Fréttablaðið - 27.11.2002, Síða 4
4 27. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
Á UPPLEIÐ Á NÝ
Jörg Haider, fyrir miðri mynd, ætlar sér
stærri hluti í Frelsisflokknum á ný eftir að
hann hætti við að hætta í stjórnmálum.
Jörg Haider hættur við að
hætta:
Hreinsar til í
flokknum
VÍN, AP Eftir að Jörg Haider,
fyrrverandi leiðtogi Frelsis-
flokksins í Austurríki, ákvað að
hætta við að hætta í stjórnmálum
virðist sem hann ætli sér að taka
sér öll völd í flokknum á ný. Hóf-
samir flokksfélagar hafa verið
beðnir að segja af sér trúnaðar-
störfum fyrir flokkinn.
Eftir að flokkurinn beið afhroð
í kosningum á sunnudaginn sagð-
ist Haider ætla að hætta sem
landsstjóri í Kärnten, sem er eitt
sambandslanda Austurríkis. Hann
viðurkenndi að hann ætti senni-
lega stærsta sök á þessu tapi og
sagði eðlilegast að hætta í stjórn-
málum í framhaldi af því.
Fáeinum klukkustundum síðar
sagði hann flokksfélaga sína hafa
lagt hart að sér að hætta ekki.
Hann hafi orðið við þeirri ósk.
Í framhaldi af því voru fimm
háttsettir flokksfélagar beðnir að
segja af sér. Þeir eiga það sameig-
inlegt að vera töluvert hófsamari í
skoðunum en Haider, sem frægur
er að endemum fyrir að hrósa Ad-
olf Hitler og tala illa um útlend-
inga. ■
Segir ásakanirnar
vera alveg fráleitar
Meintur flugræningi segist hafa verið taugaóstyrkur og lent í deilum við
flugfreyju. Sér hafi aldrei dottið í hug að ræna flugvélinni og fljúga
henni á háhýsi í Ísrael. Hann hafi aldrei áður stigið upp í flugvél og sé
ekki einu sinni með bílpróf.
JERÚSALEM, AP Tawfiq Fukra segir
fráleitt að hann hafi ætlað sér að
ræna ísraelskri farþegaflugvél,
sem var á leiðinni frá Tel Aviv í
Ísrael til Istanbúl í Tyrklandi í síð-
ustu viku. Hann segist hafa verið
taugaóstyrkur, staðið upp fyrir
lendingu og lent í deilum við flug-
freyju. Samstund-
is hafi öryggis-
verðir ráðist á sig.
Hann segir að
flugfreyjan hafi
æpt á sig. „Ég
öskraði til baka og
öryggisverðirnir
börðu mig. Ég féll niður og man
ekkert meira eftir því sem
gerðist.“
Fukra er 23 ára arabi, búsettur
í Ísrael. Hann er sakaður um að
hafa ætlað að brjótast inn í flug-
stjórnarklefann, taka að sér
stjórn flugvélarinnar og fljúga
henni á háhýsi í Tel Aviv.
„Ég er ekki einu sinni með öku-
skírteini. Hvernig ætla þeir þá að
láta mig fljúga flugvél?“ spyr
Fukra í viðtali sem birtist í gær í
ísraelska dagblaðinu Haaretz.
Hann segir þetta hafa verið í
fyrsta sinn sem hann steig um
borð í flugvél. Hann viðurkennir
að hafa verið taugaóstyrkur og
pirraður eftir langa yfirheyrslu á
flugvellinum í Tel Aviv. Nærri all-
ir arabar og margir útlendingar
að auki þurfa að ganga í gegnum
tímafrekar öryggisráðstafanir á
flugvellinum.
Öryggisverðirnir segja hann
hafa dregið upp hníf. Hann viður-
kennir að hafa verið með lítinn
vasahníf á sér, en man ekki hvort
hann hélt á honum.
Fukra segist ekki vera meðlim-
ur í neinum herskáum samtökum
múslima í Ísrael. Hins vegar hafi
hann barist fyrir því í háskólan-
um, þar sem hann stundar nám, að
arabar búsettir í Ísrael fái aukin
réttindi.
Fukra situr nú í fangelsi í Tyrk-
landi. Hann vill verða fluttur til
Ísraels og svara þar til saka. Ísra-
elsk stjórnvöld hafa þó ekki farið
fram á að hann verði framseldur.
Í yfirheyrslu við lendingu í
Tyrklandi játaði Fukra að hafa
ætlað að ræna flugvélinni og
fljúga henni á skýjakljúfa eins og
gert var í New York. Hann segist
hafa játað af ótta við tyrknesku
lögreglumennina sem yfirheyrðu
hann.
„Milli sjö og tíu menn voru að
yfirheyra mig,“ segir hann. „Þeir
beittu mig þrýstingi og hótuðu
mér og sögðust skera undan öllum
sem sýna þeim ekki samvinnu.
Svo ég sagði þeim hvað sem þeir
vildu heyra.“ ■
TAWFIQ FUKRA VIÐ HANDTÖKUNA Í ISTANBÚL
Hann segir tyrknesku lögreglumennina hafa hótað sér í yfirheyrslu, „svo ég sagði þeim
hvað sem þeir vildu heyra“.
KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR
Þótti langt að bíða í sex vikur eftir svari
forsætisráðherra við beiðni hennar um
utandagskrárumræðu.
Beiðni um umræðu:
Ósátt við að
fá engin svör
ALÞINGI Kolbrún Halldórsdóttir,
VG, gagnrýndi forsætisráðherra
við upphaf þingfundar fyrir að
hafa ekki svarað beiðni hennar
um að heimsþing Sameinuðu þjóð-
anna í Jóhannesarborg um sjálf-
bæra þróun yrði tekið til umræðu
utan dagskrár.
Kolbrún sagðist hafa beðið í
sex vikur eftir svari forsætisráð-
herra við beiðni sinni án þess að
fá nokkur viðbrögð. Sagðist hún
reiðubúin að draga beiðni sína til
baka gegn því að efnisleg umræða
færi fram um skýrslu umhverfis-
ráðherra um ráðstefnuna.
Um forsætisráðherra sagði
hún að lokum: „Ég ætla að leitast
við að fyrirgefa honum fyrir að
hunsa mig undanfarnar sex vik-
ur.“ ■
Fundur heimilislækna og
ráðherra í dag:
Eru að falla
á tíma
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisráð-
herra hefur boðað fulltrúa Félags
heimilislækna á sinn fund í há-
deginu í dag. Þórir Kolbeinsson,
formaður félagsins, sagði fyrir
helgi að læknar biðu átekta eftir
þessum fundi því á honum
myndu væntanlega fást svör við
þeim tillögum sem þeir lögðu
fyrir ráðherra snemma í síðustu
viku.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, sagði tímann vera að
renna frá mönnum og lýsti furðu
sinni á að helgin skyldi ekki vera
notuð til viðræðna. Til stóð að
ræða þetta mál á bæjarstjórnar-
fundi í Hafnarfirði sem hófst síð-
ari hluta dags í gær, þriðjudag.
Síðasti vinnudagur heilsu-
gæslulækna á Sólvangi er á
föstudag og ljóst að ef koma á í
veg fyrir læknaleysi í Hafnar-
firði eins og á Suðurnesjum
verða menn að nota tímann fram
að helgi vel. ■
Sorpeyðingarstöðin á Akranesi:
Áminntur fyrir
stuld á góðmálmi
ENDURVINNSLA Stjórnendur Akra-
neskaupstaðar hafa áminnt
starfsmann sorpeyðingarstöðvar-
innar Gámu í bænum fyrir að hafa
um nokkurra mánaða skeið hirt
góðmálma og selt í eigin þágu.
Gísli Gíslason bæjarstjóri sagði
að það hefði orðið niðurstaðan að
grípa ekki til róttækari aðgerða
gegn manninum.
„Við ákváðum að veita honum
formlega áminningu,“ segir Gísli.
Verðmæti þýfisins er metið á
330 þúsund krónur. Gísli segir að
það sé skoðun bæjarráðs að
manninnum beri að endurgreiða
þá upphæð en ekki sé búið að
ganga frá því máli.
Málið kom upp á fyrir
nokkrum vikum þegar inn-
leggskvittun frá Hringrás barst
óvart í hendur aðila sem lét bæj-
aryfirvöld vita. Í ljós kom að mað-
urinn hafði hirt kopar, ál og ryð-
frítt stál og selt í eigin reikning. ■
Enginn skortur á jólatrjám í ár:
Lifandi tré á öðru
hverju heimili
JÓLATRÉ „Nú ætlum við að gæta
okkur á því að flytja inn nóg af
trjám. Í fyrra seldust þau upp í
fyrsta sinn í 15 ár,“ segir Kristinn
Einarsson, framkvæmdastjóri
Blómavals, um jólatréssölu árs-
ins, sem brátt hefst. „Skýringin á
því að trén seldust upp í fyrra er
sú að Landgræðslusjóður hætti að
selja tré og við áttuðum okkur
ekki á því,“ segir Kristinn.
Markaðsrannsóknir sýna að
helmingur íslenskra heimila er
með lifandi jólatré yfir hátíðarn-
ar: „Hinn helmingurinn er annað
hvort með gervitré eða engin tré,“
segir Kristinn, sem býst við að
flutt verði inn um 30 þúsund tré
fyrir þessi jól. Afgangurinn sé svo
innlendur:
„Innlend tré eru miklu algeng-
ari úti á landsbyggðinni en í
Reykjavík. Í höfuðborginni áætl-
um við að 80 prósent heimila, sem
á annað borð eru með tré, séu með
innflutt jólatré en 20 prósent með
innlend. Úti á landi eru þessu
þveröfugt farið. Þar eru flestir
með innlend tré,“ segir fram-
kvæmdastjóri Blómavals. ■
TVÆR LÍKAMSÁRÁSIR Ráðist var
á karlmann á Selfossi. Árás-
armaðurinn fannst í miðbænum
skömmu síðar og viðurkenndi
verknaðinn. Sagði hann ástæð-
una að fórnarlambið hefði reynt
að aka bróður hans niður fyrir
um ári síðan. Þá var annar karl-
maður fluttur á heilsugæslustöð-
ina eftir líkamsárás. Ekki tókst
að bera kennsl á árásarmenn og
eru þeir ófundnir.
NÚMER INN UM LÚGUNA Maður
kom á lögreglustöðina á Selfossi
á sunnudagsmorgun með skrán-
ingarnúmer af bíl Hafði númer-
inu verið stungið inn um bréfa-
lúguna hjá honum en komst loks
til rétts eiganda.
KRISTINN Í BLÓMAVALI
30 þúsund tré á leið til landsins.
„Ég féll niður
og man ekkert
meira eftir því
sem gerðist.“
AKRANES
Umsjónarmaður sorpeyðingarstöðvarinnar
Gámu seldi í eigin þágu þá góðmálma
sem bárust í stöðina.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Finnst þér skipta máli að hlut-
ur kynjanna sé jafn á fram-
boðslistum?
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú að kaupa aðventukrans, búa
hann til eða sleppa slíku skrauti?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
Í FRAMBOÐI
Meirihluta finnst kyn
stjórnmálamanna ekki
skipta máli.
39,9%
58,5%
1,6%
Já
Veit ekki
Nei
AP
/G
ER
T
EG
G
EN
B
ER
G
ER