Morgunblaðið - 09.12.2019, Side 1
Morgunblaðið/Alexander Gunnar
Vettvangur Lögreglan að störfum við húsið.
Karlmaður lést eftir að hann féll fram af svöl-
um annarrar hæðar fjölbýlishúss í Úlfars-
árdal í Reykjavík um miðjan dag í gær.
Fimm einstaklingar voru handteknir í
tengslum við rannsókn málsins sem er á
frumstigi, samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna
málsins. Maðurinn sem féll niður af svölunum
var fluttur á Landspítalann og var úrskurð-
aður látinn við komuna þangað, að því er
fram kom í tilkynningu frá lögreglunni.
Ekki fengust í gær upplýsingar um það
hvað varð til þess að maðurinn fór fram af
svölunum. „Það er ekki hægt að segja til um
tildrögin að svo stöddu,“ sagði Margeir
Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Tvær og hálf hæð niður á frosna jörð
Lögreglan þurfti að brjóta upp lás íbúðar-
innar á 2. hæð hússins til að komast þar inn.
Þar er hátt svalahandrið baka til. Undir er
ein hæð og hálfniðurgrafinn bílakjallari þann-
ig að fallið er talsvert niður á frosna jörð.
Maðurinn sem lést var erlendur ríkisborg-
ari og sömuleiðis mennirnir fimm sem hand-
teknir voru í íbúðinni í tengslum við rann-
sókn málsins, samkvæmt upplýsingum
lögreglu.
Lögreglan vann að rannsókn á vettvangi í
gær en lauk störfum utanhúss fyrir kvöldið.
Ekki fengust upplýsingar um það í gærkvöldi
hvort óskað yrði gæsluvarðhalds yfir hinum
handteknu.
helgi@mbl.is, thor@mbl.is, agunnar@mbl.is
Lést eftir fall fram af svölum
Lögreglan braut upp lás á íbúð í fjölbýlishúsi í Úlfarsárdal og handtók fimm menn vegna rannsóknar
mannsláts Rannsókn er sögð á frumstigi Lögregla gat ekki upplýst um tildrög málsins í gær
M Á N U D A G U R 9. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 289. tölublað 107. árgangur
15 dagartil jóla
Jólaleikir eru á
jolamjolk.is
HÖFUM EKKI
RAUNSÆJA
MYND AF JÓNI
BINOCHE
HLAUT HEIÐ-
URSVERÐLAUN
RISAEÐLUR
Á REKAGRANDA
RJÚFA FRIÐINN
EFA Í BERLÍN 28 AÐVENTAN 11NÝ RANNSÓKN 6
Mikið var um dýrðir þegar Skógræktarfélag
Mosfellsbæjar opnaði jólaskóginn í Hamrahlíð
og hóf um leið sölu fyrstu jólatrjánna. Haraldur
Sverrisson bæjarstjóri sagaði niður fyrsta tréð.
Jólasveinninn lét ekki sitt eftir liggja og hélt
uppi jólagleðinni fyrir börn á öllum aldri.
Jólaskógurinn opnaður í Hamrahlíð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðar Guðjónsson
vidargudjons@gmail.com
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir að fjölmiðla-
frumvarp Lilju Alfreðsdóttur,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, sé Sjálfstæðisflokknum
þungt. Telur hann að frumvarpið sé
andvana fætt í núverandi mynd og
þá sérstaklega ljósi þess að ekki er
rætt um stöðu RÚV ohf. á sam-
keppnismarkaði í frumvarpinu. Tel-
ur hann þessa afstöðu sína vera
ríkjandi innan flokksins. Málið er
komið á dagskrá Alþingis. „Þetta er
ekki rétta leiðin til þess að styrkja
stöðu einkarekinna fjölmiðla. Sér-
staklega þar sem á markaði er risi í
RÚV og þetta gerir ekkert annað
en það að skattgreiðendur greiða í
beinhörðum peningum til einka-
miðla. Ástandið mun engu að síður
ekkert breytast í stóru myndinni.
Tap fjölmiðla mun kannski fara úr
100 milljónum í 50 eða 30 milljónir
t.a.m. en stóra málið er að rekstr-
arumhverfið er óeðlilegt. Ég held
að ekki verði komist hjá því að tak-
marka mjög umsvif RÚV á auglýs-
ingamarkaði, eða bara að taka það
af auglýsingamarkaði. Það kann að
vera að það sé rétt að gera það í
einhverjum skrefum en ég tel rétt
að það fari af markaði að lokum
með sína auglýsingadeild,“ segir
Brynjar.
Lilja Alfreðsdóttir segist ánægð
með að málið sé komið og koppinn
og segir jafnframt að það sé hlut-
verk forystusveitar Sjálfstæðis-
flokksins að leysa úr ágreiningi um
málið innan flokksins. Sérstaklega
í ljósi þess að þingmenn úr öllum
stjórnarflokkunum hafi komið að
undirbúningi frumvarpsins. „Þing-
menn úr öllum ríkisstjórnarflokk-
um hafa komið að frumvarpinu og
ríkisstjórnin hefur afgreitt málið,“
segir Lilja Alfreðsdóttir og bætir
við: „Það er verk forystu Sjálf-
stæðisflokksins að leysa ágreining
sem er innan þeirra raða,“ segir
Lilja.
Telur frumvarp andvana fætt
Brynjar segir ekki komist hjá því að takmarka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði
MÞungt fyrir sjálfstæðismenn »4
Veðurstofan sendi í gær frá sér
gula viðvörun, en gert er ráð fyrir
að það muni ganga í norðan- og
norðvestan storm eða rok á morg-
un, þriðjudag. Munu vindhviðurnar
verða á bilinu 20-28 m/s. Biður
Veðurstofan fólk að vera við öllu
búið á morgun, ganga frá lausum
hlutum og sýna varkárni en ekki er
gert ráð fyrir að hægt verði að
ferðast á vesturhluta landsins með-
an veðrið gengur yfir.
Gul viðvörun á Suð-
ur- og Vesturlandi
Allur gangur er á því hvort sveit-
arfélög veita stjórnmálasamtökum
fjárframlög líkt og þeim ber sam-
kvæmt 5. grein laga nr. 162/2006
um fjármál stjórnmálasamtaka. Að
auki hafa fá sveitarfélög sett sér
reglur um hvernig veita eigi fram-
lögin, en Samband íslenskra sveitar-
félaga, SÍS, undirbýr nú setningu
viðmiðunarreglna. Í minnisblaði sem
Sigurður Á. Snævarr, sviðsstjóri
hag- og upplýsingasviðs, lagði fram
á síðasta stjórnarfundi SÍS er lagt til
að fjárhæðin miðist við 150 kr. á
hvern íbúa sem hafði kosningarétt í
næstliðnum kosningum. »4
Allur gangur á
styrkjum til flokka