Morgunblaðið - 09.12.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 09.12.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019 Fastus ehf | Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is EINNOTA HANSKAR Í ÖLLUM REGNBOGANS LITUM • Fjórir litir í einu boxi • Púðurslausir • Ofnæmisprófaðir • Gott grip og passa vel á hendi BLEIKIR | GULIR | GRÆNIR | APPELSÍNUGULIR Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Um 200 manns búa á um 40 bæjum og húsum í Svarfaðardal, sem geng- ur inn í Tröllaskagann til suðvesturs frá Dalvík. Landslagið hér er líkt því sem gerist víða norðanlands; Svarf- aðardalsá fellur um miðjan dalinn sem er umlukinn háum hlíðum fjalla. Undir þeim standa bæirnir og al- mennt er vel hýst í þessari sveit. Í dalnum eru mörg myndarleg bú og félags- og menningarlíf í blóma. Fyrirmyndarsveit, eins og blaða- maður Morgunblaðsins komst að þegar hann kynnti sér staðhætti þarna nú í haust. Frá Hrafnsstöðum að Skáldalæk Hefð er fyrir því hér að byrja upp- talningu á bæjaröðinni við Hrafns- staði sem eru vestanvert í dalnum skammt fyrir innan Dalvík. Þaðan rekur maður sig inn dalinn, sem klofnar þar sem píramídalagaður Stóllinn gengur fram. Norðan hans heldur Svarfaðardalur áfram en sunnan Stólsins er Skíðadalur. Utan við Skíðadal er austanverður Svarf- aðardalur og ystur bæja þar er Skáldalækur. Förum nú á bæjaflakk. Tjörn, sem er utarlega í vestanverðum dalnum, er kirkjustaður og þar fæddist Kristján Eldjárn (1916-1982), þriðji forseti lýðveldisins. Þar fyrir ofan standa nokkur íbúðarhús á svo- nefndri Gullbringutorfu sem kennd er við gamalt býli sem nú er sumar- hús afkomenda Kristjáns forseta. Á þessum slóðum er Sundskáli Svarf- dæla, reistur 1929, fyrsta yfirbyggða sundlaugin á Íslandi sem hefur verið í notkun fram undir þetta. Rétt inn- ar, í brekkurótum, er þéttbýliskjarni með 5-10 íbúðarhúsum í landi Laugahlíðar. Niðri á sléttlendinu í dalnum vest- anverðum eru yfirgefnar byggingar Húsabakkaskóla en skólahald þar var lagt af árið 2005 og börnum ekið til skóla á Dalvík. Innar, niður undir Svarfaðardalsá, er bærinn Bakki, sem við eru kenndir hinir fákænu Bakkabræður sem til eru um marg- ar þjóðsögur. Sjálfsagt voru Gísli, Eiríkur og Helgi aldrei til í raun- heimum, en sagnir lifa, svo sem af því uppátæki þeirra að byggja gluggalaust hús og bera birtu inn í trogum. Ögn innar og uppi í brekku er eyðibýlið Bakkagerði, en íbúðar- húsið þar var sviðsmynd í kvik- myndinni Land og synir, sem var filmuð í Svarfaðardal fyrir 40 árum. Heimkynni fugla himinsins Um tuttugu kílómetrar eru frá Dalvík að Koti og Atlastöðum, sem eru innstu bæir í Svarfaðardal. Þeir eru norðan við Stólinn, sem er 1.214 metra hár og „hið heilaga fjall Svarf- dælinga“, segir í lýsingu Hjartar heitins Þórarinssonar á Tjörn í Ár- bók Ferðafélags Íslands 1972 sem fjallaði um þessar slóðir. Þekktastur bæja í framdalnum er sennilega Urðir; kirkjustaður frá fornu fari. Skíðadalur sunnan Stólsins er tæplega 10 km langur og innsti bær þar er Klængshóll, nú bækistöð fjallafólks og skíðakappa. Í austanverðum Svarfaðardal eru mörg mektarbýli. Má þar m.a. nefna Hofsá og kirkjustaðinn Velli, þar sem starfrækt er sælkeraverslun með heimaunnum matvælum. Þá er Hánefsstaðaskógur eftirtektar- verður staður; 11 ha. skógur sem plantað var til um miðja síðustu öld. Úr Hánefsstaðaskógi – sem sumir nefna reit – liggur stígur með göngubrú yfir í Friðland Svarfdæla. Það er beggja vegna Svarfaðar- dalsár, neðan frá sjó að Húsabakka- skóla, votlendissvæði þar sem um 30 tegundir fugla himinsins eiga heim- kynni og verpa innan um akursins liljugrös. Svarfaðardalur til fyrirmyndar Tjörn Höfuðból í mörgu tilliti. Héðan var dr. Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður og þriðji forseti Íslands. Bakkagerði Hér var hin eftirminnilega kvikmynd Land og synir tekin upp fyrir um fjörutíu árum.  Blómleg byggð  40 staðir og 200 íbúar í dalnum  Gísli, Eiríkur, Helgi  Sviðsmynd í íslensku bíói Morgunblaðið/Sigurður Bogi Urðir Kirkjustaður og einn fremstu bæja í Svarfaðardalnum. Húsabakkaskóli Yfirgefnar byggingar því nú er öllum börnum sveitarinnar ekið í grunnskólann á Dalvík. Stóllinn Klýfur dalinn og er „hið heilaga fjall“, eins og segir í sveitarlýsingu í gamalli Ferðafélagsbók. Í Svarfaðardal er blómlegur bú- skapur og á tólf bæjum er mjólk- urframleiðsla. Á átta þeirra hafa fjós verið stækkuð eða ný byggð og róbótar sjá nú um mjaltir og fleiri verk. Búin eru líka orðin all- stór; framleiðsla á ári er gjarnan um 400 þúsund lítrar og 50 til 60 kýr í fjósi. „Búin þurfa að vera stór svo þau standi undir fjárfest- ingum og kröfum tímans, meðal annars um aðbúnað gripa,“ segir Trausti Þórisson, bóndi á Hofsá. Sóknarhugur svarfdælskra bænda hefur vakið athygli víða en Trausti bóndi telur þessa þró- un vera smitandi. „Ef einn bóndi fer í uppbyggingu fylgir gjarnan annar á eftir. Þannig hefur það verið hér í sveit á síðustu árum,“ segir Trausti sem er ættaður úr Svarfaðardal, en uppalinn í Ólafs- firði. Fjarlægur draumur hans var alltaf sá að verða bóndi og sá draumur rættist þegar þeim Ás- dísi Erlu Gísladóttur, konu hans, sem er frá Hofsá, bauðst að koma inn í búskapinn með for- eldrum hennar. Það var árið 1994. Fáum árum seinna tóku ungu hjónin svo við búinu, sem þau hafa eflt mikið á undanförnum árum. Landbúnaður er undirstaðan í Svarfaðardal en allmargir sækja þó vinnu af bæ, til dæmis til Dal- víkur, svo sem fólk sem býr í þéttbýlinu við Laugastein. „Félagslífið hér í sveitinni er sterkt; margir eru í kórum, menn- ingin í kringum búskapinn svo sem göngur á haustin og slíka viðburði er sterk og af þorra- blótshaldi hér fara alltaf miklar sögur. Mér fannst sveitin reyndar missa talsvert þegar Húsabakka- skóla var lokað fyrir 14 árum. Það var góður skóli þar sem krökk- unum leið vel en sem betur fer hefur tíminn mildað þau von- brigði. Þá er Dalvíkurskóli, en þangað fara börnin nú, öflugur og starfsfólkið þar metnaðarfullt,“ segir Trausti á Hofsá. Uppbyggingin er smitandi BLÓMLEGUR BÚSKAPUR OG MARGIR ENDURBYGGJA FJÓSIN Morgunblaðið/Sigurður Bogi Svarfdælingar Trausti Þórisson og Ás- dís Erla Gísladóttir eru bændur á Hofsá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.