Morgunblaðið - 27.12.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.12.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019 í öllum verslunum www.kronan.is Sjá nánar á kronan.is Í DAG OPIÐ SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir nýstúdent hefur staðið í ströngu á árinu sem er að líða. Hún er í forystu þess unga fólks sem hefur látið að sér kveða í aðgerðum þar sem stjórnvöld og aðrir hafa verið hvattir til aðgerða í loftslags- málum. Verkföll og fjölmennir mótmælafundir voru á Austurvelli alla föstudaga í haust og voru vöktu athygli. Boðskapurinn var líka alveg skýr; ný kynslóð hefur sterkar skoðanir á umhverf- ismálum og telur nauðsyn að stemma stigu við loftslagsbreytingum af völdum mannfólksins. Fyrst og síðast er Gunnhildur þó öflugur námsmaður. Fáum dögum fyrir jól brautskráð- ist hún með stúdentspróf frá Tækniskólanum – skóla atvinnulífsins eftir aðeins fimm anna nám. Við skólann var hún á námsbrautinni K2, en þar er skólaárið tekið í fjórum lotum í stað tveggja anna. Einnig eru á brautinni ýmis tækifæri fyrir klára krakka sem til dæmis vilja flýta námi sínu. Skipulag og gleði „Í grunnskóla tók ég áfanga í stærðfræði framhaldsskólans og tvo forritunaráfanga á hverri önn þegar í Tækniskólann kom. Þar fékk ég sömuleiðis píanónám mitt metið. Allt þetta gerði ég af miklum námsáhuga,“ segir Gunn- hildur. „Nú í haust sá ég síðan að ég átti sáralít- ið eftir af námi til stúdentsprófs og ákvað þá að hespa þessu af. Margir héldu að ég væri á skipulagðri hraðferð, en satt að segja var það alveg óvart að mér tókst að ljúka náminu svona fljótt. Mikilvægt er að skipuleggja sig vel og finna gleði og ánægju í viðfangsefnum sínum.“ Á námsbrautinni K2 er áhersla lögð á vísinda- greinar, sjálfstæð vinnubrögð og frumlega hugsun. Námið þykir vera góður undirbúningur fyrir framhaldsnám í tækni- og vísindagreinum sem og á sviði viðskipta og nýsköpunar. Þetta segir Gunnhildur að sér hafi strax þótt spenn- andi og því hafi hún valið Tækniskólann, sem sé sveigjanlegur og þar ýtt undir allt frumkvæði nemenda. Til dæmis hafi hún ásamt fjórum bekkjarsystkinum sínum efnt síðasta sumar til vélmennasmiðju sem hafi verið lærdómsríkt. Þetta tengist svo loftslagsmálunum sem þurfti að leysa þverfaglega. Tæknimenntun sé því málið, í svo mörgu tilliti. Leggja lítið eitt af mörkum Mörg ólík sjónarmið eru uppi í umræðu líð- andi stundar um umhverfismál. Sumir tala um loftslagsbreytingar en aðrir, til dæmis Gunn- hildur, telur orðið hamfarahlýnun betra og meira lýsandi hugtak. Heimurinn standi nú and- spænis miklum breytingum í náttúrufari sem valda muni miklum skaða. „Mér finnst dapurlegt að umræðan á netinu um þessi mikilvægu mál einkennist nú af deilum um veruleika og staðreyndir, jafnvel þó að ham- farahlýnun sé margsönnuð með vísindalegum aðferðum,“ segir Gunnhildur sem neitar því að vera hin íslenskra Gréta Thunberg. Vakning og verkföll vegna loftslagsmála séu komi til af áhuga ungs fólks sem vilji breyta veröldinni til góðs. „Mín persóna kemur loftslagsbreytingum lítið við. Ég vil beina athyglinni að kröfum ungs fólks og aðgerðum, enda eru miklir hagsmunir í húfi. Hvert okkar getur lagt lítið eitt af mörkum og þar er einfaldast að draga úr neyslu, skipta yfir í umhverfisvænan ferðamáta og mataræði og svo mætti áfram telja.“ Viljum breyta veröldinni  Gunnhildur Fríða í fararbroddi ungs fólks í loftlagsmálum  Tók stúdentspróf á mettíma  Tæknimenntun og tækifæri  Dapurlega er deilt um staðreyndir Nýstúdent Mikilvægt er að skipuleggja sig vel og finna gleði og ánægju í viðfangsefnum sínum, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir hér í viðtalinu. Leit að Rimu Grunskyté Feliksas- dóttur, konu sem talið er að hafi fallið í sjóinn við Dyrhólaey, hefur enn ekki borið árangur. Rimu hefur verið saknað síðan á föstudags- kvöldið 20. desember en björg- unarsveitir á Suðurlandi hófu leit að henni á snemma á Þorláks- messu. Leitarsvæðið nær frá Vík og að Skógum og beinist leitarstarf að sjónum og ströndinni. Vont veður og lélegt skyggni Sveinn Kristján Rúnarsson, yfir- lögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, sagði í samtali við mbl.is í gær að leiðinlegt veður og lítið skyggni á svæðinu hefði gert leitarfólki erfitt fyrir. Tók hann jafnframt fram að björgunarsveitin Víkverji hefði farið yfir svæðið í gær. Ætlaði lögregla að kanna hvort aðstæður væru fyrir leit í dag og á laugardag. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Dyrhólaey Leit björgunarsveita við Dyrhólaey lauk án árangurs í gær. Leit að Rimu árangurslaus Met var slegið í árlegu kirkjuhlaupi TKS, Trimmklúbbs Seltjarnarness, sem haldið var níunda árið í röð í gær á öðrum degi jóla, en 470 manns tóku þátt í hlaupinu. Mikið vatn hef- ur runnið til sjávar síðan fyrsta kirkjuhlaup TKS fór fram en þá tóku 70 manns þátt. Síðan þá hefur hlaupið orðið hluti af jólahefð fjöl- margra en þess má geta að forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, er einn þeirra sem sprettu úr spori með klúbbnum í gær. Þetta staðfestir Kristinn Ingvarsson, formaður TKS, í samtali við Morgunblaðið. Hlaupaleiðin, sem er rúmir 14 kílómetrar, liggur framhjá 13 kirkjum og byrjar og endar við Sel- tjarnarneskirkju. „Þetta er bara svona rólegt og af- slappað, engin skráningargjöld og engin tímataka. Bara ást og um- hyggja,“ segir Kristinn. „Þetta var algjörlega stórkostleg upplifun. Allir að faðmast og kyss- ast. Við erum svo fallega væmin og sæt á þessum tíma, á jólunum.“ 470 í kirkju- hlaupi TKS  Forseti Íslands var meðal hlaupara í gær Á undanförnum árum hefur Gunn- hildur sinnt félagsmálum með ýmsu móti, meðal annars sem formaður Nemendasambands Tækniskólans og Sambands íslenskra framhalds- skólanema, setið í ungmennaráði Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóð- anna og svo mætti áfram telja. „Ég heyri oft stjórnmálamenn tala um mikilvægi samráðs við ungt fólk. Þegar við fylgjum því eftir með því að til dæmis óska eftir fundi til að kynna kröfur okkar þá er hljóðið oft annað,“ segir Gunnhildur og ítrekar mikilvægi lofslagsmála en inntak þeirra sé í raun framtíðin og líf unga fólksins. „Í september fórum við sem staðið höfum að loftlagsverkföllum á fund með ríkisstjórninni þar sem við kynntum kröfur okkar. Einnig þá tillögu að lýst yrði yfir neyðar- ástandi í loftslagsmálum með öllum þeim aðgerðum sem því myndu fylgja. Ráðherrarnir vissulega hlustuðu en eyddu svo tímanum í að tala um hvaða aðgerðir væri nú þeg- ar komnar af stað. Þá voru þau ekki tilbúin að gefa út yfirlýsingu um neyðarástand sem voru vonbrigði,“ segir Gunnhildur sem stefnir næsta haust á háskólanám í umhverfis- fræðum, við háskóla annaðhvort í Evrópu eða Bandaríkjunum. „Núna í vor ætla ég að vinna, ferðast og reyna að efla loftslags- verkföllin og halda áfram barátt- unni. Ef einhver lesenda vill standa að byltingu með mér þá á sá hinn sami endilega hafa samband og taka þátt í þeim mikilvægu verkefnum sem þarf að sinna,“ segir Gunn- hildur Fríða Hallgrímsdóttir að síð- ustu. Bylting og baráttan áfram Morgunblaðið/Sigurður Bogi Athöfn Endalok Okjökuls sl. sumar. Þar flutti Mary Robinson, fv. Ír- landsforseti, ávarp og Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, sem hér er til vinstri, einnig. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mótmæli Ungt fólk efndi til loftslagsverkfalla alla föstudaga nú í haust.  Svör og afstaða ráðamanna veldur ungu fólki vonbrigðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.