Morgunblaðið - 02.12.2019, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2019
Metabolic Reykjavík | Stórhöfða 17 | metabolicreykjavik.is
Metabolic Reykjavík
Ný þjálfunarstöð við Gullinbrú
Faglegt Fjölbreytt Skemmtilegt
Æfðu á þínum hraða, á þínu erfiðleikastigi
Halldór Ásgrímsson fædd-ist 8. september 1947 ogvar því 67 ára að aldriþegar hann andaðist af
völdum hjartaáfalls 18. maí 2015.
Eftir nám í Samvinnuskólanum
hlaut Halldór löggildingu sem
endurskoðandi árið 1970. Síðan
stundaði hann framhaldsnám við
verslunarháskólana í Björgvin og
Kaupmannahöfn árin 1971-1973.
Eftir heimkomu varð hann lektor
við viðskiptafræðideild Háskóla Ís-
lands um tveggja ára skeið. Hann
bauð sig fram til þings fyrir Fram-
sóknarflokkinn í Austurlands-
kjördæmi árið
1974 og sat síðan
nær óslitið á
þingi til ársins
2006. Í 19 ár var
hann ráðherra,
sjávarútvegs-
ráðherra í átta ár
(1983 til 1991),
utanríkis-
ráðherra í rúm
níu ár (1995 til 2004) og forsætis-
ráðherra 2004 til 2006. Starfsævi
sinni lauk hann sem framkvæmda-
stjóri Norrænu ráðherranefnd-
arinnar (2006 til 2013) með aðsetur
í Kaupmannahöfn.
Halldór var varaformaður Fram-
sóknarflokksins frá 1980 til 1994 og
síðan flokksformaður til 2006. Hann
var ávallt kjörinn á þing fyrir
Austurlandskjördæmi nema í síð-
ustu kosningum sínum, árið 2003.
Þá var hann kjörinn þingmaður
Reykjavíkur norður.
Guðjón Friðriksson sagnfræð-
ingur skrifar ævisögu Halldórs sem
kom út nú í haust, alls 668 bls. með
tilvísunum, heimildaskrá og nafna-
skrá. Bókin er ríkulega skreytt
myndum. Hún skiptist í 30 kafla.
Að meginhluta er bókin stjórn-
málasaga síðustu áratuga 20. aldar
og fyrsta áratugar 21. aldar með
verkefni Halldórs og gengi
Framsóknarflokksins sem leið-
arhnoðu.
Texti Guðjóns er skýr. Hann fer
hefðbundna leið og raðar frásögn-
inni í tímaröð en brýtur hana þó
upp með lýsingu á einkahögum
Halldórs og fjölskyldu hans auk
þess sem einstök stór málefni eru
rakin, hvert í sínum kafla. Má þar
nefna kaflana: Kvótakerfi og sjávar-
útvegsmál til 1987, Hvalveiðideilan,
Frá ríkisafskiptum í sjávarútvegi til
frjáls framsals, Milliríkjadeilur um
úthafsveiðar, Þróunarhjálp og um-
deild friðargæsla, Ólafur Ragnar og
Halldór, ESB eða ekki? Afdrifarík
einkavæðing, Kárahnjúkavirkjun og
Fjarðaál, Herinn og Írak.
Kaflaheitin sýna að þarna er gerð
grein fyrir ýmsum ágreinings-
málum sem eru mörgum í minni. Í
hvalveiðideilunni var hart tekist á
við Bandaríkjastjórn. Hlypi mönn-
um kapp í kinn á þessum árum létu
þeir reiði sína gjarnan bitna á
NATO-aðildinni og varnarsamstarf-
inu. Skoðanakönnun birtist í DV
seint í september 1986 og þar kom
fram að 61,5% þeirra sem spurðir
voru en 82,7% þeirra sem tóku af-
stöðu vildu endurskoða varnar-
samninginn við Bandaríkin vegna
hvalveiðimálsins. Skömmu síðar
beindist athyglin þó annað því að í
október 1986 komu Ronald Reagan
Bandaríkjaforseti og Mikhaíl Gorb-
atsjov Rússlandsforseti hingað á
heimssögulegan fund.
Guðjón tekst hér á við skráningu
á viðkvæmu efni sem stendur okkur
nærri í tíma. Skiptir miklu að les-
andinn telji hann ekki draga taum
Halldórs á kostnað annarra. Skuggi
fellur almennt ekki á söguhetjuna. Í
garð þeirra sem standa með Hall-
dóri í fremstu röð andar stundum
köldu frá höfundi.
Stjórnmálamenn eru gjarnan allir
dregnir í sama dilk. Meðal þeirra er
þó skýr verkaskipting eins og á öðr-
um vettvangi. Við Halldór sátum
um áratug saman í ríkisstjórn en
persónuleg kynni okkar voru lítil.
Aldrei skarst í odda milli okkar þótt
ekki værum við sammála um allt.
Ráðherrar sinna hver um sig sínum
málaflokki og skipi þeir ekki stöðu
innan flokks síns sem kallar á bein
samskipti við annarra flokka menn
við úrlausn mála eða til að stilla
saman strengi á milli flokkanna
halda þeir sér við sín mál og vinna
að framgangi þeirra innan ríkis-
stjórnar, hjá þingflokkum stjórnar-
innar og síðan á vettvangi alþingis.
Málaflokkum okkar Halldórs var
þannig háttað að beinir snertifletir
voru litlir; auk þess var hann ótrú-
lega mikið á ferð og flugi sem utan-
ríkisráðherra.
Í bókinni segir Guðjón réttilega
frá því að við Guðmundur Bjarna-
son, þáv. varaformaður Fram-
sóknarflokksins, hittumst um páska
árið 1995 til að ræða hvort flötur
væri á stjórnarsamstarfi
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks. Þegar svo var fór málið úr
mínum höndum til Davíðs Odds-
sonar og Friðriks Sophussonar, for-
ystumanna Sjálfstæðisflokksins.
Guðjón kemur ekki á óvart með
lýsingu sinni á Halldóri sem ráð-
herra eða afstöðu hans enda er frá-
sögnin að verulegu leyti reist á
opinberum heimildum. Um er að
ræða endursögn á atburðarás
þeirra stóru mála sem rakin eru og
stuðst við það sem sagt er í blöðum
og ræðum. Guðjón virðist ekki hafa
rætt við marga þegar hann safnaði
efni í bókina, hann styðst til dæmis
við minningargreinar samstarfs-
manna Halldórs í utanríkisráðu-
neytinu í stað þess að eiga samtöl
við þá. Þó ræddi hann við Árna Pál
Árnason, fyrrv. ráðherra og for-
mann Samfylkingarinnar, en vin-
átta var milli þeirra Halldórs. Þá er
einnig vitnað í samtöl við Finn Ing-
ólfsson, sem reynt var að gera að
formanni Framsóknarflokksins þeg-
ar Halldór hætti. Óbirt minnisblöð
Jóns Kristjánssonar, fyrrv. sam-
þingsmanns Halldórs á Austur-
landi, eru meðal heimilda og
minningabrot Tómasar Árnasonar,
sem einnig var þingmaður
Framsóknarflokksins á Austur-
landi.
Tómas Árnason og Steingrímur
Hermannsson, forveri Halldórs á
formannsstóli Framsóknar, saka
Halldór um undirróður gegn sér. Í
báðum tilvikum hafnar Halldór því.
Má ráða af frásögninni að ef til vill
hafi ákafir stuðningsmenn Halldórs
gengið lengra í innanflokksátökum
fyrir hans hönd en honum sjálfum
líkaði. Það ber vott um að hann hafi
í stjórnmálum almennt átt meira
undir öðrum en ætla mátti af styrk
hans í þeim málaflokkum þar sem
hann tók forystu, eins og við inn-
leiðingu kvótakerfisins eða gerð
Kárahnjúkavirkjunar. Þar hafði
hann allar staðreyndir betur á valdi
sínu en aðrir. Ferðir hans um land-
ið og óteljandi fundir á níunda ára-
tugnum vegna kvótakerfisins bera
vott um mikið baráttuþrek. Fyrir
þá sem vildu koma á kvótakerfinu
var Halldór lykilmaður. Löng seta
hans sem sjávarútvegsráðherra og
öflug málafylgja réð úrslitum máls-
ins á stjórnmálavettvangi.
Þegar bókin er lesin er ástæða til
að undrast meira en áður að vinstri-
flokkarnir komist upp með að láta
eins og öll ábyrgð á kvótakerfinu og
ákvörðunum vegna þess hvíli á
Sjálfstæðisflokknum.
„Halldór Ásgrímsson var lítið
fyrir lýðskrum. Hann var þeirrar
skoðunar að eina ráðið til að vernda
fiskstofnana við Ísland og gera
veiðarnar arðsamar væri að fækka
fiskiskipum og gera þau stærri.
Frjáls sala á kvóta mundi stuðla að
því. Og hún mundi þegar tímar liðu
fækka fiskiskipum og þar með smá-
bátum og veita þeim sem eftir voru
betri möguleika,“ segir Guðjón á
bls. 275 þegar hann segir frá því að
vinstristjórn Steingríms Hermanns-
sonar, stjórn Framsóknarflokks, Al-
þýðuflokks og Alþýðubandalags,
beitti sér fyrir að sett voru lög sem
heimiluðu framsal kvóta árið 1990.
Átökunum innan Framsóknar-
flokksins vegna aðildarinnar að evr-
ópska efnahagssvæðinu og afstöð-
unnar til ESB er lýst. Halldór
Ásgrímsson valdi aðra leið í EES-
málinu árið 1992 en Steingrímur
Hermannsson flokksformaður, sem
hratt viðræðunum um EES af stað
fyrir Íslands hönd árið 1989 en
greiddi síðan atkvæði á móti aðild-
inni. Átökin innan þingflokks fram-
sóknarmanna voru svo hatrömm að
Steingrímur taldi tímabært fyrir sig
að hætta í stjórnmálum vegna
þeirra. Guðjón segist hafa hitt hinn
gamla leiðtoga Framsóknarflokks-
ins, Eystein Jónsson, þegar þessi
átök um EES stóðu í flokknum og
hann hafi viknað við þá tilhugsun að
flokkurinn kynni að styðja EES-
aðildina.
Með þessa forsögu er illskiljan-
legt hvers vegna Halldór gerðist
síðan að minnsta kosti óbeinn tals-
maður aðildar Íslands að Evrópu-
sambandinu. Í bókinni eru rakin
dæmi um hvernig afstaða hans
klauf Framsóknarflokkinn. Hún
mótaðist líklega af andrúmsloftinu í
heimi utanríkisráðherra og dipló-
mata því að engir skýrir þjóðar-
hagsmunir mæltu þá frekar en nú
með ESB-aðild.
Halldór varð forsætisráðherra
síðsumars 2004 samkvæmt sam-
komulagi hans og Davíðs Odds-
sonar eftir kosningarnar 2003 þegar
óánægja kraumaði undir niðri í báð-
um stjórnarflokkunum vegna úr-
slitanna. Eftir illa útreið í sveitar-
stjórnarkosningum í maí 2006 og
vegna óvæginnar neikvæðni sem
magnaðist í garð stjórnmálamanna
almennt og Halldórs sérstaklega
þótti honum nóg komið og hvarf af
vettvangi stjórnmálanna í byrjun
júní 2006.
Með ævisögu Halldórs Ásgríms-
sonar miðlar Guðjón Friðriksson
miklum fróðleik. Hefði hann unnið
meira úr efninu hefði bókin gefið
skýrari mynd af Halldóri Ásgríms-
syni.
Skráningu á viðkvæmu efni
Morgunblaðið/Eyþór
Stjórnmálasaga „Með ævisögu Halldórs Ásgrímssonar miðlar Guðjón Friðriksson miklum fróðleik,“ skrifar rýnir.
Ævisaga
Halldór Ásgrímsson – ævisaga
bbbmn
Eftir Guðjón Friðriksson.
Mál og menning, 2019. Innb., 668 bls.
BJÖRN
BJARNASON
BÆKUR