Fréttablaðið - 28.12.2002, Page 30
30 28. desember 2002 LAUGARDAGUR
ÓKEYPIS
Gleðileg jól og til
hamingju með afmælið
53 ÁRA „Það stóð alltaf á jólagjöf-
unum mínum Gleðileg jól og til
hamingju með afmælið,“ segir
Stefán Jökulsson hlæjandi, að-
spurður hvort ekki sé aldeilis af-
leitt að eiga afmæli milli jóla og
nýárs. Hann þorir þó ekki að
taka of djúpt í árinni með hvort
innihald pakkanna hafi verið í
samræmi við tvöfalt tilefni, en
segist alltaf hafa fengið afmæl-
isveislu á sjálfan afmælisdag-
inn. Á afmælisdaginn í ár er
Stefán hins vegar að vinna.
„Þegar maður er kominn á þenn-
an aldur þá sefur maður ekki út
lengur. „Þetta verður hefðbund-
in laugardagsrútína, ég vakna
án þess að stilla klukkuna og
glugga svo í blöð og bækur og
hef það huggulegt fram eftir
morgni.“ Upp úr hádeginu fer
Stefán til vinnu, en hann er að
taka upp spjallþátt sem verður
útvarpað á nýársdag á RÚV. „Ég
var starfsmaður Ríkisútvarps-
ins í gamla daga, en er frílans
núna,“ segir hann.
Þar fyrir utan er Stefán að
spila dinnermúsík. „Ég er orðinn
hálf linur í dansleikjatónlistinni,
en hef verið að skemmta með
söngkonu sem heitir Arna Þor-
steinsdóttir og svo höfum við
Raggi Bjarna komið fram sam-
an.“
Stefán segist örugglega fá
góðan mat í dag og krakkana sína
í heimsókn. „Annars hef ég
aldrei, eftir að ég komst á full-
orðinsár, haldið upp á afmælið
mitt. Ég veit ekki hvað veldur,
kannski vegna þess að ég hef
spilað í svo mörgum afmælum.“
Hann segir sem sagt ekki hægt
að ganga að því vísu að hann
haldi upp á afmælið sitt með
spileríi og söng, en aftekur ekki
að gera það með stæl næst þegar
hann stendur á tug. Stefán vinn-
ur við kennslu ásamt því að vera
að skrifa doktorsritgerð í félags-
fræði. „Skriftirnar ganga þokka-
lega vel, ég heiti því að verða bú-
inn með ritgerðina fyrir sextugs-
afmælið,“ segir hann kampakát-
ur að síðustu. ■
FÓLK Í FRÉTTUM
AFMÆLI
Einu sinni var ég að taka próf íÞýskalandi með sirka 250
manns úr öllum heimshornum. Að
hornfirskum sið var ég í pilsi á
þessum prófdegi. Fyrst var endur-
sögn sem átti að skila klukkutíma
síðar. Ég var haldin fruntalegu
próförvæni en brá mér samt fram
í hléinu og pissaði á amerískum
hraða. Gekk svo um gólf fyrir
framan opnar dyrnar inn í salinn
og slatti af krökkum voru í sömu
sporum. Ég reykti ákaflega og
starði í kringum mig af
akademískri einbeitingu. Fljótlega
sá ég nýjan strák í hópnum, greini-
lega af suðrænu bergi brotinn og
sendi mér merkingarþrungið
augnaráð og bendingar. „Andskot-
inn sjálfur,“ hugsaði ég, „ekki ein-
leikin þessi ódrepandi viðreyning-
arhvöt liðsins úr heitu löndunum,
þrjóskan og einurðin slík að hin ís-
lenska sauðkind og Framsóknar-
flokkurinn sýnast viljalausar lið-
leskjur í samanburðinum, þetta
gefst aldrei upp, við erum í miðju
prófi, kommon!“ Lengi vel þóttist
ég ekki sjá ákaft handapatið,
spjallaði bara við fólk, skrölti
fram og aftur, reykti meira,
drakk dáldið vatn, en það var
enginn bilbugur sýnilegur hjá
drengnum svo ég strunsaði að
honum og hvæsti einsog glænýtt
sænskt slökkvitæki og af engri
kurteisi: WAAASSSS? - „Sjálfur
Allah sé yður náðugur kæra fro-
jlæn, hann gæfi 700 úlfalda á
fæti fyrir að mega vera í þinni
návist blablablablabla, en allt
yðar pils að aftanverðu er statt
ofan í nærbuxum yðar.“ Immitt,
ég bjó mig betur í skyndi og
staulaðist almislukkuð inn í próf-
ið. Mig minnir að æðri máttar-
völd hafi klárað prófið fyrir mig,
alla vega náði ég því. Hef æ síðan
tendrað á æðruleysisperunni
þegar próf og pils eru á dagskrá,
og sendi uppréttar jóla- og nýárs-
kveðjur til stráksins, hvar sem
hann er niðurkominn á jarðar-
kringlunni! ■
Védís Skarphéðinsdóttir, ritstjórnarfulltrúi
hjá Læknablaðinu, segir frá prófstressi í
Þýskalandi og skorar á Gunnlaug Johnson
arkitekt að segja næstu sögu.
Sagan
Kynferðisleg áreitni í prófi
TÍMAMÓT
STEFÁN JÖKULSSON
Hlakkar til að vera heima á gamlárskvöld, en hann hefur yfirleitt verið að spila dinner-
tónlist á veitingahúsum þetta kvöld.
Síðasta skoðanakönnun DV semsýndi að Framsóknarflokkur-
inn næði ekki manni inn í Reykja-
vík var flokks-
mönnum og for-
manni mikið
áfall, sérstak-
lega í ljósi þess
að formaðurinn
sjálfur Halldór
Ásgrímsson
myndi falla af
þingi. Halldór
þarf þó ekki að
leita langt að hughreystingu, einn
undirmanna hans í utanríkisþjón-
ustunni hefur nefnilega verið í
sömu sporum, og reyndar nokkuð
verri, jafn
skömmu fyrir
kosningar. Það
er sendiherrann
í Finnlandi, Jón
Baldvin Hanni-
balsson. Kring-
um áramótin
1994-1995 mæld-
ist fylgi Alþýðu-
flokksins fimm
prósent á landsvísu og innan við
tvö prósent í kjördæmi formanns-
ins, sem hefði samkvæmt því ekki
náð inn á þing. Menn áttu reyndar
heiti yfir fylgið, nefndu það eftir
bjór á landsvísu og pilsner í höf-
uðstaðnum.
Hinn reyndi ævisöguritariIngólfur Margeirsson gefur
ekki mikið fyrir vinnubrögð Kol-
brúnar Berg-
þórsdóttur við
gerð Tilhugalífs-
bókar Jóns
Baldvins Hanni-
balssonar í rit-
dómi á Kreml.is.
Ingólfur segist
hafa skemmt
sér konunglega
yfir bókinni
enda Jón Baldvin með skemmti-
legri mönnum og „einn besti póli-
tíski haus sem Íslendingar hafa
séð.“ Ingólfur segir bókina þó
langt því frá lausa við galla og
skrifar þá flesta á skrásetjarann,
sem hafi einfaldlega verið í hlut-
verki „vélritunardömu“ Jóns
Baldvins og skrifað orð hans upp
gagnrýnislaust af segulbandi.
Þarna bregst hún hlutverki sínu
að mati meistarans og gloppur
standa eftir óútfylltar. „Þarna
blasir við reynsluleysi Kolbrúnar
sem höfundar. Hún er vön blaða-
viðtölum og punktur. Hún er ekki
höfundur“. Þessi skoðun Ingólfs
breytir þó engu um það að hann
bíður spenntur eftir framhaldinu.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að upp á
stól stendur mín kanna.
Leiðrétting
VÉDÍS SKARPHÉÐINSDÓTTIR
„Ég reykti ákaflega og starði í kringum mig
af akademískri einbeitingu. Fljótlega sá ég
nýjan strák í hópnum, greinilega af suð-
rænu bergi brotinn og sendi mér merking-
arþrungið augnaráð og bendingar.“
LÓÐRÉTT: 1 fíkniefni, 2 mynni, 3 hrasa, 4 þefar, 5 kyn, 6 þvöl, 7 súpuskál,
8 slegna, 11 eirðarlausi, 14 þungi, 16 dáinn, 18 könnun, 20 durgum,
21 hræðast, 23 hindrar, 26 söngli, 28 fjölga, 30 tómi. 31 hungur, 33 ásamt.
LÁRÉTT:
1 lof,
4 nærri,
9 poka,
10 glutrar,
12 jurt,
13 rita,
15 lengdareining,
17 deila,
19 afkomanda,
20 umkringir,
22 blómi,
24 planta,
25 dæld,
27 fugl,
29 kvölds,
32 lélegu,
34 röð,
35 óttaslegið,
36 formaði,
37 grind,
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 slök, 4 krónur, 9 forláta, 10 ötul, 12 æstu,
13 rugluð, 15 usla, 17 alir, 19 tíð, 20 skart, 22 örina, 24 kul, 25 umla, 27 orms,
29 ættina, 32 ekil, 34 aðal, 35 náðinni, 36 magnar, 37 snös. Lóðrétt: 1 skör,
2 öfug, 3 kollar, 4 klæði, 5 rás, 6 óttu, 7 nausti, 8 rómaða, 11 tuskur, 14 ultu,
16 línuna, 18 rölt, 20 skoðum, 21 algeng, 23 ratans, 26 mælir, 28 skán, 30 iðin,
31 alls, 33 iða.
KROSSGÁTA
Stefán Jökulsson er einn af þeim sem eiga afmæli sem týnist stundum
í jóla- og áramótaundirbúningi. Hann lætur það þó ekkert á sig fá
og tekur daginn rólega.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Dökkhærð kona átti ljóshærðanmann. Þau lifðu í farsælu
hjónabandi og áttu von á barni.
Þegar að fæðingunni kom ók sá
ljóshærði konu sinni með hraði á
fæðingardeildina og fæddust
þeim hjónum tveir myndarlegir
synir. Frúin var að vonum stolt og
glöð en hinn ljóshærði bóndi
hennar spurði hana gramur:
„Og hver er svo hinn pabbinn?“
Flugeldasýning í Hafnarfirði.Sparisjóður Hafnarfjarðar á
100 ára afmæli um þessar mundir
og fagnar því með risaflugelda-
sýningu á sunnudag. Fátt eins
skemmtilegt og að sjá Hafnar-
fjörð upplýstan. Eins og að vera í
stríði ef ímyndunaraflinu er beitt.
Með tilheyrandi hvellum. Utan-
bæjarfólki finnst það vera í út-
löndum þegar það leggur í ferða-
lag í eitt elsta útgerðarpláss
landsins. Skemmir ekki að fá flug-
eldasýningu í kaupæti.
JARÐARFARIR
14.00 Bjarni Ásgrímur Jóhannsson,
Víðilundi, verður jarðsunginn frá
Hofsóskirkju.
14.00 Ragnheiður Eiríksdóttir, Egilsseli,
verður jarðsungin frá Egilsstaða-
kirkju.
ANDLÁT
Björg Benediktsdóttir, Barkarstíg 1,
Akureyri, lést 23. desember.
Lína Langsokkur.
Að hafa ljóstrað upp um brot á
árinu innan vinnustaðar síns.
KR.
1.
2.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
3.
Meðlagsgreiðendur!
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta
og forðist vexti og kostnað
Lágmúla 9 - 108 Reykjavík - Kt. 530372-0229 - www.medlag.is
Banki 0139-26-4700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101
AF FRJÁLSUM VILJA
Sparið ykkur tíma og vinnu.
Ingimar Sveinsson verður
með tamninganámskeið
10. til 12. janúar.
Upplýsingar og skráning
í síma 899 4600 (Bjarni) og 575 1566
Reiðskólinn Þyrill – Reiðhöllinni Víðidal.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó