Morgunblaðið - 27.12.2019, Síða 40
Hljómsveitin Árstíðir heldur árlega
hátíðartónleika í Fríkirkjunni í
Reykjavík í kvöld og hefjast þeir kl.
21. Eins og undanfarin ár leika fé-
lagarnir frumsamin lög af öllum
breiðskífum Árstíða í bland við há-
tíðar- og jólalög úr ýmsum áttum.
Sveitin er nýkomin úr mánaðar-
löngu ferðalagi um Evrópu þar
sem leikið var í 10 löndum.
Árlegir hátíðartón-
leikar Árstíða í kvöld
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 361. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„En það er ekki fundað sérstaklega
um lífernið í kringum hátíðarnar.
Menn í þessum gæðaflokki eru ekki
í neinu rugli og þeim er treyst til að
borða almennilega,“ segir Martin
Hermannsson, atvinnumaður í
körfuknattleik, meðal annars í við-
tali í blaðinu í dag. Leikjaálagið set-
ur svip sinn á hátíðahöldin hjá Ís-
lendingnum í Berlín. »31
Ekki sérstakar reglur
varðandi jólasteikina
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Jóel Kristjánsson, 17 ára húsasmíða-
nemi í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti, var efstur íslenskra nemenda í
evrópskri ræðukeppni í sölu-
mennsku, „European Voice of Sa-
les“, sem fram fór á Ítalíu fyrir
skömmu. Þar með tryggði hann sér
þátttökurétt í úrslitakeppninni í
Noregi í maí á næsta ári. „Þetta var
skemmtilegt, gaman var að verða
efstur og ég hlakka mikið til úr-
slitakeppninnar,“ segir hann.
FB tekur þátt í fjölmörgum al-
þjóðlegum verkefnum og á í sam-
starfi við margar Evrópuþjóðir.
Fyrrnefnt verkefni, sem er í anda
frumkvöðlabúða, er alfarið greitt af
Erasmus+ og er til tveggja ára. Það
hófst í Finnlandi og hefur síðan ver-
ið í Portúgal og á Ítalíu, verður á Ís-
landi í mars og lýkur í Noregi í vor.
Þrír nemendur í FB hafa verið
valdir til þátttöku í frumkvöðlabúð-
unum á hverjum stað. Jóel, Axel Örn
Arnarson á húsasmiðabraut og
Kristín Nicole Canada á opinni
braut, sem öll eru 17 ára, voru í hópi
15 keppenda við Como-vatn, en
ásamt þeim voru nemendur frá fyrr-
nefndum þjóðum auk kennara í
hópnum.
Lærdómsríkt
Ágústa Unnur Gunnarsdóttir, al-
þjóðafulltrúi FB, og Ásgerður
Bergsdóttir íslenskukennari voru ís-
lensku nemendunum til halds og
trausts. Ágústa segir að verkefnið
felist í því að heimsækja frumkvöðla
og nemendur fái síðan tengda „vöru“
til að „selja“ fjölmennum hópi áheyr-
enda í tveggja mínútna ræðu. Á Ítal-
íu hafi þau heimsótt glæsilegt fimm
stjarna hótel og skoðað sig um í
verslun þess sem selji einungis 100%
náttúrulega vænar vörur. Þau hafi
síðan hitt ungan frumkvöðul sem
hafi meðal annars náð langt í tísku-
bransanum. Hann hafi frætt þau um
starfið og í kjölfarið hafi þau fengið
það verkefni að sannfæra dómara í
tveggja mínútna langri ræðu um að
selja bæri tiltekna 100% náttúrulega
væna vöru í lúxusverslun hótelsins.
„Það er ekki sjálfgefið fyrir 17 ára
krakka að standa frammi fyrir hópi
fólks og sannfæra viðstadda um
ágæti einhverrar vöru á tveimur
mínútum,“ segir Ágústa. „Þetta er
áskorun og nemendur læra mikið af
þessu, þátttakan er mjög lærdóms-
rík.“
Jóel segir að árangurinn hafi kom-
ið sér á óvart þó að markmiðið hafi
verið að komast í úrslitakeppnina.
„Ég fékk það verkefni að selja tösku
úr fiskiroði,“ segir hann um ræðuna.
Bætir við að hann hafi fengið verk-
efnið daginn fyrir flutninginn og því
bara kynnt sér viðfangsefnið þar. „Í
raun er ekkert hægt að undirbúa sig
nema æfa sig í að tala fyrir framan
fólk. Þetta snýst um að hafa sjálfs-
traust og tala skýrt.“
Búðirnar á Íslandi verða 2.-6.
mars og þegar þessu verkefni lýkur í
vor er stefna FB að halda áfram á
sömu braut.
Ljósmynd/Ágústa Unnur Gunnarsdóttir
Við Como-vatn Axel Örn Arnarson, Kristín Nicole Canada og Jóel Kristjánsson, nemendur í FB.
Sannfærandi sölumaður
Jóel Kristjánsson, 17 ára húsasmíðanemi í FB, efstur ís-
lenskra nemenda í evrópskri ræðukeppni og komst í úrslit
ER HAFIN!
ALLT AÐ
70%
AF
VÖLDUM VÖRUM
27. des. - 6. feb.
Útsalan
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
Virkir dagar 11-18:30 og helgar 12-18
LOKAÐ 31. desember og 1. janúar
Tónlistarmaðurinn Auður kemur
fram ásamt fjögurra manna hljóm-
sveit sinni á tvennum tónleikum í
Gamla bíói í kvöld, 27. desember, og
hefjast þeir klukkan 19.30 og 22.
Auður gaf út sína aðra hljómplötu,
Afsakanir, fyrir rúmlega
ári og var hún valin
plata ársins á Ís-
lensku tónlist-
arverðlaununum.
Hefur Auður fylgt
plötunni og nýjum
lögum eftir með
tónleikum víða
um land á árinu
sem er að líða, auk
þess sem hann
kom fram á Hróars-
keldu í Danmörku
í sumar.
Auður kemur fram í
Gamla bíói í kvöld