Morgunblaðið - 28.12.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019
Dolorin
Hita- og verkjastillandi paracetamól
Á HAGSTÆÐUVERÐI!
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli
fyrir notkun lyfsins.
Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari
upplýsingumumáhættuogaukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Þú færð
Dolorin í næsta
apóteki
Dolorin500mg
paracetamól töflur -
20stkog30stk
Mannskepnan er sem betur fer þannig gerð að hún
grípur hvert tækifæri til að sprella og jólin eru ein-
mitt kjörið tækifæri til að bregða sér í búning og
hafa gaman. Sumir fara í jólasveinabúning, aðrir
fara í hátíðarskrúða og blessa fanga sem ekki njóta
frelsis um jólin. Svo eru þeir sem skella sér í ein-
hvern allt annan búning í tilefni jólanna. Fjöldi
fólks sækir stíft að komast í vatn um jólin, ýmist í
saltan sjó eða ískaldar ár, til að kæla sig niður, sýna
hetjudáð eða einfaldlega njóta þess að gera eitthvað
annað en kýla vömb sína út af mat. Blessaðar
skepnurnar fá sumar líka jólapakka og góðgæti í
tilefni hátíðanna. Að gera sér dagamun er góður
siður.
Konungur fuglanna Gullörn í nálægð við jólatré í Kirgistan. Kafað Jólasveinn og engill köfuðu meðal fiska á safni í Berlín.Rimlar Jólamessa var fyrir vistmenn í fangelsi í Los Angeles.
Í netsokkum Margir tóku þátt í árlegri sundkeppni í jólasveinabúningi við höfn í Barcelona. Góðgæti Þeir voru spenntir fyrir jólapakkanum aparnir í Frakklandi og opnuðu hann sjálfir.
AFP
Ég kveiki á kertum mínum Barn í búningi kveikir á kertum í kirkju í Am-
ritsar á Indlandi á jóladag. Að baki vakir yfir Guðsmóðirin María mey.
Margt er brallað yfir
hátíðirnar um veröld víða