Morgunblaðið - 27.12.2019, Síða 33

Morgunblaðið - 27.12.2019, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019 Ískemmtilegu viðtali við FinnArnar Arnarson, leikstjóraog handritshöfund Engils-ins, á vef Þjóðleikhússins leggur hann út af ást og áhuga Þor- valdar Þorsteinssonar á einkennis- búningum og hlutverkunum sem þeir þröngva okkur í. Nauðugum en oft því miður viljugum líka. Þetta birtist að sögn Finns, og í sýningunni sem hann hefur sett saman ásamt Grétu Kristínu Óm- arsdóttur, bæði í bókstaflegri merkingu og sem almennur út- gangspunktur og leið inn í þetta fjölskrúðuga og um margt einstaka höfundarverk. Hér úir og grúir af skátum, löggum, stöðumælavörð- um, ofurhetjum, flugfreyjum og prestum, fyrir utan reykkafarann sem vakir yfir þessu öllu í björg- unar- og forvarnarskyni. Hlut- verkin sem einkennisbúningarnir fella fólkið í eru einatt tekin skop- tökum í textum Þorvaldar, en það er alltaf líka stutt í afmennskun og ofbeldi undir absúrd-húmorísku yfirborðinu. Hvergi kannski jafn stutt og í hrollvekjandi Vasaleik- húsverki um dauðadæmdan fanga og prestinn sem kominn er til að veita hinstu huggun. En hinn óræðari og heimspeki- legri skilningur á einkennisbún- ingum er alltumlykjandi í verkum Þorvaldar og í sýningunni. Hvernig við festumst í samskiptaháttum, hvernig tjáning okkar og hugsun fylgir ákveðnum brautum þar sem valdastaða, kynhlutverk og dauður vani stýra för. Hvernig klisjurnar í máli og hugsun taka völdin. Á fyrri hluta ferilsins varð þessi vinkill Þorvaldi endalaus uppspretta hár- beittrar og afhjúpandi kímni. Á síð- asta skeiði sínu, þegar hann hafði komið auga á skólakerfið sem helsta blóraböggulinn í afskræm- ingu og lömun sköpunar og heil- brigðra samskiptahátta, átti húm- orinn til að víkja fullmikið fyrir boðskapnum, en ein snjöll eldræða af því taginu fær að fljóta með í Kassanum. Stærsti hluti texta sýninganna er úr Vasaleikhúsverkunum og ör- verkasafninu Engill meðal áhorf- enda. Samfléttun efnisins og notk- un vísana í myndlistarverk Þorvaldar hefur tekist afburðavel. Þannig fær sögn hvers atriðis að lifa sínu sjálfstæða lífi og koma sín- um boðskap eða hugsun til skila, en rennur jafnframt hæfilega saman við heildina. Eins er stöðug óræðni þess hvenær verið er að leika og hvenær við erum vitni að listafólki að störfum ákaflega skemmtilega og áreynslulaust útfærð og að áhorfandanum læðist grunur um að stílbrögð og fagurfræði Grétu Kristínar eigi þar drjúgan þátt. Frumraun hennar í leikhúsinu, Stertabenda, kemur upp í hugann. Og enn og aftur má dást að fum- leysinu sem íslenskt leikhúsfólk hefur náð tökum á í framsetningar- máta af þessu tagi, og ekki síður hvað það getur gengið að vísu læsi og skilningi áhorfenda. Hér erum við samstiga og efniviður Þorvaldar Þorsteinssonar nýtur sín einkar vel við þessar aðstæður. Það sama má segja um textann sjálfan. Ást Þorvaldar á stirðum og „bóklegum“ samtölum, t.d. eins og þau hljómuðu í útvarpsleikritum af ómerkilegra taginu á uppvaxtar- árum hans, er ein höfuðuppspretta stílsins sem einkennir sviðsverk hans en þó enn frekar Vasaleikhús- textana. Til að miðla þessu efni þarf að feta nokkuð þröngt einstigi þar sem helsti vegvísirinn er kannski einhverskonar „innblásin flatneskja“. Ekki alveg fjarskylt innblæstrinum sem Ionesco sótti í enskukennslubækur þegar hann setti saman Sköllóttu söngkonuna. Þetta einstigi feta þau Arndís Hrönn Egilsdóttir, Atli Rafn Sig- urðarson, Baldur Trausti Hreins- son, Eggert Þorleifsson, Guðrún S. Gísladóttir og Ilmur Kristjáns- dóttir nánast alltaf af stakri fimi í sínum fjölmörgu hlutverkum. Það liggur við að stundum hefði verið gaman að sjá stílnum ögrað meira. Önnur nálgun en hin viðtekna og sjálfsagða hefði verið prófuð, svona af því sýningin er í og með ein- hverskonar endurmat á höfundar- verki skáldsins. Mögulega hefði reynslumeiri leikstjóri en Finnur gengið lengra í þessa átt. En auð- vitað má vera að það hafi einmitt verið reynt og niðurstaðan orðið þessi, og svo á maður auðvitað að fara varlega í að óska sér. Það er fullt öryggi í leikstjórnarlegum ákvörðunum sem sýningin byggist á. Leikmynd Finns Arnar er í þess- um sama anda, sótt beint í nálgun og hugmyndaheim höfundarins. Nytjahlutum safnað og unnið úr því tilviljanakennda efni sem þann- ig rak á fjörur leikhússins. Útkom- an engu að síður vel nothæf til að styðja við þær sögur sem segja átti. Bráðsnjallt að staðsetja áhorf- endur baksviðs megnið af sýning- unni, sem hjálpaði til við að skerpa meðvitund okkar fyrir því að alls óvíst er hvað er leikið og hvað raunveruleiki. Eins þakklátt þegar við fáum loksins að sjá inn á „sviðið sjálft“ í viðamesta atriði sýning- arinnar þar sem við fáum að sjá þann stjörnuleik hjá Eggert Þor- leifssyni sem alltaf má reikna með. Dæmigerður Þorvaldarkarakter sem heldur dauðahaldi í frosin samskiptamynstur til að reyna að halda aftur af sálarmyrkrinu og of- beldinu undir niðri. Og morðfyndið vitaskuld. Búningar Þórunnar Maríu Jóns- dóttur eru trúir grunnhugmynd- inni, samtíningslegir og banal og fyrir vikið hárréttir. Hljóðmynd Péturs Ben og Elvars Geirs Sæv- arssonar flott, ekki síst gítarhetju- númerið undir eintalinu úr And Björk, of Course… Megasarlögin meistaraleg. Engillinn er þörf áminning um þann magnaða fjársjóð frumleika og andagiftar sem verk Þorvaldar Þorsteinssonar eru. Heimspekileg absúrdrevía sem kætir, kitlar og kemur við okkur. Næst hlýtur að þurfa að taka til fullrar endurtúlk- unar hans viðamestu og lífvænleg- ustu sviðsverk. Maríusögur og And Björk, of Course… væru efst á mínum óskalista. Heimspekileg absúrdrevía Ljósmynd/Saga Sig. Fjársjóður „Engillinn er þörf áminning um þann magnaða fjársjóð frumleika og andagiftar sem verk Þorvaldar Þorsteinssonar eru. Heimspekileg absúrdrevía sem kætir, kitlar og kemur við okkur,“ segir í rýni. Þjóðleikhúsið Engillinn bbbbn Leiksýning byggð á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar. Leikstjórn, handrit og leikmynd: Finnur Arnar Arnarson. Dramatúrg: Gréta Kristín Ómarsdóttir. Aðstoðarleikmyndahönnuður: Þórarinn Blöndal. Búningar: Þórunn María Jóns- dóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Tónlist: Pétur Ben og Elvar Geir Sævars- son. Hljóðmynd: Kristján Sigmundur Einarsson og Elvar Geir Sævarsson. Sýningastjórn og umsjón, og þátttak- andi í sýningu: Guðmundur Erlingsson og Tómas Baldursson. Leikarar: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Atli Rafn Sigurðar- son, Baldur Trausti Hreinsson, Eggert Þorleifsson, Guðrún S. Gísladóttir og Ilmur Kristjánsdóttir. Frumsýning í Kassanum í Þjóðleikhúsinu laugardag- inn 21. desember 2019. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Shakespeare verður ástfanginn (stóra sviðið) Lau 28/12 kl. 19:30 13. sýn Fös 3/1 kl. 19:30 14.sýn Sun 12/1 kl. 19:30 15. sýn Hrífandi og skemmtileg stórsýning fyrir áhorfendur á öllum aldri Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn) Lau 28/12 kl. 19:30 20. sýn Fös 3/1 kl. 19:30 21.sýn Sun 12/1 kl. 19:30 22. sýn Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga Atómstöðin (Stóra Sviðið) Sun 29/12 kl. 19:30 9. sýn Fim 9/1 kl. 19:30 síðustu sýningar Fim 2/1 kl. 19:30 síðustu sýningar Sun 19/1 kl. 19:30 síðustu sýningar Nýtt og framsækið leikverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins Halldórs Laxness Engillinn (Kassinn) Fös 27/12 kl. 19:30 2.sýn Sun 5/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 11/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 4/1 kl. 19:30 3.sýn Fös 10/1 kl. 19:30 5.sýn Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson Meistarinn og Margarita (Stóra Sviðið) Fös 27/12 kl. 19:30 2. sýn Sun 5/1 kl. 19:30 4. sýn Lau 11/1 kl. 19:30 6. sýn Lau 4/1 kl. 19:30 3. sýn Fös 10/1 kl. 19:30 5. sýn Fim 16/1 kl. 19:30 7. sýn Hnyttin háðsádeila, gædd myrkum töfrum Eyður (Stóra Sviðið) Mið 15/1 kl. 19:30 Frums Mán 20/1 kl. 19:30 2. sýn Sviðslistahópurinn Marmarabörn Þitt eigið leikrit II (Kúlan) Fös 14/2 kl. 18:00 Frums Sun 16/2 kl. 15:00 3.sýn Sun 23/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 15/2 kl. 15:00 2.sýn Lau 22/2 kl. 15:00 4.sýn Hvert myndir þú fara? Þú mátt velja núna! Dansandi Ljóð - Leikhúslistakonur 50+ (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 18/1 kl. 20:00 Fös 24/1 kl. 20:00 Sun 19/1 kl. 16:00 Sun 26/1 kl. 16:00 Kynngikraftur kvenna birtist í leiklist, ljóðum og tónlist leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Sex í sveit (Stóra sviðið) Fös 27/12 kl. 20:00 34. s Sun 5/1 kl. 20:00 38. s Lau 25/1 kl. 20:00 42. s Lau 28/12 kl. 20:00 35. s Fös 17/1 kl. 20:00 39. s Sun 26/1 kl. 20:00 43. s Fös 3/1 kl. 20:00 36. s Lau 18/1 kl. 20:00 40. s Lau 4/1 kl. 20:00 37. s Fös 24/1 kl. 20:00 41. s Sprenghlægilegur gamanleikur! Matthildur (Stóra sviðið) Lau 28/12 kl. 13:00 79. s Sun 5/1 kl. 13:00 81. s Lau 18/1 kl. 13:00 83. s Sun 29/12 kl. 13:00 80. s Sun 12/1 kl. 13:00 82. s Sun 19/1 kl. 13:00 Lokas. Allra síðustu aukasýningarnar í janúar. Eitur (Litla sviðið) Fös 27/12 kl. 20:00 24. s Lau 28/12 kl. 20:00 25. s Sun 29/12 kl. 20:00 Lokas. Takmarkaður sýningartími, sýningum lýkur í desember. Vanja frændi (Stóra sviðið) Lau 11/1 kl. 20:00 Frums. Fim 16/1 kl. 20:00 4. s Fim 23/1 kl. 20:00 7. s Sun 12/1 kl. 20:00 2. s Sun 19/1 kl. 20:00 5. s Fim 30/1 kl. 20:00 8. s Mið 15/1 kl. 20:00 3. s Mið 22/1 kl. 20:00 6. s Sun 2/2 kl. 20:00 9. s Er líf okkar andlegt frjálst fall? Helgi Þór rofnar (Nýja sviðið) Fös 17/1 kl. 20:00 Frums. Fös 24/1 kl. 20:00 3. s Sun 26/1 kl. 20:00 5. s Lau 18/1 kl. 20:00 2. s Lau 25/1 kl. 20:00 4. s Fös 31/1 kl. 20:00 6. s Lífið getur verið svo niðurdrepandi! Um tímann og vatnið (Stóra sviðið) Þri 14/1 kl. 20:00 5. s Þri 21/1 kl. 20:00 6. s Kvöldstund með listamanni. Skjáskot (Nýja sviðið) Þri 21/1 kl. 20:00 3. s Þri 11/2 kl. 20:00 4. s Kvöldstund með listamanni. Club Romantica (Nýja sviðið) Fös 27/12 kl. 20:00 18. s Lau 28/12 kl. 20:00 19. s Sun 29/12 kl. 20:00 20. s Allra síðustu sýningar. Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Sólveig Thoroddsen fagnar útgáf- unni á nýjum hljómdiski sínum, sem nefnist Snotrur, í Mengi við Óðins- götu í dag, föstudag, kl. 17. „Á diskinum syngur Sólveig og leikur á tvenns konar hörpur, kelt- neska og ítalska barokkhörpu. Auk þess leikur hún á kantele. Disk- urinn inniheldur mestmegnis þjóð- lög og dægurlög á ýmsum tungu- málum. Í fögnuðinum kynnir Sólveig diskinn og syngur nokkur lög,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Sólveig lærði fyrst að spila á keltneska hörpu samkvæmt írskri hefð og æfði sig að syngja með, lauk svo prófi frá Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar í klass- ískum hörpuleik. Í framhaldinu fór hún til frekara náms á klassíska Snotrum fagnað með tónum í Mengi Hörpuleikari Sólveig Thoroddsen. hörpu í Cardiff í Wales og tók svo masterspróf í leik á sögulegar hörpugerðir í þýsku borginni Bremen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.