Morgunblaðið - 09.12.2019, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019
Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími 7.30-16.30
Sími 557 8866
pantanir@kjotsmidjan.is
Komdu við
eða sérpantaðu
- Fyrir jólaboðin -
Hangikjöt, hamborgarhryggur og villibráð
Gæða
kjötvörur
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
varaði Kim Jong-un, leiðtoga Norð-
ur-Kóreu, við því að hann „hefði öllu“
að tapa með því að sýna Bandaríkj-
unum fjandskap, eftir að Norður-
Kóreumenn urðu vísir að „meirihátt-
ar“ tilraun með kjarnorkuvopn um
helgina.
„Kim Jong er of snjall og hefur
alltof miklu að tapa, í raun öllu, sýni
hann Bandaríkjunum óvináttu,“
skrifaði Trump á Twitter-síðu sína.
Skírskotaði hann til ótilgreindrar
kjarnorkutilraunar í geimferðamið-
stöðinni Sohae í Norður-Kóreu í
fyrradag sem skýrt var frá í gær-
morgun.
Aðeins nokkrum stundum áður
hafði Trump sagt opinberlega að
hann hann yrði „undrandi“ ef ógn
bærist frá Norður-Kóreu. Kvaðst
hann eiga „afar gott samband“ við
Kim. Skiptust leiðtogarnir á fjand-
samlegum yfirlýsingum og óvægnum
hótunum mánuðum saman árið 2017.
Árið eftir batnaði sambúðin til muna.
Trump og Kim hafa hist þrisvar
frá í júní 2018 en með litlum árangri
hvað kjarnorkuafvopnun áhrærir.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa veitt
Bandaríkjamönnum frest til 31. des-
ember til að leggja á borðið tilslakan-
ir til að koma afvopnunarviðræðun-
um aftur af stað.
„Undir forystu Kim Jong-un á
Norður-Kórea gríðarlega efnahags-
lega möguleika, en þeir verða að af-
vopnast í samræmi við loforð sín.
NATO, Kína, Rússland, Japan og
reyndar heimurinn allur stendur
saman í þessu efni,“ sagði Trump.
Hann sagði að Kim hefði á fundi
þeirra í Singapúr í júní 2018 „und-
Kim „hefur öllu“ að tapa
Trump minnir Kim Jong-un á skuldbindingar sínar eftir kjarnorkutilraunir
AFP
Kjarnorka Trump og Kim Jong-un
hafa hist þrisvar án árangurs.
irritað magnað afvopnunarsam-
komulag“ og bætti við: „Hann vill
ekki gera sérstakt samband sitt við
forseta Bandaríkjanna að markleysu
og heldur ekki skipta sér af forseta-
kosningunum í nóvember.“
Talsmaður varnarmálaakademíu
Norður-Kóreu sagði að „mikilvæg til-
raun“ hefði verið framin og myndi
hún breyta strategískri stöðu Norð-
ur-Kóreu „verulega“, að sögn ríkis-
fréttastofunnar KCNA. Ekki var
nánar greint frá tilrauninni og eðli
hennar.
Í tengslum við leiðtogafund
NATO-ríkjanna í Englandi í vikunni
sagði Trump aðspurður að enn væru
möguleikar á því að farið yrði með
vopnum gegn Norður-Kóreu. Hart
var brugðist við í Pyongyang og því
heitið að gripu Bandaríkjamenn til
vopna yrði „gripið skjótt til viðeigandi
gagnaðgerða á öllum stigum“.
Erlendir sendifulltrúar hjá Sam-
einuðu þjóðunum segjast óttast að
Norður-Kóreumenn hefji að nýju til-
raunir með langdrægar flaugar er
borið geta kjarnorkusprengjur kom-
ist ekki fljótt skriður á viðræður
þeirra og Bandaríkjamanna.
Að minnsta kosti 43 farandverkamenn
týndu lífi í gríðarlegu eldhafi í tösku-
gerð í gamla hverfinu í Nýju-Delhí í
Indlandi í gærmorgun. Umlukti bálið
verksmiðjuna á augabragði og lýstu
þeir sem út úr vítiseldinum komust
neyðarópum þeirra sem eftir voru og
komust hvergi.
Margir þeirra sem fórust gistu í her-
bergjum fyrir verkamennina á þriðju
hæð byggingarinnar. Munu flestir
þeirra hafa kafnað í reyknum af eld-
inum sem kom upp á fyrstu hæð og
breiddist hratt út. Mun hann hafa
kviknað klukkan 5.00 að morgni í Ind-
landi, 23.30 að íslenskum tíma.
Eldsvoðinn er sá mannskæðasti í
Nýju-Delhí frá því 59 manns fórust í
bruna í kvikmyndahúsi 1997. Er því
m.a. kennt um hversu linlega er fram-
fylgt reglum um öryggisráðstafanir í
mannvirkjum í Indlandi. Þeir sem fór-
ust voru frá ríkinu Bihar sem er með
fátækustu svæðum Indlands.
Mannskæðasti eldsvoði í Nýju-Delhí frá árinu 1997
43 hurfu
í eldhafið
AFP
Aung San Suu
Kyi, leiðtogi
Búrma, hélt í
gær til Hollands
til að svara til
saka fyrir al-
þjóðadóm-
stólnum í Haag
sem rannsakar
meint þjóðar-
morð á róh-
ingjum í Búrma.
Ákvörðun hennar að koma fyrir
réttinn á morgun, þriðjudag, kom á
óvart og þykir til þess fallin að
skaða ímynd hennar út á við. Heima
fyrir nýtur hún hins vegar gríðar-
legra vinsælda.
Málið snýst um aðgerðir hers
Búrma sem hóf harkalegar aðgerð-
ir gegn róhingjum 2017. Leiddi það
til þess að 740.000 manns flúðu yfir
landamærin til Bangladess. Stríðs-
glæparétturinn í Haag hyggst einn-
ig kanna hvort ástæða sé til að
rannsaka framferði hersins .
Aung San Suu Kyi
Verði ákærð fyrir
stríðsglæpi
BÚRMA
Tveir ævintýramenn, Mike Horn
frá Sviss og Berge Ousland frá Nor-
egi, luku í gær ferðalagi sínu þvert
yfir Norður-Íshafið eftir nærri fjög-
urra mánaða bið. Þeir lögðu upp í
förina á báti frá Nome í Alaska 25.
ágúst sl. og komu að ísjaðrinum 12.
september og héldu ferðinni áfram
á gönguskíðum.
Ferðin reyndist mikil þrekraun,
en matvæli tvímenninganna þrutu á
föstudag en tveir menn af ísbrjótn-
um Lance, sem sótti þá af pólnum,
gengu á móti þeim með mat. Töfð-
ust þeir mjög á ferðalaginu vegna
þunns íss og kenndu þeir hlýnun
andrúmsloftsins um það.
Kláruðu ferð yfir
Norður-Íshaf
Pólfarar Borge Ousland (t.v.) og Mike
Horn að þrekraun sinni lokinni.
NORÐURPÓLLINN
Emmanuel Macron forseti boðaði
ráðherra, sem koma að breytingum
á lífeyriskerfinu, til sín í gærkvöldi
til að móta framhald málsins sem
valdið hefur lamandi verkföllum um
allt land síðustu daga og raskað
samgöngum stórlega.
Samgöngur á Parísarsvæðinu
lágu að mestu niðri í gær, fjórða
daginn í röð. Aðeins tvær línur jarð-
lestanna voru gangandi en þær eru
sjálfvirkar og þurfa því ekki lest-
arstjóra. Aðeins ein af hverjum sex
hraðlestum frönsku ríkisbrautanna
SNCF gengu.
Verkföllin hófust á fimmtudag en
stjórn Macrons hefur ákveðið að
stokka lífeyriskerfið upp svo það
verði eins fyrir alla launþega, en í
dag eru mismunandi útfærslur á því
a.m.k. 42.
Álíka breytingar stóðu til 1995 en
frá þeim var horfið eftir þriggja
vikna verkföll er lömuðu þjóðlífið.
Forsætisráðherrann Edouard Phil-
ippe stóð fastar en fótunum á því í
viðtali við blaðið Le Journal du
Dimanche í gær að ekki yrði hvikað
frá áformunum. „Gerum við ekki
víðtækar og framsæknar breytingar
á kerfinu kemur það í hlut spor-
göngumanna okkar að gera enn
harkalegri breytingar,“ sagði Phil-
ippe.
Leiðtogi harðlínuverkalýðs-
samtakanna CGT, Philippe Mart-
inez, sagði við blaðið að þau myndu
halda áfram mótmælum þangað til
breytingarnar hefðu verið að fullu
og öllu dregnar til baka.
Philippe mun í síðasta lagi á mið-
vikudag skýra frá því í smáatriðum
hvernig núverandi 42 lífeyriskerfum
verður steypt í eitt sem byggist á
punktum en ekki því hversu lengi
viðkomandi hefur greitt í lífeyr-
issjóð. Eru þessi áform mjög um-
deild þar sem margir telja sig missa
spón úr aski sínum. agas@mbl.is
Mæðir á Macron
Samgöngur lágu að mestu niðri
í Parísarborg fjórða daginn í röð
AFP
Verkföll Hjólhestar og hlaupabretti
hafa verið áberandi í samgöngum
Parísar undanfarna daga.