Fréttablaðið - 28.12.2002, Page 4
4 28. desember 2002 LAUGARDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Kaupir þú flugelda um ára-
mótin?
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú á áramótabrennu á gamlárs-
kvöld?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
49%Nei
51%
ÁRAMÓT
Einungis rúmlega
helmingur að-
spurðra ætlar að
kaupa flugelda
fyrir gamlárskvöld.
Já
TRYGGINGAR Neytendasamtökin
krefjast þess að tryggingafélögin
hætti við boðaða hækkun á bruna-
tryggingum fasteigna. Samtökin
vísa rökum tryggingafélaganna
um slaka afkomu á bug og benda á
að hagnaður þeirra fyrstu níu
mánuði ársins sé ekki langt frá af-
komu á sama tímabili í fyrra.
Staða tryggingafélaganna hafi
greinilega styrkst á fyrstu níu
mánuðum ársins. Það sjáist, auk
hagnaðarins, á stækkun bótasjóða
félaganna. Þeir nemi nú um 50
milljörðum króna og hafi aukist
um 5 milljarða, eða 11%, á fyrstu
níu mánuðum ársins. Staða félag-
anna sé því talsvert betri en hún
sýnist vera og hluti bótasjóðanna
sé dulinn hagnaður.
Neytendasamtökin telja að ef
slæm afkoma í eignatryggingum
um þessar mundir gefi tilefni til
svo stórfelldra hækkana iðgjalda
sem boðaðar hafa verið, megi með
sömu röksemdum spyrja hvort
góð afkoma í öðrum tryggingum,
til dæmis í bifreiðatryggingum,
gefi ekki tilefni til stórlækkana á
iðgjöldum í þeim greinum. Á
þessu ári sé útlit fyrir mörg hund-
ruð milljón króna hagnað af rek-
stri bifreiðatrygginga samkvæmt
upplýsingum félaganna sjálfra.
Neytendasamtökin segja að
tryggingafélögin þurfi að gera
mun nákvæmari grein fyrir for-
sendum iðgjaldahækkana eigna-
trygginga en þau hafa þegar gert.
Þá verði Fjármálaeftirlitið að
kanna gaumgæfilega forsendur
þeirra hækkana sem boðaðar hafa
verið. Til þess hafi stofnunin ein-
staka stöðu. ■
REYKJAVÍK
Neytendasamtökin segja boðaðar hækkanir tryggingafélaga á brunatryggingum fasteigna
rakalausar og vilja að Fjármálaeftirlitið kanni forsendur hækkananna.
Neytendasamtökin hafna hækkunum brunatrygginga fasteigna:
Fjármálaeftirlitið kanni forsendur
ÖS Á ÚTSÖLUM
Eftir jól kaupa Bandaríkjamenn gjarnan
jólavörur á útsölum, þar sem verðið hefur
hríðlækkað. Þessi mynd er tekin í verslun-
inni Bloomingdale´s í New York.
Bandarískir kaupmenn
örvænta:
Óvenju
dræm jóla-
verslun
BANDARÍKIN Sumir bandarískir
hagfræðingar telja að jólaversl-
unin þar í landi þetta árið hafi
ekki verið tregari í þrjátíu ár. Út-
sölur eftir jólin hafa reyndar
stundum skilað kaupmönnum
drjúgum tekjum, en meira að
segja það virðist ætla að bregðast
í ár.
Bandaríkjamenn keyptu vörur
í smásölu fyrir nærri tíu milljarða
króna á tímanum frá þakkargjörð-
ardegi fram að jólum. Í fyrra nam
verslunin nærri ellefu milljörðum
króna.
Meira að segja á aðfangadegi
jóla, sem er aðalverslunardagur-
inn í Bandaríkjunum, dróst salan
saman um eitt prósent þetta árið. ■
Fíkniefni:
Átta ung-
menni
handtekin
LÖGREGLUMÁL Tvö fíkniefnamál
komu til kasta lögreglunnar í
Hafnarfirði á jólanótt. Átta ung-
menni á aldrinum 17 til 20 ára
voru handtekin en þau höfðu ver-
ið við neyslu fíkniefna. Við hand-
tökuna lagði lögreglan hald á
fíkniefni, tæki til neyslu, talsvert
af fjármunum og meint þýfi.
Málið telst að mestu upplýst og
var krökkunum sleppt að loknum
yfirheyrslum. ■
Reykjavík:
Færri ölvaðir
undir stýri
LÖGREGLUMÁL Töluvert hefur dreg-
ið úr ölvunarakstri í desember-
mánuði síðustu fjögur ár. Lög-
reglan í Reykjavík hefur staðið
fyrir miklu eftirliti í þessum
mánuði með það að markmiði að
draga úr ölvunarakstri. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Karli
Steinari Valssyni aðstoðaryfir-
lögregluþjóni voru 103 ökumenn
teknir grunaðir um ölvun á tíma-
bilinu 1. til 23. desember árið
1998. Þeim fækkaði í 89 árið
1999, 81 árið 2000, 64 árið 2001 og
í ár voru þeir 26 talsins. ■
INNBROT Í SÖLUTURN Brotist var
inn í söluturn á Bústaðavegi um
fimmleytið í fyrrinótt og þaðan
stolið tóbaki. Það var stjórnstöð
Securitas sem lét lögreglu vita af
innbrotinu. Þegar lögregla kom á
staðinn var innbrotsþjófurinn
farinn. Ekki er vitað hver var að
verki og unnið er að rannsókn
málsins.
HOLLYWOOD, AP Brigitte Boisseli-
er, bandarískur efnafræðingur,
segir að einræktað stúlkubarn
hafi fæðst á fimmtudaginn. Full-
yrðingum hennar hefur þó verið
tekið með varúð.
Barnið hefur fengið nafnið
Eva. Boisselier segist hafa ein-
ræktað stúlkuna með frumum úr
móður hennar, þrítugri banda-
rískri konu.
„Barninu heilsast mjög vel,“
sagði Boisselier á blaðamanna-
fundi í Hollywood í gær. Hún
segir að tekið verði erfðaefnis-
sýni úr barninu og móðurinni til
þess að sanna að erfðaefni
þeirra mæðgna sé eins. Þar með
fáist staðfesting á því að ein-
ræktun hafi átt sér stað.
Vísindamenn segjast þó fyrst
verða að fá að vita hvernig
erfðaprófið var framkvæmt
áður en þeir geti staðfest ein-
ræktun.
Ítalski læknirinn Severino
Antinori, sem segist hafa ein-
ræktað þrjú börn, sem eiga að
fæðast á allra næstu vikum, seg-
ist ekkert mark taka á yfirlýs-
ingum Boisselier.
Efasemdir um fullyrðingar
hennar stafa ekki síst af trúar-
skoðunum hennar. Hún er í trú-
arsöfnuði sem heldur því fram
að geimverur hafi í öndverðu
skapað allt líf á jörðinni með
erfðatækni. ■
Bandarískur efnafræðingur:
Segist hafa einræktað barn
BRIGITTE BOISSELIER
Trúir því að geimverur hafi
skapað allt líf á jörðinni og
segist nú hafa einræktað
stúlkubarn.
AP
/S
TE
PH
EN
J
. B
O
IT
AN
O
LÖGREGLUMÁL Þórkatla Halldórs-
dóttir, eiginkona manns sem
særði hundinn Sám skotsárum í
Skerjafirði aðfaranótt annars
dags jóla, segir að í apríl á þessu
ári hafi Sámur ásamt tíkinni Týru
brotist inn í ramm-
gert kanínubúr í
garði þeirra við
Bauganes.
Að sögn Þór-
kötlu átu hundarn-
ir aðra kanínuna í
búrinu upp til
agna að frátöldum
dindlinum og ör-
litlu af innyflum.
Hin kanínan hafi
gersamlega horfið
með húð og hári þar til hún fannst
niðurgrafin í garði nágranna í
næstu götu.
Heimilisfólkið var óttaslegið
vegna árásarinnar, segir Þórkatla.
Sjálf hafi hún átt einn mánuð
ógenginn í barnsburð. Erfitt hafi
verið að sjá fyrir sér að barnið
yrði lagt í barnavagn úti við með
árás hundanna yfirvofandi.
„Hundarnir eru ofboðslega
stórir. Í útlit minna þeir á ísbjarn-
arhúna og eru í rauninni mjög
sætir. En þeir eru þó ekki sætir
þegar þeir byrja á urra á mann.
Það er alveg á hreinu,“ segir Þór-
katla.
Þórkatla segir að eiginmaður
sinn hafa gripið til byssunnar í
fyrrinótt sem örþrifaráðs. Gat
hafi verið komið á kanínubúrið.
Þrátt fyrir að maðurinn hafi gert
hróp að hundunum og kastað að
þeim ýmsu lauslegu á borð við
spýtur og blómapotta, hafi þeir
hvergi hopað. Eftir að hafa skotið
af tvíhleyptri haglabyssu á Sám
hafi maðurinn tilkynnt atburðinn
til lögreglunnar.
Sámur og Týra eru svokallaðir
Samojed-hundar sem ættaðir eru
frá Síberíu. Eigandi þeirra er
Guðmundur Pálsson. Hann viður-
kennir að Sámur sé afar veikur
fyrir kanínum þó hundarnir séu
báðir sauðmeinlausir fjölskyldu-
hundar. Fyrir algjöra slysni hafi
hundarnir sloppið í gönguferð um
Ægisíðuna á jóladagskvöld.
„Það er ekki hægt að neita því
að Sámur er alveg vitlaus í kanín-
ur og reyndar í ketti líka, sem
hann nær þó aldrei. Sennilega
þróaði hann þessa áráttu með sér
í Noregi þar sem hann var oft með
mér í skógum og til fjalla,“ segir
Guðmundur.
Guðmundur er nýlega fluttur á
Ægisíðuna en bjó áður í Mosfells-
bæ þar sem einnig voru vandræði
vegna ódrepandi áhuga Sáms á
kanínum. „En það var eindregin
niðurstaða dýralæknis sem skoð-
aði Sám á sínum tíma að hann
væri meinleysisgrey. Hann hefur
aldrei nokkurn tíma urrað á fólk,“
segir Guðmundur.
gar@frettabladid.is
FAGNAÐARFUNDIR Á DÝRASPÍTALANUM
Hundurinn Sámur fékk aðhlynnningu á Dýraspítalanum í Víðidal eftir skotárás í fyrrinótt.
Sámur var uppburðarlítill þegar eigandinn, Guðmundur Pálsson, vitjaði hans í gær í fyrsta
skipti eftir atburðinn. Fjarlægja þarf tugi hagla úr höfði og hálsi dýrsins.
Sauðmeinlaus en
veikur fyrir kanínum
Eiginkona mannsins sem skaut með haglabyssu á hundinn Sám í
Skerjafirði segir hundinn áður hafa drepið kanínur fyrir hjónunum.
Eigandi Sáms segir hann veikan fyrir kanínum eftir vist í Noregi.
„Það er ekki
hægt að neita
því að Sámur
er alveg vit-
laus í kanínur
og reyndar í
ketti líka, sem
hann nær þó
aldrei.“
AP
/S
U
ZA
N
N
E
PL
U
N
KE
TT
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T