Morgunblaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019
Ískemmtilegu viðtali við FinnArnar Arnarson, leikstjóraog handritshöfund Engils-ins, á vef Þjóðleikhússins
leggur hann út af ást og áhuga Þor-
valdar Þorsteinssonar á einkennis-
búningum og hlutverkunum sem
þeir þröngva okkur í. Nauðugum
en oft því miður viljugum líka.
Þetta birtist að sögn Finns, og í
sýningunni sem hann hefur sett
saman ásamt Grétu Kristínu Óm-
arsdóttur, bæði í bókstaflegri
merkingu og sem almennur út-
gangspunktur og leið inn í þetta
fjölskrúðuga og um margt einstaka
höfundarverk. Hér úir og grúir af
skátum, löggum, stöðumælavörð-
um, ofurhetjum, flugfreyjum og
prestum, fyrir utan reykkafarann
sem vakir yfir þessu öllu í björg-
unar- og forvarnarskyni. Hlut-
verkin sem einkennisbúningarnir
fella fólkið í eru einatt tekin skop-
tökum í textum Þorvaldar, en það
er alltaf líka stutt í afmennskun og
ofbeldi undir absúrd-húmorísku
yfirborðinu. Hvergi kannski jafn
stutt og í hrollvekjandi Vasaleik-
húsverki um dauðadæmdan fanga
og prestinn sem kominn er til að
veita hinstu huggun.
En hinn óræðari og heimspeki-
legri skilningur á einkennisbún-
ingum er alltumlykjandi í verkum
Þorvaldar og í sýningunni. Hvernig
við festumst í samskiptaháttum,
hvernig tjáning okkar og hugsun
fylgir ákveðnum brautum þar sem
valdastaða, kynhlutverk og dauður
vani stýra för. Hvernig klisjurnar í
máli og hugsun taka völdin. Á fyrri
hluta ferilsins varð þessi vinkill
Þorvaldi endalaus uppspretta hár-
beittrar og afhjúpandi kímni. Á síð-
asta skeiði sínu, þegar hann hafði
komið auga á skólakerfið sem
helsta blóraböggulinn í afskræm-
ingu og lömun sköpunar og heil-
brigðra samskiptahátta, átti húm-
orinn til að víkja fullmikið fyrir
boðskapnum, en ein snjöll eldræða
af því taginu fær að fljóta með í
Kassanum.
Stærsti hluti texta sýninganna er
úr Vasaleikhúsverkunum og ör-
verkasafninu Engill meðal áhorf-
enda. Samfléttun efnisins og notk-
un vísana í myndlistarverk
Þorvaldar hefur tekist afburðavel.
Þannig fær sögn hvers atriðis að
lifa sínu sjálfstæða lífi og koma sín-
um boðskap eða hugsun til skila, en
rennur jafnframt hæfilega saman
við heildina. Eins er stöðug óræðni
þess hvenær verið er að leika og
hvenær við erum vitni að listafólki
að störfum ákaflega skemmtilega
og áreynslulaust útfærð og að
áhorfandanum læðist grunur um að
stílbrögð og fagurfræði Grétu
Kristínar eigi þar drjúgan þátt.
Frumraun hennar í leikhúsinu,
Stertabenda, kemur upp í hugann.
Og enn og aftur má dást að fum-
leysinu sem íslenskt leikhúsfólk
hefur náð tökum á í framsetningar-
máta af þessu tagi, og ekki síður
hvað það getur gengið að vísu læsi
og skilningi áhorfenda. Hér erum
við samstiga og efniviður Þorvaldar
Þorsteinssonar nýtur sín einkar vel
við þessar aðstæður.
Það sama má segja um textann
sjálfan. Ást Þorvaldar á stirðum og
„bóklegum“ samtölum, t.d. eins og
þau hljómuðu í útvarpsleikritum af
ómerkilegra taginu á uppvaxtar-
árum hans, er ein höfuðuppspretta
stílsins sem einkennir sviðsverk
hans en þó enn frekar Vasaleikhús-
textana. Til að miðla þessu efni
þarf að feta nokkuð þröngt einstigi
þar sem helsti vegvísirinn er
kannski einhverskonar „innblásin
flatneskja“. Ekki alveg fjarskylt
innblæstrinum sem Ionesco sótti í
enskukennslubækur þegar hann
setti saman Sköllóttu söngkonuna.
Þetta einstigi feta þau Arndís
Hrönn Egilsdóttir, Atli Rafn Sig-
urðarson, Baldur Trausti Hreins-
son, Eggert Þorleifsson, Guðrún S.
Gísladóttir og Ilmur Kristjáns-
dóttir nánast alltaf af stakri fimi í
sínum fjölmörgu hlutverkum. Það
liggur við að stundum hefði verið
gaman að sjá stílnum ögrað meira.
Önnur nálgun en hin viðtekna og
sjálfsagða hefði verið prófuð, svona
af því sýningin er í og með ein-
hverskonar endurmat á höfundar-
verki skáldsins. Mögulega hefði
reynslumeiri leikstjóri en Finnur
gengið lengra í þessa átt. En auð-
vitað má vera að það hafi einmitt
verið reynt og niðurstaðan orðið
þessi, og svo á maður auðvitað að
fara varlega í að óska sér. Það er
fullt öryggi í leikstjórnarlegum
ákvörðunum sem sýningin byggist
á.
Leikmynd Finns Arnar er í þess-
um sama anda, sótt beint í nálgun
og hugmyndaheim höfundarins.
Nytjahlutum safnað og unnið úr
því tilviljanakennda efni sem þann-
ig rak á fjörur leikhússins. Útkom-
an engu að síður vel nothæf til að
styðja við þær sögur sem segja átti.
Bráðsnjallt að staðsetja áhorf-
endur baksviðs megnið af sýning-
unni, sem hjálpaði til við að skerpa
meðvitund okkar fyrir því að alls
óvíst er hvað er leikið og hvað
raunveruleiki. Eins þakklátt þegar
við fáum loksins að sjá inn á „sviðið
sjálft“ í viðamesta atriði sýning-
arinnar þar sem við fáum að sjá
þann stjörnuleik hjá Eggert Þor-
leifssyni sem alltaf má reikna með.
Dæmigerður Þorvaldarkarakter
sem heldur dauðahaldi í frosin
samskiptamynstur til að reyna að
halda aftur af sálarmyrkrinu og of-
beldinu undir niðri. Og morðfyndið
vitaskuld.
Búningar Þórunnar Maríu Jóns-
dóttur eru trúir grunnhugmynd-
inni, samtíningslegir og banal og
fyrir vikið hárréttir. Hljóðmynd
Péturs Ben og Elvars Geirs Sæv-
arssonar flott, ekki síst gítarhetju-
númerið undir eintalinu úr And
Björk, of Course… Megasarlögin
meistaraleg.
Engillinn er þörf áminning um
þann magnaða fjársjóð frumleika
og andagiftar sem verk Þorvaldar
Þorsteinssonar eru. Heimspekileg
absúrdrevía sem kætir, kitlar og
kemur við okkur. Næst hlýtur að
þurfa að taka til fullrar endurtúlk-
unar hans viðamestu og lífvænleg-
ustu sviðsverk. Maríusögur og And
Björk, of Course… væru efst á
mínum óskalista.
Heimspekileg
absúrdrevía
Ljósmynd/Saga Sig.
Fjársjóður „Engillinn er þörf áminning um þann magnaða fjársjóð frumleika og andagiftar sem verk Þorvaldar
Þorsteinssonar eru. Heimspekileg absúrdrevía sem kætir, kitlar og kemur við okkur,“ segir í rýni.
Þjóðleikhúsið
Engillinn bbbbn
Leiksýning byggð á verkum Þorvaldar
Þorsteinssonar. Leikstjórn, handrit og
leikmynd: Finnur Arnar Arnarson.
Dramatúrg: Gréta Kristín Ómarsdóttir.
Aðstoðarleikmyndahönnuður: Þórarinn
Blöndal. Búningar: Þórunn María Jóns-
dóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson.
Tónlist: Pétur Ben og Elvar Geir Sævars-
son. Hljóðmynd: Kristján Sigmundur
Einarsson og Elvar Geir Sævarsson.
Sýningastjórn og umsjón, og þátttak-
andi í sýningu: Guðmundur Erlingsson
og Tómas Baldursson. Leikarar: Arndís
Hrönn Egilsdóttir, Atli Rafn Sigurðar-
son, Baldur Trausti Hreinsson, Eggert
Þorleifsson, Guðrún S. Gísladóttir og
Ilmur Kristjánsdóttir. Frumsýning í
Kassanum í Þjóðleikhúsinu laugardag-
inn 21. desember 2019.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Shakespeare verður ástfanginn (stóra sviðið)
Lau 28/12 kl. 19:30 13. sýn Fös 3/1 kl. 19:30 14.sýn Sun 12/1 kl. 19:30 15. sýn
Hrífandi og skemmtileg stórsýning fyrir áhorfendur á öllum aldri
Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn)
Lau 28/12 kl. 19:30 20. sýn Fös 3/1 kl. 19:30 21.sýn Sun 12/1 kl. 19:30 22. sýn
Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga
Atómstöðin (Stóra Sviðið)
Sun 29/12 kl. 19:30 9. sýn Fim 9/1 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Fim 2/1 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Sun 19/1 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Nýtt og framsækið leikverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins Halldórs Laxness
Engillinn (Kassinn)
Fös 27/12 kl. 19:30 2.sýn Sun 5/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 11/1 kl. 19:30 6.sýn
Lau 4/1 kl. 19:30 3.sýn Fös 10/1 kl. 19:30 5.sýn
Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson
Meistarinn og Margarita (Stóra Sviðið)
Fös 27/12 kl. 19:30 2. sýn Sun 5/1 kl. 19:30 4. sýn Lau 11/1 kl. 19:30 6. sýn
Lau 4/1 kl. 19:30 3. sýn Fös 10/1 kl. 19:30 5. sýn Fim 16/1 kl. 19:30 7. sýn
Hnyttin háðsádeila, gædd myrkum töfrum
Eyður (Stóra Sviðið)
Mið 15/1 kl. 19:30 Frums Mán 20/1 kl. 19:30 2. sýn
Sviðslistahópurinn Marmarabörn
Þitt eigið leikrit II (Kúlan)
Fös 14/2 kl. 18:00 Frums Sun 16/2 kl. 15:00 3.sýn Sun 23/2 kl. 15:00 5.sýn
Lau 15/2 kl. 15:00 2.sýn Lau 22/2 kl. 15:00 4.sýn
Hvert myndir þú fara? Þú mátt velja núna!
Dansandi Ljóð - Leikhúslistakonur 50+ (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 18/1 kl. 20:00 Fös 24/1 kl. 20:00
Sun 19/1 kl. 16:00 Sun 26/1 kl. 16:00
Kynngikraftur kvenna birtist í leiklist, ljóðum og tónlist
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Sex í sveit (Stóra sviðið)
Fös 27/12 kl. 20:00 34. s Sun 5/1 kl. 20:00 38. s Lau 25/1 kl. 20:00 42. s
Lau 28/12 kl. 20:00 35. s Fös 17/1 kl. 20:00 39. s Sun 26/1 kl. 20:00 43. s
Fös 3/1 kl. 20:00 36. s Lau 18/1 kl. 20:00 40. s
Lau 4/1 kl. 20:00 37. s Fös 24/1 kl. 20:00 41. s
Sprenghlægilegur gamanleikur!
Matthildur (Stóra sviðið)
Lau 28/12 kl. 13:00 79. s Sun 5/1 kl. 13:00 81. s Lau 18/1 kl. 13:00 83. s
Sun 29/12 kl. 13:00 80. s Sun 12/1 kl. 13:00 82. s Sun 19/1 kl. 13:00 Lokas.
Allra síðustu aukasýningarnar í janúar.
Eitur (Litla sviðið)
Fös 27/12 kl. 20:00 24. s Lau 28/12 kl. 20:00 25. s Sun 29/12 kl. 20:00 Lokas.
Takmarkaður sýningartími, sýningum lýkur í desember.
Vanja frændi (Stóra sviðið)
Lau 11/1 kl. 20:00 Frums. Fim 16/1 kl. 20:00 4. s Fim 23/1 kl. 20:00 7. s
Sun 12/1 kl. 20:00 2. s Sun 19/1 kl. 20:00 5. s Fim 30/1 kl. 20:00 8. s
Mið 15/1 kl. 20:00 3. s Mið 22/1 kl. 20:00 6. s Sun 2/2 kl. 20:00 9. s
Er líf okkar andlegt frjálst fall?
Helgi Þór rofnar (Nýja sviðið)
Fös 17/1 kl. 20:00 Frums. Fös 24/1 kl. 20:00 3. s Sun 26/1 kl. 20:00 5. s
Lau 18/1 kl. 20:00 2. s Lau 25/1 kl. 20:00 4. s Fös 31/1 kl. 20:00 6. s
Lífið getur verið svo niðurdrepandi!
Um tímann og vatnið (Stóra sviðið)
Þri 14/1 kl. 20:00 5. s Þri 21/1 kl. 20:00 6. s
Kvöldstund með listamanni.
Skjáskot (Nýja sviðið)
Þri 21/1 kl. 20:00 3. s Þri 11/2 kl. 20:00 4. s
Kvöldstund með listamanni.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Fös 27/12 kl. 20:00 18. s Lau 28/12 kl. 20:00 19. s Sun 29/12 kl. 20:00 20. s
Allra síðustu sýningar.
Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á
borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Sólveig Thoroddsen fagnar útgáf-
unni á nýjum hljómdiski sínum, sem
nefnist Snotrur, í Mengi við Óðins-
götu í dag, föstudag, kl. 17.
„Á diskinum syngur Sólveig og
leikur á tvenns konar hörpur, kelt-
neska og ítalska barokkhörpu. Auk
þess leikur hún á kantele. Disk-
urinn inniheldur mestmegnis þjóð-
lög og dægurlög á ýmsum tungu-
málum. Í fögnuðinum kynnir
Sólveig diskinn og syngur nokkur
lög,“ segir í tilkynningu. Þar kemur
fram að Sólveig lærði fyrst að spila
á keltneska hörpu samkvæmt írskri
hefð og æfði sig að syngja með,
lauk svo prófi frá Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar í klass-
ískum hörpuleik. Í framhaldinu fór
hún til frekara náms á klassíska
Snotrum fagnað með tónum í Mengi
Hörpuleikari Sólveig Thoroddsen.
hörpu í Cardiff í Wales og tók svo
masterspróf í leik á sögulegar
hörpugerðir í þýsku borginni
Bremen.