Morgunblaðið - 27.12.2019, Page 30
30 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019
England
Everton – Burnley ................................... 1:0
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn
fyrir Everton.
Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á
hjá Burnley á 68. mínútu.
Tottenham – Brighton ............................. 2:1
Bournemouth – Arsenal .......................... 1:1
Aston Villa – Norwich .............................. 1:0
Chelsea – Southampton........................... 0:2
Crystal Palace – West Ham .................... 2:1
Sheffield United – Watford ..................... 1:1
Manchester Utd – Newcastle.................. 4:1
Leicester – Liverpool............................... 0:4
Staðan:
Liverpool 18 17 1 0 46:14 52
Leicester 19 12 3 4 41:18 39
Manch.City 18 12 2 4 50:20 38
Chelsea 19 10 2 7 33:27 32
Sheffield Utd 19 7 8 4 23:17 29
Manch.Utd 19 7 7 5 30:23 28
Wolves 18 6 9 3 26:22 27
Tottenham 18 7 5 6 32:26 26
Crystal Palace 19 7 5 7 17:21 26
Newcastle 19 7 4 8 19:28 25
Arsenal 19 5 9 5 25:28 24
Burnley 19 7 3 9 23:30 24
Everton 19 6 4 9 21:29 22
Southampton 19 6 3 10 23:37 21
Brighton 18 5 5 8 21:26 20
Bournemouth 19 5 5 9 20:26 20
West Ham 18 5 4 9 20:30 19
Aston Villa 19 5 3 11 25:33 18
Watford 19 2 7 10 12:33 13
Norwich 19 3 3 13 19:38 12
B-deild:
Cardiff – Millwall .................................... 1:1
Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 73 mín-
úturnar fyrir Millwall.
Staða efstu liða:
WBA 24 14 9 1 47:25 51
Leeds 24 14 5 5 36:16 47
Preston 24 12 5 7 36:27 41
Brentford 24 12 4 8 37:19 40
Ítalía
B-deild:
Entella – Spezia ....................................... 0:0
Sveinn Aron Guðjohnsen fór af velli í
uppbótartíma hjá Spezia.
KNATTSPYRNA
Enski boltinn á Síminn Sport
Wolves – Manchester City................... 19.45
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
Þýskaland
Göppingen – Kiel ................................. 26:27
Gísli Þorgeir Kristjánsson lék ekki með
Kiel vegna meiðsla.
Lemgo – Erlangen............................... 34:32
Bjarki Már Elísson skoraði 14 mörk fyr-
ir Lemgo.
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.
Bergischer – RN Löwen ..................... 26:29
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk
fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson
skoraði ekki.
Alexander Petersson skoraði 4 mörk fyr-
ir Löwen. Kristján Andrésson þjálfar liðið.
Melsungen – Balingen ........................ 36:23
Oddur Gretarsson skoraði ekki fyrir
Balingen.
Hannover-Burgdorf – Stuttgart ....... 32:19
Elvar Ásgeirsson skoraði ekki fyrir
Stuttgart.
Wetzlar – Ludwigshafen .................... 26:23
Viggó Kristjánsson skoraði 2 mörk fyrir
Wetzlar.
Nordhorn – Magdeburg ..................... 21:27
Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn.
B-deild:
Hamm – Bietigheim ............................ 33:36
Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim.
Lübeck-Schwartau – Krefeld ............ 30:23
Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði 1
mark fyrir Lübeck-Schwartau.
Hamburg – Ferndorf .......................... 20:24
Aron Rafn Eðvarðsson varði 6 skot í
marki Hamburg.
Svíþjóð
Helsingborg – Kristianstad................ 28:30
Teitur Örn Einarsson skoraði 5 mörk
fyrir Kristianstad og Ólafur Andrés Guð-
mundsson 2.
Redbergslid – Alingsås....................... 25:25
Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir
Alingsås.
Evrópudeildin
Alba Berlín ........................................... 81:56
Martin Hermannsson var stigahæstur
hjá Alba Berlín með 18 stig og gaf auk þess
3 stoðsendingar.
NBA-deildin
Toronto – Boston.............................. 102:118
Philadelphia – Milwaukee................ 121:109
Golden State – Houston................... 116:104
LA Lakers – LA Clippers................ 106:111
Denver – New Orleans..................... 100:112
KÖRFUBOLTI
ENSKI BOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Spurningin virðist vera hvenær,
en ekki hvort Liverpool verður
enskur meistari í fótbolta á tíma-
bilinu eftir þriggja áratuga bið. Lið-
ið vann enn og aftur í ensku úrvals-
deildinni í gærkvöldi, og það
sannfærandi á útivelli gegn Leicest-
er sem situr í öðru sæti, 4:0. Sig-
urinn hefði getað orðið enn stærri,
en því betri sem andstæðingurinn
er, því betur virðist Liverpool spila.
Liðið gerir nóg gegn minni spá-
mönnum og sýna svo sparihliðarnar
í stóru leikjunum. Það er erfitt að
sjá nokkurt lið stöðva hraðferð Liv-
erpool í áttina að Englands-
meistaratitlinum.
Leicester virtist mæta Liverpool
á góðum tímapunkti, þar sem topp-
liðið fór til Katar í síðustu viku að
spila í heimsbikar félagsliða. Það
var ekki að sjá ryð hjá lærisveinum
Jürgen Klopp, þar sem það var með
ólíkindum að staðan væri bara 1:0 í
hálfleik. Liverpool skapaði sér hvert
góða færið á fætur öðru og að lokum
átti Leicester einfaldlega engin
svör. Trent Alexander-Arnold er
orðinn einn besti bakvörður heims.
Hann lagði upp tvö mörk og skoraði
svo fjórða markið sjálfur til að full-
komna magnaðan leik.
Liverpool á leik til góða og getur
því náð sextán stiga forskoti á keppi-
nauta sína. Staðan er svo góð að
meira að segja svartsýnustu menn
eru væntanlega farnir í það minnsta
að íhuga að setja kampavínið inn í
kæli. Haldi Liverpool áfram að spila
líkt og liðið gerði í gær, mun ekkert
lið komast nálægt liðinu þegar upp
er staðið.
Leicester hefur sýnt í síðustu
tveimur leikjum að liðið er klassa
fyrir neðan Manchester City og Liv-
erpool og getur Brendan Rodgers
farið að einbeita sér að því að ná einu
af fjórum efstu sætunum, sem væri
samt sem áður magnaður árangur.
United í miklu stuði
Manchester United átti einn sinn
besta leik á tímabilinu er liðið keyrði
algjörlega Newcastle á heimavelli og
vann að lokum 4:1-sigur. Matt Long-
staff skoraði sitt annað mark á ferl-
inum og sitt annað mark gegn Unit-
ed er hann kom Newcastle yfir
snemma leiks, en United svaraði af
miklum krafti og hefði sigurinn get-
að orðið miklu stærri. Sigurinn var
afar kærkominn hjá United, þar sem
liðið hefur átt í miklum erfiðleikum
með liðin fyrir neðan sig.
Lærisveinar Ole Gunnars Sol-
skjær eru komnir í heljarinnar bar-
áttu um sæti í Meistaradeild Evrópu
þar sem Chelsea og Sheffield United
misstigu sig bæði. United er nú með
28 stig, aðeins fjórum minna en
Chelsea, sem er í fjórða sæti. Che-
lesa hefur tapað þremur af síðustu
fjórum og haldi United-menn áfram
á sigurbraut á næstu vikum, gæti
fjórða sætið orðið þeirra innan
skamms.
Ancelotti byrjar vel
Carlo Ancelotti fer vel af stað með
Everton. Liðið vann 1:0-sigur á
Burnley á heimavelli og spilaði Gylfi
Þór Sigurðsson allan leikinn. Jóhann
Berg Guðmundsson lék síðustu 20
mínúturnar með Burnley, hans
fyrstu mínútur í deildinni í rúma tvo
mánuði vegna meiðsla. Everton var
miklu sterkari aðilinn og lék Gylfi
Þór mjög vel á miðjunni. Leikurinn
gefur góð fyrirheit fyrir það sem
koma skal hjá Ancelotti og Everton.
Mikel Arteta fer ekki eins vel af
stað með Arsenal. Hann var á hliðar-
línunni í fyrsta skipti er liðið gerði
1:1-jafntefli við Bournemouth á úti-
velli. Arsenal var miklu meira með
boltann, en leikmenn liðsins eru
sennilega búnir að gleyma hvernig á
að vinna fótboltaleiki. Arsenal er að-
eins með einn sigur í síðustu fjórtán
leikjum og á Arteta mikið verk fyrir
höndum.
Spurning
hvenær en
ekki hvort?
Liverpool ekki í neinum vandræðum
með Leicester Forskotið orðið 13 stig
AFP
Óstöðvandi Trent Alexander-Arnold skoraði eitt og lagði upp tvö.
Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði
Böðvarsson hefur unnið sér sæti í
byrjunarliði Millwall og var á sínum
stað í gær þegar liðið fór til Wales
og heimsótti Cardiff City í ensku B-
deildinni í knattspyrnu. Liðin gerðu
1:1 jafntefli og lék Jón fyrstu 73 mín-
úturnar. Millwall gengur betur en
búist var við fyrir tímabilið og er í
12. sæti eftir 24 leiki. Liðið hefur að-
eins tapað sex sinnum en hefur hins
vegar gert tíu jafntefli. Úrslitin í
gær komu ef til vill ekki á óvart þar
sem Cardiff hafði einnig gert níu
jafntefli fyrir leikinn.
Enn eitt jafnteflið
hjá Millwall
Morgunblaðið/Eggert
Jafnt Jón Daði Böðvarsson var á
ferðinni með Millwall.
Spænsku meistararnir í Barcelona
náðu ekki að vinna Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu á árinu frek-
ar en síðustu ár en liðið náði þó
þeim áfanga að fara í gegnum árið
án þess að tapa heimaleik.
Mun þetta vera í sjöunda skipti í
sögu félagsins sem Börsungar fara
í gegnum almanaksár án þess að
tapa á Nývangi.
Fyrst var það árið 1957 en það er
einmitt sama ár og Camp Nou-
leikvangurinn var tekinn í notkun.
Hin ártölin sem um ræðir eru
1959, 1968, 1974, 1975 og 2011.
Barcelona tapaði
ekki heimaleik
AFP
Sáttir Luis Suárez og Antoine
Griezmann fagna marki.
Bjarki Már Elísson hefur átt magn-
að tímabil í þýsku 1. deildinni í hand-
bolta og átti hann enn og aftur stór-
leik í gær er Lemgo hafði betur gegn
Erlangen á heimavelli, 34:32.
Bjarki var óstöðvandi og skoraði
14 mörk og var frammistaða hans
helsta ástæða þess að Lemgo fagn-
aði sigri. Bjarki hefur verið á meðal
allra markahæstu manna frá því
tímabilið hófst og skoraði 13 mörk í
deildarleik fyrr í vetur.
Lemgo er í 13. sæti með 14 stig en
Erlangen, sem Aðalsteinn Eyjólfs-
son þjálfar, er í 10. sæti með 16 stig.
Íslendingar áttust við þegar
Rhein-Neckar Löwen vann útisigur
gegn Bergischer 29:26. Fimm mörk
frá Arnóri Þór Gunnarssyni fyrir
heimaliðið dugðu ekki til sigurs. Al-
exander Petersson, sem að öllum lík-
indum mun leika með íslenska lands-
liðinu á ný á EM í janúar, skoraði
fjögur mörk fyrir Löwen. Kristján
Andrésson stýrir RN Löwen sem er
í 5. sæti en Bergischer í 12. sæti.
Kiel og Hannover Burgdorf eru
efst og jöfn með 30 stig. Gísli Krist-
jánsson leikur með Kiel en er á
sjúkralistanum vegna axlarmeiðsla.
Núverandi meistarar í Flensburg
eru einnig með 30 en hafa leikið ein-
um leik fleira.
Viggó Kristjánsson skoraði 2
mörk fyrir Wetzlar sem vann Lud-
wigshafen 26:23.
Ljósmynd/tbv-lemgo-lippe.de
Markahæstur Bjarki Már Elísson svífur inn úr horninu hjá Lemgo.
Bjarki Már fór
hamförum
Skoraði 14 mörk í sigurleik