Morgunblaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019
Morgundagurinn
verður betri með
After Party™
Amínósýrur, Rósepli, Cactus extract,
öflug blanda af B-vítamínum og Magnesíum.
Virkar vel gegn þynnku
2 töflur fyrir fyrsta drykk
2 töflur fyrir svefn
Fæst í apótekum og heilsuhillum verslana I www.artasan.is
„Í BLÍÐU OG STRÍÐU, AÐ EFTIRTÖLDUM
ATRIÐUM UNDANSKILDUM …” „GETURÐU FJARLÆGT ÞESSAR TENNUR?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að leyfa hinum
aðilanum að njóta
vafans.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
EITTHVAÐ AÐ
FRÉTTA, ODDI?
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF! VOFF!
GETURÐU EKKI BARA SAGT
„EKKERT SÉRSTAKT ” EINS
OG ALLIR AÐRIR?
VOFF!
ÞAÐ ERU FIMM AÐRIR
KASTALAR Í SÝSLUNNI! HVÍ
NÍÐIST ÞIÐ Á OKKUR?
KONAN MÍN NOTAR
FÖT Í SÖMU STÆRÐ
OG ÞÍN!
er að ég fer í gönguferðir úti í nátt-
úrunni a.m.k. klukkutíma á dag, með
hundana mína. Það er ekki einvörð-
ungu gott fyrir líkamann að hreyfa
sig heldur ekki síður fyrir sál og
anda, en ég lít á þetta sem hluta af
minni andlegu iðkun, að njóta marg-
breytileika náttúrunnar með dýr-
unum mínum, hundunum Stjörnu og
Stellu.“
Heimili Lindu og dóttur hennar er
á Álftanesi og hefur verið síðastliðin
10 ár og þær búa einnig í Bresku
Kólumbíu í Kanada. Þess utan hefur
Linda búið víðsvegar um heiminn
eins og í Bretlandi, Japan, Mílanó,
Kanada og Bandaríkjunum.
Fjölskylda
Dóttir Lindu er Ísabella Ása
Lindudóttir Azab, f. 27.8. 2005, nem-
andi.
Systkini Lindu eru Sigurgeir Pét-
ursson, f. 16.12. 1965, skipstjóri á
Nýja-Sjálandi, og Sævar Pétursson,
f. 19.12. 1974, framkvæmdastjóri á
Akureyri.
Foreldrar Lindu eru hjónin Pétur
S. Olgeirsson, f. 12.10. 1945, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri og skip-
stjóri, og Ása Dagný Hólmgeirs-
dóttir, f. 13.7. 1945, húsmóðir. Þau
eru búsett á Húsavík og hafa verið
gift síðan 26.12. 1964.
Linda
Pétursdóttir
Petrína Jóhannesdóttir
húsfreyja í Flatey á Skjálfanda
Sigurbjörn Óskar Sigurbjörnsson
smiður og verkamaður í Flatey á Skjálfanda
Sigríður Sigurbjörnsdóttir
húsfreyja í Flatey á
Skjálfanda og á Húsavík
Ása Dagný Hólmgeirsdóttir
húsmóðir á Húsavík
Kristján Olgeirsson fv. landsliðsmaður í fótbolta
Ingvar Hólmgeirsson
fv. útgerðarmaður og
skipstjóri á Húsavík
Sigríður Ingvarsdóttir
forstjóri Nýsköpunar-
miðstöðvar innar
Jóhanna Jónsdóttir
húsfreyja á Eyri á Flateyjardal
Hólmgeir Árnason
útgerðarmaður í Flatey á Skjálfanda, síðar Húsavík
Árni Tómasson
bóndi á Eyri á Flateyjardal
Gísli Jónatansson fv.
kaupfélagsstjóri Kaupf. Fáskrúðsf.
og framkvstj. Loðnuvinnslunnar
Jónatan Árnason útvegsbóndi í Flatey
Björn Olgeirsson fv. skíðakappi og ólympíufari
Guðmundur
Hólmgeirsson fv.
útgerðarmaður og
skipstjóri á Húsavík
Stefán
Guðmundsson
framkvæmdastj.
og eigandi Gentle
Giants á Húsavík
Matthías Bjarnason
ráðherra
Bjarni Bjarnason
vegaverkstjóri á Ísafi rði
Kristjana Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Jónas Bjarnason
vegaverkstjóri á Húsavík
Ragnheiður Jónasdóttir
húsfreyja á Húsavík
Jakobína Jónsdóttir húsfreyja á HúsavíkGuðmundur Bjarnason fv. ráðherra
Olgeir Sigurgeirsson
útgerðarmaður á Húsavík
Björg Jónsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Sigurgeir Pétursson
bústjóri á Húsavík
Úr frændgarði Lindu Pétursdóttur
Pétur Olgeirsson
fv. skipstjóri á Húsavík og framkvæmdastjóri
Álverið í Straumsvík fagnaði50 ára afmæli álframleiðslu
á Íslandi með því að afhenda
Árnastofnun íslenskt álorðasafn á
stafrænu formi. Við afhendingu
þess flutti Guðni Th. Jóhannesson
forseti Íslands ávarp og sagði:
„Ál er frábært orð. Í sögu álvers-
ins í Straumsvík les ég að um
miðjan sjöunda áratug síðustu
aldar hafi Baldur Jónsson ís-
lenskufræðingur bent á þetta
kjörorð fyrir erlenda orðið al-
úmíníum sem léti illa í munni og
samræmdist auk þess ekki ís-
lensku málkerfi og málvitund. Ís-
lensk málnefnd gerði orðið að
sínu og íslensk þjóð í kjölfarið.“
Síðan rifjaði forsetinn upp, að
Baldur hefði ekki eignað sér hug-
myndina. Orðið hefði heyrst mun
fyrr. Í Almanaki Þjóðvinafélags-
ins árið 1914 birtist þessi málm-
vísa séra Jóns Jónssonar í Stafa-
felli:
Silfur og gull með gljáa fullan skarta,
má og blika eir og ál
einnig nikul, tin og stál.
Í síðustu viku skrifaði Davíð
Hjálmar í Davíðshaga í Leirinn
og kallaði „Bjargvætt sveitanna“:
Landsvirkjun með ljósin hlý!
Líf vort allt og kraftur!
Þú ferð og kemur, ferð á ný
og ferð ef kemur aftur.
Þessi limra, „Gæði kaup-
mennskunnar“, flaut með, þegar
Helgi R. Einarsson sendi lausn á
laugardagsgátunni:
Nú boðskap út skal breiða,
svo börn ei fyllist leiða:
Aðventu á
flest má fá
og í febrúar það greiða!
Helga Ingólfssyni fer eins og
Látra-Björgu að yrkja um héruð.
Fyrst eru það Eyfirðingar:
Eyfirðingar eiga líf,
ævin geysist hröð.
Elska hesta, öl og víf,
allt í þeirri röð.
Austfirðir:
Oft menn festa þrugl á þrykk
og þvættingur er sagður:
Á Austfjörðum er þokan þykk
sem þæfður ullarlagður.
Skagafjörður:
Skrúði jarðar, skáldarík:
Skagafjarðarsveit er slík
að lengst úr skarði að lægstu vík
býr lambasparða-rómantík.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af áli og gæðum
kaupmennskunnar