Morgunblaðið - 09.12.2019, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019
GRÆNA TUNNAN
auðveldar flokkunina
577 5757 | www.igf.is | igf@igf.is
S: 577
5757
NÁTTÚRAN ER TAKMÖRKUÐ AUÐLIND
HUGSUM
ÁÐUR EN VIÐ HENDUM
Í hana má setja allan pappír, pappa,
plastumbúðir og minni málmhluti
– Muna að skola
Pantaðu græna tunnu í síma 577 5757 eða á igf.is
60 ára Jóhanna er
fædd og uppalin Kefl-
víkingur og býr þar.
Hún lærði skrif-
stofutækni og er
starfsmaður hjá
Landsbankanum.
Maki: Einar Haralds-
son, f. 1956, framkvæmdastjóri Kefla-
víkur – íþrótta- og ungmennafélags.
Börn: Þóra Guðrún, f. 1979, Haraldur
Axel, f. 1981, og Einar Trausti, f. 1989.
Barnabörnin eru orðin fjögur.
Foreldrar: Guðbjartur Kristinn Krist-
insson, f. 1937, d. 2015, vörubílstjóri
hjá Íslenskum aðalverktökum, og Þóra
Guðrún Kristjánsdóttir, f. 1939, d.
1971, húsmóðir. Þau voru búsett í
Keflavík.
Jóhanna Kristín
Guðbjartsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu hrokann ekki ná yfirhöndinni
í samskiptum þínum við aðra. Reyndu að
vera raunsæ/r og nota skynsemina í deilu
við nágranna.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu það eftir þér að fara í ferðalag
eða gera eitthvað fyrir sjálfa/n þig. Ein-
hver hefur óhreint mjöl í pokahorninu, því
skaltu ekki trúa öllu sem þú heyrir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er um að gera að grípa tæki-
færin sem gefast og spila síðan eins vel úr
þeim og frekast er unnt. Þér er margt til
lista lagt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Besta leiðin til að forðast leiðindi á
heimilinu er að setja góða músík á og
dansa. Passaðu hvað þú segir í hita leiks-
ins.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Allt sem tengist vinnunni ætti að
breytast til batnaðar á næstunni. Þú ert
eirðarlaus og þarft að leggja þig sér-
staklega fram við að sýna öðrum skilning
og þolinmæði.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinnan sem þú innir af hendi krefst
hugrekkis. Ekki stinga höfðinu í sandinn,
vandinn hverfur ekki við það. Horfstu í
augu við hann.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu opin/n fyrir nýjum tækifærum.
Einhver vill gleypa þig með húð og hári, en
þú skalt sporna við því.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sá sem þú ert að bíða eftir,
bíður þín einnig. Þú hefur lifað helst til
hátt undanfarið, dragðu úr eyðslunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fjörugt félagslíf gæti leitt til
óvarkárni í fjármálum. Freistaðu gæfunnar
og farðu í ferðalag eins fljótt og þú getur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fylgdu engum að málum fyrr en
þú ert viss um að þínum hag sé borgið. Þú
missir andlitið vegna fréttar sem þú heyrir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu það ekki setja þig úr jafn-
vægi, þótt eitt og annað gangi á í kringum
þig. Þú ert öryggið uppmálað og rósemi
þín er aðdáunarverð.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er rétti tíminn til þess að taka til
hendinni heima fyrir og koma því í
geymslu eða gefa það sem þú hefur ekki
þörf fyrir lengur. Andinn kemur yfir þig og
þú fyllist óstöðvandi bjartsýni.
þar söng Arndís Halla ásamt öðrum.
„Núna er ég að syngja óperuaríur
sem koma út á diski í Þýskalandi á
næsta ári.“ Arndís Halla hefur líka
verið að syngja með miðaldaþung-
arokkssveitinni Corvus Corax og
mun fara út í janúar til að leika í tón-
listarmyndbandi með hljómsveitinni
og á tónlistarhátíð í september.
Arndís Halla hefur verið að vinna
dísar Höllu og DVD-diski. Þetta var
einn af þremur best seldu bókunum í
sinni kategóríu næstu þrjú árin.í
Þýskalandi. Árið 2015 kom svo út
Ístónar – fyrr og nú – með Arndísi
Höllu og Emil sem á var íslensk tón-
list. Árið 2017 var svo gefinn út disk-
urinn Íslanda: álfadans með íslensk-
um þjóðlögum á vegum Sony sem
var gefinn út í Þýskalandi 2017, en
A
rndís Halla Ásgeirs-
dóttir er fædd 9. desem-
ber 1969 í Reykjavík en
ólst upp í Hafnarfirði.
Hún dvaldi í sveit
Glæsibæ í Skagafirði. „Ég kom með
mömmu þangað á hverju sumri frá
að ég man eftir mér. Síðan var ég þar
í sveit þar til ég var 15 ára. Það var
alltaf mikið sungið í Skagafirði og
þegar ég kom heim þá kunni ég víst
allar drykkjuvísurnar.“
Arndís Halla gekk í Lækjarskóla,
Álftanesskóla, Garðaskóla og Fjöl-
brautaskóla Garðabæjar, fór síðan í
Tónlistarskóla FIH, þaðan í Söng-
skólann í Reykjavík og síðan út í
Listaháskólann í Berlín og útskrif-
aðist þaðan 1998.
Eftir útskrift var Arndís Halla
fastráðin við Komische Oper í Berlín
í tvö ár. Hún fór síðan í lausa-
mennsku og hefur margoft sungið
hlutverk Næturdrottningarinnar í
Töfraflautunni, m.a. í Íslensku óp-
erunni 2001 og Staatsóperunni í
Prag. Hún hefur komið fram víða á
tónleikum og tekið þátt í alls kyns
verkefnum. Arndís Halla söng við Ís-
lensku óperuna hlutverk Zerbinettu
í Ariadne á Naxos haustið 2007 og
var tilnefnd til Grímunnar.
Frá árinu 2003-2011 var Arndís
Halla aðalsöngkonan í einni stærstu
skemmtisýningu með hesta í Evrópu
þar sem hún söng fyrir milljónir
áhorfenda. Í sýningunni, Appassio-
nata, voru um 50 hestar, 35 knapar
og um 120 manns sem unnu að sýn-
ingunni þar fyrir utan. „Ég fékk að
semja bæði lög og texta og var í tón-
listarteymi hópsins. Þetta var svaka-
lega skemmtilegt og við þvældumst
um allt Þýskaland og Evrópu. En
þetta var mikil vinna og ég ákvað að
koma heim 2011 og festi kaup á húsi
við Strandgötuna í Hafnarfirði og
hef búið þar síðan.“
Árið 2007 gaf Arndís Halla út sína
fyrstu sólóplötu, Óður. Síðan komu
diskarnir Edda og Keep on Walking.
Hún hóf síðan samstarf við ljós-
myndarann Emil Þór Sigurðsson og
þau gáfu 2011 út bókina sem hét á ís-
lensku Fagurt er frelsið og sam-
anstóð af landslagsmyndunum hans
Emils, geisladiski með tónlist Arn-
sem leiðsögukona fyrir Iceland Pro
Cruiser og um leið sungið í skipi
fyrirtækisins, Ocean Diamond. Hún
stýrir einnig Zodiak-bátum. „Ég er
að skottast með fólk í kringum Ís-
land og förum líka til Grænlands.
Svo má nefna að ég stofnaði ný-
verið band með Ingimar Pálssyni
sem spilar með mér á skipinu, Olgu
Björk Ólafsdóttur sem spilar á 1
Arndís Halla Ásgeirsdóttir, söngkona og leiðsögukona – 50 ára
Appassionata Úr hestasýningunni þar sem Arndís Halla var aðalsöngkonan og samdi hún líka tónlistina ásamt öðrum.
Skottast með fólk og syngur
Leiðsögukonan Arndís Halla stýrir Zodiak-bátum við Ísland og Grænland. Söngkonan Arndís Halla.
40 ára Ásgeir er
Reykvíkingur, ólst
upp í Breiðholtinu
en býr í Bústaða-
hverfinu. Hann er
verkefnastjóri á
markaðsdeild
Stöðvar 2 og Voda-
fone.
Maki: Unnur María Guðmundsdóttir,
f. 1978, kennari í Barnaskóla Hjalla-
stefnunnar.
Börn: Júlía Anja, f. 2006, og Henrik
Bói, f. 2010.
Foreldrar: Sigurður G. Sigurðsson, f.
1956, sölumaður hjá Fálkanum, bú-
settur í Reykjavík, og Anna Ósk
Ragnarsdóttir, f. 1956, búsett í
Reykjavík.
Ásgeir Þór
Sigurðsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is