þetta er vegferð sem tekur tíma þar
sem byggja þarf upp reynslu og við-
bótarþekkingu.
Árið 2017 tóku gildi breytingar á
lögum um fjárfestingarstarfsemi líf-
eyrissjóða. Nú er meiri áhersla á
áhættumat, samsetningu eignasafna
og krafa er gerð um að lífeyrissjóðir
setji sér siðferðileg viðmið í fjárfest-
ingarstarfseminni.
Góð rök eru fyrir því að kröfum um
siðferðileg viðmið sé vel mætt með
því að meta fjárfestingakosti og
eignasöfn með hliðsjón af umhverf-
ismálum, hagsmunum samfélagsins
og stjórnarháttum. Á ensku er í
þessu sambandi stundum vísað til:
„triple bottom line; people – planet –
profit“.
Nú horfa stofnanafjárfestar eins
og lífeyrissjóðir í vax-
andi mæli til sjálf-
bærrar þróunar og
hagsmuna ýmissa hag-
hafa svo sem starfs-
fólks, birgja og neyt-
enda. Áherslan í
starfsumhverfi fjár-
festa er sífellt meiri á
langtímasýn og mat á
svonefndum ófjárhags-
legum upplýsingum. Þó
er ekki vikið frá kjarna
umboðs lífeyrissjóða
sem er að ávaxta eignir
sjóðfélaga. Ítrekaðar rannsóknir
sýna að þar sem siðferðilegum við-
miðum er sinnt er langtímaávöxtun
fjárfestingar að jafnaði síst lakari og
gjarnan traustari en ella.
Viðbót, ekki bylting
Aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga
kemur ekki í stað hefðbundinna fjár-
festingaraðferða, hún er viðbót ætluð
til að víkka sjóndeildarhringinn við
eignastýringu. Lífeyrissjóðirnir eru í
raun að verða virkari eigendur sem
fjárfestar með því að kalla eftir upp-
lýsingum og skýringum sem lúta að
stjórnarháttum, umhverfisþáttum og
samspili við samfélagið sem fyrir-
tækin starfa í. Þannig geta sjóðirnir
betur greint langtímahagsmuni sína,
virðiskeðjur þeirra fyrirtækja sem
fjárfest er í og vægi lykilhaghafa fyr-
irtækjanna. Þar fara saman hags-
munir sjóðfélaga sem hinna endan-
legu eigenda og hagsmunir vel
rekinna fyrirtækja.
Áhrif EES
Talsverðar breytingar hafa orðið á
löggjöf ESB um fjárfestingaum-
hverfi stofnanafjárfesta eins og líf-
eyrissjóða, fjárfestingasjóða og líf-
tryggingafélaga. Þar gætir m.a.
sjónarmiða og áhrifa sem tengjast
fjármálakreppunni 2008, sjálf-
bærnimarkmiðum Sameinuðu þjóð-
anna frá 2016, sem og aðgerðum
vegna loftslagsbreytinga og til stuðn-
ings sjálfbærum fjárfestingum. Þessi
þróun hefur áhrif hér á landi vegna
EES-samningsins. Hér er af nógu að
taka fyrir íslenska fjárfesta.
Sem dæmi um þetta má nefna end-
urskoðun á tilskipun ESB um starfs-
tengda lífeyrissjóði og breytingar á
félagaréttartilskipun ESB þar sem
auknar kröfur eru gerðar til stofn-
anafjárfesta sem eigenda á sama
tíma og þeim eru tryggð aukin rétt-
indi.
Þá eru t.d. í farvatninu tvær reglu-
gerðir. Önnur lýtur m.a. að kröfum til
stofnanafjárfesta um að þeir geri eig-
endum (endafjárfestum) grein fyrir
þeirri áhættu sem tengist umhverf-
isþáttum, samfélagslegum þáttum og
stjórnarháttum. Hin er svokölluð
„EU Taxonomy for sustainable ac-
tivities“-reglugerð sem ætlað er að
skilgreina það hvað telst til sjálfbærs
reksturs í starfsemi fyrirtækja.
Reglugerðinni er m.a. ætlað að auð-
velda markaðssetningu svokallaðra
sjálfbærra/grænna verðbréfa, auka
skilvirkni og draga úr hættu á græn-
þvotti þar sem aðilar skreyta sig með
stolnum fjöðrum.
Samfélagsleg ábyrgð og styrkir
Þegar fjallað er um ábyrgar fjár-
festingar og ábyrgan rekstur fyrir-
tækja skiptir fyrst og fremst máli
hvernig hagnaðurinn verður til en
ekki hvernig honum er ráðstafað. Þá
ber einkum að líta til þess „hvernig
fyrirtækin búa til hagnað“, hvaða fót-
spor starfsemin skilur eftir sig,
hvernig fyrirtæki nýta auðlindir jarð-
ar og svo framvegis. Samfélagsleg
ábyrgð fyrirtækja kemur ekki fram í
ráðstöfun hagnaðar. Í því samhengi
skiptir því almennt ekki máli hvernig
fyrirtæki kýs að ráðstafa hagnaði sín-
um, til að mynda með styrkjum til
íþróttafélaga, góðgerðafélaga eða
stjórnmálaflokka.
Opin tækifæri
Í þessu öllu felast ekki síður mikil
tækifæri en ógnir. Svo dæmi sé tekið
áætlar ESB að það þurfi um 180
milljarða evra, um 25 þúsund millj-
arða íslenskra króna, á ári til 2030 í
loftslags- og orkutengd verkefni.
Verulegur hluti þess fjár þarf að
koma frá einkageiranum. Góð fjár-
festingartækifæri geta falist í verk-
efnum sem tengjast umbótum í fram-
leiðsluferli og virðiskeðju fyrirtækja.
Þar geta farið saman sjálfbærni, ný-
sköpun og góð fjárfestingartækifæri.
Íslenskir lífeyrissjóðir hafa undan-
farin misseri unnið að því að innleiða
framangreind sjónarmið og reglur í
starfsemi sína og má segja að á heild-
ina litið hafi vel miðað og fjárfest-
ingar sjóðanna séu traustari en áður.
Hér liggja þó klárlega enn ónýtt
tækifæri til að gera betur og ná meiri
árangri.
Eftir Tómas
N. Möller »Markmiðið er að
bæta áhættustýr-
ingu, styðja við trausta
langtímaávöxtun og að
endurspegla gildi lífeyr-
issjóða sem fjárfesta.
Tómas N. Möller
Höfundur er yfirlögfræðingur Lífeyr-
issjóðs verzlunarmanna og nefndar-
maður í nefnd Landssamtaka lífeyr-
issjóða um fjárfestingarumhverfi
lífeyrissjóða.
Ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóða