Fréttablaðið - 28.12.2002, Blaðsíða 32
!
"
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
1
63
80
12
/2
00
1
Útsalan stendur yfir
til þriðjudags.
20-50% afsláttur af kertum
•gervijólatré
•jólapappír
•jólaseríur
•jólaskraut
•jólatrésfætur
•jólaskreytingar
•& fleira & fleira
Jólalegur
heilahristingur
50% afsl. í dagí Nammilandi
Hagkaup Smáralind og Kringlunni
Íslátrinu á haustdögum saumaðiReykásættin vambir og býsnaðist
yfir sviknum loforðum borgarmeist-
arans. Mannskapurinn hneykslaðist
líka á því að veislustjórinn ætlaði að
lauma sér bakdyramegin út rétt um
það bil sem veislan væri að hefjast.
Annað hljóð var komið í strokk
Reykása í jólaboðinu. Pólitík snýst
náttúrlega um tímasetningar og ekk-
ert annað. Nú er staður og stund til
að drífa sig í landsmálin. Borgar-
meistarinn getur líka bjargað þjóð-
inni frá leiðinlegum og óspennandi
kosningum.
Í JÓLABOÐI REYKÁSA áttu
menn ekki orð yfir framsóknarkóng-
inn sem virðist til í að sprengja heila
borgarstjórn til þess eins að bjarga
sætinu sínu í Reykjavík. Svo hneyksl-
uðust Reykásar á því að samsteypu-
stjórnin í borginni væri að verða eins
og ríkisstjórnin og léti það fréttast að
hún héngi bara saman á einni lím-
klessu. Yfir konfektinu voru menn
sammála um að hver maður réði sínu
eigin lífi. Mönnum þóttu frammarar
líka vanþakklátir eftir að hafa setið á
háhest á herðum annarra árum sam-
an í höfuðstaðnum með sitt ósýnilega
fylgi.
VÆNTANLEGA hafa margir lands-
menn fengið boxjólapakka. Í það
minnsta var gjafapakki fyrir börn og
unglinga auglýstur fyrir jól ásamt
byrjendapakka og gæðapakka fyrir
lengra komna. Þessi jólaskemmtun
kostaði lítinn tuttuguþúsund kall -
skítur á priki miðað við nánu sam-
skiptin sem innihaldið býður upp á á
aðfangadagskvöld. Jólagjöfin í ár var
heilahristingur, glóðarauga og
sprungin vör. Jólatréð var bara fært
til og fjölskyldan boxaði saman. Það
er notalegt til þess að vita að stóru
hugsjónir Ástu og Gunnars hafi skil-
að sér í jólapakkana.
SJÁLFSTÆÐAR sprengjusveitir
safna nú tertum, kínverjum og krús-
índúllum, leggja miklar fjárhæðir
undir og slá jafnvel skátunum við.
Þarna er á ferðinni skemmtileg pissu-
keppni. Kapparnir bíða fram yfir
miðnætti, standa úti í glugga og
hinkra eftir því að hinir hætti. Þegar
himininn er orðinn nokkuð svartur á
ný, bera menn eld að ofurstórum
tertum og þjófavarnir hrökkva í
gang. Landkönnuðir ferðast yfir
hnöttinn til þess að fylgjast með ein-
angruðum eyjaskeggjum á norður-
hjara sem sprengja formúgur upp í
himinhvolfið. Stærri og öllu alvar-
legri pissukeppni verður haldin úti í
heimi eftir áramót þegar Bússi og
hans menn fara til Írak með sínar
sprengjur, en það er nú önnur saga. ■
Bakþankar
Kristínar Helgu Gunnarsdóttur