Morgunblaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019 FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS Á höfuðborgarsvæðinu verða alls átján ára- mótabrennur á gamlárskvöld. Í Reykjavík verða brennurnar tíu talsins og eldur verður borinn að köstunum kl. 20.30 um kvöldið. Á því eru þó tvær undantekningar. Kveikt verður í brennunni sem er fyrir ofan byggðina í Úlfars- árdalnum kl. 15.00 um daginn og í Skerjafirði kl. 21.00 eftir blysför sem hefst hálftíma fyrr. Hins vegar kann að setja strik í reikninginn að spáð er mikilli rigningu og strekkingsvindi víð- ast hvar um landið á gamlársdag. Brennur gætu því hugsanlega ekki náð sér á strik að ekki sé talað um flugeldana, en sala björg- unarsveitanna á þeim hefst á morgun, föstu- daginn 28. desember, og stendur langt fram eftir gamlársdegi. Kjalarnes við Kléberg kl. 20.30 Suðurfell kl. 20.30 Þingabrennan, Gulaþingi kl. 20.30 Gufunes, við Gufunesbæ kl. 20.30 Geirsnef kl. 20.30Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjug. kl. 20.30 Við Ægisíðu kl. 20.30 Við Rauðavatn að norðanverðu kl. 20.30 Laugardalur, fyrir neðan Laugarásveg kl. 20.30 Neðan Holtahverfi s við Leirvog kl. 20.30 Ásvellir, við íþrótta- svæði Hauka kl. 20.00 Við Skildinganes kl. 21.00, blysför kl. 20.30 Á Valhúsahæð kl. 20.30 Við Sjávargrund kl. 21.00 Kópavogsbrennan sunnan við Fífuna kl. 20.30 Flugeldasýning Hjálpar- sveitar skáta kl. 21.10. R E Y K J A V Í K MOSFELLSBÆR KÓPAVOGUR GARÐABÆR HAFNARFJÖRÐUR ÁLFTANES SELTJARNARNES SKERJAFJÖRÐUR Áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu2019 Stór brenna Lítil brenna Munið að fl ugeldar eiga ekki erindi á brennurnar! Úlfarsfell, ofan við Lambhagaveg kl. 15.00 Norðan við Gesthús kl. 20.30 Veðurspá fyrir áramótabrennur er ekki spennandi Síðustu dagar sem Byggðasafn Dalamanna á Laugum í Sælingsdal er opið eru í dag, 27. desember, og á sunnudag, 29. desember. Safnið hef- ur lengi verið í kjallara skólabygg- inga á Laugum, sem Dalabyggð stefnir nú að því að selja. Því á að pakka safnmunum niður í kassa og koma í geymslu til bráðabirgða, en til viðbótar við fyrirhugaða sölu þyk- ir húsnæðið ekki lengur standast kröfur með tilliti til aðgengis, geymslupláss og slíks. Auk þess hef- ur hent að rigningarvatn flæði inn sýningarsal. Annarra kosta í hús- næðismálum er því leitað. Skipulögð söfnun muna í Dölum fyrir væntanlegt byggðasafn hófst sumarið 1968. Sýningar voru opn- aðar 1977 og formlega tveimur árum síðar. „Ég held að safninu verði bet- ur fyrir komið á öllum öðrum stöðum en í núverandi húsnæði á Laugum,“ segir Valdís Einarsdóttir safnstjóri í samtali við Morgunblaðið. Í Dalabyggð beinast sjónir fólks nú að því að byggðasafninu og tengdri starfsemi megi koma fyrir á Staðarfelli á Fellsströnd. Menning- armálanefnd sveitarfélagsins kom með tillögu um slíkt á dögunum og í framhaldinu ákvað sveitarstjórn að leita eftir formlegum viðræðum við fjármálaráðuneytið um að fá eign- irnar á Staðarfelli til fullra umráða til langs tíma. Yrði þar þá menning- arsetri komi á fót. Lengi meðferðarstöð SÁÁ Á Staðarfelli er stórhýsi sem var reist árið 1912, fjórar hæðir og 751 fermetri að flatarmáli, auk nokkurra fleiri bygginga í grenndinni. Þarna var lengi starfræktur húsmæðra- skóli en eftir að starfsemi hans lagð- ist af árið 1976 fékk SÁÁ húsakost- inn til afnota fyrir sína starfsemi. Meðferðarstöð fyrir áfengissjúka á vegum samtakanna var þar starf- rækt fram á síðasta ár, en síðan þá hafa byggingar þessar staðið auðar og bíða nýs hlutverks. sbs@mbl.is Byggðasafni lokað  Pakkað niður á Laugum  Horft að Staðarfelli  Menningarsetur Dalanna Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fellsstönd Húsin miklu á Stað- arfelli gætu fengið nýtt hlutverk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.