Fréttablaðið - 10.02.2020, Qupperneq 4
Þjóðskrá mun ekki taka
við beiðnum um hlutlausa
skráningu kyns á þessu ári.
JEEP® GRAND CHEROKEE
FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
• 3.0L V6 DÍSEL
• 250 HÖ / 570 NM TOG
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN
• LÆSING Í AFTURDRIFI
jeep.is
AFMÆLISTILBOÐ VERÐ FRÁ: 10.390.000 KR.
AFMÆLISTILBOÐ
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
35” BREYTTUR LISTAVERÐ VERÐ FRÁ: 10.990.000 KR.
MANNRÉTTINDI Beiðnir til þjóð-
skrár um breytta skráningu kyns
voru 104 á síðasta ári. Þetta er marg-
földun milli ára en árið 2018 óskuðu
27 einstaklingar eftir breytingu á
skráningu og 20 árið 2017.
Þjóðskrá er enn ekki farin að
taka við beiðnum um hlutlausa
skráningu kyns en með lögum um
kynrænt sjálfræði sem samþykkt
voru í júlí í fyrra er tryggður réttur
einstaklinga til slíkrar skráningar.
Þjóðskrá var veittur átján mánaða
frestur til að aðlaga upplýsingakerfi
sín eftir samþykkt laganna og stofn-
unin mun ekki taka við beiðnum
um slíka skráningu fyrr en að þeim
fresti liðnum, upp úr næstu ára-
mótum.
Með hinum nýsamþykktu lögum
verður skráning nafna í nafnaskrá
Þjóðskrár ekki lengur kyngreind
sem þýðir að sé nafn í mannanafna-
skrá geti allir tekið það upp óháð
kyni.
Frá gildistöku laganna 5. júlí
2019 hefur borist 1.021 umsókn um
nafnbreytingu (til 10. janúar 2020). Í
svari Þjóðskrár kemur fram að ekki
sé hægt að sjá að gildistaka laganna
hafi haft áhrif á fjölda umsókna um
nafnbreytingu. Þvert á móti hafi
þær dregist saman og færri beiðnir
um nafnbreytingar borist árið 2019
en árið 2018, og eins bárust færri
beiðnir um nafnbreytingu árið 2018
en 2017. – aá
Mikil fjölgun umsókna um breytta skráningu kyns
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
ÖRYGGISMÁL Bæjarráð Voga á
Vatnsleysuströnd hyggst láta kanna
kostnað við uppsetningu færan-
legrar varaaflsstöðvar. Því fylgir að
koma upp tengingum á byggingu
Stóru-Vogaskóla, sem er skilgreind
sem fjöldahjálparstöð í Vogum.
„Bæjarráð ítrekar jafnframt
bókun bæjarstjórnar um mikil-
vægi þess að unnin verði rýming-
aráætlun fyrir sveitarfélagið,“ segir
í bókun. – gar
Þurfa varaafl og
rýmingaráætlun
Vogar á Vatnsleysuströnd.
1 Yfir 800 látin af völdum kóróna veirunnar Fleiri
hafa nú látist af völdum kóróna
veirunnar en HABLveirunnar, sem
skók Kína á árunum 2002 til 2003
og dró 774 til dauða.
2 Skóla stjóri Pat reks skóla boðar for eldra á fund vegna
ein eltis máls For eldrar barna í
Pat reks skóla hafa verið boðaðir
á fund þar sem farið verður yfir
við brögð Vestur byggðar vegna
frétta flutning um ein eltis mál
gagn vart kennara í skólanum.
3 Hjúkrunarnemar taka snún-ing á Frikka dór: „Til í vakt“
Hjúkrunarnemar gera óspart grín
að álaginu á Landspítalanum í
opnunarlagi árshátíðarmynd
bandsins sem var frumsýnt í gær.
4 Glæ nýr lendinga rbúnaður í flug vél Icelandair gaf sig
Flug vél Icelandair sem hlekktist
á eftir lendingu á föstu daginn var
ný komin úr skoðun þar sem skipt
hafði verið um lendingar búnað.
SAMGÖNGUR Verkefnið ber vinnu-
heitið Niceair og er undirbúnings-
vinnan langt á veg komin. Á dög-
unum veitti Uppbyggingarsjóður
Norðurlands eystra verkefninu
styrk til þess að kanna til fullnustu
hvort verkefnið beri sig. Meginað-
standendur verkefnisins eru Sam-
herji, Höldur og Norlandair en að
auki eru önnur norðlensk fyrirtæki
og hagsmunaaðilar verkefninu til
stuðnings.
„Við erum sannfærð um að
grundvöllur sé fyrir áætlunarflugi
milli Evrópu og Íslands um Akur-
eyrarflugvöll og ætlum að nýta tím-
ann til kostgæfnisathugana áður en
næstu skref verða tekin í lok apríl.
Reynsla annarra f lugfélaga, eins
og Transavia og Titan Airways,
bendir til þess að eftirspurnin sé
til staðar,“ segir Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson, sem leiðir verkefnið
fyrir hönd fjárfesta. Hann bendir á
að upptökusvæði í kringum f lug-
völlinn sé hið sama og í Færeyjum
en þaðan séu að lágmarki fjögur
millilandaflug á degi hverjum. Að
auki sé stígandi í komu ferðamanna
til svæðisins.
Að sögn Þorvalds er millilanda-
f lug um Akureyrarf lugvöll risa-
stórt hagsmunamál. Ekki bara
fyrir ferðamenn til og frá Akureyri
heldur ekki síður atvinnulífið. „Það
eru mörg öflug fyrirtæki á svæðinu
sem starfa við útf lutning og það
kallar á ferðalög starfsfólks til meg-
inlandsins. Það yrði gríðarleg hag-
ræðing fyrir þessi fyrirtæki ef þau
gætu sparað sér ferðalag starfsfólk
til Keflavíkur. Þetta myndi hjálpa
til við að jafna aðstöðumuninn
við fyrirtæki á suðvesturhorninu,“
segir Þorvaldur. „Við erum einnig
að gefa okkur að fyrir þau 50 þús-
und manns sem þurfa að aka í 6-9
klukkustundir til að komast í milli-
landaflug í Keflavík, gista eina eða
tvær nætur og verja í það tveimur
vinnudögum, muni ferðahegðun
heimamanna brey t ast hrat t .
Reynslan af Suðvesturhorninu sýnir
að minnsta kosti fram á það.”
Hann bendir á að á meðan sam-
dráttur sé í komu ferðamanna til
Keflavíkur sé raunveruleikinn allt
annar fyrir norðan. „Hér hefur verið
mikil aukning flugfarþega undan-
farin ár. Í fyrra var aukningin tæp-
lega 40 prósent og rúmlega 70 pró-
sent árið áður,“ segir Þorvaldur.
Margt bendir til þess að annar
hópur erlendra ferðamanna hafi
áhuga á f lugi til Akureyrar en til
Kef lavíkur. „Þetta eru oft endur-
komuferðalangar, sem hafa þegar
skoðað suðvesturhornið og vilja
upplifa eitthvað nýtt. Einnig eru
þetta ferðamenn sem hafa áhuga
á að ferðast hingað á vetrartíma,
meðal annars til þess að fara á skíði.
Það er því okkar trú að allir muni
hagnast á því ef önnur gátt er opnuð
inn í landið. Þetta er þjóðhagsmál,“
segir Þorvaldur.
Hann segir aðstandendur Niceair
mjög meðvitaða um að fjármögnun
fyrirtækisins þurfi að vera traust
enda fer öll óvissa um rekstrarhæfi
flugfélaga illa í mögulega viðskipta-
vini. „Ef af verkefninu verður þá er
ljóst að við munum tryggja fjár-
magn til þess að reka félagið svo
lengi sem á þetta skal láta reyna,
eða 24-36 mánuði, þannig að f lug-
farþegar geta óhræddir bókað flug
fram í tímann, ef af verður.“
Helsta hindrunin varðandi áætl-
anir félagsins sé Akureyrarf lug-
völlur. Hann sé löngu sprunginn og
nauðsynlegt sé að fjárfesta í upp-
byggingu vallarins. „Það voru gríð-
arleg vonbrigði að sjá að ekki ætti að
setja neitt fjármagn í uppbyggingu
hér. Uppsöfnuð þörf er um 2,5 millj-
arðar króna og algjörlega fráleitt að
sú þörf sé hunsuð. Ekki bara út frá
ferðamennsku heldur er líka mikil-
vægt, út frá öryggissjónarmiðum,
að til sé fullbúinn varaf lugvöllur
fyrir Keflavík.
Umferð um Kef lavík hefur þre-
faldast á tíu árum, á sama tíma og
stjórnvöld hafa skorið niður fjár-
magn til varaflugvalla Keflavíkur,“
segir Þorvaldur. Nýleg dæmi afjúpi
neyðarástand þegar Keflavík lokast.
Hann sé þó vongóður um að stjórn-
völd muni sjá að sér í málinu.
Eins og áður segir er undirbún-
ingsvinna í fullum gangi og reiknar
Þorvaldur með að tíðinda sé að
vænta í lok apríl.
bjornth@frettabladid.is
Undirbúa nýtt flugfélag til að
tengja Eyjafjörð við Evrópu
Hópur fjárfesta á Eyjafjarðarsvæðinu kannar nú til hlítar grundvöll fyrir áætlunarflugi milli Akureyrar
og Evrópu. Verkefnastjórinn segir að eftirspurnin sé til staðar en fjársvelti Akureyrarflugvallar sé helsta
hindrunin. Samgönguáætlun geri ekki ráð fyrir fjárfestingum í vellinum sem hafi verið mikil vonbrigði.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson leiðir verkefnið fyrir hönd öflugra fjárfesta.
Við erum sannfærð
um að grundvöllur
sé fyrir ætlunarflugi milli
Evrópu og Íslands um
Akureyrarflugvöll.
1 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð