Fréttablaðið - 27.11.2002, Side 21
Rétt eins og ég dett í það aðhorfa á Glæstar vonir, kemur
það fyrir að ég festist við Djúpu
laugina á Skjá einum annað kast-
ið. Það er helst ef ég sit með dætr-
unum yfir sjónvarpi eða er ein á
fjarstýringarflippi. Þannig var
það á föstudaginn.
Ég hef lúmskt
gaman af að fylgj-
ast með spurning-
unum, sem mér
finnst oftast alveg
ótrúlega heimsku-
legar og sjaldnast
til þess fallnar að
varpa ljósi á per-
sónuleika viðkomandi eins og
þeim er ætlað. Enda skiptir það
víst litlu máli því mér skilst að
ábendingarnar komi utan úr sal
hver sé sætastur eða sætust.
Ég hef ekki getað séð annað en
þetta sé græskulaust gaman sem
krakkarnir taka þátt í og þeir hafa
skilað sínu með sóma...fram að
þessu. Ég kalla nú ekki allt ömmu
mína en ég sat opinmynnt og trúði
vart eigin augum. Stúlkukindin
sem lék aðalhlutverkið í ferðinni
helgina áður gekk aldeilis fram af
mér. Hún var sannarlega ekki
sjálfri sér né kynslóð sinni til
sóma. Pilturinn var hins vegar af
allt öðru sauðhúsi: myndarlegur,
greinilega vel upp alinn og kunni
sig. Ósköp fann ég til með honum
þegar þau sátu og voru að borða.
Hún púaði framan í hann síga-
rettureyk, drakk eins og bestía og
hrærði í matnum.
Taktlaust fannst mér með öllu
að hún skyldi sitja undir þessu í
sjónvarpssal eins og þetta væri
bara allt í góðu og það væri létt
fyndið að hegða sér svona.
Þessi uppákoma var ekki til
eftirbreytni og mér heyrist á unga
fólkinu sem ég umgengst að það
eigi létt með að skrifa undir þetta
með mér. ■
27. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
BÍÓMYNDIR
SJÓNVARPIÐ
7.00 70 mínútur
16.00 Pikk TV
17.02 Pikk TV
19.02 XY TV
20.30 X-strím
22.02 70 mínútur
23.10 Lúkkið
kallar ekki allt ömmu sína en fram af henni
gekk á föstudag þegar hún lét fara vel um
sig yfir Djúpu lauginni.
Bergljót Davíðsdóttir
Púaði sígarettureyk
Við tækið
SKJÁR EINN
POPPTÍVÍ
12.00 Dream a Little Dream (Dís
minna drauma)
14.00 Twelfth Night (Þrettánda-
kvöld)
16.10 Dudley Do-Right
18.00 A Fish Called Wanda (Fisk-
urinn Wanda)
20.00 Teaching Mrs. Tingle
(Kennum kennaranum)
22.00 Legal Eagles (Lagarefir)
0.00 Do the Right Thing (Rétt
skal vera rétt)
2.00 Next Stop, Wonderland
BÍÓRÁSIN
OMEGA
18.30 Innlit/útlit (e) í
19.30 Mótor
20.00 Guinness World Records
21.00 Fólk - með Sirrý ,,Fólk -
með Sirrý“, fjölbreyttur
þáttur í beinni útsendingu
í umsjón Sigríðar Arnar-
dóttur.
22.00 Law & Order
22.50 Jay Leno
23.40 Judging Amy (e)
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Disneystundin Otrabörnin,
Sígildar teiknimyndir og
Pálína.
18.54 Víkingalottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
20.05 Bráðavaktin (12:22) (ER)
Bandarísk þáttaröð um líf
og starf á bráðamóttöku
sjúkrahúss.
21.00 At Umsjón: Sigrún Ósk
Kristjánsdóttir og Vilhelm
Anton Jónsson. Dagskrár-
gerð: Helgi Jóhannesson
og Hjördís Unnur Másdótt-
ir.
21.35 Svona var það (10:27)
(That 70’s Show) Banda-
rísk gamanþáttaröð um
ungt fólk á áttunda ára-
tugnum. Þátturinn verður
endursýndur kl. 12.50 á
laugardag.
22.00 Tíufréttir
22.15 Handboltakvöld
22.30 Fjarlæg framtíð (9:16)
(Futurama) Bandarískur
teiknimyndaflokkur um
sendilinn Fry og sérkenni-
lega vini hans og ævintýrin
sem þau lenda í eftir þús-
und ár.
22.55 Geimskipið Enterprise
(10:26) (Enterprise)
23.45 Kastljósið Endursýndur
þáttur frá því fyrr um
kvöldið.
0.05 Dagskrárlok
SKJÁR 1 ÞÁTTUR KL. 22.00
LAW AND ORDER
Bandarískur þáttur um störf
rannsóknarlögreglumanna og
saksóknara í New York. Briscoe
og Curtis komast að því hver
keyrði bíl sem drap þrjá. En sak-
sóknari lendir í baráttu við metn-
að dómara sem ætlar sér að
komast langt í stjórnmálum með
því að gera sakborninginn að
fordæmi.
Sextán félög berjast um sigurinn
í Meistaradeild Evrópu. Liðunum
er skipt í fjóra riðla en eftir
þennan hluta
keppninnar tekur
við útsláttarfyrir-
komulag þar sem
leikið er heima og
heiman. Barcelona,
Valencia,
Manchester
United, AC Milan, Juventus,
Arsenal, Borussia Dortmund og
Real Madrid gekk vandræðalaust
að komast áfram.
19.30 Adrian Rogers
20.00 Kvöldljós
21.00 Bænastund
21.30 Joyce Meyer
22.00 Benny Hinn
22.30 Joyce Meyer
23.00 Robert Schuller
FYRIR BÖRNIN
SÝN
18.00 Sportið með Olís
18.30 Heimsfótbolti með West
Union
19.00 Fastrax 2002
19.30 Meistaradeild Evrópu
(Newcastle - Inter) Bein
útsending frá leik
Newcastle United og Inter
Milan.
21.40 Meistaradeild Evrópu
(Roma - Arsenal) Útsend-
ing frá leik Roma og
Arsenal.
23.30 Sportið með Olís
0.00 MAD TV (MAD-rásin)
Geggjaður grínþáttur þar
sem allir fá það óþvegið.
Þátturinn dregur nafn sitt
af samnefndu skopmynda-
blaði sem notið hefur mik-
illa vinsælda.
1.00 Emmanuelle 2 Erótísk kvik-
mynd. Stranglega bönnuð
börnum.
2.30 Dagskrárlok og skjáleikur
Á Breiðbandinu má finna 28 er-
lendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru 6
Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
STÖÐ 2
6.58 Ísland í bítið
9.00 Bold and the Beautiful
(Glæstar vonir)
9.20 Í fínu formi
(Styrktaræfingar)
9.35 Oprah Winfrey
10.20 Ísland í bítið
12.00 Neighbours (Nágrannar)
12.25 Í fínu formi (Þolfimi)
12.40 Three Sisters (5:16)
13.00 The Last of the Blonde
Bomb
14.25 Tónlist
15.00 Spænsku mörkin
16.00 Barnatími Stöðvar 2
Hundalíf, Nútímalíf Rikka,
Sesam, opnist þú
17.20 Neighbours (Nágrannar)
17.45 Fear Factor (1:9)
18.55 Víkingalottó
19.00 Ísland í dag, íþróttir og
veður
19.30 Einn, tveir og elda
20.00 Third Watch (19:22) (Næt-
urvaktin)
20.50 Panorama
20.55 Fréttir
21.00 Coupling (2:6) (Pörun)
21.30 The Mind of the Married
Man (3:10)
22.00 Fréttir
22.05 Curb Your Enthusiasm
(3:10)
22.35 Oprah Winfrey
23.25 The Last of the Blonde
Bomb
0.45 Six Feet Under (9:13)
1.40 Fear Factor (1:9)
2.25 Ísland í dag, íþróttir og veð-
ur
2.50 Tónlistarmyndbönd
Það er helst ef
ég sit með
dætrunum yfir
sjónvarpi eða
er ein á fjar-
stýringarflippi.
SÝN FÓTBOLTI KL. 19.00
MEISTARADEILD EVRÓPU
16.00 Barnatími Stöðvar 2
Hundalíf, Nútímalíf Rikka,
Sesam, opnist þú
18.00 Sjónvarpið
Disneystundin
6.00 Bíórásin
Twelfth Night
8.10 Bíórásin
Dudley Do-Right
10.00 Bíórásin
A Fish Called Wanda
12.00 Bíórásin
Dream a Little Dream
13.00 Stöð 2
Í þá gömlu góðu daga
14.00 Bíórásin
Twelfth Night
16.10 Bíórásin
Dudley Do-Right
18.00 Bíórásin
A Fish Called Wanda
20.00 Bíórásin
Teaching Mrs. Tingle
22.00 Bíórásin
Legal Eagles (Lagarefir)
23.25 Stöð 2
Í þá gömlu góðu daga
0.00 Bíórásin
Do the Right Thing
1.00 Sýn
(Emmanuelle 2)
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
Það er staðreynd að margir
Íslendingar lifa við fátækt
og sjá ekki fram á að geta keypt
í matinn í dag.
Í hverri viku leitar mikill fjöldi
fólks til Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur eftir aðstoð.
Mæðrastyrksnefnd útdeilir
matvöru og öðrum
nauðsynjum til skjólstæðinga
sinna, sem einstaklingar
og fyrirtæki hafa gefið
til nefndarinnar.
Án þessarar samstöðu
í samfélaginu myndu
margir líða skort.
Þar sem neyðin er mikil
skorar Mæðrastyrksnefnd
á alla Íslendinga að gefa matvæli,
hreinlætisvörur
og aðrar lífsnauðsynjar til
nefndarinnar.
Til að gefa þarf enga
sérfræðiþekkingu;
fátækt fólk þarfnast þess
sama og við hin.
Þegar þið kaupið næst til heimilisins,
kaupið einnig fyrir þá sem líða skort.
Farið með ykkar hluta heim
en komið hlut hinna fátæku
til Mæðrastyrksnefndar
á Sólvallagötu 48.
Þið þurfið ekki að gefa
mikið til að gera gagn.
Einn lítri af mjólk eða poki
af kartöflum hjálpar einum
einstaklingi; bíðið ekki þar
til þið getið mettað marga.
Mæðrastyrksnefnd tekur
á móti matvöru og öðrum
nauðsynjum á þriðjudögum
frá klukkan 13 til 18
og á miðvikudögum
frá klukkan 14 til 18.
Ef þú átt tvo poka
– gefðu náunga þínum annan ...
Tekið við matargjöfum á Sólvallagötu 48
á þriðjudögum frá kl. 13 til 18 og miðvikudögum frá kl. 14 til 18.
Á frett.is er hægt að sækja Fréttablaðið í dag á pdf-formi.
Þar er einnig hægt að nálgast eldri tölublöð Fréttablaðsins á frett.is.
Þú getur
sótt Fréttablaðið
þitt á frett.is
úti á landi
í vinnu
í útlöndum