Morgunblaðið - 09.12.2019, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmyndin The Favourite, eða
Uppáhaldið, eftir gríska leikstjórann
Yorgos Lathimos, var valin sú besta
á Evrópsku kvikmyndaverðlaun-
unum (EFA) í fyrrakvöld í Berlín og
hlaut jafnframt flest verðlaun, átta
talsins. Var hún því ótvíræður sig-
urvegari kvöldsins. Ingvar E. Sig-
urðsson var tilnefndur sem besti
leikari fyrir leik sinn í Hvítur, hvítur
dagur en spænski leikarinn Antonio
Banderas hlaut þau fyrir Dolor y
gloria.
Á næsta ári verða Íslendingar
gestgjafar hátíðarinnar sem verður
haldin í Hörpu. Var því nokkur fjöldi
Íslendinga í Berlín um og fyrir helgi
að afla sér fróðleiks um hátíð-
arhöldin og í hófi í sameiginlegu húsi
sendiráða Norðurlandanna, Felles-
hus, á föstudagskvöld var því fagnað
sérstaklega að eftir ár yrði skálað í
Reykjavík.
Lanthimos besti leikstjórinn
Strax í upphafi hátíðar voru veitt
verðlaun fyrir bestu leikstjórn. Sam-
keppnin var hörð í þeim flokki, merk-
ir leikstjórar tilnefndir fyrir áhrifa-
miklar kvikmyndir sínar. Verðlaunin
féllu Grikkjanum Yorgos Lanthimos
í skaut fyrir hina rómuðu kvikmynd
The Favourite sem fjallar um lík-
amlega og andlega hrjáða Önnu
Englandsdrottningu á 18. öld þegar
Bretar háðu stríð við Frakka og tvær
konur tókust á um hylli drottningar
og ást.
Verðlaun fyrir bestu evrópsku
stuttmyndina voru veitt næst og
hlaut þau The Christmas Gift eftir
rúmenska leikstjórann Bogdan Mu-
resanu.
Næsti kynnir var Hera Hilm-
arsdóttir og var henni falið að kynna
verðlaun fyrir bestu teiknimynd en í
þeim flokki má jafnan finna mikil
listaverk. Fjórar teiknimyndir voru
tilnefndar og hlaut verðlaunin Buñu-
el en el laberinto de las tortugas, þ.e.
Buñuel í völundarhúsi skjaldbak-
anna, eftir spænska leikstjórann
Salvador Simó. Tilkynnt hafði verið
um átta verðlaun fyrir hátíðina og
hlaut The Favourite helming þeirra
og þótti því sigurstrangleg í kvöld, sú
mynd sem líklegust væri til að hljóta
flest verðlaun og þá m.a. sem besta
evrópska kvikmyndin.
Kona í ljósum logum
Verðlaunin fyrir besta handrit
hlaut Céline Sciamma fyrir handrit
Portrait de la jeune fille en feu eða
Portrett af ungri konu í ljósum log-
um en sama mynd hlaut fyrir
skömmu verðlaun háskólanema sem
besta kvikmyndin og eru þau hluti af
EFA. Það kom svo fáum á óvart að
Olivia Colman skyldi hljóta verðlaun-
in sem besta leikkonan fyrir The
Favourite þó að margar aðrar hafi
verið mjög sigurstranglegar, m.a.
hin danska Trine Dyrholm. Colman
var fjarri góðu gamni, líkt og Bande-
ras og sendi frá sér myndband þar
sem hún sagðist djúpt snortin yfir
verðlaununum. Agnieska Holland,
fráfarandi formaður stjórnar EFA,
kynnti næst til sögunnar ný verð-
laun, fyrir bestu sjónvarpsþættina,
og hlutu þau Babylon Berlin, dýr-
ustu þættir þýskrar sjónvarpssögu.
Verðlaun alþjóðasamtaka kvik-
myndagagnrýnenda, FIPRESCI,
fyrir „evrópska uppgötvun“, Euro-
pean Discovery á ensku, hlaut svo
kvikmyndin Les misérables eftir
franska leikstjórann Ladj Lyd.
Hugvekja franskrar leikkonu
Leikkonan Juliette Binoche, annar
af tveimur heiðursverðlaunahöfum
hátíðarinnar, var því næst hyllt en
kynnir verðlaunanna var vinkona
hennar og landi Claire Denis sem
leikstýrt hefur Binoche í tveimur
kvikmyndum. Denis, heiðurs-
verðlaunahafi RIFF, Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík, fyrr
á þessu ári, sagðist bera mikla virð-
ingu fyrir Binoche sem felldi tár und-
ir lofræðunni. Binoche er ein þekkt-
asta leikkona Frakka og sagði í
þakkarræðu sinni að heimurinn væri
ekki á réttri leið, hatrið mætti finna
víða. „Við verðum að opna hjörtu
okkar og leggja við hlustir,“ sagði Bi-
noche og að listin snerist um að gefa
af sér. Hún hvatti leikara til að velja
hlutverk sín í kvikmyndum af kost-
gæfni og sagði nóg komið af kvik-
myndum sem snerust um að drepa
fólk.
Aría handa Herzog
Werner Herzog, einn merkasti
leikstjóri Þýskalands og heið-
ursverðlaunahafi Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík fyrir
tveimur árum, var næst kynntur til
leiks með mjög svo undarlegu grín-
atriði í formi aríu. Var atriðið að auki
óþægilega langt, að mati ofanritaðs.
Herzog virtist þó hafa gaman af og
Wim Wenders, leikstjóri og formað-
ur Evrópsku kvikmyndaakademí-
unnar, steig að því loknu á svið og
söng óvænt til Herzog lagið „Not-
hing compares to you“ sem Sinéad
O’Connor gerði frægt hér um árið.
Wenders vottaði Herzog virðingu
sína og kvaðst hafa verið undir mikl-
um áhrifum frá honum sem ungur
kvikmyndagerðarmaður. Wenders
minntist þeirra ummæla Herzog að
kvikmyndalistin snérist um líf eða
dauða. „Þú hræddir líftóruna úr okk-
ur en heillaðir mig líka gjörsamlega,
sagði Wenders. Síðar hefðu þeir orð-
ið starfsbræður, kenndir við þýsku
nýbylgjuna í kvikmyndalist. Herzog
þakkaði fyrir sig og sagði frábærar
kvikmyndar hafa komið að undan-
förnu frá Evrópu sem þakka mætti
samheldni kvikmyndagerðarmanna
álfunnar.
Handa Sömu besta
heimildarmyndin
Þrjár kvikmyndir voru tilnefndar
sem besta gamanmyndin sem er nýr
verðlaunaflokkur EFA. Fáar vissu-
lega en líkleg þótti The Favourite til
að hreppa hnossið. Og sú varð raunin
enda kostuleg kvikmynd og vönduð,
samanber fullt hús stjarna hjá kvik-
myndarýni Morgunblaðsins snemma
árs. Voru þá sjö verðlaun komin í hús
hjá henni, en fjögur hafði hún hlotið
fyrir verðlaunahátíðina, fyrir kvik-
myndatöku, búningahönnun, klipp-
ingu og hár og förðun.
Besta heimildarmyndin þótti hin
marglofaða For Sama sem segir frá
ungri konu, Waad al-Kateab, og sýn
hennar á heimaborg sína Aleppo í
Sýrlandi. Hún verður ástfangin og
eignast sitt fyrsta barn á tímum
borgarastyrjaldar í heimalandinu.
Er myndinni lýst sem ástarbréfi
hennar til dóttur sinnar, Sama.
Og besta kvikmynd
Evrópu árið 2019 er …
Og þá var komið að aðalverðlaun-
um kvöldsins, fyrir bestu kvikmynd
Evrópu árið 2019. The Favourite var
það og kom fáum á óvart. Frábær
kvikmynd í alla staði að öðrum til-
nefndum ólöstuðum. Næsta stopp
Reykjavík.
Uppáhaldið í uppáhaldi
The Favourite
hlaut átta verð-
laun á Evrópsku
kvikmyndaverð-
laununum
Kátur Werner Herzog sést hér kampakátur undir lok hátíðar með kynnum og verðlaunahöfum. Heiðruð Franska leikkonan með heiðursverðlaunin sem hún hlaut fyrir listsköpun sína.
AFP
Hamagangur Aðalkynnar EFA brugðu sér m.a. í risaeðlubúninga.