Morgunblaðið - 09.12.2019, Page 2

Morgunblaðið - 09.12.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019 Vetrarsól er umboðsaðili 40 ár á Íslandi Sláttuvélar Snjóblásarar Sláttutraktorar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hagkvæmt að auka aflið  Landsvirkjun undirbýr að auka afl Sultartangastöðvar um 8 MW með betri nýt- ingu vatns  Ekkert jarðrask eða framkvæmdir við mannvirki  Laga þarf vélar Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stækkun Sultartangastöðvar sem Landsvirkjun er að undirbúa getur aukið afl virkjunarinnar um 8 mega- vött án nokkurs jarðrasks eða fram- kvæmda við mannvirki. Áætlað er að aðgerðin kosti undir 40 milljónum kr. og er því afar hagkvæmur kostur. Búrfellsstöð var stækkuð á árun- um 2016 til 2018 með því að nýta bet- ur það vatn sem í gegnum stöðina fer. Við það jókst virkjað rennsli í 380 rúmmetra á sekúndu. Sultartanga- stöð er næsta stöð fyrir ofan Búrfells- stöð og nýtir vatn bæði úr Tungnaá og Þjórsá og er hámarksrennsli hennar 322 m3/s. Komi til þess að keyra þurfi Búrfellsstöð á fullum af- köstum verður að hleypa vatni um farveg Þjórsár frá Sultartangalóni að inntaki Búrfellsstöðvar. Við það mun vatn renna óvirkjað framhjá Sultar- tangastöð. Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun geta skapast áskor- anir þegar vatni er hleypt þessa leið að vetrarlagi, þegar snjór og ís er í farvegi, sem geta valdið krapaflóði og erfiðleikum við Ísakot, inntak Búr- fellsstöðvar, og þar með rekstrar- truflunum í stöðinni. Framkvæmt 2021? Stækkun Sultartangastöðvar hefur ekki í för með sér breytingar eða framkvæmdir á mannvirkjum og heldur ekki jarðrask. Aðeins þarf að gera breytingar á núverandi vélbún- aði innanhúss. Í þessu ljósi taldi Skipulagsstofnun að framkvæmdin væri ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og hún væri því ekki háð mati á um- hverfisáhrifum. Landsvirkjun bendir á að fram- kvæmdin sé hagkvæm og falli vel að hlutverki fyrirtækisins um að há- marka afrakstur af þeim orkulindum sem því er trúað fyrir. Landsvirkjun hefur sótt um leyfi hjá Orkustofnun til aflaukningar Sultartangastöðvar úr 125 MW í 133 MW. Ekki hefur verið ákveðið hve- nær ráðist verður í verkið, ef öll leyfi fást, en það gæti það orðið á árinu 2021, samkvæmt upplýsingum Landsvirkjunar. Ljósmynd/Landsvirkjun Sultartangastöð Unnt er að nýta vatnið betur í virkjuninni. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir það vera af og frá að tengja Landsréttarmálið svokallaða við óeðlileg pólitísk af- skipti framkvæmdavaldsins af skip- an dómsvaldsins og að sú afstaða rík- isstjórnarinnar komi skýrt fram í greinargerð dómsmálaráðuneytisins til yfirdeildar Mannréttindadóm- stóls Evrópu. Segist hún jafnframt vera þeirrar skoðunar að Landsrétt- armálið eigi ekkert skylt við máls- atvik í Póllandi. Ríkisstjórnin, sem áfrýjaði niðurstöðu Mannréttinda- dómstólsins um að dómsmálaráð- herra hefði brotið lög við skipan dómara í Landsrétt, afgreiddi grein- argerð vegna áfrýjunarinnar á föstudaginn var. Málið verður tek- ið fyrir hjá Yfir- deildinni hinn 5. febrúar. „Mannrétt- indadómstóllinn klofnaði í afstöðu sinni í neðri deild- inni og við teljum minnihlutaálitið þar vera vel rök- stutt. Þar kemur meðal annars fram að álit Hæstaréttar varðandi túlkun á íslenskum lögum um að dómararn- ir séu löglega skipaðir sé rétt nið- urstaða,“ segir Áslaug í samtali við Morgunblaðið. Spurð um afstöðu sína varðandi þann stuðning sem ríkisstjórn Pól- lands hefur sýnt íslenska ríkinu í Landsréttarmálinu segir Áslaug það vera alvanalegt að önnur lönd komi fram sjónarmiðum sínum á framfæri málum fyrir Mannréttindadómstóln- um. Vísir.is hefur greint frá því að formaður Dómarafélagsins telji af- stöðu Póllands áhyggjuefni vegna af- stöðu stjórnvalda þar í landi varð- andi sjálfstæði dómstóla. Segist Áslaug ekki telja að afstaða pólska ríkisins muni hafa áhrif á málavexti. „Við munum bara halda áfram með málið út frá okkar forsendum og þeim sjónarmiðum. Ég tel að Lands- réttarmálið eigi ekkert skylt við málsatvik í Póllandi. Það er ansi langsótt að tengja það saman,“ segir Áslaug. Tenging við Pólland langsótt  Af og frá að Landsréttarmálið tengist óeðlilegum pólitísk- um afskiptum framkvæmdavaldsins, segir Áslaug Arna Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Bíó Paradís stendur nú fyrir japönskum kvik- myndadögum í samstarfi við Japan Foundation og sendiráð Japans hér á landi. Bauð íslensk- japanska félagið af því tilefni til origami-smiðju og fengu þar gestir og gangandi tilsögn í hinni fornu japönsku list að brjóta pappír. Mátti til dæmis sjá pappírströnur og papp- írshjörtu þar á borðum, en einnig var þetta kjör- ið tækifæri til að bæta við sig jólaskrauti. Brotið blað í tilefni japanskra kvikmyndadaga Morgunblaðið/Árni Sæberg Talið er líklegast að flugmennirnir hafi misst stjórn á vélinni við ofris- æfingu og hún farið í spuna sem ekk- ert fékkst ráðið við. Það er niðurstaða Rannsóknarnefndar samgönguslysa á slysinu þegar eins hreyfils kennslu- flugvél af gerðinni Tecnam P2002 jf spann til jarðar í Hafnarfjarðar- hrauni í nóvember 2015 með þeim af- leiðingum að flugmennirnir sem báðir voru flugkennarar létust. Lokaskýrsla Rannsóknarnefndar samgönguslysa um flugslysið var gef- in út í fyrradag. Rannsóknin var flók- in vegna takmarkaðra upplýsinga, að sögn Þorkels Ágústssonar, rannsókn- arstjóra flugsviðs. Engin vitni voru að slysinu og ekkert um borð í vélinni sem tók upp feril hennar. Hann segir að allir þættir hafi verið skoðaðir í þeim tilgangi að útiloka sem flestar mögulegar orsakir. Rannsakendur könnuðu vettvang, skoðuðu flugvélina í rannsóknarskýli, fóru með hreyfilinn til framleiðanda og rannsökuðu hann þar og heim- sóttu framleiðanda flugvélarinnar á Ítalíu. Þá var unnið að rannsókninni í samvinnu við yfirvöld í öðrum lönd- um, Póllandi og Ungverjalandi þar sem flugslys á samskonar vélum höfðu orðið og á Ítalíu þar sem flug- vélin var framleidd. Tilmæli um úrbætur Rannsóknarnefndin beindi þeim tilmælum til Alþjóðaflugmálastofn- unarinnar að leiðsögutæki sem notuð eru um borð í flugvélum væru með búnaði sem tekur upp feril flugsins. Því er beint til Flugöryggisstofnunar Evrópu að láta kanna eiginleika vél- arinnar eftir breytingar sem gerðar hafa verið. Þá var því beint til flug- skóla sem nota þessar vélar að æfing- ar sem geta leitt til spuna yrðu ekki framkvæmdar undir 5.000 feta hæð og óskað eftir því við Samgöngustofu að útvega slíkt æfingasvæði . helgi@mbl.is, athi@mbl.is Voru lík- lega að æfa ofris  Erfitt að meta ástæður flugslyssins Tecam Vél sömu gerðar og fórst í Hafnarfjarðarhrauni fyrir 4 árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.