Morgunblaðið - 02.12.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 02.12.2019, Qupperneq 32
Verið velkomin í nýja vefverslun RÚN.IS Black Friday oooooooooooooooooo Cyber Monday Allt að 60% afsláttur MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 336. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Afturelding er áfram á hælum Hauka í toppbaráttu úrvalsdeildar karla í handknattleik eftir sigur gegn KA í hörkuleik á Akureyri í gær, 28:25. Haukar eru enn ósigr- aðir í efsta sætinu og eru tveimur stigum á undan Mosfellingum eftir sigur gegn HK og bæði ÍR og Valur unnu mjög örugga sigra í leikjum sínum um helgina. »25 Afturelding áfram á hælum Haukanna ÍÞRÓTTIR Er Leicester City eina liðið sem mögulega getur elt Liverpool og veitt Jürgen Klopp og hans sigur- sælu sveit keppni um enska meist- aratitilinn í fótbolta í vetur? Sigur Leicester á Gylfa Þór Sigurðssyni og samherjum í lánlausu liði Ever- ton, 2:1, í gær þýðir að Brendan Rodgers og hans menn eru áfram átta stig- um á eftir Liverpool en komnir þremur og sex stigum fram úr Manchester City og Chelsea sem töpuðu stigum á laug- ardaginn. »24 Leicester eina liðið sem eltir Liverpool? Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hver er höfundur Njálu? Margir hafa velt því fyrir sér í áratugi, greinar og bækur komið út um efnið, en enn virð- ist svarið vera á huldu. Gunnar Guð- mundsson frá Heiðarbrún sendi ný- verið frá sér bókina Leitin að Njálu- höfundi, þar sem hann rekur söguna, tekur fyrir helstu persónur og stað- hætti, fer yfir fyrri kenningar og þrengir hringinn með útilokunar- aðferð, þar til tveir eru eftir og líkleg- astir sem höfundar. „Ég hef haft áhuga á Njálu frá barnsaldri, fylgst með því sem menn hafa rætt um og frá unglingsaldri hef ég velt fyrir mér hver sé höfundurinn,“ segir Gunnar. Hann segist hafa verið brenndur af því að trúa í blindni á skoðanir Einars Ólafs Sveinssonar, en þegar hann hafi farið að rannsaka sög- una markvisst vegna bókarinnar hafi hann séð að Einar Ólafur hafi ekki haft á réttu að standa í öllum tilvikum. Gunnar segir að hann hafi velt efn- inu fyrir sér í áratugi og byrjað að skrifa bókina fyrir um tveimur árum. „Þá sá ég að ég hafði vaðið í villu eins og svo margir aðrir,“ segir hann. „Eft- ir að hafa farið yfir 14 aðalkenning- arnar, farið ítarlega yfir þær og tínt til rök og gagnrök, stendur eftir að flest- ar þessar tilgátur geta alls ekki stað- ist.“ Hann segist ekki vilja segja það sem hann geti ekki staðið við. „Ég reyni að nálgast höfundinn og varpa síðan niðurstöðunum til lesandans.“ Þrjú mikilvæg atriði Ekki stóð til að komast að bókstaf- legri niðurstöðu í bókinni heldur að þrengja hringinn, að sögn Gunnars. Niðurstaðan hafi orðið skýrari en hann hafi búist við í upphafi. „Ég nefni þrjú atriði sem ég veit ekki til að menn hafi áður bent á,“ segir hann um hugsan- legan höfund. „Þvottá í Álftafirði rétt austan við Hornafjörð er ákaflega tengd manni, sem ræður hvað sett er í Njáls sögu, og ég fer ítarlega yfir það. Síðan er ekki hægt að ganga framhjá kunnugleika mannsins í Vestur- Skaftafellssýslu. Það verður ekki horft framhjá því. Síðan átta ég mig á því að hann ber alveg einhverja sérstaka kærleikstilfinningu til Keldna á Rang- árvöllum.“ Gunnar telur líklegast að bókin hafi verið færð til bókar 1267-1285. Þegar hann var um tvítugt taldi hann að Loftur sonur Páls Jónssonar, biskups í Skálholti, hefði ritað Njálu, en í bók- inni færir hann rök gegn því. „Ég er ekki þeirrar gerðar að hengja mig við eitthvað sem ég hef sagt. Ef hægt er að benda mér á að það standist ekki sem ég segi er mér ljúft að viðurkenna það, því við erum að leita að sannleik- anum, leita að því rétta.“ Bókin er viðamikil, útdráttur er á ensku og henni fylgir ítarleg tilvísana- og mannanafnaskrá auk staðarnafna. „Ég dreg saman allar kenningar sem hafa komið fram um höfund Njálu í eina bók,“ segir Gunnar. „Það hefur ekki verið gert áður.“ Morgunblaðið/RAX Margir kallaðir en tveir útvaldir höfundar Njálu  Gunnar frá Heiðarbrún þrengir hringinn í nýrri bók Leitin að Njáluhöfundi Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún beitir útilok- unaraðferðinni í bókinni. Team Rynkeby Ísland, sem hjólar til styrkt- ar góðu mál- efni, stendur fyrir tónleikum í Hlégarði á miðvikudag, 4. desember, kl. 19.30 til styrkt- ar krabbameinsveikum börnum. Þar koma fram Eva María Þrast- ardóttir, Guðrún Árný Karlsdóttir, Margrét Eir Hönnudóttir, Maríanna Másdóttir, Karlakór Kjalnesinga, Björg Þórhallsdóttir, Kjartan Valdemarsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir. Kynnar eru Gunnar Helgason og Felix Bergsson. Allir flytjendur gefa vinnu sína. Miðar eru seldir á tix.is. Styrktartónleikar fyrir krabbameinsveik börn MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.