Morgunblaðið - 02.12.2019, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 02.12.2019, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2019 ✝ Sigmar ÖrnPétursson fæddist 6. nóv- ember 1982 á Ak- ureyri. Hann lést eftir erfið veikindi 18. nóvember 2019. Hann ólst upp í Ytri-Njarðvík og flutti síðan norður á Dalvík með fjölskyldunni. Foreldrar hans eru Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, f. 21.7. 1964, leiðbeinandi á leikskóla, og Pétur Ásgeir Steinþórsson, f. 23.11. 1962, vélstjóri. Albræður og stjúp- systkini eru: Þorvaldur Snær Pétursson, Ársæll Helgi Pét- ursson, Aldís Pétursdóttir, El- ísabet Bjarnadóttir, Marín Dögg Bjarnadóttir, Klemens Hallgrímsson og Sigfríð Hall- grímsdóttir. Stjúp- faðir Sigmars er Hallgrímur Harð- arson og stjúp- móðir hans er Guðrún Þorbjarn- ardóttir. Sigmar var í sambúð með Láru Dögg Þórð- ardóttur, f. 20.6. 1985, til loka árs 2018 og gekk drengjunum henn- ar tveimur í föðurstað. Þeim Hafsteini Inga Lárusyni, f. 18.8. 2005, og Daníel Þór Lár- usyni, f. 30.9. 2009. Saman eignuðust þau Önnu Guð- björgu, f. 23.1. 2015. Þau bjuggu á Akureyri þar sem Sigmar vann um tíma hjá Sana. Útför hans fer fram í Akureyrarkirkju í dag, 2. des- ember 2019, kl. 13.30. Grallarinn hann Sigmar er látinn. Ég var að skoða myndir af honum sem barni þar sem hann situr fyrir með grettu- eða mæðusvip, því mamma hans hefur örugglega náð í hann úr einhverri ævintýraför sem var mun skemmtilegri en að sitja kyrr fyrir hjá ljós- myndara. Ég man eftir ótal skiptum þar sem mamman, pabbinn eða amman voru að leita að drengnum sem gleymdi sér í einhverjum skemmtilegum leik eða drull- umallsuppgötvunum, í dásam- legum hugarheimi þar sem klukkan átti ekki heima. Hann borðaði gjarnan krókódílakjöt og ljónastöppu í hádeginu að eigin sögn. Hann var elstur af bræðr- unum og hafði mikla ábyrgð- arkennd gagnvart þeim og öðrum, en átti í erfiðleikum sjálfur. Hann barðist við fíkn- isjúkdóm og nýrnasjúkdóm sem hafði hann undir í lokin. Ljúflinginn og fallega dreng- inn sem vildi allt fyrir fólkið sitt gera. Megi góður Guð halda verndarhendi yfir börn- unum hans, systkinum og for- eldrum. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. ... Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Hafdís Sigmarsdóttir. Elsku Sigmar. Það er skrít- ið að kveðja þig hér, einn koss á kalda kinn og nokkur orð á blað. Það er skrítið að fá ekki hnyttið tilsvar, smá stríðni og pínu glott. Það er skrítið að heimta þig ekki úr helju. Öllu þarf að venjast. Við áttum svo margar góðar stundir hjá ömmu og afa á sumrin – það var okkar tími. Átum rabarbara með sykri úr ömmu garði (og annarra!) með Ingunni frænku. Reyndum að veiða hornsíli án nokkurs árangurs. Veiddum kynstrin öll af flugum og settum í krukku með sykri og loftgöt- um. Reyndum að klappa bý- flugunum hennar ömmu í hornblómabeðinu. Pössuðum bræður þína, vökvuðum garð- inn og þvældumst fyrir ömmu. Heimsóttum ömmu og afa á Dalbæ og fengum machintosh. Þú varst alltaf úti um allan bæ, að leika við vini þína og án efa að fremja mögnuð prakk- arastrik – sokkalaus, með kámugan munn og búinn að skíta út öll fötin þín. Sokkana líka – þó að þú værir ekki einu sinni í þeim! En dásamlega fallegt barn varstu, glókollur með augu sem brostu svo inni- lega og fallega. Vikuna áður en ég fékk þetta ömurlega símtal um að þú værir farinn hafði sex mán- aða gamall sonur minn sogið stanslaust á sér neðri vörina dögum saman og mér var því hugsað til þín á hverjum degi, enda var neðrivararsogið þitt vörumerki langt fram eftir aldri! Og sögurnar – maður minn! Þær voru magnaðar og ótrúlega á köflum – enda var ávallt fært örlítið í stílinn, en sannfæringarkrafturinn var alltaf í botni! Það var alltaf svo spennandi að heimsækja ykkur í Njarðvík, alltaf mikið að gerast og þú auðvitað fullur af sögum og hugmyndum. Það var rólegra þegar þið komuð í Kópavoginn, fullorðna fólkið borðaði mat frá öllum heims- hornum – á meðan við fengum pitsu og horfum á Turtles. Þegar við urðum eldri og eignuðumst fjölskyldu urðu samskiptin stopulli en alltaf var þetta ósýnilega band sem gekk á milli okkar. Við höfðum alltaf samband á afmælisdegi hins og ef eitthvað kom upp á vorum við fljót að halda í hönd hvort annars og hughreysta. Þegar við hittumst var eins og enginn tími hefði liðið. Þú varst með svo gott hjartalag, elsku Sigmar, ávallt tilbúinn að rétta fram hjálparhönd og ég veit að þú hefðir gert hvað sem er fyrir ástvin. Ég sakna þín og á erfitt með að trúa að þú sért farinn. Ég vona að þú lesir þetta þarna einhvers staðar, glottir og skjótir einhverju á mig, með brosi í augunum og vænt- umþykju í hjartanu. Þú fluttir mér ljómann af fyrri árum. Ég sál mína friða í söltum tárum. Er Hel í fangi minn hollvin ber, þá sakna ég einhvers af sjálfum mér. (Stefán frá Hvítadal) Þín „næstumþvísystir“ Ásta Sóley Sigurðardóttir. Sigmar Örn Pétursson Vertu blessaður afi, ég sakna þín. Árni Þór. Kæri afi. Á kveðjustundu sem þessari streyma fram margar hugljúfar minningar. Það var alltaf svo gaman að koma á Kirkjuveginn til þín og ömmu Fríðu, sérstak- lega þegar þú gafst okkur sleik- jóa sem þú geymdir í búrinu. Eftir að amma fór í Víðihlíð fór- um við ófáar ferðirnar saman með mömmu að heimsækja hana og knúsa. Í afmælisveislum komstu færandi hendi, iðulega með peningagjafir sem afmælis- barninu voru gefnar þegar þú varst á leiðinni heim á leið, en þá tókstu afmælisbarnið afsíðis og réttir pening í lófann eins og enginn mætti sjá til. Í sjónvarp- inu sá maður Cartoon Network hjá ykkur ömmu og síðar meir komum við strákarnir með pabba að sjá meistaradeildina á Sýn, nú ef svo vildi til að þú varst erlendis þá komum við bara og sóttum myndlykilinn til að horfa heima, nema Toggi frændi hefði komið á undan og tekið hann. Og ætli þú berir ekki ábyrgð á að hafa smitað örverpið af flugbakt- eríunni. Húmoristinn í þér skein í gegn þegar þú baðst hana að fljúga hægt og lágt í hvert skipti sem hún fór að fljúga og brostir svo út í annað. Allt undir það síðasta rædd- um við ævintýrin í fótboltanum, leikirnir gegn Real Madrid, Everton og Tottenham með Keflavík stóðu upp úr fyrir unga fótboltaáhugamenn. Takk fyrir allar góðu sam- verustundirnar og við hittumst aftur síðar, elsku afi. Þangað til munum við sjá til þess vel að lifa. Þín barnabörn, Guðmundur Árni, Gylfi Már og Esther Elín. Hann afi. Mér þótti vænt um hann afa og á bara góðar minningar um hann. Mér fannst gaman að tala við hann um heimsstyrjöldina síðari og mér fannst voða flott að eiga afa sem var lifandi og mundi eftir styrjöldinni. Ég man þegar mamma sagði mér að afi hefði fengið sekt því hann var að tala í símann þegar hann var að keyra og flýta sér til að sjá mig keppa í sundi, mér fannst leiðinlegt að hann hefði fengið sekt, en fallegt af honum að vilja koma og sjá mig keppa. Ég á eftir að sakna afa og hugsa oft til hans. Nú er hann hjá ömmu Fríðu og ég veit að þau munu bæði vaka yfir mér. Kveðja Helgi. Þó að maður viti að tími okkar allra hérna megin tilvistar sé takmarkaður og að við fáum mis- langan tíma þá kom fráfall Árna okkur í fjölskyldunni á óvart. Mamma og Árni sátu hjá okkur nýverið við eldhúsborðið í Langagerðinu og gæddu sér á kvöldmat ásamt dýrindis eftir- rétti. Síðan var horft á báða fréttatímana í sjónvarpinu. Þennan háttinn höfum við haft á í nær öll þau skipti sem þau hafa komið til okkar sem var reglu- lega síðustu árin. Þegar mamma og Árni kynntust bjuggu þau í sama húsi í Keflavík, hann á neðri hæð en mamma á þeirri efri. Fyrst um sinn voru þau vin- ir sem sáu um að gæta húss og vökva plöntur fyrir hvort annað þegar þau fóru til útlanda. Síðan felldu þau hugi saman og hófu sambúð í Árskógunum í Reykja- vík þar sem þau hafa búið síðan. Sjálfur man ég eftir Árna frá unglingsárum mínum í Keflavík þegar ég vann við bensínaf- greiðslu á Aðalstöðinni. Þá kom Árni sem var einn af fastakúnn- unum og keyrði ef ég man rétt Dodge-bíl með númerinu Ö-1330, ávallt á svipuðum tíma vikunnar og lagði bílnum sínum oftast við sömu dælu. Já, menn eins og hann voru vanafastir. Ég vissi að hann væri flugumferð- arstjóri og væri í stjórn KSÍ sem manni þótti mjög virðulegt. Þeg- ar mamma og Árni hófu svo bú- skap kynntist ég honum betur og við komumst að því að við átt- um sameiginleg áhugamál. Helst var það áhugi okkar á golfi og fótbolta og bauð hann mér oft með sér á landsleiki í knatt- spyrnunni en hann fékk reglu- lega boðsmiða frá KSÍ. En einn- ig kom í ljós að okkur, eins og fleirum í fjölskyldunni, þótti ákaflega gaman af því að borða góðan mat. Enda var ósjaldan góð steik sett á grillið þegar hann og mamma komu í mat til okkar. Við sátum oft úti á palli þegar veðrið var gott og sleikt- um sólina. Árni var sóldýrkandi og þurfti ekki langan tíma til að vera vel útitekinn. Mamma og Árni áttu góð ár saman. Þau ferðuðust til útlanda og fóru í gönguferðir um Ísland og reglu- lega í bústað mömmu í Grafn- ingnum. Árni mætti líka sterkur til leiks þegar við fjölskyldan í Langagerðinu fórum til útlanda. Þá tóku þau mamma að sér að sinna köttunum en þar sem henni líkar temmilega vel við ketti þá gaf hún þeim að éta en Árni tók þá upp, spjallaði við þá og klappaði þeim. Í seinni tíð þegar heilsu Árna var farið að hraka brosti hann alltaf þegar kettirnir komu til hans og heils- uðu honum. Árni var mikil fé- lagsvera og var m.a. virkur fé- lagi í Oddfellowreglunni og Lions. Ein ánægjulegasta stund sem ég átti með Árna síðustu ár- in var einmitt í ferð okkar á kútt- magakvöld Lions fyrir tveimur árum þar sem við áttum skemmtilegt kvöld í góðra vina hópi. Á heimleiðinni tók hann það fram oftar en einu sinni hvað kvöldið hefði verið skemmtilegt sem ég var innilega sammála. Enda var gott að vera í nálægð Árna. Hann var hlýlegur og kurteis maður sem við fjölskyld- an erum þakklát fyrir að hafa kynnst og fengið að vera sam- ferða í lífinu. Að lokum viljum við votta mömmu og börnum Árna og fjölskyldum þeirra okk- ar innilegustu samúð og vonum að minningin um góðan mann hlýi þeim um hjartarætur um ókomna tíð. Ögmundur Máni Ög- mundsson og fjölskylda. Í dag kveðjum við heiðurs- manninn hann Árna Þorgríms. Hann kom inn í líf okkar fyrir um 20 árum og strax fundum við að þar var vandaður og þægileg- ur maður á ferð. Hann sýndi öll- um þeim sem hann snerti hlýju og umhyggju, og tók heilshugar þátt í lífi okkar. Nú er hann bú- inn að kveðja og við rifjum upp þætti úr æviskeiði hans frá þeim tíma þegar hann var hjá okkur, virkur þátttakandi í fjölskyld- unni. Það var ekki mikið vesen á honum Árna og alltaf var hann til í að spjalla og aðstoða eins og hann gat. Við kynntumst honum sem frekar hljóðlátum og róleg- um manni sem alltaf var með á nótunum og fylgdist vel með öllu. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók) Það er með virðingu og þakk- læti sem við kveðjum góðan mann í dag. Kolbrún (Kolla), Jón Þór, Sigrún og Ásgeir. Kveðja frá KSÍ Árni Þ. Þorgrímsson var fæddur 6. ágúst 1931, átta árum eldri en ég. Leiðir okkar lágu saman þegar ég hafði tekið að mér formennsku í Knattspyrnu- sambandi Íslands árið 1973 og Árni var kosinn í stjórnina einu ári síðar, 1974. Þar sat hann með mér sem fulltrúi Keflvíkinga í tíu ár, tíu skemmtileg og eftirminni- leg ár. Sjálfur keppti Árni í fót- bolta frá 1940 til 1950 fyrir Ung- mennafélag Keflavíkur á unglingsárum sínum, en síðan sat hann í stjórnum UMFK og ÍBK um margra ára skeið. Þar á með- al sem formaður og gjaldkeri ÍBK. Árni var sæmdur gullmerki ÍSÍ á fimmtugsafmæli sínu árið 1981 og gullmerki KSÍ árið árið 1984. Það var mikill fengur fyrir KSÍ að fá hann í stjórnina, enda framúrskarandi félagi og sam- starfsmaður. Var varaforseti um tíma, ritari stjórnar, formaður mótanefndar, formaður lands- liðsnefndar, fomaður kvenna- nefndar og formaður dómara- nefndar. Honum var treystandi í öllum þessum störfum. Um leið og hann tók að sér öll þessi verkefni í þágu knattspyrn- unnar vann hann sem flugum- ferðarstjóri á Keflavíkurflugvell- inum. Enda flinkur og traustur í alla staði. Árni var hvers manns hugljúfi, kurteis og glaðvær og lagði til lausnir í erfiðum málum, sem flestir gátu samþykkt. Á þessum árum Árna í stjórn KSÍ unnum við vel saman, með brosum hans og farsælum niðurstöðum. Ekki bara á stjórnarfundum eða kapp- leikjum heldur sem nánir vinir hvunndags. Á síðari árum hittumst við minna dagsdaglega en við rák- umst stundum hvor á annan á golfvellinum í Keflavík og þá var hlegið og faðmast og rifjaðar upp eftirminnilegar stundir í knatt- spyrnustarfinu. En allt með brosi og bræðralagi. Árni var drengur góður og í hópi þeirra einstak- linga sem alltaf var yndislegt að hitta og tala við. Ég mun aldrei gleyma honum, ég mun ætíð minnast hans, ég þakka vinátt- una og samferðina. Ég skrifa þessi minningarorð í mínu nafni og knattspyrnuhreyf- ingarinnar, sem naut og nýtur enn framlags Árna Þorgrímsson- ar í þágu íþróttanna og lífsins. KSÍ kveður fallinn félaga og sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og ástvina. Ellert B. Schram, heiðursformaður KSÍ. Kveðja frá flugleiðsögusviði Isavia. Árið 1957 hóf Árni störf hjá Flugmálastjórn Íslands eftir að hafa lokið grunnnámi í flugum- ferðarstjórn. Á starfsferli sínum öðlaðist hann réttindi til flugumferðar- stjórnar í flugturninum í Reykja- vík og Keflavík, auk réttinda til flugumferðarstjórnar í flug- stjórnarmiðstöð. Að undanskildum sjö árum af starfsævi Árna starfaði hann við flugumferðarstjórn og önnur flugtengd verkefni svo sem við Notam-upplýsingagjöf. Árni lauk störfum hjá Flug- málastjórn Íslands árið 1994 vegna starfslokaákvæða. Nú þegar komið er að kveðju- stund situr eftir minning um góð- an dreng sem alla tíð var ánægju- legt að starfa með. Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd starfsmanna flugleiðsögu- sviðs Isavia þakka Árna sam- fylgdina. Fjölskyldu og vinum vottum við okkar dýpstu samúð. Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri. Sálm. 14.2 biblian.is Drottinn horfir á mennina af himnum ofan til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs. Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, BERGUR MÁR EMILSSON, sjálfstætt starfandi, Hólsvegi 16, Reykjavík, andaðist mánudaginn 25. nóvember. Jarðarför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 6. desember klukkan 15. Helena Dögg Hilmarsdóttir Matthías Már Bergsson Emil Már Bergsson Isabella Bergsdóttir Birna Bergsdóttir Matthildur Þorláksdóttir Hilmar Viktorsson Kristín Emilsdóttir Sólveig Berg Emilsdóttir Ragnar Þór Emilsson Eva María Emilsdóttir Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi, HAUKUR PÁLMASON fyrrverandi aðstoðarforstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, áður Rafmagnsveitu Reykjavíkur, lést sunnudaginn 24. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 4. desember klukkan 11. Anna Soffía Hauksdóttir Jóhannes Hauksson Inga Björg Hjaltadóttir Helga Hauksdóttir Hafþór Þorleifsson Haukur Óskar og Auður Tinna Margrét Aðalheiður og Friðgeir Ingi Hringur Ásgeir og Ívar Hildur Ylfa, Haukur Oddur, Urður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.