Fréttablaðið - 28.12.2002, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 28.12.2002, Blaðsíða 14
14 28. desember 2002 LAUGARDAGUR Guðmundur Jónsson ræðir líf sitt og um árin í Byrginu. Ungmenni sem koma í meðferð en ættu alls ekki að vera þar. Hvernig er að sjá á eftir mönnum detta í það og gleðina yfir að geta hjálpað þeim til lífs á ný. Hef séð stórkostlega hluti gerast Fáir dagar ársins eru frídagarhjá Guðmundi Jónssyni for- stöðumanni Byrgisins. Það er samofið lífi hans sem allt snýst meira eða minna um fólkið sem þar er. Jafnvel á aðfangadag er Guðmundur úti að ná í mann sem hann hafði fregnað að héldi til í leku skúrræskni. Hann tekur hann heim með sér en ekur honum síðan í Byrgið síðar um kvöldið. Fjölskylda Guðmundar fagnar manninum og vílar ekki fyrir sér að bæta einum til við matarborðið um kvöldið. Það er aðeins í takt við það sem þau hafa gert undan- farin ár. „Enda hefði aldrei neitt Byrgi orðið til án konunnar og barnanna. Þau hafa tekið þátt í þessu með mér og börnin gengið oftar en þau muna úr rúmi fyrir menn sem hvergi hafa átt höfði að halla,“ segir Guðmundur. Það þýðir lítt að ætla sér að ná tali af honum á ákveðnum tíma; Byrgið gengur fyrir. „Mér dvald- ist lengur en ég ætlaði því það voru svo margir mikið veikir,“ segir hann loks þegar komið er fram yfir kvöldmat á helgidegi og hann getur slakað augnablik á frá erli dagsins. Hvað getur þú gert í slíkum til- vikum? „Ég reyni að stappa stálinu í þá sem vilja fara út. Jólin eru erfiður tími og þá kemur ákveðið los á mannskapinn. Ég kalla alla í fyrir- lestur þar sem ég uppörva og hvet sjúklingana. Ég bendi þeim á hvað þeir geti gert í því sem við köllum hugsvik. Menn eru tvístígandi; þeir vilja fara en langar það samt ekki. Það brýst um í þeim því þeir vita hvar þeir enda ef þeir taka skrefið út. Þegar þetta kemur yfir menn skiptir miklu máli hvort þeir eru búnir að vera þrjá fjóra daga eða þrjá fjóra mánuði. Tím- inn vinnur með þeim og við erum svo miklu færari um að hjálpa þeim eftir því sem tíminn er lengri. Þá erum við farin að þekkja þá betur og vitum hvernig skal bregðast við.“ Virkar fyrirlestur? Já, eins merkilegt og það getur verið eftir einn svona tveggja tíma fyrirlestur þá kemst ákveðin ró yfir og menn slaka á.“ Er ekki sárt að sjá á eftir mönn- um út sem hafa náð góðum árang- ir og eru komnir á beinu brautina? „Jú, það er alltaf jafn sárt að sjá í iljarnar á fólki. Að sama skapi er erfitt að frétta af mönn- um, sem hafa náð góðri edrú- mennsku, í drykkju á ný.“ Fylgist þið með ykkar mönnum á götunni? „Já, við reynum það eftir föng- um og heimsækjum þessa staði sem þeir dvelja mest á. Ég reyni að ræða við þá og býð þeim að koma aftur. Þeim líður mjög illa og löngunin er fyrir hendi. Það er bara svo erfitt stundum að taka þetta skref. En þá er ekki um ann- að að ræða en koma aftur daginn eftir og það kemur að uppgjöfinni og þeir taka skrefið á ný.“ Guðmundur segir að það sé furðulegt en stundum sé eins og fall geti hjálpað mjög mikið. Það er eins og menn átti sig þá á hvað það var sem þeir sáu í ljósrauðum bjarma. Það var ekki eins gott eins og þeir héldu. „Reynsla verð- ur nefnilega ekki reynsla fyrr en menn hafa reynt. Fallið þarf ekki að standa lengi yfir, kannski nokkra daga, en það verða ákveð- in vatnaskil og menn verða endan- lega edrú.“ Guðmundur segir að daginn áður hafi hann hitt mann sem ver- ið hafi hjá sér og náð góðum ár- angri. „Hann missti fæturna fyrir tveimur árum og datt í það. Í stað þess að drekka mikið fór hann að nota róandi lyf og annað dóp. Það var skelfilegt að sjá hann. Hann fór frá okkur í góðu ásigkomulagi, tilbúinn til að takast á við lífið. Þessi stóri og myndarlegi maður var orðinn 40 kíló, óhreinn með flóka í hárinu og gat ekki gert sig skiljanlegan. Ef menn muna hvernig Gísli á Uppsölum talaði þá var það eitthvað svipað sem kom út úr honum þegar hann reyndi að tala. Mér varð svo brugðið að ég grét. En hann kom með mér í Byrgið og er þar nú. Það er það sem skiptir máli.“ Sumir hafa verið á götunni frá barnsaldri Guðmundur segist hafa séð stórkostlega hluti gerast; menn sem taldir hafa verið vonlausir sýni að enginn er vonlaus. „Það er með þetta eins og barnið sem er að læra að ganga. Við reisum það upp aftur og aftur þar til það tek- ur skrefin eitt og óstutt.“ Margir þeirra sem koma til þín hafa verið á götunni frá barnsaldri og kunna jafnvel ekki að borða með hníf og gaffli. Er þetta ein allsherjar endurhæfing? „Það má segja það. Við tökum á öllum þessum þáttum því það skiptir svo miklu máli fyrir sjálfs- virðinguna. Við gerum þá kröfu að menn séu vel snyrtir og rakað- ir og komi vel fram. Það hjálpar manni að átta sig á hvort viðkom- andi er á fallbraut. Ef einhver hættir að sinna sjálfum sér þá staldrar maður við og segir: „Bíddu við, á hvaða leið ert þú vinur?“ Undantekningarlaust þá eru menn á fallbraut ef þeir hætta að hirða um sig. Því er svo mikil- vægt að menn einangri sig ekki þegar þeir fara að standa á eigin fótum. Þeir verða að vera á AA- fundum eða á kristilegum fundum þar sem félagarnir taka eftir ef menn eru að fara út af brautinni og benda þeim á.“ Guðmundur hefur þá trú að það sé munur á fyllibyttum og alkóhólistum. „Fyllibyttan hefur vanið sig við drykkju því honum líður illa og hefur ekkert annað að gera. Allt í hans mynstri er þess eðlis að með breyttu lífsmynstri getur hann dregið úr. Fyllibyttan getur drukkið alla ævi án þess að hann hrynji niður andlega og fé- lagslega. Það getur alkóhólistinn ekki. Þar liggur munurinn.“ Guðmundur heldur því jafn- framt fram að margt þeirra ung- menna sem lent hafa í dópi séu alls ekki alkóhólistar og því ekki rétt að taka á þeim á sama hátt og mönnum sem drukkið hafa í áraraðir og eru komnir langt nið- ur. „Þessir ungu krakkar eru að leita, þau eru firrt og geta ekki staðsett sig. Oft koma þau frá brostnum heimilum og eru að vekja á sér athygli, hafa ekki fundið sig en eru búin að fara illa með sig. Þessir krakkar þurfa annars konar meðferð. Þau þurfa ekki þá meðferð sem hefur staðið þeim til boða fram að þessu.“ Færðu mörg svona ungmenni? „Já, og til að mynda var hjá mér stúlka núna nýlega sem er tæplega tvítug. Hún hefur verið í slæmum félagsskap og lagst út með einhverju þokkaliði. Faðir hennar sendir hana aftur og aftur í meðferð því hann er ráðalaus. En það er ekkert að þessari stelpu annað en hún er spillt af eftirlæti með lélega sjálfsvirðingu og finnst þetta spennandi líf. Hún hefur verið send til útlanda og þá er allt í fína lagi með hana. En þegar hún kemur heim sækir hún alltaf í þennan félagsskap. Ég veit um mörg viðlíka dæmi.“ Enginn getur hætt að drekka nema hafa trú Byrgið hefur einnig tekið við föngum sem ljúka sinni afplánun þar. Guðmundur segir það hafa gengið mjög vel og það aldrei koma fyrir að menn reyni að fara Axel, hvað hefur orðið um alla útigangmennina sem haldið hafa til á Hlemmi?“ Axel sagðist ætla að athuga það og hringdi síðan í hann skömmu síðar. „Ólafur minn, það er einhver maður úr Hafnarfiði sem kemur alltaf og nær í þá, svei mér að ég viti hvað verður um þá. En mér er sagt að þeir verði edrú hjá honum. Þeir segja mér í fangageymslunni að þeir séu hættir að gista þar.“ ,, GUÐMUNDUR JÓNSSON FORSTÖÐUMAÐUR „Mér sárnar mjög þegar bæjaryfirvöld í Sandgerði tala um að vilja losna við okkur. Að við höfum slæm áhrif á bæjarbúa vegna þess að einhverjir kunna að hafa tattú.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.