Morgunblaðið - 09.12.2019, Side 4

Morgunblaðið - 09.12.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Frá kr. 69.995 TILBOÐ TIL KANARÍ GranCanaria ROQUE NUBLOaa 11. DESEMBER Í 8 NÆTUR Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Allur gangur hefur verið á því að sveitarfélög veiti stjórnmálasamtökum fjárframlög eins og þeim ber að gera lögum samkvæmt og fá sveitarfélög hafa sett sér reglur um framlögin. Þetta má lesa út úr minnisblaði Sigurðar Á. Snævarr, sviðsstjóra hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem lagt var fram á seinasta stjórnarfundi sambands- ins. Í undirbúningi eru viðmiðunarreglur um framlög sveitarfélaga til stjórnmálasamtaka. Gerðar voru lagabreytingar á síðasta ári á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda þar sem sambandinu er gert að setja viðmiðunarreglur og kveða lögin á um að öllum sveitarfélögum verði skylt að veita árleg fjárframlög til stjórnmálasamtaka sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn í sveitar- stjórn eða hlotið hið minnsta 5% atkvæða. Í eldri lögum voru sveitarfélög með færri en 500 íbúa undanþegin greiðsluskyldu. Á minnisblaði Sigurðar kemur fram að sam- bandið nýtti sér ekki lagaheimild til að setja viðmiðunarreglur og allnokkur sveitarfélög leituðu ráða um hvernig þau ættu að standa að þessum málum. Gerði sambandið könnun árið 2011 sem leiddi í ljós að 25 sveitarfélög með fleiri en 500 íbúa inntu á þeim tíma af hendi framlög til stjórnmálaflokka og eitt sveitarfé- lag með færri íbúa. 16 af 41 sveitarfélagi með fleiri en 500 íbúa gerðu hins vegar ekki ráð fyrir að styrkja stjórnmálasamtök árið 2011. Að meðaltali var framlagið 196 kr. á íbúa (eða um 243 kr. á núvirði) en framlögin voru þó mishá, það hæsta 862 kr. en það lægsta 43 kr. Greiddu 176 kr. að meðaltali Sigurður segir að ekki hafi verið unnt að endurtaka könnunina frá 2011 en haft var samband við allmörg sveitarfélög og þau innt eftir upplýsingum um fjárframlög. „Þannig fengust upplýsingar frá 15 sveitarfélögum sem einnig voru í könnuninni frá 2011 Þessi upplýsingaöflun leiddi í ljós nokkurn misbrest á framfylgd laganna. Nokkur sveitarfélög greiða eingöngu út styrki í aðdraganda kosn- inga og enn önnur virðast ekki hafa vitneskju um lögin og greiða engin framlög. Að meðaltali greiddu þessi 15 sveitarfélög sem svarar 176 kr. á íbúa, samanborið við 190 kr. árið 2011. Um er að ræða lækkun um 7,6%. Framlög hækkuðu um 5,5% en íbúum í þess- um sveitarfélögum fjölgaði um 14,2%,“ segir á minnisblaðinu. Lögin veita ekki leiðsögn Bendir Sigurður á að lagabreytingin frá í fyrra feli í sér að sveitarfélögum með færri en 5 þúsund íbúa sé nú skylt að veita stjórnmála- samtökum fjárframlög árlega. Þessi skylda á þó ekki við þar sem um óbundnar kosningar er að ræða þar sem stjórnmálasamtök bjóða ekki fram en þar er alls um að ræða 12 sveit- arfélög með færri en 500 íbúa. „Tólf sveitar- félögum verður nú skylt að greiða stjórnmála- samtökum framlög en alls bjuggu tæplega 3.500 íbúar í þessum sveitarfélögum 1. janúar sl. Fá sveitarfélög hafa sett sér reglur um framlög til stjórnmálasamtaka en a.m.k. eitt sveitarfélag hefur í bígerð að setja slíkar regl- ur. Vitnað er til þess að lögin séu skýr og auð- veld í framkvæmd,“ segir þar. Lögin veiti ekki leiðsögn um hvað viðmið- unarreglurnar eiga að fela í sér eða hver fjár- hæðin skuli vera en lögð er fram tillaga á minnisblaðinu að viðmiðunarreglum fyrir stjórn sambandsins um slíkar reglur. Lagt er m.a. til að árlegum framlögum sveitarfélaga þar sem haldnar eru hlutfalls- kosningar til stjórnmálasamtaka sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn eða hlotið hið minnsta 5% atkvæða í seinustu sveitarstjórn- arkosningum verði úthlutað í hlutfalli við at- kvæðamagn. „Miða skal við að greiða 150 kr. á hvern íbúa í sveitarfélaginu sem kosningarétt hafði í næstliðnum kosningum til sveitarstjórnar.“ Þessi fjárhæð breytist svo árlega miðað við vísitölu neysluverðs. Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga ákvað að fresta umræðu um málið til næsta stjórnar- fundar. Misbrestur á framlögum til flokka  Nokkur sveitarfélög greiða eingöngu styrki fyrir kosningar og önnur virðast ekki hafa vitneskju um lögin  Lagt til að framlögin verði 150 kr. á hvern íbúa  Minnisblað um framlögin lagt fyrir stjórn SÍS Aðventugleði lá í loftinu á jólatónleikum Vals- kórsins sem haldnir voru í Friðrikskapellu á Hlíðarenda á laugardaginn var. Voru þar flutt bæði íslensk og erlend aðventu- og jólalög sem ungir jafnt sem aldnir gátu notið á aðventunni. Öll börn sem sóttu tónleikana með fjölskyldum sínum fengu pakka í anda hátíðarinnar en efnt var til hlutaveltu fyrir fullorðna fólkið sem hafði tækifæri til að vinna glæsilega vinninga. Morgunblaðið/Árni Sæberg Glæsilegir jólatónleikar í anda aðventunnar Giftusamlega tókst til með björgun þegar tvær ungar konur frá Kína voru í reiðileysi eftir að hafa misst smábíl út af veginum í Grímsnesi í fyrri- nótt. Þæfingur var á veginum sem bíllinn rann út af en skemmdist ekki. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst, seg- ir máltækið, því nú bar að rútu þar sem voru fangaverðir frá Litla- Hrauni, sem með mökum voru að koma af jólahlaðborði á Hótel Geysi. „Konurnar hlupu í veg fyrir rútuna og veifuðu öllum öngum,“ segir Jó- hann Páll Helgason. Hann var einn tólf fílefldra fangavarða sem fóru út til aðstoðar, ýttu hraustlega á smábíl- inn og komu honum upp á veginn. „Kínversku konurnar voru í áfalli, grétu allan tímann sem við stóðum hjá þeim. Sennilega skildu þær ekk- ert af því sem við sögðum þeim. Von- andi verður þetta ferðalag þeirra þó þegar frá líður að ljúfri minningu um íslenska víkinga,“ segir Jóhann Páll. sbs@mbl.is Jóhann Páll Helgason Fangaverð- ir björguðu Kínverjum Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Þetta mál er mjög þungt fyrir okkur sjálfstæðismenn og ég held að fjöl- miðlamarkaðurinn verði óeðlilegri nái þetta fram að ganga og þetta mun ekkert nýtast einkamiðlum í sam- keppni við risamiðilinn (RÚV),“ segir Brynjar Níelsson, þingmaður í Sjálf- stæðisflokki, um fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sem komið er á dagskrá Alþingis. Í greinargerð með frumvarpinu er m.a. lagt til að komið verði á stuðningskerfi við einkarekna fjölmiðla vegna kostnaðar sem fellur til við miðlun frétta. Hlut- fall endurgreiðslu eigi að hámarki að vera 18% af kostnaði við miðlun frétta en að hún nemi ekki hærri upphæð en 50 milljónum kr. til umsækjanda. Brynjar segir að ef vilji sé fyrir því að ívilna einkareknum miðlum með einhverjum hætti þá eigi það að vera í gegnum skatt- kerfið. „Hvort sem það væri í formi lægri skatta eða lægra trygg- ingagjalds. Það er strax orðið eðli- legra umhverfi,“ segir Brynjar. Birgir Ár- mannsson, þing- flokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir það ljóst að skiptar skoðanir séu innan flokksins um frumvarpið. „Flokkurinn hefur samþykkt málið fyrir sitt leyti. Menntamálaráðherra hefur því stuðning flokksins til þess að leggja það fram. Við meðferð málsins í okkar flokki voru gerðir heilmargir fyrirvarar á málinu, bæði hvað varðar ýmis efnisatriði og einnig hvað varðar samkeppnisumhverfi einkarekinna fjölmiðla í breiðari skilningi. Þá eru menn einkum að hugsa um fyrirferð RÚV á sam- keppnismarkaði,“ segir Birgir. Hann segir að mikill áhugi sé á því innan Sjálfstæðisflokksins að staða RÚV verði skoðuð samhliða. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir að frumvarpið sé afsprengi þess sem stendur í stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar um að styðja eigi við einkarekna fjölmiðla. „Þingmenn úr öllum ríkisstjórnarflokkunum hafa komið að frumvarpinu á fyrri stigum málsins. Ríkisstjórnin hefur afgreitt málið sem og allir stjórnarflokk- arnir,“ segir Lilja. Hún segist ekki gera lítið úr gagn- rýni en bætir því við að málið sé vel undirbúið og löngu tímabært að það komi fram. Spurð hvort hún sjá fyrir sér að málið muni taka miklum breyt- ingum í meðförum þingsins, segir hún brýnast að klára málið sem fyrst og að það sé hlutverk forystusveitar Sjálfstæðisflokksins að leysa úr ágreiningi innan sinna raða. Þungt fyrir sjálfstæðismenn  Lilja segir sjálfstæðismenn þurfa að leysa úr ágreiningi Brynjar Níelsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.