Morgunblaðið - 09.12.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 09.12.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019 ✝ Eðvarð H. Vilmundarson fæddist í bænum Löndum í Staðar- hverfi, Grindavík, 2. október 1932. Hann lést 30. nóvember 2019. Foreldrar hans voru Guðrún Jóns- dóttir, f. 12.7. 1891, d. 4.8. 1958, og Vil- mundur Árnason, f. 12.3. 1884, d. 23.1. 1975. Hann var 11. barn þeirra hjóna en alls áttu þau 13 börn. Tólf komust á fullorðinsár en eitt dó í frumbernsku. Eðvarð ólst upp í Staðarhverf- inu til unglingsára og fór þá til vinnu í Keflavík hjá bróður sín- um á bifreiðaverk- stæði hans. Eðvarð vann lengst af á sjónum og seinni ár- in hjá Esso eða þar til hann varð 70 ára.Þá bjó Eðvarð einnig nokkur ár á Siglufirði en lengst af í Hafnarfirði. Hann eignaðist fimm börn sem eru Birgir Jens, Helgi Björgvin, Ingi Rúnar, Vilmundur Ægir og Filippía Ásrún. Árið 1997 hóf hann sambúð með Dýrley Sigurðardóttur og voru þau saman þar til yfir lauk. Útför Eðvarðs fer fram frá Garðakirkju í dag, 9. desember 2019, klukkan 13. Minn kæri vinur. Þér vil ég þakka öll árin okkar saman, sem voru svo ljúf og góð. Ég mun sakna þín. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Foersom/Sveinbjörn Egilsson) Góða nótt. Þín Dýrley Sigurðardóttir. Kveðja vil ég þig kæri afi að góðra manna sið þú sem ekki lengur stendur okkur við hlið. Við þig gátum við alltaf rætt hin ýmsu mál Þú hafðir að geyma góða og yndislega sál Nú þegar sorgin blasir við mér ... þá rifjast upp þær stundir sem við áttum með þér Það var svo margt sem við gerðum saman á mörgum þeim stundum var feikigaman. Þú veski ömmu geymdir um hálsinn á þér. Ætli þú munir það eins vel og ég? Ó, hve sorgin er óyfirstíganleg. Okkur finnst svo oft að þú sért enn hér og við munum fljótlega heyra í þér. Raunveruleikinn blasir þá við Þú ert farinn í gegnum hið gullna hlið. Ég veit að þú ert kominn á betri stað þótt erfitt sé að hugsa um það. Ætíð vildi ég hafa þig hjá okkur. Því þurftir þú að fara jörðu frá? Við áttum ætíð að hafa gaman en þú fórst svo skjótt frá okkur. Hvernig á okkur þá að vera rótt? Hvað gerum við án þín? Hvað gerum við nú? Minn elsku besti afi. Guð blessi þig. Kristín Lára og Lena Ósk. Elsku langafi. Sársaukinn má fara, Guð vill þig hjá sér hafa gefa þér líf og leik og leyfa þér að fara á kreik. Það er óþarfi að kveðja, við sjáumst á ný, svo leyfðu drottni sársaukann að seðja Ávallt verður þú afi minn á jörðu sem á himni. Ég kyssi þína kinn og býð þér góða nótt. Segi þér að við sjáumst fljótt, þú sem alltaf mér stendur við hlið. Takk fyrir allt og takk fyrir að hafa verið til. (Höf. ók.) Fyrir hönd langömmubarna Dýrleyjar, Lára Dan. Englar eins og þú: Þú tekur þig svo vel út hvar sem þú ert. Ótrúlega dýrmætt eintak, sólin sem yljar og umhverfið vermir. Þú glæðir tilveruna gleði með gefandi nærveru og færir bros á brá svo það birtir til í sálinni. Sólin sem bræðir hjörtun. Í mannhafinu er gott að vita af englum eins og þér. Því að þú ert sólin mín sem aldrei dregur fyrir. (Sigurbjörn Þorkelsson) Góða ferð heim, Ebbi minn. Þórey Daníelsdóttir og Daníel Karl. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók) Dýrley Dan, Stella Ósk, S. Lovísa og Elísabet Anna og makar. Eðvarð Vilmundarson, Ebbi, eins og hann var gjarnan kall- aður, kom inn í líf fjölskyld- unnar á áttunda áratug síðustu aldar. Hann og mamma hófu sambúð sem varði þar til mamma dó árið 1993. Ebbi var Suðurnesjamaður, kom úr stórri fjölskyldu, hafði unnið við ýmislegt en mest sjó- mennsku. Ebbi hafði nú ekki alltaf valið auðveldustu leiðirn- ar í lífinu, má jafnvel segja að það hafi verið rót á honum og stundum fannst mér það trufla hann. En sambúð mömmu og Ebba var farsæl. Þau voru samheldin og mér fannst þeim líða vel saman. Mamma hafði alla tíð haft mikið dálæti á jörð sinni Þingnesi í Bæjarsveit og deildi Ebbi þeim áhuga og þar áttu þau griðastað. Ebbi gekk til hrossa, veiddi silung og stundaði heyskap með mér. Áhuginn var mikill að ná heyi í hús áður en skúrin félli og þá var ekki alltaf hugsað um bak- ið, sem var aðeins farið að gefa sig. Í Þingnesi man ég Ebba bestan. Hann gekk til verka og kunni jafnframt öðrum betur að njóta þess að gera nákvæm- lega ekki neitt. Það er kostur sem fáir hafa. Það er ekki auðvelt að sam- lagast nýrri fjölskyldu. Hver er staða þess nýja í fjölskyld- unni? Ebbi fór þá farsælu leið að gerast frekar félagi en reyna að gerast foreldri eða uppalandi. Enda held ég að það hefði mistekist hrapallega. Við systkinin hefðum orðið honum mjög erfið þá. Þess í stað hampaði hann barnabörn- unum, sem öll kölluðu hann afa. Ég á margar góðar minn- ingar tengdar þeim stundum. Engin er þó jafn ljóslifandi og þegar hann lék sér við stelp- urnar mínar á aðfangadag með tæki er gaf frá sér dýrahljóð. Gleðinni ætlaði aldrei að linna, hvorki hjá stelpunum né Ebba. En rétt eins og Ebbi kom snöggt inn í líf fjölskyldunnar, þá hvarf hann á sama hátt. Eitt tók við af öðru og sam- skiptin urðu að minningum, ljúfum minningum. Held að það hafi verið eðli hans að ein- beita sér að því sem næst stóð hverju sinni. Í þessum orðum er engin biturð heldur miklu frekar tilraun til að skilja mannsandann og vegi hans. Að ferðalokum hugsa ég hlýlega til Ebba, þakka honum fyrir góð ár og það hvernig hans reyndist mömmu. Um leið bið ég Guð að blessa minn- ingu hans og styrkja þá sem nú syrgja látinn ástvin. Sveinbjörn Eyjólfsson. Í dag kveð ég einn þann besta mann sem ég hef kynnst, hann hafði allt það til að bera sem góðum manni sæmir, myndarlegur, ljúfur, brosmild- ur, hraustur, áreiðanlegur, já- kvæður og með skemmtilegan húmor. Það var mikil gæfa snemma árs 1997 þegar Ebbi og mamma hittust og ákváðu að ganga saman lífsins veg, ferða- lög, sumarbústaðurinn eða bara að hafa það kósí heima var þeirra heimur. Gagn- kvæma ást og virðingu hvort fyrir öðru báru þau svo vel. Ebbi minn smellpassaði inn í fjölskylduna mína. Allir elsk- uðu Ebba frá fyrsta degi, í augum barnabarna minna varð hann afi þeirra og sýndi þeim alltaf mikinn áhuga og er ég þakklát fyrir það því pabbi minn dó ungur. Hann var hreinræktaður Man. United- maður, á því er enginn vafi, stuðningsmaður FH, fylgdist grannt með Stjörnunni í hand- bolta, Haukum í fótbolta og Álftanesstrákunum sínum. Hann gat spjallað endalaust um boltaíþróttir og þegar ís- lenska landsliðið var að keppa, sama hvort það voru stelpurn- ar eða strákarnir, þá var það heilög stund hjá honum og mömmu sem var ekki síður aðdáandi boltans. Hann sá allt- af það jákvæða þó að liðin hans ættu slæman dag. „Það gengur bara betur næst,“ sagði hann. Eitt málefni var honum þó viðkvæmt og það var Fram- sóknaflokkurinn sem hann studdi með ráðum og dáðum. Það gat fokið í hann ef við stríddum honum á lélegum ákvörðunum flokksins, en reið- in var nú fljót að renna af hon- um og hlegið saman á eftir. Svo líða frábær 23 ár og alltaf er hann hress, göngutúr daglega og þó hann færi í stóra hjartaaðgerð 2016 gekk batinn svo vel að læknirinn hans stóð á gati og líkti honum við ungling. En svo kom óveðrið, mamma og hann fóru í hvíld- arinnlögn hjá Das sept./okt. Hann varð eitthvað slappur og 27. október sl. er hann greind- ur með krabbamein öllum að óvörum. Þetta varð snörp bar- átta, aldrei kvartaði hann né bölvaði yfir örlögum sínum heldur var hann þakklátur fyr- ir árin sem hann og mamma áttu. Hans einu áhyggjur sner- ust um mömmu, hvernig henni myndi líða og bjarga sér eftir hans dag. Hann var mömmu svo góður og guð blessi hann fyrir það. Við Ebbi vorum góðir vinir og ég sá væntumþykjuna hans gagnvart mér í öllu sem við gerðum saman. Var duglegur að hringja í mig þegar ég greindist og gat alltaf fengið mig til að brosa. Hann var ein- stakur klukkumaður, þegar mamma var á sjúkrahúsinu þá hringdi hann kl. 9.30-14 og 20.30 alla daga til að bjóða mér góðan daginn, hvernig gengur og góða nótt. Ég elskaði þennan vin minn og mun sakna hans, en jafn- framt er það mér heiður að hafa kynnst honum. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Lára Dan. Af lifandi gleði var lund þín hlaðin, svo loftið í kringum þig hló, en þegar síðast á banabeði brosið á vörum þér dó, þá sóttu skuggar að sálu minni og sviptu hana gleði og ró. En seinna skildi ég: Hér áttirðu ekki að eiga langa töf. Frá drottni allsherjar ómaði kallið yfir hin miklu höf: Hann þurfti bros þín sem birtugjafa bak við dauða og gröf. (Grétar Ó. Fells.) Hjartans þakkir fyrir góða tíma og samveru. Sigurður Harðarson. Edvarð H. Vilmundarson. eða Ebbi eins og hann var kall- aður, er fallinn frá eftir stutta baráttu við krabbamein. Manni verður orða vant, þegar upplifunin verður eins og raun ber vitni, að þurfa að lúta í lægra haldi fyrir grimmi- legum sjúkdómi, eftir rétt rúman mánuð frá greiningu. Ebbi var einstakt ljúfmenni sem kom inn í fjölskylduna fyrir 23 árum, hann var orð- heppinn og alltaf stutt í húm- orinn hjá honum Ebba okkar. Það eru ákveðin forréttindi að hafa fengið að kynnast eins góðum manni og Ebbi var, og það er aðdáunarvert að hafa fengið að fylgjast með honum þessi ár, og sérstaklega síð- ustu mánuðina, þegar hann arkaði út í búð nánast orðinn blindur og fór þetta allt nánast eftir minni. Léttur, ljúfur og kátur er það sem kemur fyrst upp í hugann þegar maður hugsar til Ebba. Ebbi glímdi við hjartakvilla og fór í stóra hjartaaðgerð fyrir nokkrum árum, sem hann tókst á við með mikilli æðruleysi. Ebbi hafði sterkar skoðanir á öllu, en alltaf fann eitthvað jákvætt við allt og alla. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Ómar Ragnarsson/ Gísli frá Uppsölum) Við munum sakna þín, elsku Ebbi okkar, og minning þín geymist í hjörtum okkar, minning um góðan og einstak- an mann. Hvíl í friði, ljúflingurinn. Karl, Ragnheiður og börn. Eðvarð H. Vilmundarson ✝ Einar BjarniGuðmundsson var fæddur í Holtahólum 23. janúar 1956. Hann lést á Höfn í Hornafirði 26. nóvember 2019. Foreldrar hans voru Guðmundur Bjarnason, f. 9 júlí 1927, d. 6. nóv- ember 2001, og Sigríður Ólafsdóttir, f. 13. des- ember 1928, d. 23. júlí 2015. Þau bjuggu í Holtahólum. Systkini Einars eru Ólöf Anna, f. 15. ágúst 1952, maki Steinþór Torfason, þau eru bú- Einar landsprófi frá Alþýðu- skólanum á Eiðum, seinna lauk hann vélavarðarprófi frá FAS. Hann fór ungur á vetrarvertíð frá Höfn en vann á búi for- eldra sinna á sumrin. Árið 1989 festi hann kaup á Hóla- braut 4 í félagi við foreldra sína og hélt heimili þar, hann reyndist foreldrum sínum stoð og stytta þegar halla fór und- an fæti hjá þeim. Einar stund- aði sjómennsku áfram eftir að hann flutti á Höfn en varð að skipta um starfsvettvang eftir að hafa slasast, hann starfaði um tíma við akstur flutn- ingabíla hjá KASK og hjá verktökum við vegagerð, síð- ustu árin starfaði Einar í land- vinnslu hjá Skinney/Þinganesi þar sem hann starfaði til ævi- loka. Útförin fer fram frá Hafn- arkirkju í dag, 9. desember 2019, klukkan 11. sett á Hala í Suð- ursveit, þau eiga þrjú börn. Stúlka, f. 10. júní 1954, lést í fæðingu. Víðir, f. 6. júní 1959, búsettur í Holtahólum, hann á eina dóttur. Lucia Sigríður, f. 15. ágúst 1963, maki Hannes Jó- hannesson Lange, þau eru búsett í Hafnarfirði, þau eiga tvö börn en fyrir átti Lucia einn son. Einar ólst upp í Holtahólum við hefðbundin sveitastörf, eft- ir hefðbundna skólagöngu lauk Boðaföll lífsins eru margs konar, það var stór brotsjór að frétta af andláti Einars bróður, brotsjór sem erfitt er að takast á við, en lífið heldur áfram, eft- ir stendur minningin um ein- stakan ljúfling sem gerði ekki mannamun. Einar Bjarni var einstakt ljúfmenni, hæglátur og vildi öll- um vel, bæði mönnum og mál- leysingjum. Hann var einstak- lega barngóður og þess nutu systkinabörn hans, þegar þau komu i heimsókn hurfu þau inn til Einars og nutu gestrisni hans og oft mátti heyra fjör- ugar umræður þeirra á milli. Einar fór ungur á vetrarver- tíð frá Höfn, þá var oft siglt með aflann til Englands, upp í huga minn kemur minning frá þeim tíma, þá var Einar að koma heim úr siglingu og Elm- ar Már sonur minn tæplega tveggja ára, þá kom Einar hlaðinn leikföngum handa litla frænda sínum, þar á meðal var stór fótstiginn bíll ásamt ógrynni af leikfangatraktorum og margskonar landbúnaðar- tækjum ásamt dágóðum bú- stofni, kindum, kúm og öllum þeim dýrum sem prýddu al- mennilegan sveitabæ, því auð- vitað varð litli púkinn að læra réttu tökin á landbúnaðargræj- unum. Einar átti eftir að reyn- ast Elmari vel og verður að aldrei fullþakkað, til þess eru ekki til nein orð. Þeir tveir voru miklir vinir alla tíð og brölluðu ýmislegt saman sem ekki er allt prenthæft, en ég veit að Elmar á margar góðar minningar um Einsa frænda sem hann geymir í hjarta sínu og munu ylja honum í þeirri miklu sorg sem við stöndum frammi fyrir. Einar keypti hús á Höfn 1989 í félagi við foreldra sína, hann reyndist þeim óend- anlega vel þegar heilsu þeirra fór að hraka, svo þétt stóð hann við bak þeirra að aðdáun- arvert er, svona var Einar, allt- af boðinn og búinn að hjálpa öðrum sem þurftu á hjálp að halda. Einar hjálpaði Víði bróð- ir sínum við bústörfin á álags- tímum í sveitinni. Mér og minni fjölskyldu var ekki í kot vísað þegar við kom- um til Hornafjarðar, þá nutum við gestrisni Einars sem var ekki af verri endanum, alltaf fannst okkur vera annaðhvort matur eða kaffi og hann galdraði fram veislu í hverri máltíð, hvergi hef ég fengið eins góðan soðinn fisk og hjá honum, enda var natnin svo mikil að hann stóð með klukk- una við fiskipottinn, fiskurinn skyldi vera rétt matreiddur sem hann sannarlega var. Ég get ekki látið hjá líða að minnast þess þegar Elmar son- ur minn hafði lokið 9. bekk í grunnskóla en hann dvaldi hjá afa sínum og ömmu og Einsa frænda og var í skóla á Höfn, á þeim tíma sóttu íslensk fiski- skip Smuguna af miklum móð. Elmar hringir í mig og spyr hvort hann megi fara í Smug- una, jörðin hreinlega fraus undir fótum mínum, við rædd- um þetta uppátæki frá ýmsum hliðum, ég spurði stráksa hvort hann væri búinn að tala við pabba sinn um þetta, já og Einsa frænda, ég er viss um að hans atkvæði vó þyngra, stráksi var búinn að fá far- arleyfi hjá þeim, kannski hefur þessi ferð sem stóð allt sumarið og fram að skólabyrjun að hausti verið ráðandi þegar Elmar valdi sér starfsvettvang, Stýrimannaskólinn skyldi það vera, það var ákvörðun sem gladdi Einar. Þó Einar væri hæglátur gat hann verið hnyttinn í tilsvörum, hann sá broslegu hliðarnar á mönnum og málefnum, hann á mörg gullkorn sem við sem eft- ir stöndum geymum í hjörtum okkar, ásamt hafsjó góðra minninga um öðlinginn hann Einsa eins og hann var gjarnan kallaður. Minningin mun lifa, takk fyr- ir allt, elsku Einar Bjarni. Þín systir og fjölskylda. Lucia Guðmundsdóttir. Einar Bjarni Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.