Morgunblaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019 ✝ Dýrunn Ragn-heiður Stein- dórsdóttir (Día) fæddist 4. ágúst 1945 á Brautar- landi í Víðidal, Vestur-Húnavatns- sýslu. Hún lést á Droplaugarstöðum 9. desember 2019. Foreldrar hennar voru hjónin Stein- dór Benediktsson bóndi, f. 1. mars 1898, d. 28. janúar 1971, og Sigurbjörg Þórðardóttir húsfreyja, f. 14. maí 1907, d. 19. janúar 1990. Día var yngst fjögurra systk- ina. Systkini hennar eru: Þór- unn húsmóðir, f. 14. apríl 1932, þeirra: Sverrir verkfræðingur, f. 29. september 1990, í sambúð með Írisi Björk Rúnarsdóttur flugfreyju, Þórarinn flug- maður, f. 6. ágúst 1995, í sam- búð með Sóleyju Baldursdóttur, BS í sálfræði, og Hjalti, f. 22. mars 2005. 2) Eydís Dóra fé- lagsráðgjafi, f. 4. ágúst 1971, og á hún tvo syni: Jóel mennta- skólanema, f. 28. október 2001, og Atla Hrafn, f. 14. mars 2005. Día ólst upp í Brautarlandi. Hún nam við Kvennaskólann á Blönduósi 1963-64 þar sem hún kynntist eiginmanni sínum. Þau fluttu til Reykjavíkur og bjuggu þar alla sína búskap- artíð. Hún lærði snyrtifræði og starfaði í snyrtivöruverslunum í miðbæ Reykjavíkur um árabil. Síðar stofnaði hún eigin snyrti- stofu. Útför Díu verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 27. desem- ber 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. d. 18. júlí 1998; Benedikt húsa- smíðameistari, f. 18. júlí 1939; og Ingólfur bókari, f. 9. ágúst 1942. Syst- ir þeirra dó í frum- bernsku. Día giftist Sverri Hauki Halldórssyni rafeindavirkja- meistara, f. 19. mars 1943, hinn 27. desember 1969 og hefðu þau því átt gullbrúðkaup í dag. Dætur þeirra eru: 1) Anna Rut, hjúkrunarfræðingur og ljós- móðir, f. 24. október 1966, gift Birgi Þórarinssyni alþing- ismanni, f. 23. júní 1965. Synir Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Ég gekk upp stigann með svo- lítinn hnút í maganum, þá 17 ára að aldri. Til dyranna kom kona glæsileg yfirlitum, með liðað dökkt hár, glitrandi augu og skýra andlitsdrætti. Hún minnti mig á spænska senjorítu, rauð rós í hári hefði farið henni vel. Blessaður, sagði hún mjúkri röddu, brosti og bauð mig vel- kominn. Ég var kominn til að heimsækja eldri dóttur hennar í fyrsta sinn, Önnu Rut, sem síðar varð eiginkona mín. Konan glæsi- lega hafði góða strauma og gott viðmót. Hún átti eftir að vera hluti af lífi mínu næstu 37 árin eða allt þar til hún kvaddi 74 ára að aldri. Dýrunn tengdamóðir mín, sem aldrei var kölluð annað en Día, var sveitastúlka norðan úr Húna- vatnssýslu, yngst fjögurra systk- ina og ættuð frá Brautarlandi í Víðidal. Alin upp á hestbaki, eins og hún sagði sjálf, létt á fæti, glaðlynd og brosmild. Hún fór í kvennaskólann á Blönduósi, kynntist þar Sverri Halldórssyni sem reyndist henni traustur eig- inmaður. Þau fluttu til Reykja- víkur þar sem þau stofnuðu fjöl- skyldu og eignuðust tvær glæsilegar dætur, Önnu Rut og Eydísi. Día lærði snyrtifræði og starf- aði í snyrtivöruverslunum í mið- bænum um árabil. Sveitastelpan, sem var smekkvís og vel að sér á sínu sviði, kunni vel við sig á Laugaveginum. Hún stofnaði síð- ar eigin rekstur, sem hún rak af dugnaði og myndarskap. Día var vinnusöm, hagsýn og hafði gott viðskiptavit. Henni líkaði vel ef þeir sem stóðu henni næst voru duglegir. Hún hrósaði mér oft fyrir ýmislegt sem ég tók mér fyrir hendur en vildi jafnframt vita hvað væri næst á verkefna- listanum. Hún hafði sterka trú á mér og hvatti mig til dáða, meðal annars í stjórnmálum. Fyrir hennar hvatningu og stuðning er ég þakklátur. Henni þótti frá upphafi góð hugmynd að við Anna Rut skyldum flytja á Vatnsleysuströnd og endur- byggja þar illa farið íbúðarhús. Verkefnið var stórt en hún hafði fulla trú á því og fylgdist grannt með framkvæmdum. Hún kom oft í heimsókn í Knarrarnesið, naut samvista við barnabörnin og nálægðar við náttúruna sem þar gefst. Día sá tækifæri í mörgu og var áhugi hennar á við- skiptum þá ekki langt undan. Hún gat haft sterkar skoðanir á mönnum og málefnum en mátti ekkert aumt sjá og var dýravin- ur. Hún naut þess að gera sér glaðan dag í góðra vina hópi og ferðast innanlands jafnt sem ut- an með fjölskyldunni. Eins og góðum tengdasyni sæmir hafði ég matarást á henni og kynnti hún mér rétti sem ég hafði aldrei komist í tæri við og voru ómót- stæðilegir. Það var beinlínis til- hlökkun fyrir ungan mann að setjast að borði með þessari fal- legu fjölskyldu, sem ég er stoltur af að tilheyra. Á milli okkar Díu ríkti ávallt vinskapur, traust og trúnaður. Að leiðarlokum kveð ég elsku- lega tengdamóður mína með virðingu og þökk. Sverri tengda- föður og öðrum ástvinum færi ég innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Díu tengdamóð- ur minnar. Birgir Þórarinsson. Í dag kveðjum við elskulega mágkonu og systur, svo nú ríkir söknuður í hjörtum ástvina hennar. Við gleðjumst yfir góð- um minningum, rifjum þær upp og minnumst fallegrar hæfileika- ríkrar konu. Það er gleði okkar að hafa átt samleið með henni á lífsins leið og því er eðlilegt að við söknum. Gleðin og sorgin eru systur og fylgjast að rétt eins og dagur og nótt. Día var lífsglöð ung stúlka, spilaði á gítar og söng með vinkonum sínum. Mús- íkölsk eins og foreldrar hennar. Hún lærði snyrtifræði og rak sína eigin stofu í mörg ár. Hún átti sína föstu viðskiptavini sem fannst ómissandi að heimsækja „Snyrtistofu Díu“ reglulega. Seinustu mánuðir ævinnar voru erfiðir og eigum við því ekki að vera raunsæ og játa að Guð veit best. Lífsins göngu er lokið og haldið inn á nýtt svið, sem okkur mönnum er hulið. Ljóð Einars Benediktssonar felur í sér fyrirheit um það sem framundan er: Til moldar oss vígði hið mikla vald, hvert mannslíf, sem jörðin elur. Sem hafsjór, er rís með fald við fald, þau falla, en guð þau telur, því heiðloftið sjálft er huliðstjald, sem hæðanna dýrð oss felur. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. Día var náttúrubarn sem elsk- aði fjölskylduna sína, sveitina, sólskinið, Vesturbæjarlaugina og blessaðan Laugaveginn sinn. Kveðjum þig elsku Día með ljóði Ólínu Andrésdóttur: Dýrmæta andans auðlegð þú áttir, sem guð þér léði. Ég sá hana skína í sælli trú síðast á dánarbeði. Af öllu hjarta ég ann þér nú hinnar eilífu jólagleði. Elsku Sverrir, Anna Rut, Ey- dís Dóra og fjölskyldur. Okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin lifir. Guð geymi ykkur öll. Þórey og Benedikt. Nú hefur Día systir mín feng- ið hvíldina eftir erfið veikindi undanfarin ár. Hún var yngst af okkur fjórum systkinunum sem lifðum. Við ólumst upp í sveit um miðja síðustu öld við venjuleg sveitastörf eins og þau voru á þeim tíma. Þá var vélvæðingin ekki gengin í garð og öll útiverk því unnin með höndum þar sem hestar voru notaðir til að létta störfin. Verkaskiptingin í sveit- inni var gjarnan þannig að í hennar hlut kom að hjálpa til við húsverkin og móðir okkar kenndi henni það sem til þurfti. Ég vil rifja hér aðeins upp dvöl okkar Díu í Víðihlíð í heima- sveit okkar á sínum tíma. Okkur hafði verið treyst fyrir því að sjá um barnaskólann í sveitinni, ég annaðist kennsluna og hún sá um matseld og húshald, þá að- eins 17 ára gömul. Þetta segir töluvert um kjark hennar og dugnað. Börnin í skólanum voru ekki nema nokkrum árum yngri en hún. Eftir því sem næst verð- ur komist tókst þetta skólahald bara vel. Um haustið fór hún síðan í Húsmæðraskólann á Blönduósi, eins og algengt var um ungar konur á þessum tíma. Þar kynntist hún Sverri sínum sem hún síðan giftist og bjuggu þau mestallan sinn búskap í Reykja- vík. Eftir að hún var komin til höf- uðborgarinnar lærði hún snyrti- fræði og var í framhaldinu pæj- an í snyrtivörubúðinni á Laugaveginum og rak einnig snyrtistofu heima hjá sér. Ég kveð Díu systur mína með þakklæti fyrir samverustund- irnar á lífsleiðinni og færi Sverri, dætrunum og fjölskyld- um innilegustu samúðarkveðjur. Ingólfur. Dýrunn Ragnheið- ur Steindórsdóttir ✝ Jónas RagnarGuðmundsson fæddist í Hall- geirsey í A- Landeyjum 28. september 1935. Hann lést á Hrafn- istu í Reykjavík 18. desember 2019. Foreldar hans voru Guðmundur Guðlaugsson, bóndi, f. 18. sept- ember 1883 í Hallgeirsey, d. 1974, og Guðríður Jónasdóttir, húsfreyja, f. 28. október 1894 að Hólmahjáleigu í A- Landeyjum, d. 1954. Bróðir Jónasar var Guðlaugur Grétar, f. 1933, d. 1936. Foreldrar Jónasar tóku að sér fósturbörn sem Jónas ólst upp með og leit á þau sem systkini sín, þetta voru þau Guðbjörg Sigurjónsdóttir (Gugga), Þórhallur Sig- hans, Áslaugar Melax, eru Bjarmi og Breki. Fósturdóttir Grétars og dóttir Áslaugar er Berglind Melax, maki Guð- mundur Ingi Björnsson, þeirra börn eru Benedikt og Karólína. Jónas ólst upp í Hallgeirsey við venjuleg sveitastörf en flutti til Reykjavíkur 19 ára gamall eftir að móðir hans dó. Hann lauk námi í prentiðn í Iðnskól- anum í Reykjavík og starfaði mestan hluta ævinnar sem prentari, aðallega við blaða- útgáfu. Hann vann m.a. hjá Vik- unni, Vísi, Tímanum, í Blaða- prenti og prentsmiðju Árna Valdimarssonar. Síðustu árin breytti hann um starfsvettvang og vann m.a. hjá ríkisskatt- stjóra áður en hann fór á eftir- laun. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu Jónas og Margét í Mávahlíð 23 en þegar fjölskyldan stækkaði fluttu þau á Hraunteig 11 þar sem þau hafa búið síðan 1968. Síðustu mánuði ævi sinnar dvaldist Jónas á Hrafnistu í Reykjavík. Útför Jónasar fer fram frá Áskirkju, í dag 27. desember 2019, og hefst athöfnin kl 15. urjónsson, Magnús Stefánsson og Gísli Jónasson en þau eru öll látin. Jónas giftist 1960 Margréti Jónsdóttur, f. 4. apríl 1937. For- eldrar hennar voru Jón Kristinn Jóns- son, f. 24. júní 1898, d. 1983, og Ingveldur Eiríks- dóttir, f. 23. júní 1908, d. 1993. Börn Jónasar og Margrétar eru: 1) Guðmundur, f. 11. júlí 1960, maki Hanna Ingibjörg Birgisdóttir, synir þeirra eru Jónas og Patrekur Gísli. 2) Martha, f. 7. október 1963, maki Ástvaldur Óskarsson, börn þeirra eru Óskar, Margrét Björg og Ingvi. Fyrir átti Ást- valdur soninn Svavar Frey. 3) Grétar, f. 31. ágúst 1966, synir hans og fyrrverandi eiginkonu Frá eiginkonu Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Margrét Jónsdóttir. Í dag kveðjum við tengdaföður minn sem lést eftir margra ára baráttu við vágestinn sem nú hefur lagt hann að velli. Margs er að minnast eftir rúm- lega 30 ára kynni. Fyrir hugskots- sjónum fljúga myndir sem litast sterkum litum manns sem var ein- stakur fjölskyldufaðir og betri afa barnanna minna hefði ég ekki geta fengið. Samheldni hans og Möggu tengdamömmu í því að hlúa að sín- um var í senn bæði eftirtektaverð og öðrum til eftirbreytni. Börnin okkar hafa verið svo lánsöm að geta farið út í lífið með reynslu uppeldisaðferða ömmu og afa sem verður þeim til eftirbreytni um ald- ur og ævi. Vonandi eiga þau því eft- ir að yfirfara sína reynslu á sína af- komendur þannig að þeir geti líka notið þeirra lífsgæða sem afi og amma sköpuðu á sínum tíma. Allt var gert svo spennandi. Næturdvalir á Hraunteigi 11, hlut- verkin í sjeikveislunum, ferðirnar með Kátu fólki, spurningaleikirnir, pakkaleikirnir, ferðalögin með stórfjölskyldunni til Kanarí svo eitthvað sé nefnt. Þarna voru ljúfir, umhyggjusamir en að sama skapi staðfastir uppalendur á ferð. Fyrir þetta er ég óendanlega þakklát. Tengdafaðir minn var ljúfur maður en samt maður sterkra skoðana sem hann fór vel með og kunni því líka að setja barnabörnunum mörk, því var það svo að þegar all- ur hópurinn naut næturgistinga hjá ömmu og afa í einni flatsæng var samkomulagið einstaklega gott. Jónas var alltaf mikill sveita- strákur í sér og naut þess að vera úti í náttúrunni og vera í sveitinni og njóta þess sem landið gaf, eig- inkonan hins vegar mikið borgar- barn en saman náðu þau samt að slá sína samhljóma strengi þó þau væru mjög ólík að þessu leyti. Garðurinn á Hraunteigi 11 var garðurinn hans afa. Berjaferðirnar með okkur fjölskyldunni og ferð yfir hálendið með afa þar sem hann naut sín í faðmi fjallanna og náttúr- unnar er ljúf minning fyrir okkur. Sjúkdómurinn sem nú hefur lagt Jónas að velli kvaddi fyrst dyra fyrir um 15 árum sem snemma byrjaði að taka toll af heilsu hans. Allar götur síðan hafa þau hjónin staðið samhent í þessari þrautargöngu og tekið hverju áfall- inu af æðruleysi og samheldni þó oft hafi baráttan virst töpuð. Það var alltaf stutt í brosið og sáttaum- leitanir við ástandið hversu erfitt sem það var. Með æðruleysi sínu gerði hann okkur fjölskyldunni mun auðveldara að taka þátt í þessu stríði með sér. Nú er komið að leiðarlokum kæri Jónas. Þú munt alltaf eiga þitt pláss í huga okkar. Hafðu hjartans þökk fyrir allt. Þín tengdadóttir, Hanna Ingibjörg Birgisdóttir. Elsku afi Jónas. Við viljum þakka þér fyrir liðnar samverustundir og vera jafn góður afi og þú varst. Þegar við bræð- urnir hugsum um þig þá er líkleg- ast það fyrsta sem okkur dettur í hug Hraunteigur 11, okkar annað heimili. Við vissum alltaf að við gætum komið í heimsókn til ykkar ömmu í mat, sjeikveislur, gista eða spila. Þegar að við vorum í mat hjá ykkur nefndi amma það oft að þessar kartöflur væru úr garðinum „hans afa“. Þannig að við komumst því ekki hjá því að tengja þig við garðinn þinn þar sem að það var alltaf nóg af kartöflum og rabar- bara. Þegar við urðum eldri unnum við svo oft í „garðinum hans afa“. Við höfðum stofnað fjölskyldu- garðsláttufyrirtæki ásamt Bjarma og Óskari, frændum okkar. Það var alltaf mikið tilhlökkunarefni að koma til ykkar og slá garðinn ykk- ar. „Díllinn“ var nefnilega sá að við komum og slógum og fengum há- degismat í staðinn. Við áttum svo góðar samræður á meðan á hádeg- ismat stóð, afi fræddi okkur um hvernig hlutirnir voru gerðir í sveitinni þegar að hann var yngri og amma sagði okkur hvernig æska hennar hafði verið á Ránar- götunni. Það braut upp daginn og fékk mann alltaf til að komast í gott skap auk þess sem maginn var fylltur. Það sem þið gerðuð svo líka reglulega var að fara í heimsókn til Eyfa, bróðir ömmu. Þá var reglu- lega farið í spurningakeppni til að prófa þekkingu ykkar. Þegar að þið voruð ekki alveg vissir hvað átti að spyrja um var oft brugðið á það ráð að „hringja í vin“. Þá var hringt í mig (Jónas) og ég vissi svarið. Ég hafði mjög gaman að því og hlakk- aði ég mikið til þeirra símtala. Það hefur alltaf verið frábært að sjá til ykkur, amma og afi, þar sem svo mikill kærleikur og jákvæðni var í öllu sem tekið var sér til hend- ur. Til lokadags var ekki hægt að komast fram hjá brosi þínu. Eitt það fallegasta sem við höfum heyrt var þegar amma sagði við okkur „Það besta við að koma á Hrafnistu að heimsækja afa ykkar er að sjá brosið hans, þá ljóma ég öll upp.“ Við erum svo þakklátir fyrir þessa frábæru afa og ömmu sem við höf- um fengið. Takk fyrir allt. Jónas og Patrekur Gísli Guðmundssynir. Eitt af þeim björtu ljósum sem lýst hefur veginn á göngu minni um lífið slokknaði nokkrum dögum fyrir jól. Hin hlýja og notalega birta sem var einkennandi fyrir það var tekin að dofna og ég vissi að sú stund kæmi bráðlega að hún slokknaði alveg. Von mín var að hún næði að skína fram yfir hátíð- arnar. Þannig varð það ekki. Ragn- ar frændi svífur ekki lengur hnar- reistur og léttur á fótinn um dansgólf lífsins með Möggu sína upp á arminn. Lífsdansinn hans var langur og fagur og samstíga og átakalaust stigu þau Magga dans- inn saman í um 60 ár. Uppskeran var ríkuleg og ómetanlegir verð- launagripir í formi barna, tengda- barna og barnabarna juku á tilfinn- inguna og gleði þeirra við dansinn. Hin síðustu ár færðist stjórnin að mestu í hendur Möggu sem sá til þess að dansskrefin væru stigin og takturinn haldinn. Ragnar tók því með þeirri stillingu og jafnaðargeði sem einkenndi hann og dansaði sinn part meðan stætt var. Tengslin milli fjölskyldna okkar voru sterk. Þegar Ragnar var kornungur maður bjó Guðmundur pabbi hans um tíma á heimili for- eldra minna á Grettisgötunni og Ragnar bjó í herbergi í nágrenn- inu og var í mat hjá þeim. Það var einmitt á þeim tíma sem Ragnar frændi bauð ungri stúlku upp í dans og kynnti sig fyrir henni sem Jónas Ragnar og nýr kafli hófst í lífi hans og hennar. Eftir það voru þau okkar huga eitt: Magga og Ragnar. Í huga flestra annarra: hjónin Jónas og Margrét. Eftir að þau eignuðust sitt eigið heimili stóð heimili þeirra hjóna okkur ávallt opið. Eftir að mamma lést var heimili þeirra sá staður sem pabba þótti gott að heim- sækja – hjá þeim leið okkur alltaf vel. Minningar frá þeim árum flæða um hugann, allt góðar minn- ingar – minningar um þorrablót, áramótagleði, kaffi- og matarboð á Hraunteignum þar sem mikið var spjallað og hlegið og við krakkarn- ir flissandi í hinum sívinsæla nafnaleik. Alltaf vorum við aufúsu- gestir og Ragnar, ljúfmennskan uppmáluð eins og hans var háttur, alltaf boðinn og búinn að sækja okkur og skutla heim. Þegar ald- urinn var farinn að setja mark sitt á pabba sinnti hann honum sem væri hann hans eigin þó þeir væru ekki einu sinni skyldir. Þannig var hann Ragnar, engum líkur. Það var því gott að vita af þeim hjónum þegar við systur bjuggum báðar erlendis og pabbi einn og heilsa og líkami hans tekinn að bila. Þau hjón reyndust okkur vel og fyrir það verður aldrei fullþakkað. Kær- leikurinn og væntumþykjan milli fjölskyldna var á báða bóga. Ljósið hans Ragnars frænda er slokknað. Það lifði lengi á kveikn- um og birta þess lýsti víða og yljaði og vermdi mörgum. Ég þakka elsku Ragnari frænda mínum fyrir samfylgdina og fyrir allt það sem hann var mér og fjölskyldunni minni. Minningin um góðan dreng lifir. Megi góður guð vaka yfir elsku Möggu, Guð- mundi, Mörthu, Grétari og fjöl- skyldum. Valgerður Hallgrímsdóttir og fjölskylda. Jónas Ragnar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.