Morgunblaðið - 09.12.2019, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 09.12.2019, Qupperneq 29
Myndlistarunnendur Áhugasamir gestir höfðu safnast saman áður en sýningin var opnuð og troðfylltu salinn um leið og hleypt var þar inn. Morgunblaðið/Árni Sæberg » Þröng var á þingi þegar jólabasarinn Ég hlakkasvo til, með afar fjölbreytilegum myndlistar- verkum, var opnaður í Ásmundarsal á laugardaginn var. Veggir höfðu verið þaktir með hundruðum ýmiskonar myndverka eftir um 160 listamenn sem virkir hafa verið á myndlistarsenunni undanfarin ár. Verk voru rifin út af áhugasömum kaupendum og pakkað í silkiprentaðan jólapappír sem sýningar- stjórarnir í Prenti & vinum höfðu útbúið. Og í stað þeirra sem seldust voru önnur sett upp, eins og vera ber á líflegum sölubasar sem þessum. Vinsæll myndlistarbasar í Ásmundarsal Veltu vöngum Áhugasamir gestir horfðu upp á veggi og rýndu í sýningar- skrá með upplýsingum um listamennina, verkin og verðið á þeim. Skemmtileg Sýningargestir nutu þess sýnilega að skoða fjölbreytileg myndverkin sem flest eru ný og eftir virka myndlistarmenn á Íslandi. Umbúðir Starfsmenn Ásmundarsalar voru önnum kafnir við að pakka seldum myndverkum inn í sérstaklega silkiþrykktan umbúðapappír. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019 Skáldsagan Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur kom nýverið út í Danmörku í þýðingu Eriks Skyum-Nielsen við mikla hrifningu þarlendra gagnrýnenda. „Auður Ava hefur ítrekað skrifað mikilfenglegar skáldsögur sem maður elskar frá fyrstu til síðustu setningar. Ef hún hefði ekki fengið Bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráðs á síðasta ári hefði hún átt að fá þau í ár,“ skrifar Henriette Bacher Lind, bókmenntagagnrýnandi hjá Jyllands-Posten, og gefur skáldsög- unni fullt hús eða sex stjörnur. „Tungumálið, sjónarhornið, per- sónusköpunin og framvindan renna saman í heilsteypta frásögn af bar- áttunni fyrir því að fá leyfi til að vera sá sem maður er,“ skrifar Lind og klykkir út með því að Ungfrú Ísland sé svipmikil tíðarfarslýsing og „dýrlegt portrett af kvenkyns skáldi sem er mótuð af glóandi hrauni og glitrandi norðurljósum.“ Marianne Träff, rýnir hjá Litte- ratursiden, lýsir Ungfrú Ísland sem dásamlegri bók sem skrifuð sé með „velþekktri ljóðrænni og titrandi taug“ höfundarins. Segir hún lestur bókarinnar hafa fyllt sig jafnmikilli gleði og þegar hún las Ör, Svanir skilja ekki og Afleggjarann enda búi allar skáldsögurnar yfir „svo miklu hjarta og séu uppfullar af ljóðrænu og femínísku hand- bragði,“ skrifar Träff og hvetur alla til að lesa Ungfrú Ísland. Skáldið Auður Ava Ólafsdóttir. Fær fullt hús fyrir Ungfrú Ísland ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.