Morgunblaðið - 09.12.2019, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
SÍGILD HÖNNUN Í 50 ÁR
Fyrir 50 árum hannaði danski hönnuðurinn Arne Jacobsen fyrsta kranann fyrir Vola.
Æ síðan hefur hönnun og framleiðsla Vola verið í fremstu röð.
fiðlu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Tómasi Axel Ragnarssyni sem er
blúsari. Þetta verkefni er eingöngu
til að gleðja okkur og aðra. Við höf-
um verið að syngja í Friðheimum á
Sólheimasvæðinu og ætlum að spil-
um fyrir fólk sem minna mega sín og
gerum það fyrir ánægjuna.“
Helsta áhugamál Arndísar Höllu
er hestamennska. „Það var mikið af
hestum í Glæsibæ og ég fékk hest í
fermingargjöf. Síðan hef ég verið
viðloðandi hesta og reið til dæmis
berbakt á frísneskum hesti sem var á
hestasýningunni.“
Fjölskylda
Börn Höllu eru 1) Gunnarr Bald-
ursson, f. 5.11. 1988, tölvunarfræð-
ingur. Eiginkona hans er Lidia Pash-
kova, f. 17.2. 1988, verkfræðingur,
þau eru búsett í Reykjavík; 2) Júlía
Levi Baldursdóttir, f. 14.6. 1990, mál-
vísindakona, búsett í Hafnarfirði.
Systkini Höllu eru Gunnlaugur
Ásgeirsson, f. 1.11. 1965, tölvunar-
fræðingur, búsettur í Reykjavík;
Margrét Ásgeirdóttir, f. 26.4. 1976,
tölvunarfræðingur, búsett í Reykja-
vík og hálfsystir Höllu samfeðra er
Kristín Ásgeirsdóttir, f. 22. 10. 1991,
hugbúnaðarfræðingur, búsett í
Kópavogi.
Foreldrar Höllu eru Júlía Leví
Gunnlaugsdóttir Björnson, f. 26.2.
1947, ferðaþjónustufræðingur, og
Ásgeir Halldórsson, f. 30.7. 1946,
verslunarmaður. Sambýlismaður
Júlíu er Bjarni Gunnar Sveinsson, f.
19.5. 1946, viðskiptafræðingur og
fyrrverandi sjómaður. Þau eru bú-
sett í Reykjavík. Eiginkona Ásgeirs
er Elín Fanney Guðmundsdóttir, f.
17.10. 1952, sjúkraliði og versl-
unarkona. Þau eru búsett í Kópa-
vogi.
Arndís Halla Ásgeirsdóttir
Júlía Kristjánsdóttir
húskona í Hafnarfi rði
Jón Leví Guðmundsson
gullsmiður í Reykjavík
Margrét Jónsdóttir Björnson
handmenntakennari í Reykjavík
Hólmfríður Hjálmarsdóttir
húsfrú í Reykjavík
Ásgeir Þorvaldsson
múrari á Blönduósi
Arndís Ásgeirsdóttir
húsfrú í Reykjavík
Halldór Erlendsson
íþrótta- og handavinnukennari í Reykjavík
Gestína Guðmundsdóttir
húsfrú í Reykjavík
Erlendur Jónsson
skósmiður á Ísafi rði og í Reykjavík
Úr frændgarði Arndísar Höllu Ásgeirsdóttur
Ásgeir Halldórsson
verslunarmaður í Reykjavík
Júlía Leví Gunnlaugsdóttir Björnson
ferðaþjónustufræðingur í Reykjavík
Gunnlaugur G. Björnson
stærðfræðingur og
tölvunarfræðingur í Reykjavík
Margrét Stephensen
húsfrú í Reykjavík
Guðmundur Björnsson
landlæknir í Reykjavík
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VERÐA NÚ AÐ SEGJA ÞAÐ AÐ ÉG ER
FEGIN AÐ ÉG BORÐAÐI EKKI BITA AF
ÞESSU.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að ganga glaður til
verka.
ÉG VILDI ÓSKA ÞESS AÐ
FÓLK HÆTTI AÐ MINNA MIG
Á AFMÆLIÐ MITT
ÉG
SAGÐI …
HRÓLFUR,
HÖGGÐU
VIÐ FYRIR
ELDSTÓNA!
ÞÚ GETUR
RÁÐIÐ
EINHVERN TIL
ÞESS!
HVENÆR
ER KVÖLD-
MATURINN?
ÞAÐ FER EFTIR ÞVÍ
HVERSU FLJÓTT ÉG GET
RÁÐIÐ KOKK!
„GLEYMDU ÞESSU – ÉG SÉ AÐ ÞÚ ERT
ENN AÐ „BALLANSERA” BÓKHALDIÐ.”
Sigurlín Hermannsdóttir kveðurum matarkostnað borgar-
stjórnar:
Sumir voru að fetta fingur
í fé sem var í matinn eytt.
Gjaldkeri út um glugga slyngur
gáði, og máli burtu fleytt:
Þótt etnar væru andabringur
þær ekki þyrftu kosta neitt,
sagði hann og brosti breitt.
Hallmundur Guðmundsson yrkir
á Boðnarmiði „Borgarstjórnar-
fundarfóðurljóð“:
Salat gott og sultutau,
saddi í fundartörninni
Í aðalréttinn átu þau;
endurnar af Tjörninni.
Hallmundur Kristinsson horfir
þannig á málin:
Þótt margur virðist uppvís að
ótrúlegri spillingu,
alltaf höndlar þjóðin það
af þónokkurri stillingu.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
og kallar „Minnisleysi“:
Hann var krepptur orðinn af elli
og ekki mikill á velli,
og mundi það eitt,
að hann mundi ekki neitt
hann Mundi á Ysta-Felli
Hér yrkir Guðmundur um skáld
sinnar sveitar og segir: Í minni
fæðingarsveit eru bornir þrír
skáldjöfrar, sem ég er náttúrlega
stoltur af, þeir Matthías Joch-
umsson, Gestur Pálsson og Jón
Thoroddsen:
Horfins tíma hugur leitar,
heim og vestur beini sjón,
mæri skáldin minnar sveitar,
Matthías og Gest og Jón.
Matthíasar yljar óður
ennþá dáður vítt um Frón,
forðum þótti Gestur góður,
gaf oss fögur ljóðin Jón.
Gott er þessa þrjá að finna,
þeirra hljómar tigið mál,
þegar lestur ljóða hinna
leiða veldur minni sál.
Fía á Sandi skrifaði á fésbókar-
síðu sína 29. nóvember: „Þegar raf-
magnið fór í fyrrakvöld í átta tíma
og myrkrið varð algert eða þann-
ig“:
Nú langar mig að lofa og prísa
langnættið og gefa hrós.
Allar stjörnur úti lýsa
afar skært og norðurljós
Þögnin alger enginn rafmagnsniður.
Inni lítið kertaljós og friður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af borgarstjórn
og andabringum